Morgunblaðið - 24.08.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983 15
Hermann Þorstcinsson
un velupplýstra fréttamanna, sem
láta sér ekki nægja að vera matað-
ir á sléttorðum fréttatilkynning-
um okkar kirkjunnar manna. („Sá
sem eyru hefir hann heyri.“)
Á fyrrnefndum fréttamanna-
fundi gat ég þess einnig að ég væri
enn sem ölvaður af þeim sterku
áhrifum, sem ég varð fyrir á þessu
18 daga heimsþingi Alkirkjuráðs-
ins, þar sem saman voru komnir
um 3500 allra þjóða menn frá
rúmlega 300 deildum kristinnar
kirkju. Ég held ég sé nú orðin
nægilega gáður til að geta orðið
við tilmælum Mbl. um frásögn í
tilefni af þessu magnaða kirkju-
þingi. En sú frásögn er ekki
vandalaus, því margs er að gæta
og „aðgát skal höfð... “ Meiði ég
einhvern bróður eða systur í eða
utan kirkjunnar með skrifum
mínum, þá vísa ég til orðanna í
Orðsk. 27:6 „Kirkjan er oss
kristnum móðir“. Hver heilbrigð
manneskja hlýtur að elska móður
sína, vilja veg hennar sem mestan
og hag sem bestan, ber umhyggju
fyrir henni og tjáir henni ást sína
á margvíslegan hátt — með gleði.
Það sem ég skrifa bið ég menn
lesa með þetta í huga. Ég ann
kirkju minni, er ekki sama um
hana. Hún hefur fært mér það
besta sem ég á. Börn sömu móður
eru einatt ósammála um, hvað
henni sé fyrir bestu. Það verður
svo að vera. — Frændur okkar
Danir geta verið glettnir eins og
kunnugt er. Einhver þeirra hefur
sagt: „Hvis du er i tvivl, sá sig
bara sandheden." Það er ekki svo
„galt“, svo ég held að í vafa mínum
nú fari ég bara eftir þessari vina-
legu bendingu, jafnvel þótt ein-
hver kunni að spyrja síðar (eins og
áður hefur verið spurt: „Hvað er
sannleikur?"
Væntanlegir pistlar mínir, sem
óhjákvæmilega verða í miklum
flýti skrifaðir, vegna margra
skylduverka sem bíða eftir þriggja
vikna Vancouver-ferð, verða auð-
vitað aðeins leikmannsþankar,
hvorki guðfræði, kristnisaga né
bókmenntir, heldur tjáning venju-
legs manns, sem sleginn er ótta
vegna þeirrar vonlausu stöðu, sem
kynslóð okkar er búin að koma
Móður Jörð í. En í hinni vonlausu
stöðu sjáum við kristnir menn
samt von. Sú von er fólgin í nafn-
inu Jesús, ljósi og lífi heimsins.
Þessu trúi ég og þess vegna tala ég
— og get ekki annað. Þetta sama
hefur eitt af sálmaskáldum okkar
(H.H.) meitlað meistaralega þann-
•g:
Jesú nafn er náðar lind,
dýrðlegs frelsis fyrirboði,
friðardagsins morgun-roði,
læknisdómur dýr við synd,
styrkur veikum, stoð í þrautum,
stjarna vonar hjórtum blíð,
himneskt ljós á harma brautum,
heilsa og líf á dauðatíð.
Frásögn mín í tilefni af nýaf-
stöðnu heimsþingi Alkirkjuráð-
sins mun birtast í nokkrum köfl-
um undir samheitinu Gjörvöll
Kristí kirkja kveður oss með sér.
1. hluti Alkirkjulegt uppeldi í ev-
angelísk-lútherskri þjóðkirkju. 2.
hluti Oikoumene. World Council of
Churches. Alkirkjuráðið. 3. hluti
Er Alkirkjuráðið bláeygt? 4. hluti
???
Hermann Þorsleinsson er fram-
kræmdastjórí lífeyríssjóðs SÍS,
framkvæmdastjóri Hins ísl. biblíu-
félags, sóknarnefndarformaður
Hallgrímssafnaðar í Reykjavík,
formaður byggingarnefndar Hall-
grímskirkju á Skólarörðuhæð og
Kirkjuþingsmaður um árabil.
Húsavík:
Afli undir
meðallagi
Ifúsavík 22. ágúst.
MUNNMÆLI herma að áður fyrr
hafi ekki þýtt að róa til fiskjar frá
Húsavík fyrr en allur snjór væri horf-
inn úr Dagmálalág í liúsavíkurfjalli. í
ár hvarf hann ekki fyrr en síðastliðinn
Tóstudag, svo lengi hefur mátt bíða
eftir gömlu kenningunni. En það eru
meira en 10 ár síðan snjórinn þar hef-
ur horfið jafnseint og nú.
Þetta eru afleiðingar þess, að
„vorið kom ekki“ og sumarið hefur
ekki verið hlýtt, þó það hafi verið
betra og úrkomuminna en sunnan-
lands. Nú er róið héðan allt árið og
ekkert farið eftir snjónum, en afli
þetta árið er undir meðallagi.
Fyrstu sjö mánuðina tók frystihús-
ið á móti tæpum 6.000 lestum en á
sama tíma í fyrra rúmum 7.000
lestum.
— Fréttaritari.
Bruni í Hafn-
arfirði
TILKYNNT var um eld í íþróttahúsi
íþróttafélags Hauka í Hafnarfirði kl.
1.50 aðfaranótt sunnudagsins.
Slökkviliðið í Hafnarftrði fór á staðinn
og var eldur í mæni í norövesturenda
hússins.
Sökum staðsetningar eldsins var
erfitt að komast að honum og þurfti
að rjúfa gat á þak hússins. Vel gekk
að ráða niðurlögum eldsins og var
slökkvistarfi lokið kl. 3.15. Skemmd-
ir af eldi urðu ekki miklar, nema á
þakinu þar sem eldurinn kom upp,
en skemmdir af vatni kynnu að vera
á gólfi hússins, þegar það er full-
þornað. Ókunnugt er um eldsupptök.
Pabbi, mamma
og Siggi komust ekki öll í
Tívolíferðirnar tvær
Gengi 12/8 '83
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi
Þess vegna bætum við
tveim ferðum við!
Það eru greinilega margir sem eru áhugasamir um
ódýru Tívoliíerðirnar í sólina og hitann
i Kaupmannahöfn. Vegna mikillar þátttöku 1 íerðirnar
20. og 26. ágúst höfum við ákveðið að bœta við
tveimur íerðum, 27. ágúst og 8. september.
Ef þú vilt taka börnin með þér og leyía þeim að
njóta œvintýra í hinu eina og sanna Tívolí, þá er tilvalið
að bjóða þeim með í Kaupmannahaínarferð með
Flugleiðum.
19.872 krónur fyrir pabba, mömmu og Sigga.
Fargjaldið fyrir fjölskyldu með barn í 3ja daga íerð er
eins og hér segir: Fyrsta fargjald 10.310 krónur, annað
íargjald 6.426 krónur og þriðja fargjald
(barn 2ja-l 1 ára) 3.138 krónur-samtals 19.872 krónur.
Nú eru þrjár ferðir eftir:
4ra daga íerð 26. - 30. ágúst
4ra daga íerð 27.-31. ágúst
3ja daga ferð 8. - 11. september
Innifalið:
Innifalið í allar ferðirnar: Flug, gisting í 2ja
manna herbergi, morgunverður. Flugvallaskattur
og íerðir til og írá ílugvöllum ekki inniíaldar.
Allar nánari upplysiiigar hjá söluskrifstoíu
Flualeiða, íerðaskriístoíum og umboðsmönnum