Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983 Skoðanakannanir, prófkjör og forval hjá þremur flokkum KRAMSÓKNARMENN viðhafa skoð- anakannanir í þremur kjördæmum um helgina, Vestfjarðakjördæmi, Austur- landskjördæmi og Norðurlandskjör- dæmi vestra. Prófkjör eru á vegum Al- þýðuflokksins i tveimur kjördæmum, Reykjaneskjördæmi og Norðurlandi eystra. Hjá Alþýðubandalaginu er síð- ari hluti forvals í Reykjavík um helg- ina, einnig stendur nú yfir síðari hluti Ljósm. Mbl., Ó.K.M., tók þessar myndir á Alþingi í gær er bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar vóru til annarrar umræðu: Siggeir Bjömsson (S), sem víkur væntanlega af þingi í dag, en hann er varamaður Eggerts Haukdal (S), Sverrir Hermannsson, forseti neðri deildar, og Steingrímur Herraannsson, formaður Framsóknarflokksins. ________________ Bráðabirgðalögin geymd fram yfir helgi: Viimustjórn veldur töfum — sagöi Matthías Á. Mathiesen — Kaupskerðingin 1600 m.kr. á ári, sagði Sig- hvatur Björgvinsson Stjórnarfrumvarp til staðfestingar á bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar kom til annarrar umræðu í síðari þing- deild í gær. Afbrigði vóru samþykkt til að taka málið fyrir með 20:3 atkvæðum. Matthías Á. Mathiesen (S) greindi frá því, að ekki hefði verið staðið við sam- komulag milli stjórnar og stjórnar- andstöðu við afgreiðslu málsins í efri deild, þ.e. að gefa upplýsingar sem vant var, varðandi ráðgerðar skuld- breytingar í sjávarútvegi, framkvæmda- galla sem fram hefðu komið á úthlutun láglaunabóta og hvern veg yrði áfram- haldandi að þeim staðið 1983, sem heit- ið var að gefa tæmandi við umfjöllun málsins f neðri deild. Hann hefði af þessum sökum ekki getað gengið frá nefndaráliti sínu. Hér væri þó hvorki við nefndarformann fjárhags- og við- skiptanefndar að sakast né starfsmenn í riítiskerfinu, heldur einvörðungu við- komandi ráðherra. Umræða stóð til kl. 3 er þingflokksfundur sjálfstæð- ismanna um kjördæmamálið hófst, en þá tók forseti málið út af dagskrá og frestaði þvf til nk. mánudags. Nýr viðmiðunargrundvöllur nauðsynlegri nú en nokkru sinni Halldór Ásgrímsson (F), formaður þingnefndarinnar, mælti fyrir nefnd- aráliti sínu, Guðmundar J. Guð- mundssonar (Abl.) og Ingólfs Guðna- sonar (F) sem leggja til að frumvarp- ið verði samþykkt og bráða- birgðalögin staðfest. Halldór sagði viðskiptahalla sl. árs hafa numið 3.800 m.kr., verðbólgu hafa verið um 60% og meðalbreytingu gengis um 90%. Þetta sýnir að ákvæði fyrstu greinar, sem draga úr víxlverkunuut launa og verðlags, vóru nauðsynleg- ar, sagði Halldór, en jafnframt að þessar ákvarðanir hefði þurft að taka fyrr á sl. ári en gert var. Hann höfð- aði og til hliðarráöstafana, sem gera þyrfti, ekki sízt nýs viðmiðunarkerfis (vísitölugrundvallar). Halldór sagði I athugun, hvern veg staðið yrði að framhaldandi framkvæmd láglauna- bóta. l. 600 m.kr. á yfirstandani ári Sighvatur Björgvinsson (A) mælti fyrir nefndaráliti sínu, sem hann sagði þó vart komið úr vélritun. Efn- isatriði laganna taldi Sighvatur vera lækkun verðbóta á laun en hækkun vörugjalds, m.a. á matvöru, sem hækkaði verðlag og gæfi ríkissjóði fimm- til sexföld útgjöld vegna lág- launabóta. Skerðing verðbóta tók 135 m. kr. af launafólki I desembermán- uði og skerðingin þýðir á ársgrund- velli (1983) 1.600 m.kr. tekjumissi fólks. Ríkisstjórnin hefur ekki gripið til né boðað neina verðbólguhemla, aðra en þessa kaupskerðingu. Engu að síður standa spár Þjóðhagsstofn- unar til 70% verðbólgu um mitt þetta ár og 65% veröbólgu frá upphafi til loka árs. Fórn launþeganna í jóla- mánuðinum og síðan fór því fyrir lít- ið. Sighvatur sagði að þinglið Alþýðu- flokksins væri andvígt frumvarpinu og myndi greiða atkvæði gegn 1. grein þess til að mótmæla efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Loforð í efri deild vanefnt Matthías Á. Mathiesen (S) taldi ekki hafa verið staðið við samkomulag um upplýsingar, sem heitið hafi verið að gefa við umfjöllun neðri deildar. Enn eru ókomnar upplýsingar sem beðið var um, varðandi framkvæmd og framhald láglaunabóta, og upplýs- ingar varðandi skuldbreytingar í sjávarútvegi komu fyrst nú um há- degið. Nefndarálit sjálfstæðismanna í stjórnarandstöðu liggur því ekki fyrir. Tefja og trufla málið Gunnar Thoroddsen, forsætisráð- herra, sagði síðasta ræðumann og flokksmenn hans hafa tafið og trufl- að málið með málþófi við fyrstu um- ræðu. Þingnefndir beggja deilda hefðu starfað saman til þess að hægt væri að flýta málinu í síðari þing- deild. Starfshættir þeirra væru eins- dæmi. Forsætisráðherra tók fram að ekki væri við forseta þingdeildarinn- ar að sakast sem sýnt hefði lipurð í málinu. Ekki talað áður í málinu Matthías Á. Mathiesen (S) sagðist ekki hafa talað fyrr í þessu máli en i dag. Rangt væri því, sem forsætis- ráðherra segði, að hann hefði tafið og truflað málið í þingdeildinni. Ég bendi hinsvegar á, sagði Matthías, að sjávarútvegsráðherra, sem flutti breytingartillögu við frumvarpið, flytur hana í síðari þingdeild sem þýðir að málið þarf aftur til fyrri þingdeildar. Varla flýtir það málinu, sem ekki var raunar lagt fram fyrr en mánuður var af þingtíma. forvals í Vcstfjarðakjördæmi, og hefur þaó verið framlengt til 6. febrúar nk. FRAMSÓKNARFLOKKUR Aukakjördæmisþing framsókn- armanna í Norðurlandskjördæmi vestra verður haldið á sunnudag í Miðgarði, við Varmahlíð og hefst það kl. 10 árdegis. Þar fer fram skoð- anakönnun meðal aðal- og vara- manna um röðun framboðslista flokksins. Skoðanakönnunin er bind- andi fyrir 3 efstu sætin. í framboði eru þrír þingmenn flokksins í kjör- dæminu, þeir Páll Pétursson, Stefán Guðmundsson og Ingólfur Guðna- son. Auk þeirra Jón Ingi Ingvarsson Skagaströnd og Sverrir Sveinsson Siglufirði. A Vestfjörðun fer einnig fram skoðanakönnun um val í fjögur efstu sæti framboðslistans. Atkvæðisrétt hafa allir íbúar Vestfjarðakjördæm- is, sem fæddir eru fyrir 1. janúar 1966 og eru ekki félagar í öðrum stjórnmálaflokkum og skrifa undir yfirlýsingu um stuðning við stefnu Framsóknarflokksins. Framsóknar- félögin hvert á sínu svæði sjá um framkvæmd skoðanakönnunarinnar, kosið verður um helgina og einnig hefur verið ákveðið að kjósa mánu- dag, þriðjudag og miðvikudag vegna samgönguerfiðleika. í framboði eru eftirtaldir: Benedikt Kristjánsson Bolungarvík, Guðmundur Kristjáns- son Bolungarvík, Gunnlaugur Finns- son Hvilft, Önundarfirði, Magðalena Sigurðardóttir ísafirði, Magnús Björnsson Bíldudal, Magnús Reynir Guðmundsson ísafirði, Olafur Þórð- arson Suðureyri, Sigurgeir Magnús- son Patreksfirði, Steingrímur Her- mannsson Garðabæ, Sveinn Bern- ódusson Bolungarvík, Össur Guðbjartsson Láganúpi. Á Austfjörðum fer fram prófkjör um helgina. Reglur um það hverjir eiga atkvæðisrétt eru þær sömu og á Vestfjörðum. Kjörstaðir eru opnir báða dagana. Framsóknarfélögin á hverjum stað sjá um framkvæmd- ina. 1 framboði eru: Einar Baldurs- son Reyðarfirði, Halldór Ásgríms- son Höfn, Guðmundur Þorsteinsson Búðum, Guðrún Tryggvadóttir Egilsstöðum, Aðalsteinn Valdimars- son Eskifirði, Sveinn Sighvatsson Höfn, Þórdís Bergsdóttir Seyðisfirði, Hafliði Pálsson Hjarðar, Hjarðar- haga, Sveinn Guðmundsson Sellandi, Jón Kristjánsson Egilsstöðum, Tóm- Prófkjör Alþýöuflokksins um helgina Ég vil hvetja flokkssystkin mín og ykkur sem eruð óflokksbundin til að taka þátt í prófkjöri Alþýðuflokks- ins í Reykjaneskjördæmi nú um helgina. Hvert atkvæði hefur áhrif, en í prófkjöri flokksins í kjördæminu árið 1979 réð eitt atkvæði úrslitum um skipan eins sætis. Ég vil með framboði mínu leitast við að efla frumkvæði til framkvæmda og verka. Ég treysti fólki til þess að velja á milli manna og sæta svo best þjóni baráttu Alþýðuflokksins fyrir endurreisn og bættum lífskjörum. Kosningaaldur: Þeir sem eru 18 ára 25. júní nk. og eldri. Kjörstaöir: Mosfellssveit JC salur, Verslunarmiöstöðin Pverholt 2 h ♦ Seltiarnarnes Fornaströnd 8 ♦ Kópavogur: Hamratxirg 7,2.h. ♦ Garðabær-Bessastaðahr, Goðatún 2. Hafnarfirði. Alþýðuhústð ♦ Vogum: Heiðargerði 12 ♦ Njarðvik-Hafnir: Kaupfélagshúsinu ♦ Keflavik-Garður: Tjarnargata 7. ♦ Sandgerði: Dagheimiliö. ♦ Grindavík: Kvenfélagshúsið Prófkjörið stendur yfir laugardag 14-19 og sunnudag 14-22 Kosið verður á sunnudegi í Vogum og Sandgerði. as Árnason Kópavogi, Hermann Guðmundsson Vopnafirði. ALÞÝÐUFLOKKUR Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi fer fram laug- ardag og sunnudag. Kosningarétt hafa þeir sem búsettir eru í kjör- dæminu, hafa náð 18 ára aldri og eru ekki flokksbundnir í öðrum stjórn- málaflokkum. Kosið er um skipan þriggja efstu sæta á framboðslistan- um. Fjórir bjóða sig fram í 1.—3. sæti, þeir Ásgeir Jóhannesson Kópa- vogi, Gunnlaugur Stefánsson Hafn- arfirði, Karl Steinar Guðnason Keflavík, og Kjartan Jóhannsson Hafnarfirði. Kristín H. Tryggva- dóttir, Garðabæ, býður sig fram í 2. -3. sæti. Á laugardag verða kjör- staðir opnir kl. 14—19, en á sunnu- dag kl. 14—22. í Sandgerði og Vog- um verður þó aðeins kosið á sunnu- dag. Kjörstaðir við prófkjörið eru: Mosfells- og Kjósahreppur J.C.-sal- urinn verzlunarmiðstöðinni Þver- holti. Seltjarnarnes: Fornaströnd 8. Kópavogur: Hamraborg 7. Garðabær og Bessastaðahreppur: Goðatún 2. Hafnarfjörður: Alþýðuhúsið. Vogar: Heiðargerði 12. Njarðvlk og Hafnir: Kaupféíagshúsið á horni Grundar- vegar og Reykjavegar. Keflavík og Garður: Hús iðnsveinafélagsins Tjarnargötu 7. Sandgerði: Dagheim- ilið. Grindavík: Festi. f Norðurlandskjördæmi eystra fer prófkjör krata einnig fram báða dagana. Sömu reglur gilda og í Reykjaneskjördæmi, og er þar einn- ig kosið um skipan þriggja efstu sæt- anna. Þrír bjóða sig fram í 1,—3. sæti, þeir Árni Gunnarsson, Arnljót- ur Sigurjónsson og Jósef Guð- bjartsson, Hreinn Pálsson býður sig fram í 2.-3. sæti. Kjörstaðir eru eft- irtaldir: Akureyri: Alþýðuhúsið frá kl. 11—18 laugardag og kl. 11—19 sunnudag. Árskógshreppur: Árni Ólafsson Klapparstíg 14, Hauganesi. Dalvík: Gunnskólanum kl. 14—18 sunnudag. Grenivík: Gamli skólinn kl. 14—17 sunnudag. Hrísey: Skrif- stofa Einingar laugardag og sunnu- dag kl. 14—18. Húsavík: Félagsheim- ilið báða dagana kl. 10—18. Mý- vatnssveit: Helluhraun 9 báða dag- ana kl. 14—16. Raufarhöfn: Jóhann- es Guðmundsson Aðalbraut 67. Þórs- höfn: Jóhann Guðmundsson Pálm- holti 4. Ólafsfjörður: Jónfna Óskars- dóttir Ægisgötu 10. Kelduhverfi: Skúlagarður laugardag kl. 14—16. Þá er hægt að kjósa utankjörstaðar í Reykjavík á skrifstofum Alþýðu- flokksins í Alþýðuhúsinu við Hverf- isgötu. Opið er í dag, laugardag, kl. 16—17, og á sama tíma á morgun, sunnudag. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Seinni hluti forvals Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík fer fram um helgina. Kjörfundur verður haldinn í dag, laugardag, kl. 10—19 og á morg- un, sunnudag, kl. 16—19. Kosið er á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Grettisgötu 3. Kjósandi skal merkja við 6 frambjóðendur með tölunum 1—6. Kosningarétt hafa félagar í al- þýðubandalagsfélögum, sem ekki skulda meira en eitt gjaldfallið ár- gjald og þeir sem ganga í félagið á kjördag. Frambjóðendur eru eftir- taldir: Arnór Pétursson, Álfheiður Ingadóttir, Bjargey Elíasdóttir, Elísabet Þorgeirsdóttir, Esther Jónsdóttir, Grétar Þorsteinsson, Guðmundur J. Guðmundsson, Guð- rún Hallgrímsdóttir, Guðrún Helga- dóttir, Gunnar H. Gunnarsson, Margrét S. Björnsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson, Ragna Ólafsdótt- ir, Svavar Gestsson, Tryggvi Jak- obsson og Vilborg Harðardóttir. Síðari hluti forvals á Vestfjörðum stendur enn yfir. Því átti að Ijúka 30. janúar, en hefur verið framlengt til 6. febrúar nk. Þar er kosið um þrjá efstu menn á framboðslistann. Kjós- endur eiga að snúa sér til kjörstjóra á viðkomandi stöðum. Þá er unnt að kjósa utankjörstaðar f Reykjavik i skrifstofum flokksins að Grettisgötu 3.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.