Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983 •• <* Jrem^ta óetr/c v/// fa a£ \///a /?nor/ pá v//j/Y /e/c/c/r fa J?7á/?erya- e£a ej<jjcr/>r*zj<?v ' Ast er ... ... aö brosa hvort til annars. TM Rtg U S Pat Ofl -iH rights rewrved *1983 Los Times Syndicate y>< 1‘t-tta telst til fyrirbyggjandi ad- gerða — góðan daginn! Með morgunkaffimi l*að er vonlaust með öllu að ég standi hér klukkustundum saman án þess að taka mér eitthvað fyrir hcndur. — Ég færi hreinlega úr sambandi! HÖGNI HREKKVÍSI „Heil Schicklgruder“ Ól. K. M. skrifar: „Velvakandi. Þakka samantekt Sv. G. í Mbl. 23. janúar sl. um æsku Hitlers. Það er ekki ofsagt, að arftaki ríkis Karla-Magnúsar, Bismarks og Hindenburgs, Adolf Hitler, hafi verið ólíklegur kandídat til stór- ræða. En hafa menn gert sér ljost, hve afdrifarík ákvörðun föður hans, Alois Schicklgruder, að skipta um ættarnafn, var fyrir heiminn? Það var Hiedler, Huegl- er, Höettler og loks Hitler, en stafsetning þess var á reiki. í bók sinni um þriðja ríkið segir W.L. Shirer, að Jóhann Georg Hiedler, afi Hitlers, hafi verið far- Villandi upplýsingar Dr. Gunnlaugur Þórðarson hrl. skrifar 21. janúar: „Þriðjudaginn 18. þ.m. var fluttur í hljóðvarpi þáttur undir stjórn Önundar Björnssonar. Bar þátturinn yfirskriftina „Fjórð- ungi bregður til fósturs" og var helgaður ættleiðingum. Voru þar viðtöl við ýmsa aðila, sem höfðu haft kynni af þess háttar málum. Vegna þess að fram komu í þætt- inum atriði, sem stjórnandi hans hafði ekki nægjanlegar upplýs- ingar um og sá sem gefa átti réttar upplýsingar fór með rangt mál, þykir mér að slíkri óhæfu megi ekki vera ómótmælt. Þetta gerðist í viðtali við Ásu Þ. Ottesen, fulltrúa hjá Félags- málastofnun Reykjavíkurborgar, sem fengist hefur við þessi mál undanfarin 20 ár. Af viðtalinu við fulltrúa þennan réð ég, að henni hafi tekist að villa um fyrir formanni Barnaverndar- nefndar Reykjavíkur og hafi það leitt til löglausrar meðferðar ættleiðingarmáls, sem undirrit- aður hefur haft á höndum. Hægt er að virða formanninum til vorkunnar í þessu máli, að hann er nýr í starfi, en því ámælis- verðari er framkoma fulltrúans. Ása Þ. Ottesen var spurð um gang mála þessara. Þá sagði hún, að væntanlegir ættleiðendur fengju upplýsingar um gildandi ættleiðingarlög. Ennfremur væru í gildi nokkrar reglur, en í þeim fælist, að væntanlegir ætt- leiðendur þyrftu að vera giftir og hafa búið saman í þrjú ár, þar af a.m.k. eitt ár í hjónabandi. í ættleiðingarlögum segir, að einungis hjón geti ættleitt barn saman. í lögunum fyrirfinnast engin frekari skilyrði, hvorki um tímalengd hjónabands né varð- andi sambúð. Ákvæði sem Ása Þ. Ottesen fulltrúi sagði að væru til, um 3ja ára sambúð og eins árs hjónaband, eru ekki til, enda fylgir sjálf Barnaverndarnefnd Reykjavíkur ekki þessum regl- um, nema e.t.v. stundum. Þannig er mér kunnugt um að hjón, sem aðeins höfðu búið saman í tvö ár og þar af verið gift 1 um 6 vikur, fengu ættleiðingarbeiðni sína af- SJ. skrifar: „Velvakandi. í mínu ungdæmi var tekið svo greidda í nóvember 1981 og við þær aðstæður. Þá kom fram, að meðmæli væru ekki gefin nema að full- nægðu framangreindu skilyrði. Hér er einnig um villandi upplýs- ingar að ræða. í lögum segir að barnaverndarnefndir eigi að gefa umsögn um væntanlega ættleið- endur til dómsmálaráðuneytis- ins, hvort heldur það eru með- mæli eða ekki, því að það er dómsmálaráðuneytisins að taka lokaákvörðun um ættleiðingar, en ekki barnaverndarnefnda að tefja málin í þeirri veru að um- sögnin verði að vera meðmæli, þegar gefin er. Það er óhæfa þegar starfsfólk í kerfinu tekur sér vald sem það hefur ekki og misbeitir því sem það hefur." til orða, að Jón byggi á Brekku, en Sigurður í Hlíð o.s.frv. En hjá þeim, sem annast svokallaða „helgarvakt“ hjá Ríkisútvarpinu, er nú talað um „íbúa á svæðis- númeri". í síðasta þætti var marg- tuggin setning: íbúar á svæðis- númeri níutíu og sex (?). Þar komu og fyrir setningar eins og þessar: A) Það var (?) að berast fréttir. B) Það er (?) eitt lag eftir að korna." GÆTUM TUNGUNNAR Maður sagðí: Líttu viö í kvöld. Hann hugsaði: Líttu inn eöa Komdu við. „Líttu viö„ merkir: Horfðu um öxl. „Ibúar á svæðisnúm- eri níutíu og sex“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.