Morgunblaðið - 29.01.1983, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Umsjón: Sighvatur Blöndahl
Elzta endurskoðunar-
skrifstofa landsins
flytur í nýtt húsnæði
ÞANN 15. janúar sl. flutti Endur-
skoúunarmiöstöðin hf. — N.
Manscher, Reykjavík, starfsemi sína
úr Rnrf'artúni 21 i nýbyggingu ísl.
Aöalverktaka að Höfðabakka 9,
Reykjavík.
N. Manscher, sem er elsta
endurskoðunarskrifstofa landsins,
var stofnsett árið 1924 af dönskum
endurskoðanda Niels Manscher og
Birni E. Árnasyni og ráku þeir
Norðmaður boðinn
fram í stöðu fram-
kvæmdastjóra Evrópu-
ráðsins af hálfu
Norðurlandanna
FRÁ utanríkisráðuneytinu hefur
borist svohljóðandi fréttatilkynning:
Ríkisstjórnir Danmerkur, ís-
lands, Noregs og Svíþjóðar hafa
ákveðið að bjóða fram Ole Álgárd,
sendiherra Noregs í Kaupmanna-
höfn, í kosningum þeim, sem fram
fara í maí á næsta ári í stöðu
framkvæmdastjóra Evrópuráðs-
ins. Ráðgjafaþing Evrópuráðsins
mun þá kjósa eftirmann núver-
andi framkvæmdastjóra, en skip-
an hans rennur út í september
1984.
Ole Álgárd hefur langa reynslu
og víðtæka þekkingu á alþjóða-
málum. Hann réðst til utanríkis-
þjónustunnar 1946 og gegndi
störfum í sendiráðum Noregs, m.a.
í Moskvu, Vínarborg, New York,
Brússel og Peking. Hann var
fastafulltrúi Noregs hjá Evrópu-
ráðinu 1964—1966 og var í heilan
áratug fastafulltrúi Iands síns hjá
Sameinuðu þjóðunum í New York,
1972—1982, og var á því tímabili
m.a. tvívegis forseti Öryggisráðs-
ins. Ole Álgárd hefur og á enn
sæti í stjórnum og nefndum
ýmissa alþjóðastofnana og verið
fyrirlesari um alþjóðastjórnmál
við marga bandaríska háskóla.
fyrirtækið saman í nokkur ár. Ni-
els Manscher fluttist til Danmerk-
ur 1937 og frá þeim tíma stóðu
Sigurður Jónsson og Jón Guð-
mundsson að rekstri fyrirtækisins
þar til Jón Guðmundsson lést árið
1965. Sigurður Jónsson rak fyrir-
tækið einn til ársins 1969, er flest-
ir núverandi eigenda gerðust með-
eigendur.
Aðalskrifstofa fyrirtækisins er í
Reykjavík en auk þess rekur það
útibú á Húsavík, sem Björn St.
Haraldsson, löggiltur endurskoð-
andi, veitir forstöðu, og á Egils-
stöðum, sem Ólafur Kristinsson
viðskiptafræðingur, og Gísli
Bjarnason löggiltur endurskoð-
andi veita forstöðu.
Um sl. áramót fjölgaði eigend-
um er þeir Reynir Vignir, löggilt-
ur endurskoðandi, Símon Á.
Gunnarsson, löggiltur endurskoð-
andi og rekstrahagfræðingur og
Björn St. Haraldsson, löggiltur
endurskoðandi, gerðust meðeig-
endur, en þeir hafa allir starfað
hjá fyrirtækinu um langt árabil.
Auk hefðbundinna endurskoð-
endastarfa á sviði endurskoðunar,
reikningshalds og skattamála hef-
ur fyrirtækið haslað sér völl á
sviði rekstrarráðgjafar, en þau
mál annast Símon Á. Gunnarsson
rekstrarhagfræðingur.
Endurskoðunarmiðstöðin hf. —
N. Manscher, hefur um nokkurt
árabil haft tengsl við alþjóðlega
endurskoðunarfyrirtækið Coopers
& Lybrand, en tilgangur slíkra
tengsla er fyrst og fremst að auka
faglega þekkingu eigenda og
starfsmanna fyrirtækisins.
Starfsmenn að meðtöldum eig-
endum eru nú 25 manns. Núver-
andi eigendur eru; Valdimar
Guðnason, Gunnar Sigurðsson,
Kristinn Sigtryggsson, Valdimar
Ólafsson, Emil Theodór Guðjóns-
son, Oddur Pétursson, Reynir
Vignir, Símon Á. Gunnarsson og
Björn St. Haraldsson.
Framkvæmdastjóri er Kristinn
Sigtryggsson.
Aukin flugumferd
í Bandaríkjunum
BANDARÍSK flugmálayfirvöld
sögðu nýverið, að í desembermánuði
sl. hefði verið búið að fljúga liðlega
540,9 milljónir farþegamílna á
bandarísku flugumsjónarsvæöi. Það
er um 15,4% aukning frá sama tíma
árið 1981, þegar flognar voru 468,5
milljónir farþegamílna.
Árið 1982 í heild sinni kom
þannig út, að um 12,1% aukning
varð á flognum farþegamílnum.
Floginn var 6,1 milljarður far-
þegamílna, á móti iiðlega 5,4
milljörðum farþegamílna á árinu
1981.
Um 7,5% aukning útflutn-
ings frystra afurða 1982
Um 15% framleiðsluaukning Sambandsfrystihúsanna
Sjávarafurðadeild Sambandsins
flutti á sl. ári út sjávarafurðir fyrir
1.203 milljónir króna að CIF-verð-
mæti. Það er um það bil 49% aukn-
ingu frá árinu á undan, samkvæmt
upplýsingum í „Sambandsfréttum“.
Um 85% veltunnar er í frystum
sjávarafurðum, en á árinu voru
fluttar út 34.400 lestir af frystum
afurðum, samtals að CIF-verð-
mæti 1.021 milljón króna. Hafði
útflutningsmagn allra frystra af-
urða aukizt um 7,5%, en CIF-
Innflutningshömlur á japanska
bíla og efnahagssamdráttur innan-
lands eru taldar aðalástæður þess,
að verulega hefur dregið úr sölu inn-
fluttra bila í Kanada, eða um 16,8%
á síðasta ári, samkvæmt upplýsing-
um samtaka bílainnflytjenda.
Heildarsala innfluttra bíla á
síðasta ári var 204.041 bíll, saman-
borið við 245.399 bíla á árinu 1981.
Mazda varð hvað harðast úti, en
sala þeirra féll úr 32.042 bílum á
árinu 1981 í 17.526 bíla á síðasta
ári. Þá dróst sala á Lada verulega
saman, eða úr 12.916 bílum á árinu
verðmæti í íslenzkum krónum
hins vegar um 83%.
Þýðingarmestu markaðir fyrir
frystar botnfiskafurðir voru sem
jafnan áður Bandaríkin, Sovétrík-
in og Bretland. Til Bandaríkjanna
voru fluttar 19.200 lestir, og var
það 12% minna en árið áður. Til
Sovétríkjanna voru fluttar 5.900
lestir, sem er um 32% aukning og
til Bretlands voru fluttar 3.600
lestir, sem er liðlega tvöföldun
milli ára.
1981 í 7.895 bíla á síðasta ári.
Honda seldi 55.961 bíl á síðasta
ári, en til smanburðar 63.483 bíla
á árinu 1981. Sala á Toyota dróst
saman úr 60.936 bílum í 53.429. Þá
seldi Volkswagen 19.878 bíla í
fyrra, borið saman við 25.399 bíla
á árinu 1981.
Ekki urðu allir innflytjendurnir
jafn illa úti. Alls seldust 34.112
Datsun-bíla, en árið 1981 seldust
31.075 slíkir. Þá seldust fleiri
Mercedes Benz-bílar í fyrra en ár-
ið á undan, eða 2.787 bílar á móti
2.750 bílum. BMW seldi 3.078 bíla
á móti 2.857 í fyrra.
Útflutningur frystra sjávaraf-
urða, annarra en botnfiskafurða,
jókst mikið á árinu. Þannig jókst
útflutt magn rækju um 43%, hum-
ars um 52% og freðsíldar um 34%.
Útflutningur mjöls varð 3.100
lestir, og var það fjórðungi minna
en á árinu 1981. Útflutningur
skreiðar og hertra hausa nam
3.000 lestum. í „Sambandsfrétt-
um“ segir, að þrátt fyrir þá erfið-
leika, sem steðjuðu að skreiðar-
verzlun á sl. ári, var það þriðja
mesta skreiðarútflutningsár í
sögu sjávarafurðadeildarinnar.
Sambandsfrystihúsin fram-
leiddu samtals 36.000 tonn af
frystum sjávarafurðum á sl. ári,
sem er um 15% aukning frá árinu
1981, en þá var framleiðslan um
31.300 tonn. Þrátt fyrir mikinn
samdrátt í þroskafla, sem óhjá-
kvæmilega leiddi til minni fryst-
ingar þorskafurða, varð árið 1982
annað mesta framleiðsluár frysti-
húsanna. Metárið var 1979, þegar
framleidd voru 36.400 tonn.
Framleiðslan á síðasta ári af
frystum þorskafurðum var 13.210
tonn, og dróst hún saman um 11%
frá árinu 1981. í öllum botnfisk-
tegundum varð hins vegar aukn-
ing, í sumum veruleg, og í allri
botnfiskframleiðslunni varð aukn-
ingin um 13%. í framleiðslu ann-
arra frystra afurða varð aukning-
in um 28%, en magnið var tæplega
4.400 tonn.
Um 450
milljóna
dollara lán
á „Eurobond44-
markaði
TILKYNNT var um sex ný lán á
„Eurobond“-markaðinum í lið-
inni viku, að upphæð 450 milljón-
ir Bandaríkjadollara, sem svarar
til 8.348 milljóna króna.
Fjögur lánanna voru i
Bandaríkjadollurum, að upp-
hæð liðlega 315 milljónir doll-
ara. Síðan var eitt lán í sterl-
ingspundum, að upphæð 50
milljónir sterlingspunda. Loks
var eitt lán í Kanadadollurum,
samtals 50 milljónir dollara.
Verulegur samdrátt-
ur í sölu innfluttra
bíla í Kanada