Morgunblaðið - 19.02.1983, Side 16

Morgunblaðið - 19.02.1983, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1983 Virkjuð vatnsorka að verðmæti 40 millj. dollara rennur óseld til sjávar á næstu fjórum árum „Forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, góðir félagar og gestir. Viðskiptaþing er ætlað að marka stefnu Verzlunarráðs ís- lands í þjóðmálum og taka til meðferðar þau málefni, sem hæst ber í atvinnulífinu hverju sinni. Um þessar mundir er okkur ofar- lega í huga stefnuleysi sem ein- kennir stjórnmálin og það úrræðaleysi sem blasir við í efnahagsmálum. Flestum er nú að verða ljóst, að endurreisnar er þörf á báðum þessum sviðum. Svo mikilvæg mál getum við ekki látið afskiptalaus. Við þurfum að lýsa skoðunum okkar á stjórnmálunum og efna- hagsmálunum eins og þau snerta atvinnulífið og leggja okkar af mörkum til að losa það undan óþarfa afskiptum stjórnmála- manna. Meðal stjórnmálamanna okkar nú um stundir er ekki að finna forystu eða nýjar hugmyndir, sem eru líklegar til að leysa þau vandamál og viðfangsefni sem við blasa í atvinnulífinu. Atvinnulífið sjálft verður því að setja fram leiðir til lausnar. Það er tilgangur þessa Viðskiptaþings. Hgmyndir, en ekki hagsmunir, stjórna heiminum sagði Keynes lávarður í frægasta hagfræðiriti sínu. Okkur íslendingum hefur iðulega verið illa við nýjar hug- myndir. Hugmyndir geta leitt til breytinga og breytingar raska þjóðlífinu. Hins vegar verða engar framfarir án breytinga, og án framfara getum við ekki átt glæsta framtíð. Jónas Hallgríms- son orðaði þetta snilldarlega: l»aA er svo bágt aó slanda í staA, og mönnunum munar annaóhvort aftur á bak ellegar nokkuA á leiA. Eins og stundum áður, vantar okkur frumkvöðla nýs tíma nýjar hugmyndir og nýja endurreisn, þannig að fólk í landinu fái að njóta sín sjálfu sér og landinu til heilla. Upplausn í stjórn- málum og efna- hagsmálum Frá því snemma á síðasta ári hefur mönnum verið ljóst að við mikla efnahagserfiðleika er að glíma. íslendingar geta ekki blekkt sig með því að segja að þessi vandi sé eingöngu afleiðing af söluerfiðleikum og minni sjáv- arafla en árið áður. Ef við gerum það, lokum við augunum fyrir langvarandi óstjórn og aðgerðar- leysi í efnahagsmálum, sem er höfuðorsökin. Hinir ytri erfiðleik- ar hafa aðeins dregið skýrt fram, að við getum ekki lifað í blekking- unni áfram. Þeir sem fyrstir áttu að bregð- ast við, stjórnvöld landsins, hafa kosið að lifa áfram í blekkingunni, eða svo virðist, þrátt fyrir tal þeirra um það að nú þurfi að taka á málum. Arum saman hafa menn beðið eftir raunhæfum aðgerðum í efnahagsmálum. Allt sem þó er hægt er að segja um frammistöð- una til þessa er einungis: Of lítið og of seint. Og enn stöndum við í sömu sporum. Það ríkir upp lausn á stjórn- málasviðinu, þrátefli milli stjórn- ar og stjórnarandstöðu annars vegar og innan ríkisstjórnarinnar hins vegar. Meðan þessu fer fram magnast vandinn. Við þessar að- stæður eru vel við hæfi áminn- ingarorð verkstjórans til letingj- ans: „Tala minna, gera meira". Á vettvangi stjórnmálanna eru nú fleiri mál í umræðunni en varða atvinnulífið, en efnahags- mál. Þar ber hæst stjórnarskrár- málið. Sá hluti þess sem lýtur að kjördæmamáli og kosningarrétti er nú ofurseldur tölvuvæddum hrossakaupum milli þingmanna og þingflokka. Þó er jöfnun kosn- ingaréttar, án tillits til búsetu, ekki aðeins sjálfsagt jafnréttis- mál, heldur einnig mikilvægt bar- áttumál þeirra sem vilja heil- brigðan markaðsbúskap. Margir talsmenn misvægis halda því full- um fetum fram í þessu réttinda- máli, að þeir séu að standa vörð um aðstöðu þingmanna til þess að úthluta efnahagslegum gæðum án kröfu um arðsemi. Við íslendingar búum nú við upplausn í stjórnmálum og efna- hagsmálum. Fátt er þó svo með öllu illt að ekki boði gott nokkuð gott. Aðgerðarleysið og getuleysið hefur gefið þeirri skoðun byr und- ir vængi, langt inn í raðir stjórn- málaflokkanna allra, að nálgast þurfi efnahagsvandann frá nýjum sjónarhóli svo að kostir einka- rekstrar og markaðsbúskapar fái að njóta sín. Við þekkjum sem sé orsakir vandans og við getum unn- ið bug á honum. Þörf endurreisnar Hvert sem litið er í efnahagslífi þjóðarinnar blasa við alvarlegar staðreyndir, sem sýna okkur að ekki verður lengur vikizt undan að hefja endurreisn í efnahagslífinu: ★ í ár er spáð meiri verðbólgu en við höfum áður þekkt í íslands- sögunni. ★ Þjóðartekjur hafa ekki vaxið síðan á árinu 1978 og nú lækka þær um hátt í 5% annað árið í röð. ★ Viðskiptahallinn hefur ekki ver- ið meiri um langt árabil. Setningar- ræða Ragnars S. Halldórs- sonar á Viðskipta- þingi 1983 ★ Erlendar skuldir eru komnir yf- ir hættumörk, enda nálgast greiðslubyrði erlendra lána þriðjung útflutningstekna. ★ Skattheimtan eykst sífellt og nálgast nú, að við vinnum hálft árið til að standa skil á sköttum til ríkis og sveitarfélaga. ★ Við stundum rányrkju á fiski- miðum okkar og afréttarlönd- um. ★ Við virkjum orku fallvatnanna án þess að kaupendur séu í sjón- máli. ★ Mikil lánsfjárkreppa er nú í landinu, og alvarlegir greiðslu- erfiðleikar hjá fyrirtækjum. Við sem störfum í atvinnulífinu höfum lengi bent á hvert stefnir. Til þessa höfum við talað fyrir daufum eyrum. Það er miður, því að aðgerðarleysið eykur á vandann og gerir okkur erfiðara fyrir að vinna okkur út úr honum. I febrúarhefti News from Ice- land vekur dr. Þráinn Eggertsson athygli á reynslu annarra þjóða í að ná niður verðbólgu. Reynsla sögunnar sýnir, að beztur árangur næst, þegar beitt er snöggu sam- ræmdu átaki. Miðað við reynslu annarra, bendir flest til að við íslendingar eigum að geta náð góðum árangri. Víðtæk verðtrygging fjárskuld- bindinga auðveldar okkur barátt- una, og tíðar verðbreytingar vegna þess hve verðbólgan er kom- in á hátt stig, tryggir að flestir aðilar efnahagslífsins eru stöðugt að aðlaga sig breyttum aðstæðum. Samræmt átak til verðhjöðnunar skapar því ekki sama vanda og víða annars staðar. Til þess að breyta verðbólgu- hugsunarhætti fólks við þessar aðstæður, er mikilvægast að að- gerðirnar fari strax að bera árangur. Viðreisnin 1960 Við íslendingar höfum áður framkvæmt markvissa kerfis- breytingu í efnahagsmálum með góðum árangri. Viðreisnin 1960 var slík aðgerð. Þá eins og nú voru menn vantrúaðir. Aðgerðin tókst hins vegar svo vel, að nú hafa flestir gleymt hversu róttæk hún var í reynd: stjórn í rúman áratug, og enn í dag dettur engum í hug sem til þekkir að snúa aftur til haftakerf- isins. Svo alræmt var það orðið. Þegar við metum stjórn efna- hagsmála síðustu árin ætti okkur að vera ljóst, að þau úrræði sem til þessa hefur verið beitt, duga ekki til lausnar. Vandinn er stærri en svo. Einungis með kerfisbreyt- ingu og snöggu átaki, líkt og 1960, þar sem samræmdum og heild- stæðum aðgerðum er beitt, náum við árangri. Þær tillögur, sem við leggjum hér fram eru þessa eðlis. Hugmyndir Verzl- unarráðs íslands Þessar hugmyndir eru ekki nýj- ar af nálinni. Margar þeirra hafa ' erið reyndar erlendis með góðum árangri. Það sem er nýtt við þær er, hvernig þær eru settar fram hér sem samræmd lausn sniðin að innlendum aðstæðum og þeim vanda sem hrannast hefur upp. Með samræmdum aðgerðum er lagt til að vinna á verðbólgunni með fyrirfram yfirlýstum lækkun- um á óbeinum sköttum og sam- svarandi lækkun opinberra út- gjalda. Sjálfvirk tengsl verðlags breytingum verið óvenju sterk. Við vitum, að það voru þjóðfé- lagslegar takmarkanir vaxtar, sem komu í veg fyrir að íslend- ingar nytu góðs af iðnbyltingunni, fyrr en I lok síðustu aldar. Þessar skorður voru fólgnar í því að bannað var að gera verbúðir að föstum íverustöðum allt árið. Bændasamfélagið var að halda í það kerfi að senda vinnumenn á vertíð og tryggja að þeir skiluðu sér heim aftur með því að heimila ekki fasta búsetu við sjávarsíðuna. f löndum, sem ekki hafa byrjað að þróast, er ávallt sterk ósk um að varðveita það gamla og þekkta, en tiltölulega veik ósk um að breyta og innleiða nýjungar. Við íslendingar þekkjum þetta, m.a. frá deilunni um Laxárvirkjun, og nú síðast um Blönduvirkjun. Ekki virðist mega leggja afréttarlönd eða gróið land undir miðlunarlón. Þá er sauðfjárbúskapur í hættu. Þetta gerist, þótt allir viðurkenni, að við framleiðum allt of mikið af dilkakjöti, og gróðureyðing á af- réttum af völdum ofbeitar sé ógnvekjandi. Kyrrstaða er afturför Við fslendingar erum ekki einir um að óttast að standa í vegi fyrir breytingum. Ef menn hefðu verið spurðir í lok seinni heimsstyrjald- arinnar, hvoru eylandinu mundi vegna betur eftir stríðið Bretlandi eða Japan, hefðu flestir veðjað á Bretland. Brezkur iðnaður var mun sterkari í stríðslok en í upp- hafi styrjaldarinnar. Hann réð yf- ir endurnýjuðum verksmiðjum, nýrri tækni og var leiðandi f fram- leiðslu fjölmargra iðnaðarvara. ★ Víðtækt uppbóta- og milli- færslukerfi í sjávarútvegi var afnumið, en raunhæf gengis- skráning tekin upp. ★ Innflutningsskrifstofan var lögð niður, innflutningshöft afnum- in, og stærstur hluti innflutn- ings gefinn frjáls. ★ Vísitölukerfið var afnumið og bannað að miða kaupgjald sjálfkrafa við breytingar á vísi- tölu. ★ Vöxtum var breytt og jafnvægi komið á í peningamálum. ★ Tekjuskattur var verulega lækk- aður, en 3% söluskattur tekinn upp. ★ Gjöld á innflutning voru ein- földuð og samræmd og ný tollskrá tekin upp 1963. Byrjað var að innleiða frjálsa verðmyndun. Árangurinn af þessum aðgerð- um lét ekki á sér standa. Jafnvægi komst á utanríkisviðskiptin og ný- ir straumar vaxtar og framfara fóru um allt atvinnulífið. í hönd fór eitt mesta uppgangsskeið í sögu þjóðarinnar. Svo afgerandi var breytingin í hugum lands- manna,að andstæðingum hennar var ekki treyst til að mynda ríkis- og launa eru rofin, en sparnaður efldur til að draga úr eftirspurn. Frjáls verðmyndun lækkar vöruverð, þar sem hún stuðlar að aukinni samkeppni og hagræð- ingu. Jafnframt eru fyrirtækjum opnaðar leiðir til að treysta fjár- hagsstöðu sína og takast á við ný verkefni. Það eykur framboð á vöru og þjónustu og eftirspurn eft- ir vinnuafli, sem dregur úr hætt- unni á að hjöðnun verðbólgu fylgi atvinnuleysi. Loks eru settar fram tillögur um nýtingu auðlynda, en vandi okkar á því sviði kallar á tafar- lausar aðgerðir. Á næstu 4 árum mun virkjuð vatnsorka að verð- mæti um 40 milljónir dollara renna óseld til sjávar. Við höfum ofgert fiskimiðunum og ofbeitt af- réttarlöndin. Á þessum mála- flokkum verður að taka af festu og einurð, ef við ætlum afkomendum okkar að byggja landið með fullri reisn. Hræðsla við breyt- ingar Öllum breytingum fylgir viss vantrú. Menn þekkja það sem þeir sjá, en óttast það óþekkta. Hér á landi hefur þessi andstaða gegn Tæknikunnáta Breta, menntun þeirra og efnahagslegur árangur hafði yfirburði. Þeir vöktu aðdáun og réðu yfir viðskipta- og fjár- málakerfi, sem náði til alls heims- ins. Japanskur iðnaður var hins vegar í rúst. Stórveldið, sem Jap- anir höfðu ráðið yfir, var hrunið. 20 árum síðar höfðu Japanir samt náð Bretum og standa nú tæknilega mun framar. í hverju liggur munurinn á þessari fram- þróun? Japanir leituðu nýjunga, en Bretar viðhéldu því hefð- bundna. Á vörusýningum sýna Bretar enn gamalgrónar fram- leiðsluvörur: whisky, ullarvörur, postulín — allt sérstakar gæða- vörur, en framleiðsla fortíðarinn- ar. Japanir sýna hins vegar tækni- nýjungar í framkvæmd, sem ofan á allt annað eru margar hverjar fundnar upp í Bretlandi. Við íslendingar erum á sama báti og Bretar. Nýjar atvinnu- greinar sitja í öskustónni, meðan þær hefðbundnu njóta forgangs. Efnahagskerfið er allt sniðið að þörfum þeirra. Landsmenn fá jafnvel ekki að njóta sama kosn- ingaréttar, hvar sem þeir búa í landinu. Það gæti haft of miklar breytingar í för með sér. Deilurnar, sem nú eru uppi um

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.