Morgunblaðið - 24.08.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
45
T
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
nf M/ujMnhc'att'u if
Hvers vegna er ekki
vatn í læknum?
5789-0584 skrifar:
Velvakandi.
Hvers vegna var aðstaðan við
heita lækinn í Nauthólsvík svo
stórlega skert, að einungis tvisvar
hefur vatni verið hleypt i lækinn í
sumar? Svör við þessu væru vel
þegin.
Fólk á ýmsum aldri hefur notað
lækinn sem heilsubót við gigt,
vöðvabólgu og fleiri sjúkdómum
og hafa margir sjúkdómar hopað
undan heilnæmu hveravatninu,
ómenguðu af klórefnum sem
margir þola alls ekki. Það geta
nefnilega ekki allir nýtt sér sund-
laugarnar og sakna lækjarins. Við
viljum því fá heilsulindina okkar
aftur, og viljum ekki að Reykjavík
tapi þessu séreinkenni sínu.
Borgaryfirvöld, takið tillit ti
okkar og gefið greið svör. Ef við
getum eitthvað gert til bóta í þess-
um efnum, okkur til stuðnings, þá
segið bara til.
Gróðurspjöll í
Breiðholti
Breiðholtsbúi skrifar:
Stöðugt er unnið að því að
snyrta meðfram akbrautum og
fegra umhverfi okkar í Breið-
holtinu.
í sumar hefur verið unnið
myndarlega að því að lagfæra
brekkuna norðan við Blesugróf-
ina og var sáð í hana að loknu
verki. Okkur, sem þykir vænt um
umhverfi okkar, þykir eðlilega
sárt að sjá umhverfisníðinga for-
djarfa þessu öllu um leið og því
er lokið.
Einn slíkur stytti sér leið úr
Blesugrófinni yfir á Breið-
holtsbrautina mánudaginn 22.
ágúst. Hann var á jeppa með aft-
aníkerru og lét sig hafa það að
aka yfir græna spilduna og var
greinilega ekki sá fyrsti.
HEILRÆÐI
HVÍTI STAFURINN er tæki sem gerir blindum og sjónskert-
um fært að rata, ferðast um, afla sér upplýsinga og veita þær.
HVITI STAF'URINN minnir sjáandi menn á að sýna blindum
og sjónskertum háttvísi og beita skynsemi í umgengni við þá.
HVÍTUR STAFUR - TAKN BLINDRA
Þessir hringdu . . .
Furðuleg þýðing
Kinar Jónsson hringdi.
Mig langar til þess að þakka
sjónvarpinu fyrir brasilíska þátt-
inn sem var á dagskrá 22. ágúst sl.
Það er ánægjulegt að sjá þætti og
myndir frá öðrum heimsálfum en
Evrópu og Bandaríkjunum og ég
vil hvetja sjónvarpið til að gefa
okkur tækifæri til að sjá meira frá
öðrum stöðum. Til dæmis voru hér
fyrir nokkrum árum sýndir þættir
sem hétu „Malu mulher"; brasil-
ískir framhaldsþættir sem voru
vel þegin lausn frá sænskum
vandamálaþáttum og bandarísk-
um glansþáttum. Forráðamenn
sjónvarpsins hljóta að eiga þess
kost að taka til sýninga þætti og
kvikmyndir eins og þá sem ég hef
minnst á, þó oft mætti halda að
sjónvarpsefni væri aðeins fram-
leitt í Evrópu og Bandaríkjunum.
Það er annað í sambandi við
sjónvarpið, sem mig langar að
minnast á. Oft á tíðum eru þýð-
ingar á erlendu sjónvarpsefni með
ólíkindum mótsagnakenndar.
Þann 22. ágúst var bresk-banda-
rísk heimildarmynd sem nefnist á
íslensku „Lífæð Louisiana", gott
og vel, en hvað stendur síðan á
skerminum þegar þátturinn byrj-
ar „Goodbye Lousiana" eða „Bless
Louisiana", og hæfði betur efninu,
því þátturinn fjallaði um Louisi-
ana-fylki, sem sífellt er að minnka
vegna Mississippifljóts. Furðuleg
þýðing það.
Geta augu verið
rangeygð?
Magnús V. Finnbogason hringdi:
Tilefni þess að ég skýt þessari
spurningu til lesenda, er það að
sunnudaginn 21. ágúst síðastlið-
inn, kl. 19.50, var í hljóðvarpinu
dagskráratriði sem nefnt var:
Rafmögnuð augu þín eru rangeygð.
Ef augu geta verið rangeygð,
hlýtur hönd að geta verði smá-
hend, munnur opinmynntur, hár
manns ljóshært eða dökkhært.
Þegar lesendur hafa fundið ör-
uggt svar við spurningunni,
mættu þeir hlugleiða hvort nokk-
ur vafi sé á, að Ríkisútvarpið haldi
nú sem fyrr á árum traustan vörð
um fagurt mál og rökræna hugsun
og vandi nægilega val dagskrár-
efnis.
„Góðan dag,
Grindvíkingur“
Hildur Björnsdóttir hringdi og
sagði:
í laugardagsblaði Morgunblaðs-
ins er fyrirspurn um það hvernig
vísan Góðan dag, Grindvíkingur,
hljóði. Góðan dag, Grindvíkingur,
er eftir Örn Arnarson og birtist í
kvæðabók hans Illgresi. Alls er
kvæðið 5 erindi. Það fyrsta hljóm-
ar svona:
Góðan daginn, Grindvíkingur,
gott er veðrið, sléttur sær
svífa í hilling Suðurnesin,
sólarroða á hlíðar slær.
Fyrir handan hraun og tinda
huga kær minnisrík,
bíður okkar bernskuströndin,
brimi sorfin Grindavik.
Innilegar þakkir til fjölskyldu minnar og vina sem
glöddu mig á áttatíu ára afmæli mínu.
Lifið öll heii'
Aðalheiður Sigurðardóttir,
Kleppsvegi 118.
Innilegar þakkir til allra sem heiðruðu mig á 90 ára
afmæli mínú með skeytum, blómum og heimsóknum.
Andréas Bergmann
Heildsölubirgðir:
Agnar Ludvigsson hf.,
Nýlendugötu 21.
Sími 12134.
ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM
BROSTU!
MYNDASÖGURNAR
KOMA MORGUN
Vikuskammtw afskellihlátri
AUGlYÍ.INGAS>OM KMISHNAU Ht