Morgunblaðið - 24.08.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
Öræfaganga ungmenna, á
vegum Æskulýðsráðs
og Drake-stofnunarinnar
Áfangastað náð og allir geta kastað
sér niður og hvílst eftir góða útivist.
syngjandi sæll og það í fyllstu
merkingu orðsins, því göngugarparnir
brýndu raustina og sungu hátt, sem
venja er í ferðalögum.
Um alvana göngumenn er ekki
að ræða, en flest hafa krakkarnir
verið undirbúin fyrir ferðina. Bret-
arnir sóttu námskeið áður en kom-
ið var til íslands á vegum Drake
stofnunarinnar, en hún hefur um
áraraðir unnið dyggilegt starf í
þágu unglinga sem eiga erfitt upp-
dráttar. Svo er með bresku ung-
mennin og eru til að mynda flest
þeirra atvinnulaus og ferðin til ís-
lands því kærkomið frí frá erfið-
leikum heima fyrir. Ferðin er
styrkt af ýmsum fyrirtækjum og
einstaklingum í Bretlandi og fengu
Bretarnir allan útbúnað að láni hjá
Drake stofnuninni. Nokkur íslensk
fyrirtæki hafa einnig lagt hönd á
plóginn til handa íslensku göngu-
mönnunum og kunnu þeir þessum
aðilum bestu þakkir fyrir.
Hópurinn lagði upp frá Hvera-
völlum 16. ágúst sl., eftir að hafa
stikað þaðan gönguleið að Strýtum
og var fyrsti áfangi farinn að
Hundavatni. Þá var gengið frá
Hundavatni að Bláfellstjörn og
þaðan að Arnarvatni. Frá Arnar-
vatni lá leiðin að Bjarnarfossi í
Norðlingafljóti og í Surtshelli, en á
þriðjudagsmorgun lögðu krakkarn-
ir síðan upp i lokaáfangann og
gengu frá Surtshelli í Húsafell.
Ferðin er farin í samráði Drake
stofnunarinnar bresku og Æsku-
lýðsráðs og fararstjórarnir þrír af
hvoru þjóðerni, þau William Bird,
sem var einn helsti hvatamaður
fyrir ferðinni, Keith Noble og Sue
Llewelyn ásamt Þórarni Eyfjörð,
Rósu Björgu Þorsteinsdóttur og
Sigtryggi Jónssyni.
í
„Góð ferð, enda
samstilltur hópur
og skemmtilegir
krakkar,“ sagði
Þórarinn Ey-
fjörð, fararstjóri.
Skemmtileg
ferð sam-
stillts hópsu
hélt að það væri ekki hægt að
finna svona stórkostlegt landsvæði,
hér höfum við gengið í fleiri daga án
þess að sjá eitt einasta hús,“ sagði
Kevin Whittle, einn bresku ung-
mennanna í Drake gönguhópnum
þegar Mbl. hitti þau við komuna til
Húsafells f fyrradag. Þangað kom
hópurinn, sem samanstendur af 25
Bretum og íslendingum, þreyttur og
ánægður, þrátt fyrir blöðrur á fótum
og verki í baki, eftir sex daga göngu
um hálendið. Ekki voru Morgun-
blaðsmcnn þeir einu sem biðu göngu-
manna í Húsafelli, kvikmyndafélagið
Sýn hefur fest bróðurpart ferðarinnar
á filmu. Var kvikmyndað af kappi
þegar hópurinn gekk lokaspölinn
„Þessi ferð hefur verið í bígerð í
rúmt ár, þó hugmyndin sé miklu
eldri,“ sagði William Bird, þegar
hópurinn hafði sest niður og kastað
mæðinni í Húsafelli. „Hugmyndin
kom þegar ég deildi káetu með ís-
lendingi á skólaskútu sem Drake
stofnunin gerði út fyrir nokkrum
árum. Síðan kom ég til íslands
Tjöldin upp og svo allir í sund!
Ljósm. Mbl./KÖE. Tjaldstæðið ákveðið. William Bird fararstjóri (Lv.) ásamt Paul Roberts (t.h.).