Morgunblaðið - 24.08.1983, Side 1
48 SÍÐUR
191. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
Prentsmiðja Morgunbiaðsins
AWACS-vélar
heim firá Chad
Washington og N’Djamena, 23. ágúst. AP.
TVÆR bandarískar ratsjárvélar af
AWACS-gerð hafa verið kallaðar
heim frá Súdan. Vélarnar voni send-
ar þangað til þess að fylgjast með
bardögum í Chad, en að sögn tals-
manns bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins er ekki lengur þörf fyrir
vélarnar.
Ákvörðun þessi hefur komið á
óvart, en að sögn talsmannsins er
hún á engan hátt tákn um minnk-
andi stuðning Bandaríkjastjórnar
við stjórnina í Chad. Hann sagði
vélarnar hafa skilað því, sem af
þeim var ætlast, þótt ekki færu
þær í neina sérstaka könnunar-
ieiðangra á meðan þær voru í Súd-
an.
Stjórn Hissine Habre í Chad til-
kynnti í dag, að löng halarófa
skriðdreka og annarra vígvéla
uppreisnarmanna og Líbýumanna
hefði haldið í suður út úr bænum
Faya Largeau. Sagði ennfremur,
að uppreisnarmenn hefðu hreiðr-
að um sig 80 km sunnan við bæ-
inn, þannig að bilið á milli þeirra
og víglínu stjórnarhersins styttist
stórum. Þeir hermenn Frakka,
sem eru næstir uppreisnar-
mönnum, eru þá í um 370 km fjar-
lægð.
Að sögn upplýsingamálaráð-
herra landsins, Soumaila Maham-
at, eru skriðdrekarnir sovéskir af
gerðinni T-62. Sagði ráðherrann
ennfremur, að af þessum tilflutn-
ingum mætti ráða að uppreisnar-
menn hygðu á frekari sókn á
næstunni.
Mahamat lét þess jafnframt
getið, að um frið í Chad yrði ekki
að ræða fyrr en hinir 3000 frönsku
hermenn, sem í landinu eru, tækju
höndum saman við stjórnarherinn
í allsherjar gagnsókn gegn upp-
reisnarmönnum og hrektu þá úr
landi.
Talsmenn hernaðarsérfræðinga,
sem fylgst hafa með tilflutningum
innrásarhersins, segja ummæli
Mahamat ekki á rökum reist. Ekk-
ert sé óeðlilegt við þessa liðsflutn-
inga og þeir þurfi alls ekki að
tákna, að ný sókn sé í vændum.
Islamahad, Pakistan, 23. ágúst. AP.
FRELSISSVEITIR Afgana urðu 16
afgönskum leyniþjónustumönnum
og meðlimum úr stærsta stjórnmála-
flokki landsins að bana í borginni
Kandahar í suðausturhluta landsins
að því er sagði í fréttum frá landinu,
sem bárust til Islamabad í dag. Ekki
var skýrt frá því hvaða dag þetta
hefði gerst.
Samkvæmt upplýsingum vest-
rænna diplómata klæddust frels-
issveitamennirnir afgönskum
herbúningum og fóru um á stoln-
um herflutningabifreiðum í að-
gerðum sínum. Þóttust þeir vera
stjórnarhermenn í venjulegum
eftirlitsstörfum við einn þjóðvega
landsins. Með þessum hætti tókst
þeim að smala saman 16 manna
hópi, sem síðan var ekið afsíðis og
hann aflífaður.
Þá var haft eftir vestrænum
diplómötum, að mikið manntjón
hefði orðið í bardögum á milli
stjórnarhersins og frelsissveit-
anna þann 11. júlí sl. Átökin áttu
sér stað við borgina Ghazni
skammt suður af Kabúl.
Réðust frelsissveitirnar á her-
flutningalest og eyðilögðu sex
vörubifreiðir. Sovéskar MiG-þotur
komu fljótt á vettvang og gerðu
öflugar sprengjuárásir á borgina
með þeim afleiðingum að sjúkra-
hús stórskemmdist.
Jafnframt hafa borist af því
fregnir, að nokkrir hafi látið lífið í
árás frelsissveitanna á bækistöð
leyniþjónustunnar í Shahdarak-
hverfi Kabúlborgar dagana 13. og
14. ágúst sl. Loks hafa borist
ónákvæmar fregnir af átökum
jafnt sunnan sem norðan höfuð-
borgarinnar, Kabúl.
Simamynd AP.
Blóði drifið Ifk Benigno Aquino á viðhafnarbörum á heimili hans.
Marcos sakaður
um Aquino-morðið
Manila Fílinnunifinm 97 á rtl'i ul AP
Manila, Filippseyjum, 23. á(fúst. AP.
LEIÐTOGI stjórnarandstöðunnar á Filippseyjum, Salvador Laurel, dró í
dag opinberlega í efa þá yfirlýsingu Marcosar forseta, að stjórnvöld
hefðu á engan hátt átt þátt í dauða Benigno Aquino, sem skotinn var til
bana á flugvellinum í Manila á sunnudag. Laurel sagði á þinginu í dag,
að ef stjórnvöld létu ekki fara fram hlutlausa rannsókn á dauða Aquino
gæti það leitt til þess að friðsamt fólk gripi til vopna gegn valdhöfum.
Aquino var leiðtogi stjórnarandstöðunnar á Filippseyjum.
Þá hélt japanskur blaðamaður
því fram á fréttamannafundi, sem
hann efndi til í gær, að öryggis-
verðir stjórnvalda hefðu orðið
Aquino að bana á flugvellinum í
Manila. „Ég var um borð í sömu
vél og Aquino og sá úr vélinni
hvar tveir eða þrír öryggisverðir
stjórnarinnar drógu upp skamm-
byssur sínar og skutu hann i höf-
uðið af mjög stuttu færi,“ sagði
blaðamaðurinn, Kiyoshi Wakam-
iya.
Aquino var skotinn aðeins ör-
fáum augnablikum eftir að hann
sté fæti á fósturjörðina eftir
þriggja ára sjálfskipaða útlegð í
Boston í Bandaríkjunum. Hélt
japanski blaðamaðurinn því jafn-
framt fram, að öryggisverðirnir er
skutu Aquino hafi orðið mannin-
um, sem sakaður hefur verið um
morðið, að bana. Sá hafi í raun
ekki verið annað en óbreyttur her-
maður.
Marcos forseti gaf þá yfirlýs-
ingu út í dag, að sumt benti til
þess að meintur banamaður Aqu-
ino hafi verið „byltingarsinni" og
„vanur morðingi." Þrátt fyrir
þessi ummæli hafa stjórnvöld ekki
skýrt frá því hver ódæðismaður-
inn er. Það eina, sem látið hefur
verið opinskátt af hálfu stjórn-
valda, er að hann hafi dulbúið sig
sem flugvallarstarfsmann.
Meira en 50.000 manns höfðu í
morgun vottað Aquino virðingu
sína, þar sem líkið lá á viðhafnar-
börum á heimili hans í Manila.
Hefur verið stöðugur straumur
fólks að heimili hins látna frá því
í gærmorgun. Fjölskylda hans var
væntanleg frá Bandaríkjunum í
dag til þess að vera viðstödd útför-
ina.
Áframhaldandi ókyrrö s,ra,ra nd AP
Illa gengur að stilla til friðar í Líbanon. Stöðugar skærur ríktu á milli
hermanna kristinna hægrisinna og drúsa í gær. Þá urðu franskir gæslu-
liðar fyrir skotárás snemma dags, en svöruðu henni í sömu mynt. Fjórir
ísraelskir hermenn særðust í sprengingu í Bekaa-dalnum í gærdag.
Myndin að ofan sýnir sprengjuvörpu í einu vígja bandarísku gæslu-
liðanna í Beirút.
Enn ein sókn
frelsissveita