Morgunblaðið - 29.01.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983
21
kjördæmi
Ragnar Ingimarsson
happa- og glappaaðferðar við
ákvörðun uppbótarþingmanna.
Flokkar geta áfram
borið fram fleiri
en einn lista
Ef landið yrði eitt kjördæmi
er alls ekki þar með sagt að að-
eins einn framboðslisti verði í
kjöri af hálfu hvers stjórnmála-
flokks. Vel er hugsalegt að flokk-
ur beri fram fleiri en einn lista,
t.d. einn lista sem ætti rætur
sínar í þéttbýli og einn eða fleiri
sem kæmu úr dreifbýli. Alls ekki
er víst að þéttbýlismenn kysu
endilega þann lista sem úr þétt-
býlinu væri kominn, þeim kynni
að lítast betur á lista sem dreif-
býlismenn væru í meirihluta á.
Sama gildir að sjálfsögðu um
dreifbýlismenn.
Þegar upp væri staðið fengi
hver flokkur þingmannafjölda í
samræmi við kjörfylgi, þing-
menn hefðu nánast sama fjölda
kjósenda að baki sér, landsmenn
hefðu sama kosningarétt og úr
miklu meiru að velja.
Við höfum ekki efni
á þeirri togstreitu
sem nú ríkir
Hvers vegna er verið að gera
einfalt mál flókið, skapa lands-
hlutaríg og etja þjóðinni út í
allskyns óskynsamlegar fjárfest-
ingar vegna þarfa einstakra
þingmanna til að gera vel við
sína en kasta hagsmunum þjóð-
arheildarinnar fyrir borð? Líti
nú hver í kringum sig og sjái
hvernig komið er fyrir okkur.
Aðstæður hafa breyst
Einu sinni var það aðalrök-
semdin gegn því að landið væri
gert að einu kjördæmi, að erfitt
yrði fyrir þingmenn að halda
sambandi við kjósendur sína
vegna samgönguerfiðleika. Ég
tel að þetta hafi verið gild rök-
semd áður fyrr, en hún er það
ekki lengur.
Meðalhæð karla, fólksfjöldi og fjöldi mannfellisára á íslandi (Jón Steffen-
sen, Menning og meinsemdir, Isafoldarprentsmiðja, 1975).
Af þessum sökum vinnur Mann-
eldisráð íslands nú sleitulaust að
því að rannsaka fæðuvenjur þjóð-
arinnar, þ.e. í því skyni að reyna
að bæta heilsufar landsmanna.
Það gildir auðvitað um þessar
rannsóknir eins og aðrar að fáir
stjórnmálamenn eru ennþá búnir
að átta sig á gildi þeirra. Þótt
eitthvað sé að rofa til í þeim efn-
um.
Sem betur fer eru æ fleiri að
átta sig á því að það sem ræður
úrslitum í baráttunni fyrir bættu
heilsufari er hversu traustur sá
grunnur er sem við byggjum á.
[ i m nujM | n
1II
Gísli Helgason flytur tölu um leið og hann afhendir skjalasafni Vestmannaeyja segulbandsupptökur og ýmis önnur
gögn varðandi Eyjapistil, sem hann og bróðir hans, Arnór, gáfu. Ljósm. Mbl. Sigurgeir.
Vestmannaevjar:
Heimaeyjargossins minnst
Vestmannaeyjar, 2G. janúar.
VESTMANNAEYINGAR minntust
þess um helgina, að sunnudaginn 23.
janúar voru liðin 10 ár frá því að upp-
hófst eldgos á Heimaey með alkunnum
aflciðingum. Messað var f Landakirkju
þar sem séra Kjartan Örn Sigurbjörns-
son sóknarprestur messaði. Fulltrúar
frá Hvítasunnusöfnuðinum og aðventu-
söfnuðinum lásu úr ritningunni og
Magnús H. Magnússon alþingismaður
flutti ræðu, en Magnús var bæjarstjóri
í Eyjum á gostímanum. Landakirkja
var þéttsetin fólki.
Bæjarstjórn bauð bæjarbúum til
kvikmyndasýningar í félagsheimil-
inu þar sem sýndar voru myndir frá
gosinu, svo og gamlar Eyjamyndir.
Sýningar voru tvær og þær sóttu alls
um 500 manns. Þeir bræður Gisli og
Arnór Helgasynir afhentu skjala-
safni Vestmannaeyja til varðveislu
segulbandsupptökur og ýmis önnur
gögn varðandi Eyjapistii þeirra
bræðra, sem var fastur þáttur 1 út-
varpinu gosmánuðina. Annars ætla
Eyjabúar að bíða með frekari til-
stand þangað til síðar í sumar.en
fyrirhugað er að halda upp á það 3.
júlí.að liðin verða 10 ár frá goslokum
og upphafi endurreisnar í Eyjum
eftir hamfarirnar miklu. Þá munu
fulltrúar frá vinabæjum Vest-
mannaeyja á Norðurlöndunum
mæta á vinabæjarmót í Eyjum, ráð-
gerð eru útihátíðahöld 3. júlí, sýn-
ingum verður komið upp, og kirkju-
kór Landakirkju er að æfa sérrstakt
verk sem frumflutt verður í sumar.
hkj.
Frá þakkargjörð í Landakirkju.
Ljósm. Mbl. Sigurgeir.
Leitiö ekki langt yfir skammt
Húsavík í vetrarfríiö
SiSJ'
HVÍLD — MEGRUN
— LÍKAMSRÆKT
— ÚTIVERA
ÞARFTU AÐ MISSA NOKKUR
AUKAKÍLÓ?
ÞARFNASTU HVÍLDAR?
VILTU LOSNA FRÁ AMSTRI
HVERSDAGSINS?
VIÐ HOFUM LAUSNINA
Sérhæft starfsfólk svo sem læknir, íþróttakennarar, sjúkraþjálfi, leiösögumenn
og lipurt hótelstarfsfólk mun sjá til þess aö þér líöi sem best.
Dagskrá: Dagskrá: ÁRDEGI: SÍÐDEGI:
Kl. 08.00 Vakiö gegnum hátalarakerfi húss- Kl. 13.00 Hvíld.
ihs meö léttri tónlist og likams- Kl. 14.00 Gönguferö meö
teygjum. farafstjóra.
Kl. 08.15 Boriö á herbergi heitt sitrónuvatn, Kl. 15.00 Létt miðdagskaffi.
drukkiö meöan klæðst er (íþrótta- Kl. 15.30 Nudd.
galli). Kl. 17.00 Frjáls tími.
Kl. 08.30 Morgunleikfimi í sal, mál og vog. Kl. 19.00 Kvöldverður.
Kl. 09.30 Morgunveröur. KVÖLD:
Kl. 10.30 Sund — gufa — heitur pottur.
Kl. 11.00 Frjáls tími. Kl. 20.30. Kvöldvaka.
Kl. 12.00 Hádegisverður Stutt ganga tyrir svetn.
Verö pr. mann á viku:
Kr. 5.980 í 2m m/baði.
Kr. 6.480 í 1m m/baöi.
Innifalið í þessu verdi er:
Gisting, allar máltíðir, læknisskoðun, sund, gufa, heitur pottur, leik-
fimi, nudd, gönguferöir með fararstjórn, fræðileg erindi, flug og
transfer flugvöllur — hótel — flugvöllur.
Ath. Hámarksfjöldi í hópi er 20 manns. Áskilinn er réttur til breytinga
á ofangreindu veröi.
1. vika 06/02 -
2. vika 13/02
3. vika 06/03
4. vika 27/03
5. vika 03/04
6. vika 10/04
13/02 ’83
20/02 '83
13/03 ’83
03/04 ’83
10/04 ’83
17/04 ’83
Söluaðilar:
Hótel Húsavík,
Ferðaskrifstofa ríkisins,
Ferðaskrifstofan Úrval,
Ferðaskrifstofan Útsýn,
og ferðaskrifstofur víða
um land.
Vertu
velkominn
Húsavik
SkniSt-41220