Morgunblaðið - 24.08.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
3
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, leikkona, er útvarpsstjóri á iðnsýningunni í Laugardalshöll.
Útvarp Laugardalshöll:
Auglýst eftir týndum foreldrum
ÞEGAR 120 fyrirtæki sýna undir
sama þaki þarf ekki að spyrja að því:
það er alltaf eitthvað um að vera.
Þegar ofaná bætast tískusýningar og
önnur skemmtiatriði þurfa menn að
skipuleggja tímann vel til að missa
ekki af neinu. Þá kemur sér vel að
útvarp er á svæðinu, sem flytur til-
kynningar um það helsta sem er upp
á teningnum hverju sinni.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
leikkona, er útvarpsstjóri á iðnsýn-
ingunni í Laugardalshðll. Lilja
Guðrún situr ýmist í stjórnstöð
sinni bakatil í Höllinni eða gengur
um sýningarsvæðið með þráðlaus-
an sendi, spjallar við fólk eða „lýs-
ir beint“ því sem er á döfinni í
hverjum bás fyrir sig.
„Þetta er nauðsynleg þjónusta,"
segir Lilja Guðrún, þegar við
heimsóttum hana á útvarpið,
„fyrir utan að senda út tilkynn-
ingar og auglýsingar flytjum við
tónlist og stjórnum „barnaleitum".
Það er nefnilga töluvert um það að
börn verða viðskila við foreldra
sína í margmenninu og þá er aug-
lýst eftir týndum börnum, mömm-
um og pöbbum. Ég hef gaman af
því að vera útvarpsstjóri í Höll-
inni, starfið felst fyrst og fremst í
skipulagningu, raða auglýsingum
og tilkynningum niður á ákveðinn
tíma svo þetta lendi ekki allt í
einni bendu."
Úthafsrækjuyeiðin í júlf:
Um 115% meiri en á
sama tíma síðasta ár
VEIÐAK á úthafsrækju hafa aukizt
verulega í ár samanborið við síöasta
ár. í júlímánuði síöastliðnum veiddust
1.858 lestir af úthafsrækju en í sama
mánuði í fyrra alls 864 lestir. Aukn-
ingin nemur því um 1.000 lestum eða
um 115%. Þá hafa í ár verið gefin út
rúmlega helmingi fleiri leyfi til veiða
á úthafsrækju en í fyrra eða 81 nú á
móti 38 í fyrra.
Hvað varðar veiðar á innfjarða-
rækju, eru þær háðar ákveðnum
kvóta hvert veiðitímabil og hefur
ekki orðið um teljandi breytingar
þar á, en veiðitímabilið stendur að
jafnaði frá hausti og fram á vor
með mánaðar jólafríi. Að sögn
Þórðar Eyþórssonar, deildarstjóra í
sjávarútvegsráðuneytinu, hafa út-
hafsveiðarnar líklega aldrei gengið
eins vel og nú. Ný mið hafa fundizt
víða út af Austfjörðum og hafa
rannsóknaskipin Bjarni Sæmunds-
son og Dröfn auk Votabergsins frá
Eskifirði stundað rannsóknir þar.
Fékk Votabergið meðal annars 12
lestir í fyrsta túr, en þeir leituðu á
um 100 mílna svæði sunnan Lang-
aness og urðu alls staðar varir við
rækju. Bjarni fór austur á Færeyja-
hrygginn og varð var við rækju þar
og einnig varð rækju vart í Lóns-
dýpi og Berufjarðaráli.
Nánast ekkert hefur verið um
veiði á Dornbanka en góð veiði hef-
ur verið í Norður-kantinum, í Eyja-
fjarðaráli, við Grímsey, Kolbeinsey
og á Skagagrunni. Þá hafa veiðar
gengið vel við Eldey en þar var
kvótinn aukinn úr 800 lestum í 1.000
og stunda 10 bátar veiðar þar og
leggja upp á þremur stöðum á Suð-
urnesjum. Enginn aflakvóti er á
öðrum úthafsveiðum. Skip af öllum
gerðum og stærðum stunda þessar
veiðar, allt frá smáum bátum og
upp í skip, sem frysta aflann um
borð. Ekki er hægt að segja til með
nákvæmni hve margir nýta leyfin,
en það mun vera mikill meirihluti
þeirra, sem leyfi hafa fengið.
Félagsmenn hafa
síðasta orðið
— segir Halldór Björnsson varaform. Dagsbrúnar
„ÞAÐ KEMUR til kasta þeirra sem
kusu okkur á sínum tíma, sem eru
félagsmenn Dagsbrúnar, eða kusu
okkur ekki, því það kom ekki fram
neitt mótframboð síðast, að segja
sitt síðasta orð í þessu máli. Ég eins
og aðrir verð að sætta mig við það
hvað þar kemur fram og í sjálfu sér
er ég ekkert að neita að sætta mig
við það, sem meirihluti stjórnar
ákvað, hún hefur umboð til að ráða
starfsmenn samkvæmt lögunum, en
það má áfrýja hlutunum," sagði
Halldór Björnsson, varaformaður
Dagsbrúnar, um þá ákvörðun stjórn-
ar Dagsbrúnar að ráða Þröst Olafs-
son til íelagsins, en Halldói varð í
minnihluta þegar ráðning Þrastar
var til umræðu í stjórninni.
„Maðurinn er ráðinn með vald yfir
allt og öllu, eða ég fæ ekki betur
séð,“ sagði Halldór, er hann var
spurður um þau ummæli sín, að
Þröstur væri ráðin með vald yfir
kjörnum starfsmönnum félagsins.
„Það verður svo að koma í ljós
hvernig menn halda á sínum mál-
um,“ sagði Halldór.
Halldór sagði aðspurður um fyrir-
ætlanir sínar, ekkert vilja um þær
segja að svo stöddu.
*
Utvarpsráð mælir með Atla Steinarssyni:
Fréttastofan ósk-
ar eftir að hætt
sé við ráðninguna
ATLI Stcinarsson hlaut atkvæði 5
útvarpsráösmanna á fundi ráðsins í
gær, en þá var tekin fyrir ráðning
afleysingamanns á fréttastofu Hljóð-
varps fram til áramóta. Trausti
Ólafsson hlaut 1 atkvæði og um-
sækjandi sem óskaði nafnleyndar 1
atkvæði.
í bréfi frá fréttastofu Hljóð-
varps, sem lagt var fram á fundin-
um, var, að sögn Markúsar Arnar
Antonssonar, útvarpsráðsmanns,
þess óskað að hætt yrði við að
ráða í stöðuna, þar sem liðið væri
á þann tíma, sem ráðningin ætti
að gilda, en ráðningartíminn átti
að hefjast 1. júlí. Útvarpið var bú-
ið að tilkynna umsækjendum að
ekki yrði ráðið í stöðuna fyrr en
um miðjan ágúst.
Sagði Markús að það hefði kom-
ið fram á fundinum að hálfgert
hernaðarástand hefði ríkt á
Hljóðvarpinu undanfarnar vikur,
sökum þess að það hefði komið
fram hjá Útvarpsstjóra, að ef
Útvarpsráð mælti enn einu sinni
með ráðningu Atla Steinarssonar
í stöðu fréttamanns á Hljóðvarp-
inu, þá myndi hann ráða Atla í
hana. Atli hefur áður sótt um
stöðu á fréttastofu Hljóðvarps og
þrátt fyrir að meirihluti Út-
varpsráðs hafi mælt með honum,
hefur hann ekki verið ráðinn.
„Það kom fram hjá mér og fleir-
um á fundinum, að það væri al-
gerlega forkastanlegt, að frétta-
stofa Hljóðvarps ætlaði að ráða
alfarið sjálf, hverjir væru taldir
hæfir til vinnu þar og misbjóða og
hafa í hótunum við Utvarpsráð og
útvarpsstjóra í því efni,“ sagði
Markús Örn.
Sagði Markús að síðan væri
fréttastofan með áætlanir um að
kalla inn fyrrverandi fréttamenn
á útvarpinu til að bjarga því í
horn að ekki þyrfti að ráða nýjan
mann á fréttastofuna til áramóta.
INNLENT
Afar dauft í Laxá í Aðaldal
Veiðin hefur verið afar léleg í
Laxá í Aðaldal í allt sumar og
alveg sér í lagi síðustu vikurnar,
en að sögn viðmælenda Mbl. í
veiðihúsinu að Vökuholti í gær,
hafa aðeins veiðst að meðaltali 3
til 4 laxar á dag síðasta hálfa
mánuðinn. í gærmorgun komu 3
laxar á land og voru þá komnir
788 laxar á land af svæði Laxár-
félagsins. Best sést hversu léleg
veiðin er, þegar athugað er að
afli þessi hefur veiðst á 12 stang-
ir sem flengja Laxá daglangt. Þá
er laxinn með smæsta móti, sá
stærsti 21 pund og þar fyrir utan
sáralítið af vænum löxum. Er af
sem áður var og margar ár
stæra sig af því nú að vera meiri
stórlaxaár en gamla drottningin
Laxá.
Akureyrarblaðið Islendingur
greindi frá því fyrir skömmu, að
tugir tonna af grjóti hefðu fallið
úr klettum ofan í Æðarfossa
fyrir nokkrum dögum og væri
svipur þeirra stórbreyttur eftir.
Hafði blaðið eftir Vigfúsi Jóns-
syni á Laxamýri, að mildi hefði
verið að engin slys hefðu verið á
fólki þar sem fólk hefði verið þar
við veiðar daginn áður og náð
fimm löxum. Þar sem grjótið féll
í fossinn var mikill veiðistaður,
en reynslan hefur enn ekki skor-
ið úr um framtíð hans sem slíks.
Blanda enn léleg
en Svartá glæðist
Það er gjarnan talað um
Blöndu og Svartá í sömu and-
ránni. Blanda hefur verið afar
slök í sumar miðað við það sem
hún best getur verið, en að sögn
veiðieftirlitsmanns í sýslunni er
erfitt að henda reiður á ná-
kvæmri aflatölu, því fleiri aðili
en einn hefur ána á leigu og hver
skráir sinn afla á kort sem skil-
ast misjafnlega vel. Taldi hann
þó um 500 laxa vera komna á
land.
Svartá hefur hins vegar tekið
góðan fjörkipp, til dæmis veiddi
síðasta „holl“ 22 laxa á 3 dögum,
en veitt er á 3 stangir. Þá gerðist
það í fyrsta skiptið í Svartá í 2
ár, að veiðimaður fyllti kvótann,
veiddi 8 laxa á einum degi. í gær
voru 113 laxar komnir á land.
þar af 50 stykki síðan 16. ágúst.
Er þetta prýðileg veiði miðað við
hversu illa byrjaði og laxinn
gekk seint. Laxinn er allvænn og
fjórir 16 punda laxar hafa komið
á land.
Merkislax í Runka
Eins og greint er frá á baksíðu
blaðsins, veiddist merkilegur lax
í Laxá á Ásum þann 20. ágúst.
Laxinn, 3 punda hæng, veiddi
Eyþór Sigmundsson, mögnuð
veiðikló, í veiðistað sem Runki
heitir. Er sá veiðistaður frekar
ofarlega í ánni. Laxinn hafði
fyrr um sumarið verið að flækj-
ast í Blöndu, um það bar merki á
honum vitni. Þannig er nefnilega
mál vexti, að Þórólfur Antons-
son hefur í sumar verið að
merkja laxa í Blöndu. Hefur
hann náð þeim í gildru við laxa-
stigann og þannig merkt yfir 400
laxa og mikið af bleikju. 2. ágúst
merkti hann laxinn sem Eyþór
veiddi í Runka. Það er ekki eins-
dæmi að laxar flækist milli áa á
veiðitímabili, en telst þó til und-
antekninga og flækingur litla
hængsins merkilegur á ekki
lengri tíma.
Litlu árnar
Veiðieftirlitsmaður Húna-
vatnssýslu gaf Mbl. upp ýmsar
tölur um laxveiði í gær, til dæm-
is frá Hallá. Úr henni voru
komnir 94 laxar í gær, all miklu
betri veiði en á sama tíma í
fyrra. Þó hefur veiðin dregist
nokkuð saman, en það mun ekki
síst vera af samgönguástæðum,
þar sem laxinn liggur nú mest
ofarlega í ánni. Þangað er ekki
fært nema jeppum og gönguferð-
ir langar.
í Laxá fremri, efri hluta Laxár
á Ásum, hafa veiðst 38 laxar og
hefur verið treg laxveiði að und-
anförnu. Silungsveiðin er hins
vegar að venju mjög góð.
Laxá ytri, í Refasveit, hefur
gefið 45—50 laxa á tvær stangir.
Oft er hún illa nýtt, þ.e.a.s.
leiguhafar sleppa því alloft að
nýta veiðidaga sína. Meiri
ástundun myndi því væntanlega
gefa meiri afla.
Þá má geta þess, að 39 laxar
hafa veiðst á silungasvæðunum í
Vatnsdalsá í sumar, þar á meðal
einn 19 punda. Silungsveiðin
hefur ekki brugðist.
Lélegt við Svarthöfða
Mbl. rabbaði við veiðimann
nýkominn frá Svarthöfða í
Borgarfirði, vatnamót Hvítár,
Flóku og Reykju. „Það var mjög
dauft, við vorum í 3 daga og
misstum einn lax, en það telst
varla í frásögur færandi," sagði
hann og bætti við að enginn lax
hefði veiðst í 6 daga og lítið virt-
ist vera af laxi á svæðinu, að
minnsta kosti liti svo út. 61 lax
var kominn á land og meðal-
þunginn ekki hár. Er það mjög
lélegt á þessum annars ágæta
veiðistað.