Morgunblaðið - 19.02.1983, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1983
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins veröa til viötals í
Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl.
10—12. Er þar tekiö á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum og er öilum borgarbúum boöiö aö
notfæra sér viötalstíma þessa.
Vilhjéhmir Cinar
Laugardaginn 19. fsbrúar vsrða til viötals kl.
10—12 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Einar
Hákonarson.
L
IANDSVIRKJUN
Grjótmulnings- og
flokkunarsamstæða
til sölu
Landsvirkjun áformar aö selja, ef viöunandi tilboö
berast, grjótmulnings- og flokkunarsamstæöu sem
fyrst var sett upp viö Búrfell áriö 1966. Síöar var hún
flutt aö Sigöldu þar sem hún var síðast í rekstri
sumariö 1981.
Lýsing:
Samstæöan er í járn- og timburklæddu
stálgrindarhúsi, grunnflötur 4x15 m, hæö 15 m.
Unnt er aö mylja grjót í 5 mismunandi stærö-
arflokka.
Afköst, um 60 tonn á klukkustund.
Vélbúnaöur, aöallega frá Swedala-Arbrá.
Rafbúnaöur, tegund ASEA.
Helstur hlutir samstæöunnar eru:
2 matarar.
3 mulningsvélar.
2 tvöföld hristisigti.
1 tvöfalt þvottasigti.
I sandþvottavél (spiral classifier).
II færibönd, ýmsar stæröir.
4 geymsluhólf, stærö samals 75 m3
Væntanlegum bjóöendum veröur gefinn kostur á aö
taka þátt í skoðunarferð aö Sigöldu þar sem sam-
stæöan er nú.
Þátttöku þarf aö tilkynna eigi síðar en 25 þ.m.
Nánari upplýsingar gefur Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
byggingardeild Landsvirkjunar, Grensásvegi 13,
Reykjavík, sími 83058.
Bladburöarfólk
óskast!
Úthverfi
Hjallavegur
fKtnmm
ÚR VÖNDU AÐ RÁÐA
NOKKRIR baejarstarfsmenn í Austin í Texas lentu í dálitlum vandræðum fyrir skömmu þegar þeir voru
að aka um á nýja kranabílnum sínum. Kraninn flæktist nefnilega í háspennuvírum, sem ekki vildu slitna
eins og vírar eiga að gera heldur drógu bílinn til sín þar til hann var nærri kominn á hliðina. Allt fór þó
vel að lokum en það tók bæjarstarfsmennina um klukkutíma að greiða úr flækjunni og koma bílnum á
réttan kjöl.
Simone de Beauvoir
fær Sonning-verðlaun
Kaupmannahófn, 18. febrúar. AP.
FRANSKI rithöfundurinn og
heimspekingurinn, Simone de Be-
auvoir hlaut í dag Sonning-verð-
launin dönsku fyrir framlag sitt til
Stuttfréttir
Englandsdrottning í
Mexikó
Acapulco, 18. febrúar. AH.
ELÍSABET Englandsdrottning
kom í gær til Acapulco í Mexikó
og var það fyrsti áfangi hennar í
átta daga opinberri heimsókn.
Drottningu var tekið meö miklum
virktum við komuna og stóð flest
allt stórmenni í landinu á strönd-
inni þegar hana bar aó garði.
Francis Pym, utanríkisráðherra
Breta, átti i gær fund með
starfsbróður sínum mexikönskum,
Bernardo Sepulveda, og höfðu
þeir um margt að spjalla, ekki síst
olíuverðið, ólguna í Mið-Ameríku
og gífurlegar skuldir mexikönsku
þjóðarinnar. Frá Mexikó mun
drottning með konungsskipinu
Britannia til Bandaríkjanna og
Kanada.
HrossiÖ enn á írlandi
Dyflinni, 18. febrúar. AP.
ÍRSKA lögreglan telur að gæða-
klárinn hans Aga Khans, sem
rænt var á dögunum, sé enn á ír-
landi en hefur þó haft samband
við Interpol, alþjóðalögregluna, og
heöið hana um að svipast um eftir
hrossinu á meginiandinu.
„Við teljum að hesturinn sé enn
í landinu,“ sagði lögregluforing-
inn, sem stjómar leitinni, en
ókunnur maður, sem hafði sam-
band við BBC á Norður-írlandi,
sagði að hesturinn hefði verið
fluttur til Miðausturlanda þar sem
hann væri notaður til undaneldis.
Prövdu nóg boðið
PRAVDA, málgagn sovéska
kommúnistaflokksins, birti í dag
forsíðuleiðara þar sem harkalega
var ráðist á ástandið hjá hinum
opinheru fyrirtækjum, sem stunda
mannflutninga í landinu.
„Biðsalir járnbrautarstöðva og
flugstöðva eru yfirfullir, langar
biðraðir eru við miðasöluna og
fólk verður svo að bíða dögum
saman eftir brottförinni,“ sagði
l’ravda og upplýsti, að í ágúst sl.
hefði sjöunda hver ferð í innan-
landsflugi tafist vegna skringilegr-
ar afgreiðslu á eldsneytinu. Fyrir
aldrað fólk, fatlaö og foreldra með
börn er það hrein frágangssök að
ferðast innan Sovétríkjanna, sagði
Pravda. Miðasalarnir fengu einnig
að heyra það því að sagt var, að
þeir seldu aðeins miðana gegn
„sérstakri aukaþóknun".
evrópskrar menningar. Verðlauna-
féð nemur um 455.000 ísl. kr.
Sonning-verðlaununum er út-
hlutað annað hvert ár og er það
nefnd manna á vegum Kaup-
mannahafnarháskóla, sem velur
verðlaunahafann. í tilkynningu
nefndarinnar sagði, að de Beau-
voir, sem er 74 ára gömul, hefði
verið valin vegna „mikilvægis
hennar í evrópsku menningarlífi
sem rithöfundar, heimspekings
og mannvinar og ekki síst vegna
þeirra áhrifa, sem hún hefur
haft á kvenréttindamál nú á
dögum."
Það var danski ritstjórinn og
útgefandinn C.J. Sonning, sem
stofnaði til verðlaunanna en þau
voru fyrst veitt árið 1950. Þá
fékk þau Winston Churchill og
síðar dr. Albert Schweitzer en
1981 hlaut þau ítalska leikrita-
skáldið Dario Fo. Einn íslend-
ingur hefur fengið þessi verð-
laun, Halldór Kiljan Laxness, og
varð þá nokkur hvellur meðal
róttækra landa hans i hópi stúd-
enta, sem fundu út, að tekjur
Sonning-sjóðsins voru að
nokkru leiga fyrir íbúðarhús-
næði í Kaupmannahöfn.
ERLENT
Veður
víða um heim
Akureyri 4 rigníng
Amsterdam 3 heiósklrt
Aþena 3 snjókoma
Barcelona 10 místur
Berlín 0 skýjaö
BrUssel 3 heióskírt
Chicago 3 skýjaö
Dublm 6 mistur
Feneyjar 7 heiöskirt
Frankturt +7 heiðskírt
Færeyjar 8 skýjað
Genl +1 skýjaö
Helsinki 3 heióakírt
Hong Kong 32 akýjað
Jerúsalem 6 rigning
Jóhannesarborg 29 heióskírt
Kaupmannahöfn 3 skýjaö
Kairó 18 skýjaö
Las Palmas 19 skýjaó
Lissabon 10 skýjaó
London 6 skýjaö
Los Angeles 26 heióskfrt
Madrid 10 skýjaó
Mallorca 12 hátfskýjaó
Malaga 13 alskýjaó
Mexíkóborg 23 akýjaó
Miamí 25 heióskirt
Moskva +7 heióakfrt
Nýja Delhí 22 heióakirt
New York 6 heiðskírt
Osló +7 heiöskirt
París 5 heiöskírt
Peking 1 heióskfrt
Perth 35 heiöskfrt
Reykjavík 2 skúrír
Rio de Janeiro 40 heiöskírt
Rómaborg 9 heióskfrt
San Francisco 20 skýjsó
Stokkhólmur 3 heióskírt
Tel Aviv 15 rigning
Tókýó 10 skýjað
Vancouver 11 skýjaó
Vínarborg +3 heiöskírt
V etrarríki í
Grikklandi
\|»cnu, 18. fcbrúar. AP.
í (iRIKKLANDI ræður nú kulda-
boli ríkjum með snjókomu og
hörkugaddi. Aþenubúar ösla snjó-
inn í ökkla og eiga fullt í fangi með
að fóta sig í norðanbálinu, símalín-
ur hafa slitnað og flug- og ferjuferð-
ir hafa lagst niður.
Hitastigið í höfuðborginni var
um eitt stig á celcíus og spáðu
veðurfræðingar kólnandi veðri á
morgun, laugardag. í Norður-
Grikklandi var víða mikið frost,
allt að 15 stig, og mörg fjallaþorp
voru einangruð vegna snjóalaga.
í Aþenu var stanslaus ofankoma í
alla fyrrinótt og var það nýstár-
leg sjón fyrir margan manninn,
sem blasti við um morguninn.
Götur, hús og bílar hulin fann-
hvítri mjallarbreiðu.
í Vestur- og Mið-Tyrklandi er
veðrið ekki skárra. Snjólagið
mældist 15 sm í Istanbul og um
tíma lokaðist brúin yfir Bospor-
us-sund, sem tengir Evrópu og
Asíu. Samgöngutruflanir hafa
orðið miklar í öllu vestanverðu
landinu og allt til Ankara í Anat-
ólíu.