Morgunblaðið - 15.05.1983, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 15.05.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1983 47 um. Hvað er hægt aö gera við þessu? Svar: Um þetta vandmál ræddi ég nokkuð í þættinum sem var í Morgunblaðinu fimmtudaginn 12. maí, og leyfi mér að vísa til þess, en því má þó bæta við, að svo virð- ist sem gljávíðir þoli ljósið frá götuluktunum verr en aðrar plönt- ur. Eflaust stafar það af því, hvað hann heldur laufi og lit lengi fram á veturinn og þar af leiðiandi örv- ar ljósið, sem honum berst frá götuljósinu, vaxtarhvata plönt- unnar lengur en eðlilegt er, miðað við árstíma og veðurfar. Sé hægt að koma við að strengja svartan plastdúk yfir þann hluta limgerð- isins er fyrir þessari vaxtartrufl- un verður, yfir svartasta skamm- degið, þá ætti að mega koma í veg fyrir þann skaða sem gróðurinn verður fyrir vegna birtunnar sem berst frá götuljósinu. Rifsrunnar Björn Jóhannsson, Krókahrauni 2, Hafnarfirði, spyr: 1. Hvað er lágmarksbil milli rifs- berjarunna? Er í lagi að flytja þá nú og hvers er helst að gæta? 2 Hvernig eru rifsberjarunnar grisj- aðir? 3. Er þörf á að bera húsdýraáburð á runna árlega, svo vel sé? Svar við spurningu 1: Hæfilegt bil milli rifsberjarunna er 80 til 100 sm. Það á að vera í góðu lagi að flytja runnana á meðan þeir eru ekki allaufgaðir. Þess ber fyrst og fremst að gæta, að vel sé borið í af gömlum húsdýraáburði undir ræturnar, þar sem þeim er ætlaður nýr vaxtarstaður. Ef um verulegar rótarskerðingar er að ræða við flutninginn, þá er rétt að fækka greinum á runnanum eftir að hann hefur verið gróðursettur á ný. Hafa ber í huga, að betra er að hreinskera rætur en gróður- setja plönturnar með trosnaðar eða særðar rætur og á það við um allar plöntur sem gróðursettar eru. Svar við spurningu 2: Grisjun berjarunna á að miða við það að runninn hafi allur verið endurnýj- aður á 8—10 árum, eða með nán- ari útskýringu: nýr sproti fær að vaxa frá rót á hverju ári, en gömul stofngrein fjarlægð í hans stað og þá skorin fast við rót. Með þessu móti fæst mest berjauppskera og stofngreinarnar verða aldrei fleiri en átta til tíu. Runninn verður aldrei mosavaxinn og ljótur, eins og mjög algengt er að sjá víða í görðum. Svar við spurningu 3: Mest er um vert að bera vel í jarðveginn í upphafi. Runnarnir búa að því af- ar lengi og síðan getur dugað að bera í trjá- og runnabeð venju- legan tilbúinn garðáburð. Barnaheimilið Kornmúli - Fljótshlíð Örfá pláss laus í sumardvöl. 1 vika til 3 mánuöir. Aldur 6—12 ár. Uppl. í síma 21111 frá kl. 10—12. Sam Glad ^mm^mm—^^^mm^mmmmmmrn Ættir Þingeyinga Fjóröa bindiö af Ættum Þingeyinga er komiö út. Áskrifendur í Reykjavík og nágrenni vitji þess hjá höfundi, Stórholti 17, eöa hjá Sögu- nefndarmönnum: Snæ Jóhannessyni, Bókinni, Laugavegi 20B, eöa Jónasi Jónssyni, Búnaöar- félagi íslands. Sögunefndin HNORDSJÖ Það er dýrt að mála — Þess vegna borgar sig aö nota aðeins bestu fáanleg málningarefni. — Reynslan hefur sýnt aö NORDSJÖ acryl- málning stenst betur grindvíkst veöurfar en nokkur önnur utanhússmálning. — Frábær litheldni — flagnar ekki né springur — sjálfhreinsandi gljáhúö — „Tintorama“-litakerfi. Haukur Guðjónsson málarameistari, sími 8200, Grindavík. J LÆRIÐ ENSKU í LONDON Angloschool er tt ímœlalaust einn besti skóli sinnar tegundar í Englandi, búinn öllum nýjustu tækjum í sambandi við kcnnslu. Angloschool er viðurkenndur af breska ríkinu, sem góður skóli. Kennslutímar eru 30 á viku. Hringdu og fáðu myndalista og frek- ari upplýsingar. Það verða eingöngu sendir 5-10 nemendur frá ís- landi í hvert tímabil sem sum hver eru að verða fullbókuð. 1. Tímabil 28. maí - 25. júní 4. Tímabil 29. júlí - 26. ágúst 2. Tímabil 24. júní - 22. júlí 5. Tímabil 28. ágúst - 27. sept. 3. Tímabil 1. júlí - 29. júlí 6. Tímabil 24. sept. - 23. okt. Allar nánari upplýsingar íýrir MAGNÚS STEINÞÓRSSON tilvonandi nemendur gefur: Miðbraut 36 170 Seltjamamesi Sími 23858 (á kvöldin og um helgar) Getraun yiNNINGUR % Frítt flugfar nlcð miða frá Samvinnufcrðum- Landsýn og óke>pis skólagjöld hjá Angloschool í London nú í sumar. Samvinnuferðir-Landsýn og Angloschool hafa nú ákveðið að bjóða fríar ferðir, uppihald og skólagjöld fyrir nemanda í einn mánuð vcgna þcss að yfir 200 Islcndingar á öllum aldri liafa farið 1 Angloschool og ferðast með miðum frá Samvinnuferðum-Land- sýn á s.l. ámm. Allir fyrri nemendur svo og væntanlegir ncmcndur nú í sumar geta tckið þátt í getrauninni. Drcgið verður 20. maí hjá Samvinnu- ferðum-Landsýn. GETRAUN 1. HvcnærvarjVngloschool stofnaður? □ 1963 □ 1960 □ 1957 2. I Ivcnærvar Fcrðaskrifstofan Sainvinniifcrðir-I.andsýn stofnuð? □ 1973 □ 1978 □ 1976 3. I Ivað hcitir forstjóri Sainvinnufcrða-Landsvn? I Icimili: Síilli: Scndist incikl: GHTRArX Saiiiviiiiiiil'cróii-I.aiHÍsvii AiiKturstnvti 12- 101 Rcykjavik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.