Morgunblaðið - 29.01.1983, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983
13
Elín Ósk Óskarsdóttir
Kjartan Ólafsson
Guðmundur Þ. Gíslason
Kristín Sigtryggsdóttir
Árni Sighvatsson
Langar til draunialandsins
Ítalíu
„Ég hef lengi verið viðloðandi
Söngskólann", sagði Kjartan „hef
alltaf verið að grípa í kennslu úti
á landi annað slagið. En ég hyggst
ljúka söngkennaraprófinu í vor.
Stefni að því allavega. Framtíðin
er ekki skipulögð lengra en það
hjá mér, en auðvitað langar mig
út til að læra meira, sérstaklega
til Ítalíu, draumalands söngvar-
ans.
Tónleikarnir á sunnudaginn
leggjast vel í mig. Maður hefur
skólast töluvert í þessu langa
námi og hættur að kippa sér upp
við það að koma fram.“
Hættir við búskapinn til að
geta snúið sér að söngnum
„Ég fór upphaflega i skólann til
að fá einhverja tilsögn í raddbeit-
ingu. Það var fyrir fjórum árum.
En nú er svo komið að ég hef
ákveðið að hætta búskapnum og
helga mig söngnum algerlega."
Svo mælir Guðmundur Þ. Gísla-
son, 37 ára gamall bóndi (ennþá) í
Biskupstungum. „Það fer einfald-
lega ekki saman að vera á kafi í
söngnum i Reykjavik og halda búi
gangandi úti á landi. Það er engin
málamiðlun til og ég varð að velja
á milli.
Þetta er fjórði veturinn sem ég
er i Söngskólanum hjá Magnúsi
Jónssyni, og væntanlega lýk ég 8.
stigi í vor. Eg hef alltaf haft mik-
inn áhuga á söng, t.d. sungið í
kórnum í minni heimasveit, en
það var ekki fyrr en ég fór í
Söngskólann að ég áttaði mig á
því hvað söngurinn var mikils
virði. En ekki hefur mér tekist að
venja mig af sviðsskrekknum.
Satt að segja er ég alveg drullu-
nervus fyrir þessa tónleika á
sunnudaginn!"
Byrjaði snemma
að „troða upp“
Hver kannast ekki við hana:
það er tekið í spotta og hún hreyf-
ist. Með bönd strengd um andlitið
horfir hún angistarfull í gegnum
áhorfandann út í lífið eða út í sal-
inn, eða jafnvel út í ekki neitt, og
það er eins og einhverjar ógnvekj-
andi hugsanir séu að naga hana
að innan. Þetta er hún Kristín
Sigtryggsdóttir í hlutverki
Strengjabrúðurinnar á kápumynd
samnefndrar bókar .;óns óttars
Ragnarssonar.
En Kristín er reyndar söngkona
en ekki fyrirsæta „og vonandi
verð ég einhver tíma betur þekkt
fyrir söng minn en hlut minn í
þessari bókarkápu og sjónvarps-
auglýsingu", sagði hún og hló við.
„Annars byrjaði ég snemma á því
að troða upp, það fylgir söngáhug-
anum, en hann hef ég haft frá því
ég man eftir mér. Áður en ég hóf
nám í söngskólanum kom ég svo-
lítið nálægt poppinu, en fékk
fljótlega leið á því og nú ræ ég að
því öllum árum að ná sem lengst
sem óperusöngkona. Ég hef minni
áhuga á því að fara út í söng-
kennslu.
Kristín syngur hlutverk eins
andans í Töfraflautunni sem nú
hefur verið lengi á fjölunum í
Gamla Bíói.
Hóf nám í Söngskólanum
49 ára gamall
„Ég hef sungið í kórnum um
áratuga skeið, en mér hefur farið
geysilega fram síðan ég byrjaði í
Söngskólanum fyrir tæpum fjór-
um árum,“ sagði Árni Sighvats-
son, en hann var orðinn 49 ára
gamall þegar hann settist á skóla-
bekk í Söngskólanum. „Það sýnir
að ekki er einhlítt að söngvurum
geti ekki farið fram eftir að þeir
eru komnir á miðjan aldur.
Reyndar hefur mig alltaf langað
til að læra söng almennilega, en
það voru ekki mörg tækifæri til
þess þegar ég var ungur; ef vel
átti að vera var nauðsynlegt að
sækja söngmenntun til útlanda,
og til þess þarf alltaf talsvert
átak.
Kennari minn i Söngskólanum
er Anna Júlíana Sveinsdóttir, og
fyrir mörgum árum síðan lærði ég
um nokkurt skeið hjá Maríu
Markan. Það kann að hljóma und-
arlega að ég skuli hafa verið hjá
tveimur kvenkennurum, en þegar
söngur er annars vegar skiptir
engu máli hvaða rödd kennarinn
hefur, því undirstöðuatriðin eru
þau sömu í öllum söng.“
Sem stendur syngur Árni hlut-
verk Surts í Litla sótaranum til
skiptis við John Spade.
Efnisskráin
Efnisskrá óperutónleikanna á
morgun er mjög fjölbreytt. Flutt
verða atriði úr óperunum Brúð-
kaupi Figaros og Don Giovanni
eftir Mozart, úr Don Pasquali eft-
ir Donizeti, Gioconda eftir
Ponchielli, Leðurblökunni eftir
Joh. Strauss, Grímudansleiknum,
La Traviata og II Trovatore eftir
Verdi, Mefistotele eftir Boito, La
Bohéme eftir Puccini og Þryms-
kviðu eftir Jón Ásgeirsson.
Matargestum
verður færður
fordrykkur
að hætti
Luxemborgara.
meö Urval, Hotel Esju
og Flugleiðum haldin í
BCCADWAT
Matseðill
Rjómasúpa dumont
Pönnusteikt
Luxem borg arsneiö
með osti.
Kokkar frá Luxemborg
Verð kr. 330.- með rúllu-
gjaldi.
SUNNUDAGINN 30. JANÚAR NK. OG HEFST KL. 19.
Kántrí hljómsveitin frábæra
Buffalo Wayne kemur beint
frá Lux í tilefni hátíöarinnar,
skemmtir og leikur fyrir
dansi.
Gestur
kvöldsins
verður Valgeir Sig-
urösson, veitinga-
maður á Cockpit inn í
Luxemborg.
ilfllL#
fel
Magnús og
Finnbogi
verða með
dinnertónlist.
KVIKMYND
sýnd verður ný kvikmynd frá
Luxemborg — hjarta Evrópu.
STRIPPER
danssýning frá Sóleyju.
BINGO
spilaðar verða 3 umferðir.
Vinningar m.a.
vikuferð til LUX.
THœldM
sýna skíöafatnað frá
SPORTVAL
DISKO
Gísii Sveinn
Loftsson
stjórnar.
Miða- og
borðapantanir
í síma 77500 kl. 9—5
FLUGLEIDIR
FEROASKRtFSTOFAH
URVAL