Morgunblaðið - 20.03.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983
85
Guðfinna Ragnarsdóttir skrifar frá Stokkhólmi:
Sænskur bankaútibús-
stjóri stal 5,5 millj. kr.
Tengdamömmu fannst ég ekki
nógu fínn. Ég vildi sýna henni að
ég væri nógu góður fyrir dóttur
hennar.
Það var sú skýring sem Erik
Johansson, 34 ára gamall banka-
starfsmaður í Stokkhólmi, gaf á
því að hann hefði stolið 5,5 millj-
ónum á níu árum.
Það byrjaði árið 1974. Erik Jo-
hansson var þá nýgiftur ungri
aðalsdömu af fínni skánskri ætt.
Þótt Erik væri sjálfur af fínu
fólki kominn var hann ekki nógu
góður. Hann var þar að auki ekki
ríkur.
Tengdamamma sýndi að hún
var ekki ánægð með val dóttur-
innar á tengdasyni.
Helst hefði hún nú viljað að
dóttir hennar hefði orðið drottn-
ing, segir Erik.
En Erik Johansson ákvað að
sýna tengdamömmu að hann
væri nú ekki eins lélegur og hún
vildi vera láta.
Hann var þá 26 ára og nýorð-
inn útibússtjóri hjá Skandinav-
iska Enskilda banken í Stokk-
hólmi — sá yngsti í sögu bank-
ans.
Veitti sjálfur lánin
Ég vildi sýna tengdamömmu
að við værum í góðum efnum.
Mig langaði að kaupa fínan bíl.
Ég sótti um lán á nafni konu
minnar — því nafni sem hún bar
áður en við giftum okkur. Ég
skrifaði nafnið hennar undir.
Hún vissi auðvitað ekkert. Það
voru engin vandræði með það, ég
veitti sjálfur lánið, ég var úti-
bússtjóri.
En svo kom að skuldadögun-
um. Vexti og afborganir þurfti
að greiða. Þá tók Erik annað lán
— nú á nafni systur sinnar.
En það þurfti líka að greiða og
kaupið hrökk skammt til slíkra
hluta. Þá tók Erik ný lán á nöfn-
um ýmissa ættingja. Áður en
varði var hann kominn upp í
hálfa milljón.
„Einfaldari“ aöferö
En þetta var erfitt kerfi til
lengdar. Erik Johansson fann
þess vegna upp mun betri og
„einfaldari" aðferð. „Höfnin f
Stokkhólmi" var einn stærsti
viðskiptavinur bankans, og á
hverju ári komu um 100 milljón-
ir inn á reikning hafnarinnar.
Þar var af nógu að taka. Að
vísu áttu peningarnir að færast
áfram til Svenska Handelsbank-
en, en Erik tókst alltaf að bjarga
málunum þótt stundum munaði
mjóu.
Einu sinni vantaði 1,5 milljón-
ir, og Handelsbankinn beið eftir
yfirfærslunni. Þá snéri Erik Jo-
hansson sér að næsta fyrirtæki,
Bananafélaginu og nældi sér f
1,5 milljónir. Hringdi svo í þá og
sagði að tölvan hefði gert ein-
hver mistök. Nokkrum dögum
seinna gat hann leiðrétt „mis-
tökin“.
En skuldasúpan óx og yfir-
Tengdamamma
varð honum að falli.
Til þess að sýna henni
að hann væri nógu
fínn fékk bankaúti-
bússtjórinn lánaðar
5,5 milljónir á níu ár-
um, keypti sér íbúð á
besta stað í bænum,
ferðaðist um heiminn
með fjölskylduna,
setti börnin í einka-
skóla og naut lífsins
með rússneskum kaví-
ar ásamt helsta fyrir-
fólki borgarinnar. En
svo kom að skulda-
dögunum...
færslurnar urðu æ fleiri og
flóknari.
Fínni staða
Á sama tfma óx virðing Eriks,
útibúið blómstraði og hann naut
vaxandi trausts og trúnaðar.
1981 var Erik svo boðin staða
sem bankastjóri ffnasta útibús-
bankans í Stokkhólmi.
Fínt tilboð, en Erik átti ekki
beint „heimangengt". Lána- og
skuldanetið var- farið að herða
að. En það hefði vakið grun-
semdir ef hann hefði ekki þegið
boðið.
Á síðustu stundu tókst honum
að redda þrem milljónum —
auðvitað stolnum — til þess að
bjarga málunum í bili.
En á nýja staðnum hafði hann
ekki aðgang að sömu reikningum
og áður.
En Erik Johansson dó ekki
ráðalaus. Hann bjó til ný fyrir-
tæki — bjó til nöfn og veitti lán.
Alls lánaði hann þessum fölsku
fyrirtækjum — þ.e.a.s. sjálfum
sér, 5,5 milljónir.
Rússneskur kavíar
Um þessar mundir flutti fjöl-
skyldan inn í stóra, fína íbúð á
besta stað í Stokkhólmi. Verð 1,6
milljónir sænskra króna.
Fyrir hendi voru 400.000 í lán-
um. Þá þurfti að útvega 1,2
milljónir í viðbót.
Auk þess endurbyggði Erik Jo-
hansson sumarbútaðinn og ferð-
aðist um heiminn með fjölskyld-
una.
„Svo eru fötin mín öll sér-
hönnuð og saumuð og um hálfrar
milljón króna virði," sagði Erik
Johansson við yfirheyrslurnar.
Það dugðu engin venjuleg föt
þar sem fjölskyldan umgegst
eingöngu fyrirfólk og aðal.
{ matinn valdi hann helst
rússneskan kavíar, gæsalifur og
vín af bestu tegund.
Þá kom allt í ljós
Börnin voru í einkaskólum,
þeim dýrustu í Stokkhólmi, svo
það þurfti mikla peninga til þess
að halda slíkum „standard". En
Erik tók bara ný lán ...
Svo var það haustið 1982. Þá
lenti Erik í umferðarslysi og
varð að liggja á spítala um tíma.
Þá rákust endurskoðendurnir af
tilviljun á undarlega yfirfærslu,
og þar sem Erik var ekki til stað-
ar til að skýra málin, fóru þeir
að athuga þetta nánar. Og þá
kom allt í ljós. 5,5 milljónir hafði
Erik tekið „að láni“ á þessum níu
árum.
I dag skilur enginn hvernig
Erik tókst að leyna slíku svindli
í níu ár. — Kannski var það
staða hans og hið ótakmarkaða
traust sem yfirmenn hans báru
til hans sem auðvelduðu honum
leikinn.
En auk sinna eigin „lána“ lán-
aði Erik Johansson fjölda fyrir-
tækja lán án nokkurrar ábyrgð-
ar. Og oft mun hærri lán en
hann hafði leyfi til að veita.
Forstjóri eins þessara fyrir-
tækja er nú stunginn af til Am-
eríku með 5 milljónir frá bank-
anum.
Mjög opinskár
— Ég gerði þetta til þess að
útvega bankanum nýja við-
skiptavini, segir Erik. Góðar
hugmyndir eru besta ábyrgðin.
„Þetta er stórkostlegasti og
umfangsmesti þjófnaður af
þessu tagi sem ég hef kynnst á
30 ára starfsferli mínum,“ segir
ákærandinn, Bertil Jarl.
Öll rannsókn málsins hefur
gengið mjög greiðlega því Erik
játaði allt afdráttarlaust og hef-
ur verið með eindæmum opin-
skár og samvinnuþýður við allar
yfirheyrslur.
Erik mun nú verða settur í
geðrannsókn, en hann á yfir
höfði sér allt að sex ára fangels-
isvist.
Og það er ekki trúlegt að
tengdamamma heimsæki hann í
fangelsið...
17 cfaga RÁSKAFERD • Brottför27. mars
Lítiö vinnutap og auövitaö allir bestu gististaöirnir
Beint dagflug • Frá Kefíavík ki. 03.00 • Frá Mallorca / Ibiza kl. 17.10 • J-ent íKefíavík kl. 19.20
HELMINGSAFSLÁTTUFl FYFtlFt BÖRN AD 17 ÁRA ALORI