Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983
HWBMj
Ofeaveður
í Kaliforníu
íbúar í bænum Aptos í Kaliforníu huga hér að húsi sínu, sem eyöilagðist f sjávarflóðum og ofsaveðri, sem gekk yfir
Norður-Kaliforníu nú í vikunni. AP
New York, 28. janúar. AP.
FJÖGUR héruð í Kaliforníu
hafa lýst yfir neyðarástandi
eftir ofsarok og rigningar,
sem þar geisuðu í dag.í þriðja
skipti á einni viku, og sópuðu
með sér veikbyggðum húsum
og öllu lauslegu og þúsndir
fjölskyldna urðu að flýja
heimili sín.
Níu manns létust af völdum
veðursins.
Ofsaveður þetta hófst á mið-
vikudag með gífurlegu roki og
rigningu og hefur eyðilagt meira
en þúsund heimili í suðurhluta
Kaliforniu og einnig hafa orðið
nokkrar skemmdir á húsum í
norðurhluta ríkisins.
Indland:
Stjórnar-
breyting
í aðsigi
Nýju-Delhí, 28. janúar AP.
BREYTINGA er að vænta á ind-
vérsku ríkis.stjóminni, eftir að
Indira Gandhi forsætisráðherra
skipaði flokki sínum, Kongress-
flokknum, aðstoðarforseta, sem
á að gegna forsetastörfum í
flokknum í forföllum hennar. Sá
orörómur var á kreiki í dag, að
allir 59 ráðherrarnir í stjórn
hennar hefðu lagt fram lausnar-
beiðni. I'egar fréttamenn spurðu
frú Gandhi um hugsanlegar
stjórnarbreytingar, brosti hún
aðeins og sagðist ekki hafa heyrt
á þær minnst.
Kongressflokkurinn beið
mikinn ósigur fyrr í þessum
mánuði í kosningum í tveimur
fylkjum í suðurhluta Indlands,
það er Andhra Pradesh og
Karnataka, og hefur það valdið
miklu uppnámi innan Kon-
gressflokksins í nágrannafylk-
inu Maharashatra. Andstæð-
ingar frú Gandhi innan flokks-
ins í þessu fylki vilja, að maður
úr þeirra eigin röðum verði
valinn sem forsætisráðherra í
fylkinu en ekki Babhasahed
Bhosale, sem frú Gandhi hefur
valið til embættisins.
Kommúnistar róa
á kapitalísk mið
Ungverjar gera fjármagnseigendum á Vesturlöndum gylliboð
28. janúar. AP.
„PAÐ skiptir engu hvað þú heitir
og okkur er alveg sama um vega-
bréfið þitt.“ Ætla mætti að það væri
svissneskur banki, sem þannig
auglýsti, en því er nú ekki aldeilis
að heilsa. Þetta er dálítið sýnishorn
af auglýsingaherferð, sem banki
einn í því kommúníska Ungverja-
landi stendur nú fyrir á Vesturlönd-
um í því skyni að laða til sín kapit-
alískt fjármagn. Frá þessu segir í
síðasta hefti af Time Magazine.
Þegar bankamenn á Vesturlönd-
um áttuðu sig á hvernig komið var
fyrir Pólverjum biðu þeir ekki
boðanna með að taka út allt það
fé, sem þeir áttu í bönkum í
Austur-Evrópu. Ungverjar hafa
hins vegar áhuga á að fá eitthvað
af þessu fé aftur og það ætla þeir
að gera með því að hefja beina
samkeppni við svissneska banka
um viðskiptin við þá menn, sem af
einhverjum ástæðum vilja láta
sem minnst fara fyrir fjárfúlgun-
um.
Svissneskir bankar eru ekki
sama gósenlandið og áður var eft-
ir að stjórnvöld skipuðu þeim að
gefa upplýsingar um bankareikn-
inga ef ástæða væri til að ætla, að
eigandinn væri glæpamaður. Ung-
verjar lofa aftur á móti aigjörum
trúnaði og það, sem meira er, þeir
ætla að greiða 13,5% vexti af árs-
innstæðu á móti 8,6% í Sviss.
Ungverjar byrjuðu á þessari þjón-
ustu í nóvember sl. og síðan hafa
um 2.000 Vesturlandabúar falið
þeim að ávaxta fyrir sig um 30
milljónir dollara.
Æðsta ráðsins til að fá svar við
bón sinni.
Scharansky, sem hefur verið í
haldi fyrir njósnir, er í fangelsi
u.þ.b. átta hundruð kílómetra
austur af Moskvu.
Grunaður um svik
Ósló, 2X. janúar. Krá fréttaritara MorgunblaóNÍns, Jan-Krik I-aurI
EINAR Fr. Nagell-Erichsen, fram-
kvæmdastjóri stærsta blaðahrings
Noregs er grunaður um að hafa svik-
ið að minnsta kosti eina millj. nkr.
undan skatti. Hann er framkvæmda-
Heitasti 27.
jan. í 200 ár
Prag, 28. janúar. AP.
FIMMTUDAGURINN 27. janúar
var sá heitasti í Tékkóslóvakíu í
tvöhundruð ár, með hitastigið 12,5
gráður á Celsíus. Síðasta hitamet
fyrir þennan dag var 1,2 gráðum
lægra árið 1896, samkvæmt frétt-
um frá tékknesku fréttastofunni
CTK.
ítalskur hermdar-
verkamaður hand-
tekinn í London
Isindon, 2X. janúar. Al’.
DÓMSTÓLL í London kvað í gær upp úrskurð um viku gæzluvarðhald á
hermdarverkamanninum Luciano Petrone, en gert er ráð fyrir, að hann verði
framseldur til Ítalíu bráðlega. Petrone, sem er 24 ára, var handtekinn á
fimmtudag í Chealsea-hverfinu í London og var leiddur fyrir dómara hand-
járnaður við lögreglumann. Ilefur Petrone verið leitað á Italíu vegna ákæru
um morð á tveimur lögreglumönnum í Róm 7. júní sl. auk fleiri glæpaverka.
járnbrautarstöðinni í Bologna 2.
ágúst 1980, en í þeirri sprengingu
fórust 85 manns og yfir 200 manns
slösuðust.
Petrone hefur einnig verið ákaft
leitað í Frakklandi, Vestur-
Þýzkalandi og á Spáni, en þar í
landi er talið, að hann hafi skipu-
lagt rán á 15 millj. dollurum í pen-
ingum og gimsteinum í Marbella-
banka um síðustu jól.
Lögmaður Petrone fór ekki
fram á, að hann yrði látinn laus að
sinni gegn tryggingu, enda hefði
slíkt vart verið leyft vegna gruns
um, að Petrone myndi nota tæki-
færið til þess að flýja.
ítalska lögreglan heldur því
fram að Petrone tilheyri öfgasinn-
uðum hópi hægri manna og að
hann sé náinn samstarfsmaður
Stefano delle Chiaie, sem leitað
hefur verið vegna sprengingar í
stjóri Schibsted-hringsins, sem er
eigandi tveggja stærstu blaða Nor-
egs, en þau eru „Verdens Gang“ og
„Aftenposten“, auk prentsmiðja og
bókaforlags.
Skattayfirvöld gruna Einar um
að hafa gefið rangt upp til skatts.
Á hann að hafa byggt hús og
skemmtisnekkju fyrir mörg
hundruð þúsund nkr., en féð til
þessara hluta hafi verið bókfært
sem kostnaður við tölvuútbúnað
og efniskostnaður við smíði nýrrar
prentsmiðju. Með þessum hætti
hafi hann komizt hjá að greiða
skatt.
Aðalritstjóri Aftenposten er
einnig grunaður um skattsvindl.
Eiga einkaferðalög hans til Kan-
aríeyja, og ýmislegt fleira þess
konar, að vera bókfærð sem ferða-
lög á vegum blaðsins.
Lögreglan hyggst nú rannsaka
nánar þessi meintu brot mann-
anna, en margt þykir benda til
þess, að þeir verði að láta af störf-
um sínum innan skamms.
Veðrinu slotaði í Los Angeles og
San Francisco í nótt, en spáð var
auknu hvassviðri með kvöldinu og
fólk var varað við að vera á ferli.
Nokkurra jarðskjálfta varð
einnig vart í Malibu árla í morg-
un, en ekki er vitað hvort eitthvert
tjón hlaust af.
Móðir Shcharanskys
sendi Andropov skeyti
l’arf.s, 28. janúar. AP.
AVITAL Scharansky, eiginkona Anatoly Scharansky, sem situr í fangelsi í
Sovétríkjunum, sagði í dag að tengdamóðir sín hefði sent Yuri Andropov
skeyti, þar sem hún fer fram á, að sonur hennar verði fluttur á sjúkrahús, þar
sem hann sé nú illa haldinn vegna hungurverkfalls, sem hann hefur verið í.
Avital kom til Parísar í dag frá
Ottawa í Kanada, og sagði að
tengdamóðir sín hefði sent áður-
nefnt skeyti á fimmtudagskvöld.
Hún hefði síðan í hyggju að fara á
mánudag á fund forsætisnefndar
ERLENT
Ógiftir njóta
eins vel ásta
( hicago, 28. janúar. AP.
ÓGIFT fóik nýtur eins mikils
kynlífs og gift fólk og þeir,
sem að lögum eru einhleypir
en búa með unnustum sínum,
eru mjög ánægðir með kynlíf
sitt. Kemur þetta fram í
skoðanakönnun í tímaritinu
„Playboy". Segir þar, að fólk
í sambúð njóti ásta oftar og
með meiri ánægju en þeir
sem búa í hjónabandi. Meðal-
aldur þeirra sem spurðir
voru og bjuggu í óvígðri sam-
búð, var 25 ár fyrir karlmenn
en 24 ár fyrir konur, en 34 ár
fyrir karlmenn og 29 ár fyrir
konur í hjónabandi.
Hóta að ógna
öryggi páfa
Port-au-Prince, llaiti, 28. janúar. AP.
Hryðjuverkahópur hótaöi í
gær að „ógna öryggi" Jóhann-
esar Páls II páfa ef hann hitti
Jean-Claude Duvalier forseta
að máli meðan á stuttri heim-
sókn hans til Haiti stendur í
næsta mánuði.
Hryðjuverkahópur þessi,
„Hector Riobe", hefur aðal-
bækistöð sína á Miami í Flor-
ida og berst gegn Duvalier
forseta. Skilaboðum þessum
var komið á framfæri við
franska fréttastofu.
Jóhannes Páll II páfi mun
hafa tólf klukkustunda við-
dvöl á Haiti 9. mars næst-
komandi, en þar verður þá
ráðstefna rómversk-ka-
þólskra biskupa frá Suður-
Ameríku.
Aðeins 24
tjaldstæði
í gæðaflokki
í Evrópu
Miinchen, 28. janúar. AP.
EVRÓPA hefur upp á 7.395
tjaldstæði að bjóða, en aðeins
24 þeirra eru í gæðaflokki, og
helmingur þeirra er í Þýska-
landi, samkvæmt niðurstöðum
rannsóknar sem gerð hefur ver-
ið af ADAC, stærsta bifreiða-
klúbbi Vestur-Þýskalands.
Þar kemur einnig fram að
miklar framfarir hafi samt
sem áður átt sér stað í þessum
efnum og þá sérstaklega hvað
varðar hreinlætisaðstöðu.
Tólf tjaldstæði í Vestur-
Þýskalandi fengu hæstu ein-
kunn fyrir aðstöðu sína, fjög-
ur í Frakklandi, þrjú á Ítalíu
og í Austurríki og eitt á Spáni
og í Grikklandi.
Ekki kom fram hvar er að
finna verstu tjaldstæðin í
Evrópu.