Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983 5 Eftir undirritun samnings um Keldur og Keldnaholt: Reykjavíkurborg getur strax hafið framkvæmdir Davíð Oddsson, borgarstjóri, með þeim Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, borgarfulltrúa, Þórði Þorbjarnarsyni, borgarverk- fraeðingi, og Markúsi Erni Antonssyni, borgarfulltrúa, en þeir skipuðu viðræðunefnd borgarstjórnar við fulltrúa menntamálaráðuneytisins um málefni Keldna og Keldnaholts. (Ljósm. Mbi. rax> BORGARRÁÐI Reykjavíkur var í gær kynnt samkomulag mcnnta- málaráðherra og borgarstjóra um málefni Keldna og KeldnaholLs og makaskipti á löndum, sem undirrit- að var á fimmtudag. Verður sam- komulagið tekið fyrir á fundi borgar- stjórnar 3. febrúar næstkomandi. Samkvæmt samkomulaginu getur Reykjavíkurborg þegar við undir- skrift þess hafið framkvæmdir á því landi sem í hennar hlut fellur á hinu umsamda svæði. Samkomulagið er háð staðfestingu fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs, samþykki al- þingis og borgarstjórnar Reykjavík- ur. I tengslum við samkomulagið var gengið frá afmörkun lóðar Háskóla Islands báðum megin við Suðurgötu. Samkvæmt samkomulaginu falla í hlut Reykjavíkurborgar lönd i eigu ríkissjóðs vestan Vest- urlandsvegar, samtals 155,46 hektarar þar á móti fær ríkissjóð- ur í sinn hlut 155,46 hektara lands, einnig vestan Vesturlandsvegar og úr landi Reynisvatns. Eru þær landspildur sem falla í hlut hvors aðila nákvæmlega tilgreindar í samkomulaginu. Svæðið úr landi Reynisvatns, milli Reynisvatns- vegar og Úlfarsár að undanskildu 50 m breiðu belti meðfram ánni er ætlað til túnræktar og beitarnota. Ákvæði eru um það, að samn- ingsaðilar muni setja á laggirnar 4ra manna samvinnunefnd um skipulagsmál Keldna og Keldna- holts, skipaða 2 fulltrúum frá hvorum aðila. Verkefni samvinnu- nefndarinnar skal vera að láta Afmörkun háskóla- lóðarinnar SAMKOMULAGl menntamála- ráðherra og borgarstjóra um mál- efni Keldna og Keldnaholts fylgir yfirlýsing um afmörkun og skipu- lag lóðar Háskóla íslands, sem undirrituð var um leið og sam- komulagið. I yfirlýsingunni segir, að skipulagstillaga fyrir miðsvæði háskólans, sem fyrir liggur hjá borgaryfirvöldum, verði tekin til afgreiðslu fyrir 1. apríl 1983. Reykjavíkurborg mun nú þeg- ar láta gera nákvæman upp- drátt af háskólalóðinni, þar sem hún verði afmörkuð á grundvelli tillögu borgarverkfræðings frá 1973. í því sambandi verði at- huguð afmörkun friðlands fugla norðan og austan Norræna hússins. Aðilar eru sammála um að stefnt skuli að gerð íþrótta- aðstöðu í Vatnsmýri í stað Mela- vallarins. Þá er ráðstafað til Háskóla ís- lands landi vestan Suðurgötu á horni hennar og Hjarðarhaga, þar sem búið er að byggja verk- fræðihús 1 og 2 og hafin bygging 3ja áfanga. Á landinu stendur skemma sem háskólinn á að 77,5%, en borgarsjóður 22,5%, og mun háskólinn rífa skemmu þessa borgarsjóði að kostnaðar- lausu. Háskóli íslands greiðir ekki gatnagerðargjald af þeim byggingum, sem byggingarleyfi hefur verið veitt fyrir, en endur- greiðir borgarsjóði kaupverð húseignarinnar Klappar við Suðurgötu, sem borgarsjóður keypti á árinu 1982 og er á landi þessu. vinna deiliskipulagsáætlun fyrir þau lönd sem ríkið fær í sinn hlut. Á að leggja áætlunina fyrir skipu- lagsyfirvöld í Reykjavík til sam- þykktar innan 2ja ára. Skal ríkis- sjóður kosta sérfræðivinnu við skipulagið. Svæði ríkisins er skipt í tvo flokka eftir nýtingu, annars vegar er um að ræða svæði fyrir opin- berar stofnanir og iðnað (98,4 hektarar) og hins vegar græn svæði (57,06 hektarar). Á grænu svæði við Grafarlæk skal gera ráð fyrir rannsóknastöð á sviði fisksjúkdóma og vatnalíffræði í tengslum við fiskeldistöð í eigu ríkisins, sem nú er sunnan Graf- arlækjar og verður þar áfram. Göngu- og reiðstígur á að mestu að verða sunnan lækjarins. Hluta af grænu svæði (12 hektarar) vest- an Keldna á að girða samkvæmt nánari ákvörðun og þar mun til- raunastöðin hafa túnnytjar og að- stöðu til að viðra skepnur. Al- menningi skal heimil umferð um svæðið bæði að vetri og sumri á göngustígum sem gerðir skulu í því skyni. Þá á að haga skjólbelt- um og trjálundum þannig að þeir afmarki tilraunastöðina gagnvart íbúðabyggðinni, sem þarna rís. Við sérstakar aðstæður, til dæmis þegar verið er að rannsaka og fást við bráða sjúkdóma að Keldum og þegar ástæða þykir til skal heimilt að banna umferð almennings um svæðið tímabundið. Skal það gert í samráði við borgaryfirvöld. Inni á svæðinu er ríkinu heimilt að reisa byggingar fyrir rannsóknastarf- semi, allt að 1500 fermetrum i gólffleti og skal eðli starfseminn- ar vera þannig að vel fari á grænu svæði. Þessi byggingarréttur skal þó eigi nýttur nema brýna nauð- syn beri til, og að öðrum mögu- leikum nýttum á landi í eigu ríkis- ins, sem samkomulagið tekur. Á svæðinu úr landi Reynisvatns (19,66 hektarar) mun borgarsjóð- ur rækta 10 hektara tún og af- henda tilraunastöðinni að Keldum sem bætur fyrir þau tún sem til- raunastöðin missir úr landi Keldna. Þessu skal lokið á næstu fimm árum. Undanskilin eru vatnsréttindi og jarðvarmarétt- indi á landinu nema til eigin nota tilraunastöðvarinnar á svæðinu. í samráði við skipulagsyfirvöld borgarinnar er tilraunastöðinni að Keldum heimilt að reisa þær byggingar á landi Reynisvatns sem nauðsynlegar eru til nýtingar þess samkvæmt samkomulaginu. í aðalatriðum skal við það mið- að, að borgarsjóður annist gerð, rekstur og viðhald tengibrauta, safngatna og stofnræsa á landi ríkisins. Ríkisjóður á að annast gerð, rekstur og viðhald aðkomu- gatna, bílastæða og heimæða frá stofnræsum. Ríkissjóður á að leggja borginni að kostnaðarlausu til land undir þessi mannvirki. Reykjavíkurborg tekur að sér rekstur og viðhald vegar heim að Keldum nú þegar, enda flokkist sú gata til safngata. Af byggingum sem rísa á landi ríkisins skal greiða gatnagerðargjald eins og það verður ákveðið af borgaryfir- völdum á hverjum tíma. Gatna- gerðargjald skal ekki greitt af þeim byggingum sem hafa verið reistar, þegar samkomulag þetta er gert. Vegna mikillar aösóknar aö Jane »Fonda námskeiðunum okkar höfum viö ákveöiö aö fjölga morguntímum. Þeir eru nú kl. 9.30 og 10.30 alla virka daga. Framhaldsflokkar kl. 10.30—11.30 mánudaga — miövikudaga og föstudaga. Frjáls mæting Kennari er Inge Lise Holmenlund frá Danmörku en hún hefur sýnt og kennt leikfimi og dans víöa um heim. Jane Fonda- námskeiöin henta konum á öllum aldri. A morgunana kl. 9—12 bjóöum viö uppá aö kostnaöarlausu barnagæzlu þar sem börnin leika sér viö góöar aöstæður. Æfingastööin er opin virka daga kl. 8—22 og um helgar kl. 10—18. Verið velkomin í vandaða stöð. ÆriNGASTOÐlN ENGIHJALLA 8 * ®46900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.