Morgunblaðið - 24.08.1983, Blaðsíða 48
^^skriftar-
síminn er 830 33
jKgttnlffofrifr
____jjglýsinga-
síminn er 2 24 80
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
Ofsarok í nótt
Víðförull hængur:
Merktur
í Blöndu,
veiddist
í Laxá
SÁ MERKILEGI atburður átti sér
stað í Laxá á Ásum, að lax sem
merktur var í Blöndu 2. ágúst síð-
astliðinn, veiddist þar á stöng þann
20. ágúst.
Var þetta 3 punda hængur sem
áttaði sig ekki á því fyrr en komið
var upp fyrir fossa í Blöndu, að
hann var í rangri á. Á 18 dögum
hefur hann rennt sér niður alla
fossa og flúðir jökulfljótsins, út í
sjó, upp í Húnavatn og upp fyrir
miðja Laxá.
Sjá nánar á bls. 3:
„Eru þeir að fá ánn?“
Flugvélaeigendur urðu að bregðast skjótt við í gærkveldi er hvessti í Reykjavík og hætta var á að flugvelar á Reykjavíkurflugvelli fykju af völdum
hvassviðrisins. Ekki var vitað um skemmdir í gærkveldi, er Morgunblaðið fór í prentun, en þó mun TF-FRÚ flugvel Ómars Ragnarssonar fréttamanns
hjá sjónvarpinu hafa lagst á annan vænginn. Flugumferðarstjóri á Reykjavíkurflugvelli sagði að það væri undarlegt hvað flugvélaeigendur væru seinir
til að athuga með flugvélar sínar, yfirleitt hugsuðu þeir sér ekki til hreyfings, fyrr en hringt væri í þá. Sagði hann að þeir ættu slökkviliðinu á
Reykjavíkurflugvelli mikla skuld að gjalda, sem iðulega væri búið að bjarga flugvélum þeirra, þegar þeir rönkuðu við sér. Myndin er frá björgun
flugvélanna. MorgunbltðiA/ KAX
Lélegar heimtur gatnageröargjalda:
133 millj. króna minni
tekjur borgarsjóðs
„ÞETTA þýðir 133 millj. kr. minni
tekjur borgarsjóðs en við höfðum
gert ráð fyrir á þessu ári,“ sagði
Davíð Oddsson, borgarstjóri í
Reykjavík, í samtali vió Morgun-
blaðið í gær, en mun færri hafa
staðið í skilum með fyrstu greiðsl-
ur gatnagerðargjalda en reiknað
var með við lóðaúthlutun í vor.
Frestur þeirra, sem fengu út-
hlutað lóðum í sumar, til að
greiða fyrsta hluta gatnagerð-
argjalda, rann út 12. ágúst síð-
astliðinn. Samtals var lóðum út-
hlutað til 895 aðila, þar af
greiddu 479 á tilskildum tíma,
eða 53,5% þeirra sem fengu út-
hlutað. Ef aðeins er miðað við
þá, sem úthlutað var einbýlis-
húsa- eða raðhúsalóðum, er
niðurstaðan sú, að af 519 aðilum
sem fengu úthlutað stóð 181 i
skilum, eða 35% þeirra sem
fengu úthlutað. Þá var úthlutað
376 lóðum til meistara og
byggingarsamvinnufélaga
(þ.m.t. verkamannabústaðir)
vegna fjölbýlis og af þeim stóðu
298 í skilum, eða 79% þeirra sem
fengu úthlutað.
„Meginmarkmiðið var að lóða-
framboð fullnægði eftirspurn.
Sá áfangi hefur náðst og það er í
sjálfu sér fagnaðarefni," sagði
Davíð. Hann sagði þessar lélegu
heimtur gjalda koma þungt
niður á borgarsjóði í ár, þar sem
unnið hefur verið að fram-
kvæmdum í samræmi við lóða-
framboð og úthlutun. „En þetta
mun jafna sig á næsta ári þar
sem lóðaúthlutun þá mun ekki
kalla á eins miklar framkvæmd-
ir og í ár,“ sagði Davíð ennfrem-
ur.
Hann taldi ástæðuna fyrir
þessum greiðsluerfiðleikum
fólks stafa af hinu almenna
efnahagsástandi. „Kjaraskerð-
ing í framhaldi af almennri
efnahagslegri óstjórn síðustu
ára hlaut að leiða til tímabund-
ins afturkipps. Jafnframt er
húsnæðislánakerfið í molum og
húsbyggjendum standa fá lán til
boða önnur en erfið skammtíma-
lán," sagði Davíð Oddsson að
lokum.
Blóðbankinn:
Hert eftirlit
med blóögjöfum
„ÞESSI aukna aðgæsla felst aðallega
í því að hafa í huga vissa áhættuhópa
og fylgjasl betur með þeim, en gert
hefur verið,“ sagði Ólafur Jensson,
yfirlæknir við Blóðbankann í samtali
við Morgunblaðið, en Blóðbankinn
hefur ákveðið að herða eftirlit með
blóðgjöfum, sem hér gefa blóð, vegna
sjúkdómsins AIDS eða áunninnar
ónæmisbæklunar.
Ólafur sagði að alltaf hefði verið
fylgst náið með því blóði sem gefið
væri og á því gerðar margvíslegar
prófanir, til dæmis vegna lifrar-
bólgu. í rauninni væri einungis ver-
ið að vanda og herða þau vinnu-
brögð sem væru alþjóðlega stöðluð
og verið hefðu í gildi hjá okkur und-
anfarna áratugi.
400 þús. króna
smyglvarningur
Erlendir ferðamenn
10,3% fleiri í júlí
LJÓST ER AÐ ferðavenjur útlendinga sem hingað hafa komið í sumar, hafa
tekið umtalsverðum breytingum. Nú er mun algengara að erlendir ferða-
menn ferðist á eigin vegum um landið en áður ra.a. til að draga úr kostnaði.
Ferðamannastraumurinn í sumar hefur einnig verið nokkuð óstöðugur. T.d.
fækkaði útlendingum hér í júní um 4,4 af hundraði en aftur á móti fjölgaði
þeim í júlí um 10,3 af hundraði, miðað við sömu mánuði í fyrra.
Sparnaður erlendra ferða-
manna hér hefur komið fram á
ýmsum sviðum atvinnulífs. Má
þar nefna að þótt fjöldi útlend-
inga hafi vaxið talsvert í júlí,
fækkaði gestum á hótelum í
Reykjavík. Telur Konráð Guð-
mundsson, hótelstjóri á Sögu,
eina skýringuna á þessum sam-
drætti vera þá að ferðamenn
staldri skemur við í Reykjavík en
áður.
Eins og vænta mátti hafa fjöl-
margir ferðamenn komið hingað
með ferjunum Norröna og ms.
Eddu og í upphafi ágústmánaðar
höfðu um 1700 bifreiðir verið
fluttar með þeim í sumar. Því má
fullyrða að fjölgun útlendinga hér
í júlí og breytingar á ferðavenjum
þeirra verði að miklu leyti rakin
til skipaferðanna milli Evrópu og
íslands. Samkvæmt upplýsingum
útlendingaeftirlitsins hefur aukn-
ingin orðið mest á ferðum Banda-
ríkjamanna og Breta hingað til
lands í sumar, en Frökkum hefur
hins vegar fækkað nokkuð.
Sjá nánar: Af innlendum vett-
vangi bl8. 16—17.
SMYGL fannst í fyrrakvöld um borð í
tveimur skipum Eimskipafélags ís-
lands, Eyrarfossi og Grundarfossi.
Skipin lögðust að bryggju í Sundahöfn
síðdegis á mánudag. Andvirði smygls-
ins mun nema á markaði rúmlega 400
þúsund krónum.
í Eyrarfossi fundu tollverðir 103
flöskur af áfengi, 12 karton af
vindlingum, 4 reiknivélar, 10 síma,
talstöð, 3 myndbönd og 33 mynd-
bandsspólur. Góssið fannst í lokuðu
rými í klefum skipverja og nemur
andvirði þess tæplega 240 þúsund
krónum.
Skömmu síðar var hafin leit um
borð í Grundarfossi, sem kom frá
Sovétríkjunum. Um borð fundust
266 flöskur af áfengi, einkum vodka
og viskí og 30 kassar af öli auk fjög-
urra kartona af vindlingum. Góss-
inu hafði verið haganlega fyrirkom-
ið í hliðargeymi olíugeymis. Tæma
varð olíugeyminn til þess að komast
að góssinu. Andvirði þess á markaði
hér mun vera um 165 þúsund kr
Heimsmeistaramót í skák:
Skotar lagðir
ÍSLENDINGAR unnu tvær skákir af
Skotum og biðstaðan í hinum tveim-
ur skákunum, sem báðar fóru í bið,
er síst verri fyrir íslendinga, sam-
kvæmt upplýsingum sem Morgun-
blaðið fékk hjá Margeir Péturssyni
seint í gærkveldi, sem staddur er á
heimsmeistaramóti æskumanna í
skák sem haldið er í Chicago í
Bandaríkjunum. 2. umferðin var
tefld í gær, en í 1. umferð unnu ís-
lendingar Sameinuðu furstadæmin
með 3‘A vinningi gegn '/j.
Úrslitin móti Skotum urðu
þessi: Margeir — McNab: biðskák,
Jón L. — Notwani: 1—0, Karl Þ. —
Upton: 1—0, Elvar — Norris:
biðskák. Biðskákir átti að tefla í
gærkveldi. Eftir þessi úrslit móti
Skotum, er útlit fyrir að íslend-
ingar séu meðal efstu þjóða á mót-
inu