Morgunblaðið - 19.02.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1983
23
Eiturvopnadeild-
ir eru alls staðar
New York, 18. Tebrúar. Al*.
SEX sovézkir hermenn, sem gerzt hafa liðhlaupar í stríöinu í Afganistan,
hafa skýrt frá hlutskipti sínu í sovézka hernum og vonbrigöum sínum meö
tilliti til hernáms sovézka hersins 1 la
Komu þeir fram í sjónvarps-
þætti, sem bandaríski fréttamað-
urinn Bill Redeker tók upp fyrir
ABC-sjónvarpsstofnunina fyrir
tveimur vikum í búðum frelsis-
sveitanna í Afganistan, sem berj-
ast gegn Rússum og her stjórnar-
innar í Kabúl. Er þetta í fyrsta
sinn, sem rússneskir liðhlaupar í
Afganistan eru spurðir í þaula í
sjónvarpsviðtali. Þar lýsa þeir því,
hve kjarkurinn er lítill og
stemmningin léleg á meðal sov-
ézku hersveitanna og ennfremur,
að með hernaðaraðgerðum sínum
hafi Sovétherinn orðið fjölda sak-
lausra manna að bana.
„Yfirmenn okkar sögðu okkur,
að í Afganistan væri allt fullt af
erlendum málaliðum og að við
yrðum að hjálpa afgönsku þjóð-
inni að hrinda árás þeirra," sagði
Valery Kissilev, tvítugur hermað-
ur, í þessu viðtali. „En þetta er
hrein lygi,“ sagði Kissilev enn-
fremur. „Hvaða árás? Við komum
ekki auga á nokkra árás hér, held-
ur aðeins afgönsku þjóðina, sem
greip til vopna til þess að vernda
sitt eigið lana.“
Kissilev sagði ennfremur, að
sovézki herinn í Afganistan hefði
„alls staðar eiturvopnadeildir".
Annar sovézkur hermaður, Sergei
Neshcherlyakov, 26 ára gamall,
sagði i þessu sama sjónvarpsvið-
tali, að notkun á hass væri mjög
algeng á meðal sovézku hermann-
anna. „Þeir ná í það með því að
skipta á því og persónulegum
munum sínum, jafnvel skotfær-
um.“
Sotheby’s selur
friðarverðlaun
London, 18 febrúar. AP.
FRIÐARVERÐLAUN Nóbels fyrir
árið 1933, áriö sem Hitler komst til
valda, voru í gær seld á uppboöi hjá
Sotheby’s í London fyrir um 240.000
kr. íslenskar.
Þessi verðlaun féllu á sínum
tíma í skaut blaðamanninum, frið-
arhreyfingarmanninum og Verka-
mannaflokksþingmanninum Sir
Norman Angell fyrir bók hans
„Blekkingin mikla", að tilgangs-
laust væri að standa í styrjöld
vegna efnahagslegra afleiðinga
hennar. Bókin kom fyrst út árið
1908 en var endurútgefin árið
1933. Hún seldist í meira en millj-
ón eintökum og var þýdd á 25
tungumál.
Angell ánafnaði einkaritara sín-
um medalíuna þegar hann lést ár-
ið 1967 en á uppboðinu í gær
keypti hana frændi Angells, Eric
Angell að nafni.
Tékkóslóvakía:
Komið í veg
Prag, 18. fcbrúar. AP.
TÉKKNESKIR öryggisverðir skutu í
dag til bana mann, sem reyndi aö
ræna flugvél í innanlandsflugi, aö
því er hin opinbera fréttastofa lands-
ins skýrði frá.
Sagt var að 26 ára gamall karl-
maður, Marian Pesko að nafni,
hefði ráðist á flugfreyju um borð í
farþegaþotu af gerðinni TU-134 og
reynt að komast inn í flugstjórn-
arklefann. „Þegar Pesko neitaði að
gefast upp fyrir öryggisvörðunum
skutu þeir á hann og lést hann af
sárum sínum," sagði í tilkynningu
fyrir flugrán
CTK-fréttastofunnar. Engan ann-
an sakaði.
Þetta er fyrsta tilraunin til
flugráns í Tékkóslóvakíu síðan 17.
maí 1978, en þá var flugræninginn
yfirbugaður. Sjö dögum áður tókst
hins vegar nokkrum mönnum að
ræna tékkneskri flugvél og neyða
hana til að lenda í Frankfurt í
Vestur-Þýskalandi, þar sem þeir
báðust hælis. Ströng gæsla er á
öllum tékkneskum flugvöllum og
alsiða er að óeinkennisklæddir ör-
yggisverðir séu á meðal farþeg-
anna.
ÖRLAGARlKUR FUNDUR
Þjóðarráð Palestínumanna situr nú á rökstólum í Alsírborg og virð-
ist sem heldur halli á Yasser Arafat og hófsama stefnu hans í
málefnum þjóðar sinnar. Þessi mynd var tekin við setningu fundar-
ins og er það Arafat, sem situr fremst. AP.
rLifandi .
tonustarhelgi
á vegum SATT í veitingahúsum í Reykjavík C,_J
í kvöld 19. febrúar 1983.
Fram koma á eftirtöldum veitingahúsum á vegum SATT fyrir utan
önnur skemmtiatriöi á vegum húsanna.
Broadway — Hljómsveitin Grýlurnar kr. 95.-
Hótel Borg — hljómsveitn Pass kr. 75.-
Hótel Esja — Magnús og Jóhann kr. 75.-
Hótel Saga — Jóhann G. Jóhannsson, píanóleikari
(leikur ragtime tónlist á píanó) kr. 75.-
Klúbburinn — Magnús og Jóhann kr. 75.-
Veitingahúsið Glæsibær — Hljómsveitin Kikk kr. 75.-
Veitingahúsið Óðal — Hljómsveitin Sonus Future kr. 75.-
Þjóðleikhúskjallarinn — Hálft í hvoru kr. 75.-
Þórskaffi — hljómsveitin Hrím kr. 75.-
Miðar í Byggingahappdrætti SATT verða til sölu í húsunum.
Aðgöngumiðaverð í Broadway þessi kvöld kr. 95.- á aðra staði kr. 75.-
Eflum lifandi tónlist — Styðjum SATT
pl ð ib
A SKÍÐUM 1983 1. JANÚAR — 30. APRÍL
Skráningarspjald
Allt sem gera þarf er að fara fimm
sinnum á skíði á tímabilinu, eina
klukkustund í senn.
Hver einstaklingur er talinn með í keppn-
inni.
Allar tegundir skíða gilda. Einn fer á
svigskíði, annar á gönguskíði eða hvoru
tveggja.
Nafn Heimilisfang Héraö Hve oft
Skilið skráningarspjaldinu til skíðafélags, á skíðastað eða til annarra aðilja sem verða
auglýstir síðar.
SENDA MÁ SPJALDIÐ MERKT SKÍÐASAMBANDI ÍSLANDS,
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐINNI, LAUGARDAL, 104 REYKJAVÍK.
NORRÆN
FJÖLSKYLDULANDS-
KEPPNI A SKlÐUM
1983
|K»!0tttiM§ib