Morgunblaðið - 29.01.1983, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983
IA vann
Skallagrím
AKURNESINGAR skelltu Skalla-
grími á dögunum i 3. deildinni í
handbolta með þrjátíu og fjór-
um mörkum gegn tíu, og við
sigurínn vænkaöist hagur ÍA
verulega. Eftir leikinn er staöan
í 3. deildinni þannig:
Fylkir 9 9 0 0 199:141 18
Reynír 10 7 1 2 258:188 15
Akranes 10 6 1 3 278:186 13
Þór, Ak. 9 5 2 2 234:165 12
Keflavik 9 5 1 3 211:167 11
Týr 8 3 1 4 173:151 7
Dalvík 7 2 0 5 164:165 4
Skallagr. 12 2 0 10 202:338 4
Ögri 10 0 0 10 111:337 0
Afmælismót
júdómanna
Júdósamband íslands átti tíu
ára afmæli i gær, og að því til-
efni heldur sambandiö sérstakt
afmælismót. Fer fyrri hluti þess
fram í dag, og hefst í íþróttahúsi
kennaraháskólands kl. 15.00.
Þá verður keppt í öllum
þyngdarflokkum karla, sjö flokk-
um alls, og er vænst þátttöku all-
ra bestu júdómanna landsins.
Einni hluti mótsins verður um
næstu helgi og verður þá keppt í
einum flokki karla. kvennaflokki,
og flokkum unglinga. Verður þaö
laugardaginn 5. febrúar og hefst
einnig kl. 15.00.
Skíðagöngu-
kennsla
SKÍÐAFÉLAG Reykjavíkur hef-
ur í dag skíðagöngukennslu í
Hveradölum. Leiðbeinandi
verður Ágúst Björnsson, og fer
kennslan fram milli kl. 13.00 og
15.00, laugardaga og sunnu-
daga. Skráning er í skála fé-
lagsins í Hveradölum.
KA með innan-
hússknatt-
spyrnumót
Knattspyrnudeild KA á Akur-
eyri gengst fyrir opnu knatt-
spyrnumóti innanhúss, svoköll-
uðu Bautamóti, í íþróttahöllinni
á Akureyri 5. febrúar (og daginn
eftir ef þátttaka verður góð), og
má hvert félag senda tvö lið til
mótsins.
Leikið verður í riölum, þannig
að hvert liö fær a.m.k. fjóra
leiki. Þátttaka tilkynnist fyrir 1.
febrúar til Gunnars Kárasonar
eða Gísla Más Ólafssonar.
Þátttökugjald er 1000 kr. á lið.
Bautinn mun gefa bikar og
verölaunagripi mótsins.
Stjörnugjöf-
in:
ÍR:
Pétur Guömundsson ★**
Kristinn Jörundsson **
Gylfí Þorkelsson ★
Hjörtur Oddsson ★
Hreinn Þorkelsson *
VALUR:
Ríkharður Hrafnkelsson **★
Torfi Magnússon ★*
Kristján Ágústsson ★
ÍBK:
Jón Kr. Gíslason ***
Axel Nikulásson **
Björn Skúlason **
Þorsteinn Bjarnason *
Viðar Vignisson ★
Óskar Nikulásson *
UMFN:
Valur Ingimundarson **★
Árni Lárusson **
Gunnar Þorvarðarson ★*
Ingimar Jónsson *
Sturla Órlygsson *
Júlíus Valgeirsson *
Kæru KR-inga vísað frá, en
Ríkharður fer í eins leiks bann
RÍKHARDUR Hrafnkelsson, Val,
var í fyrrakvöld dæmdur í eins
leiks bann af aganefnd KKÍ. Rík-
harður var rekinn út úr húsinu, er
Valsarar léku gegn Njarðvíking-
um syðra fyrir skömmu, fyrir að
slá Inga Gunnarsson, liðsstjóra
UMFN.
Valsarar höfðu farið fram á
munnlegan málflutning en féllu
síðan frá því. Aganefnd kom þá
saman í fyrrakvöld, og dæmdi
Ríkharö í eins leiks bann. Hann
missir því af leik Vals viö KR, sem
leikinn verður næsta laugardag.
Eins og komið hefur fram er
Bulau vann
í annað sinn
• Ríkharður Hrafnkelsson var
dæmdur í eins leiks bann.
Skíðastökkvarinn Host
Bulau frá Kanada, sigraði
í gær í annarri umferð
svissnesku stökkkeppn-
innar, keppni sem telst til
heimsbikarsins og er í
þremur umferðum. Bulau
vann einnig fyrstu um-
ferðina.
í gær átti hann tvö lengstu
stökkin, stökk 86,5 metra og
87 metra. Lengsta stökk af
þessum palli áöur var 86 metr-
ar þannig aö hann stökk lengra
en það í báðum sínum stökk-
um.
Sigurvegarinn var þó ekki
alls kostar ánægöur meö sjálf-
an sig. „Ég er í ágætri æfingu,
en stökkin hjá mér voru ekki
fullkomin,“ sagði hann í spjalli
við fréttamann AP. Hann hlaut
250,3 stig fyrir stökkin í gær.
Annar varð Norðmaðurinn
Roger Ruud, stökk 85,5 m í
bæði skiptin og hlaut 247,3
stig.
þetta ekki eina kæran sem í gangi
er hjá körfuboltamönnum.
KR-ingar kæröu Viðar Vignisson,
iBK, en hann hefur dvalist undan-
fariö í Bandaríkjunum þar sem
hann æföi og lék meö háskólaliöi
— ekki aöalliöinu aö vísu — en
kom síöan heim og leikur nú um
tíma meö Keflvíkingum.
Kæra KR-inga ver tekin fyrir í
héraösdómstóli ÍBK á miövikudag-
inn og vísaöi dómstóllinn henni frá
á þeim forsendum aö hún heföi
borist dómnum of seint.
I samtali viö Morgunblaöiö
sagöi Jón Sigurðsson, KR-ingur,
aö þeir heföu sent kæruna í
ábyrgöarpósti til Keflavíkur innan
48 klst. frá því aö brotiö var fram-
iö, og heföu þeir spurst fyrir um
þaö á skrifstofu ÍBÍ, hver væri
formaöur dómsins. Eftir þeim upp-
lýsingum sem þeir fengu sendu
þeir síöan kæruna til Garöars
Oddgeirssonar, en síöan kom upp
úr kafinu aö hann er formaöur ÍBK,
en ekki dómsins. Jón sagöist ekki
geta sagt ákveðiö hvort úrskurðin-
um yröi áfrýjaö, þar sem stjórn
KR-inga heföi ekki tekiö málið
fyrir.
— SH.
Formaður finnska
handboltasambandsins:
„Sjaum hvar við
stöndum eftir leikina
við ísland“
Frá Þórarni Ragnarssyni, blaðamanm
Morgunblaðsins, í Finnlandi.
FORMAOUR finnska handknatt-
leikssambandsins sagði ( spjalli
viö Morgunblaöiö í gær, að Finnar
væru að byggja upp ungt liö, og
eftir leikina viö ísland myndu þeir
sjá hvar þeir stæðu í handbolta-
heiminum.
„Viö vitum hve sterkir íslend-
ingarnir eru og úrslitin úr leikjum
þeirra viö Dani sýna aö þeir eru
góöir. Viö munum leggja okkur alla
fram í leikjum gegn þeim,“ sagöi
formaöurinn.
Finnar hafa leikiö nokkra leiki
upp á síökastiö, þeir sigruöu Aust-
urríkismenn meö sjö marka mun,
sigruðu Luxemborg með tíu marka
mun, og töpuöu meö einu marki
fyrir Norömönnum.
Heimsmeistarakeppni unglinga í
handbolta veröur haldin í Finnlandi
í haust, og sagöi formaöur finnska
sambandsins aö uppgangur íþrótt-
arinnar væri mikill í landinu.
— SH/— ÞR.
• Bjarni Guðmundsson leikur ekki meö landsliðinu gegn Finnum, en
verður síöan með gegn Norömönnum.
Grindvíkingar stóðu í stúdentum
ÍS SIGRAÐI UMFG á miöviku-
dagskvöldið í 1. deild karla í
körfu. Ungu strákarnir í Grinda-
vík komu mjög á óvart í leiknum
og veittu þeir leikreyndum ÍS-
mönnum harða keppni. Er gaman
að sjá hve miklum framförum lið
Grindavíkur hefur tekið í vetur,
sérstaklega eftír að Kintzinger
tók við liöinu.
Þegar fyrri hálfleikur var hálfn-
aöur haföi UMFG forystu, 23—22,
og var þaö mestmegnis vegna
stórleiks Douglas Kintzingers. En
ÍS hafði 3 stiga forystu í hálfleik,
42—39.
Seinni hálfleikur hélst síöan jafn
framan af, staöan var t.d. 62—61
fyrir ÍS um miöjan hálfleikinn. En
þegar 6 mínútur voru til leiksloka
komst ÍS í 71—65 og var sigurinn
aldrei í hættu eftir þaö hjá ÍS.
Lokatölur uröu síðan 78—71.
Hjá Grindavík var Douglas
Kintzinger mjög góöur í fyrri hálf-
leik en dalaði síðan i þeim seinni.
Ingvar Jóhannsson var einnig mjög
sprækur hjá UMFG. Pat Bock var
bestur hjá ÍS-mönnum og gerði
margt laglegt í leiknum.
Stigahæstir voru:
ÍS: Pat Bock 32, Guömundur Jó-
hannsson 15, Eiríkur Jóhannsson
13, Gísli Gíslason 12 og Árni Guö-
mundsson 4 stig.
UMFG: Douglas Kintzinger 31,
Ingvar Jóhannsson 22, Jóhannes
Sigurkarlsson 6 og Hjálmar Hall-
grímsson 6 stig.
IHÞ.—
Staðan í 1. deild karla.
Haukar 11 9—2 1000:783 18
is 11 8—3 974:777 16
Þór 9 7—2 758:668 14
UMFG 11 2—9 795:970 4
UMFS 10 0—10 693:1022 0
• Hasarinn í kvennahandboltanum er oft ekkl minni en hjá körlunum, að minnsta kosti ekki ef marka má
þessa skemmtilegu mynd, sem tekin var í Evrópuleik danska liðsins AIA gegn rúmönsku liði. Sú með
knöttinn er greinilega ekki á því aö láta mótherjann komast yfir hann, en mótherjinn auðvitað staðráðinn í
því að ná tuðrunni. Nema þær séu að ræöast viö í rólegheituml
Leikið i Finn-
landi í dag
Frá Þórarni Ragnarssyni, blaóamanni
Morgunblaósins í Finnlandi.
ÍSLENSKA landsliöiö kom til
Finnlands seinni partinn í gær og
leikur í dag fyrri leik sinn gegn
Finnum. Síðari leikurinn verður
svo á morgun, en á mánudag
verður haldiö til Noregs, þar sem
leikið veröur á þriöjudag og mið-
vikudag. _ SH/ ÞR_