Morgunblaðið - 24.08.1983, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
fNfaBtmlftlfifeft
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakiö.
Þarft frumkvæði
Ahugamenn um úrbætur í
húsnæðismálum hafa tek-
ið sig saman, efnt til blaða-
mannafundar og kynnt sjón-
armið þeirra sem eru að slig-
ast undan skuldabyrði vegna
húsnæðiskaupa eða bygginga
og klukkan 18 í dag boða þess-
ir aðilar til borgarafundar um
mál húskaupenda í Sigtúni.
Þetta frumkvæði er þarft og
ætti í senn að stuðla að því að
stjórnvöld fái nauðsynlegt að-
hald og lántakendur geri sér
gleggri grein fyrir réttindum
sínum og skyldum.
Ekki eru nema fjórir mán-
uðir síðan kosið var til þings
en eins og menn muna höfðu
allir flokkar uppi stór áform
um úrbætur í húsnæðismál-
um. Fer vel á því að þessi
fyrirheit séu nú rifjuð upp og
metið hvernig framkvæmd
þeirra miðar. Við stjórnar-
skiptin voru húsnæðismálin í
ólestri. Undir forsjá Svavars
Gestssonar í félagsmálaráðu-
neytinu var haldið þannig á
málum við útdeilingu á opin-
beru fé til húsnæðismála að
gengið var á hlut einstaklinga.
Vandi húskaupenda er þó
víðtækari en svo að hann verði
alfarið rakinn til starfa for-
manns Alþýðubandalagsins í
félagsmálaráðuneytinu. Hann
stafar auðvitað samhliða af
því hve illa hefur verið haldið
á almennri stjórn efnahags-
mála. Peningarnir sem hús-
kaupendur verða að taka að
láni hafa hækkað gífurlega í
verði í óðaverðbólgunni. Eins
og málum er nú háttað, þegar
launakjör manna hafa verið
skert til að rjúfa vítahring
víxlhækkana, en þessi hringur
hefur ekki verið rofinn í
lánskjörum, myndast mis-
ræmi milli tekjuöflunar og
þunga afborgana og vaxta sem
verður óbærilegt til lengdar.
Blasir gjaldþrot við fjölda
manns ef svo fer fram sem
horfir. Þanþol einstaklinga er
ekki óendanlegt þótt þeir séu
fúsir til að axla byrðar og þær
jafnvel þungar um tíma í því
skyni að rétta þjóðarskútuna
við.
Morgunblaðið fagnar frum-
kvæði áhugamanna um úrbæt-
ur í húsnæðismálum. Miðað
við stefnumiðin sem ríkis-
stjórnarflokkarnir settu fram
í kosningabaráttunni getur
aukið aðhald að stjórnarflokk-
unum í húsnæðismálum ekki
leitt til annars en góðs fyrir
einstaklinga og þjóðarheild-
ina.
Sigmunds-
búnaðurinn
Grein Sigmunds Jóhanns-
sonar, teiknara, hér í
blaðinu síðastliðinn fimmtu-
dag um gang mála hjá
Siglingamálastofnun varðandi
björgunarbúnað sem Sigmund
hefur fundið upp hlýtur að
vekja menn enn einu sinni til
umhugsunar um stirðleikann
og tregðulögmálin sem alltof
oft setja svip sinn á opinber
afskipti. Sigmundsbúnaðurinn
er neyðartæki sem Sjóslysa-
nefnd, sjómannafélög og fleiri
samþykktu og gerðu tillögu
um að yrði lögfest með því að
setja eitt tæki í hvert skip
nema þar sem einn björgun-
arbátur nægði ekki fyrir alla
áhöfnina. Þessi búnaður getur
sjósett og blásið upp
gúmmíbjörgunarbát við allar
aðstæður og hvort sem menn
hafa tíma til að gera það með
handföngum eða ekki. Fyrir
rúmu ári var lögskipað að Sig-
mundsbúnaðurinn yrði settur
um borð í íslensk skip. Sig-
mund Jóhannsson tekur sér
hins vegar penna í hönd og
skrifar grein í Morgunblaðið
vegna þess að hann telur að
Siglingamálastofnun hafi ekki
staðið með viðunandi hætti að
framkvæmd málsins.
Morgunblaðið tekur undir
þessa ádrepu Sigmunds og lýs-
ir undrun sinni yfir gangi
málsins síðan ákveðið var með
reglugerð að björgunarbúnað-
urinn sem við hann er kennd-
ur yrði settur um borð í ís-
lensk skip. Til að tryggja ör-
yggi sjómanna eiga opinberir
aðilar að sjá til þess að þeir
hafi afnot af hinum bestu
neyðartækjum hverju sinni,
því hefur ekki verið fylgt fram
í þessu tilviki.
Anægjuleg
Reykjavíkurvika
Borgarstjórn Reykjavíkur
undir framkvæmdastjórn
Markúsar Arnar Antonssonar,
forseta borgarstjórnar, stóð
ánægjulega að því í síðustu
viku að minnast 197 ára af-
mælis höfuðborgarinnar. Fer
vel á því að borgaryfirvöld
nýti afmæli Reykjavíkur með
þessum hætti til kynningar á
starfsemi fyrirtækja borgar-
anna og til menningarauka.
Stórvirk vélskófla dregur vagn meö stálbitum yfir vatnsósa sandinn, en keyrt er eftir stikum. í fjarska
sést Ingólfshöföi.
Dæling að hefjast
við „gullskipið“
í dag hefja gullskipsmenn dæl-
ingu úr kvínni á fjörukambi
Skeiðarársands, en undanfarna
daga hafa þeir unniö við lokafrá-
gang á þilinu umhverfis flakið í
sandinum og lokaverkið var að
ganga frá festingum til hliðanna
þannig að engin hætta sé á að
þilið falli saman þegar dælt verð-
ur innan úr því. Gengið er frá
þilinu á sama hátt og gert er við
venjuleg bryggjuþil í höfnum
landsins. Sérstakir stálvírar og
járnbitar eru notaðir til þess að
stífa þilið af, en festingarnar eru
annars vegar í þilinu sjálfu og
hins vegar í sandinum til hliðar
við þilið.
Unnið við lokafrágang á þilinu, en búið var að róta talsverðu af sandi innan úr þilinu um helgina með
stórvirkum tækjum. Eins og myndin sýnir er komið niður f vatn innan þilsins. Þegar dæling hefst þarf að
dæla vatni inn í þilið, því dælurnar þurfa vatn til þess að geta dælt sandinum og talið er að ekki muni síga
inn af sjálfsdáðum nægilegt vatnsmagn til verksins.
Gullskipsmennirnir brugðu sér út fyrir búðirnar þegar við heimsóttum þá eitt kvöldið fyrir skömmu og
Ragnar Axelsson Ijósmyndari Mbl. tók þessa mynd.