Morgunblaðið - 24.08.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.08.1983, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983 Mannslíf en ekki peningalykt Talsmanni siglingamálastjóra svarað eftir Arna Johnsen Það er ömurlegt hlutskipti hjá iðnráðgjafa á Suðurnesjum að koma fram sem leppur siglinga- málastjóra ríkisins í máli þar sem siglingamálastjóri hefur allt á hælunum, máli sem varðar líf og öryggi íslenzkra sjómanna. Það er lágkúrulegt hjá þessum sama iðnráðgjafa, sem er launaður emb- ættismaður ríkisins, að bera það upp á Vestmanneyinga að þeir láti fjárhagslegan ávinning sitja í fyrirrúmi þegar um er að ræða ör- yggistæki íslenzkra sjómanna. í nær fjóra áratugi hafa forsvars- menn sjómanna og útvegsmanna í Vestmannaeyjum verið brautryðj- endur í því að auka öryggi sjó- manna og má þar sérstaklega nefna baráttu þeirra fyrir notkun gúmmíbjörgunarbáta. Sig- mundsbúnaðurinn er kominn um borð í allan flota Vestmanneyinga, ekki vegna þess að verið sé að hugsa um hag þeirra manna sem vinna við framleiðslu tækisins, heldur vegna þess að menn sem vinna af viti, skilja að hér er um að ræða tæki sem veldur byltingu í öryggismálum sjómanna. Þrándur í götu öryggis Siglingamálastjóri hefur tekizt að klúðra þessu máli allt of lengi, hann er þannig þrándur í götu jákvæðrar þróunar í öryggismál- um sjómanna. Hjálmar Bárðarson er yfirþyrmandi staður maður, en því miður hefur hann ekki borið gæfu tii þess að vera afgerandi og jákvæður í sínu starfi. Siglinga- málastjóri hefur orðið margsaga varðandi afstöðu til Sigmunds- búnaðarins, en hann neyddist til þess vegna þrýstings byggðum á skotheldum rökum frá aðilum í út- vegi og t.d. vegna ákveðinna vinnubragða Sjóslysanefndar, að viðurkenna Sigmundsbúnaðinn fyrir ári síðan. Siglingamálastjóri hefur hins vegar verið með allskyns makk, baktal og ótrúlega svívirðileg vinnubrögð í svo viðkævmu og mikilvægu máli og nú þegar hann stendur rökþrota fær hann sak- leysingja úr embættiskerfinu til þess að tala sinu máli og segja m.a. að um sé að ræða ómaklega árásir á siglingamálastjóra Is- lands, mann sem hefur í skjóli loð- inmollu og kjaftæðis hamlað gegn auknu öryggi til handa sjómönn- um, mann sem hefur lítilsvirt Sig- mund Johannsson uppfyndinga- mann og þann stóra hóp manna sem hefur lagt ótrúlega vinnu í tilraunir á Sigmundsbúnaðinum, þar sem Siglingamálastofnun hef- ur ávallt verið boðið að fylgjast með og leggja þannig hönd á plóg- inn. Hvar i heiminum hefur sigl- ingamálastjóri verið þá? Það er sorgleg staðreynd að ungur maður eins og Jón E. Unn- dórsson skuli láta troða sér undir hæl misheppnaðs embættismanns eins og Hjálmars Bárðarsonar og ekki bætir úr að maður sem titlar sig verkfræðing skuli blaðra aðra eins vitleysu og hann gerir um þetta mál. Páll Guðmundsson, starfsmaður Siglingamálastofnunar, hefur staðfest i samtali við mig að gormagálginn hafi þegar hann var kynntur verið nákvæmlega eins og Sigmundsgálginn, nema hvað varðaði gormabúnaðinn og hafði Páll á orði að Ijóst væri að ef Sig- mund hefði ekki kynnt sinn búnað hefði gormabúnaðurinn aldrei komið til. Þá sagði Páll að verk- stæðið í Njarðvík, sem hefur reynt að þróa gormabúnaðinn á grunni hugmyndar Sigmunds, hefði síðar breytt læsingunni á búnaðinum, að sjálfsögðu til þess að reyna að fela stuldinn á hugmyndinni, en jafnvel Siglingamálastofnun hafði á sínum tíma talað um nauðsyn þess að það verkstæði sem hefði gengið í gegn um öll stig tilraunar með Sigmundsbúnað hefði eins konar verkstjórn með framleiðslu búnaðarins í flota landsmanna þótt fleiri verkstæði kæmu til. Þetta var skynsamlegt hjá siglingamálastjóra og ef hann hefði staðið eins og maður að framgangi þess máls væri um- ræddur öryggisbúnaður kominn í einurð ... Það er í rauninni lygi- legt að maður skuli þurfa að rita slíka lýsingu til þess að gefa rétta mynd af vinnubrögðum sem tíðk- ast hjá æðstu mönnum öryggis- og siglingamála þjóðarinnar. Sigmundsbúnaður eft- ir miklar tilraunir Jón E. Unndórsson segir að belgurinn sem notaður er við loft- þrýstibúnað Sigmunds hafi rifnað í frosttilraun. Það er alveg rétt, því misskilið frásögn aðstandenda Siglingamálastofnunar þegar hon- um voru lögð orð í munn til greinaskrifa og er ummælum hans hér með vísað heim til föðurhús- anna. Gormabúnaðurinn virkaði ekki Hins vegar segir Jón E. Unn- dórsson: „Mjög góð reynsla hefur fengist af gormi þessum og hefur hann staðist allar frostprófanir Siglingamálastofnunarinnar.“ Staðreyndin er hins vegar sú að þeir gormar, sem fyrirtækið í lands. 1 skýrslu Þorvalds segir einnig orðrétt: „Hér eru nokkrar marktækar umsagnir manna á staðnum: „Þetta er ekki sambæri- legur ís miðað við það sem oft er á sjónum." „Það er ekki sanngjarnt að láta útgerðarmenn kaupa á skipin sjósetningarbúnað sem virkar ekki þegar ís hefur hlaðist á skipið og kannski líklegast að á honum þurfi að halda." Svo mörg voru þau orð, gormur- inn fraus inni, en hins vegar er fyrir löngu búið að sannreyna að loftþrýstibúnaður Sigmunds sprengir auðveldlega 20—25 sm. þykkan ís og við tilraun m.a. sprengdi belgur innan í botnfros- 5,° GcfA (JJÍP allan landsflotann um þessar mundir. Siglingamálastjóri hvatti til verksins Siglingamálastofnun hefur far- ið með gormabúnaðinn sem feimn- ismál og er það ekki að undra því framleiðendur þess búnaðar halda því fram að siglingamálastjóri hafi hvatt þá til verksins. Þarna eru því einlæg tengsl á milli á sama tíma og siglingamálastjóri hefur í skjóli embættis síns reynt að sniðganga eins og mögulegt hefur verið framkvæmd á upp- setningu Sigmundsbúnaðarins og ávallt verið með hundshaus í því máli vegna þess að hann er í fýlu við Sjóslysanefnd og að hún leyfði sér þá framsýni að standa við bak- ið á framkvæmd málsins af mikilli belgurinn rifnaði við tilraun í 27 stiga frosti, en hann rifnaði eftir að hann hafði þanist út, sprengt ísinn og losað björgunarbátinn eins og til var ætlast. Það hafa margir belgir sprungið í tilraunum Eyjamanna með Sig- mundsbúnaðinn. Það hafa margir belgir verið sprengdir til þess að kanna styrkleikann við ýmsar að- stæður og þess vegna liggja stað- reyndirnar á borðinu; óaðfinnan- legt í 20° frosti. Það er hins vegar ekki Siglingamálastofnun sem hefur prófað Sigmundsbúnaðinn, heldur Eyjamenn og á fundi með Hjálmari Bárðarsyni, og Páli Guðmundssyni starfsmanni hans, l' Eyjum fyrir 10 dögum var þeim tilkynnt um síðustu niðurstöður ísprófana og allt slíkt hefur jafn- framt verið tekið upp á myndseg- ulband. Verkfræðirtgurinn hefur Njarðvík hefur sýnt og gert til- raunir með, hafa reynzt ónothæfir og vísa má til prófunar á sleppi- búnaði þessum sem Siglingamála- stofnun stóð fyrir 6.-9. júní sl., án þess þó að Eyjamönnum væri boðið að taka þátt í þeirri prófun. Reyndur var búnaður frá Stálvík og Vélsmiðju Óla Olsen í Njarðvík. I skýrslu Þorvaldar Ólafssonar, starfsmanns Siglingamálastofn- unar, segir orðrétt: „Þykkt ís- brynjunnar var 1—3 sm. fryst með úða frá garðkönnu í 27 gráðu frosti. Búnaðurinn var reyndur milli kl. 10 og 10.30 þann 9. júní og virkaði ekki vegna viðnáms frá ís- brynjunni." Viðstaddir voru fjölmargir aðil- ar, frá Rannsóknarnefnd sjóslysa, Sjómannafélagi Reykjavíkur, Vél- stjórafélagi Islands, SVFÍ, ísbirn- inum og Siglingamálastofnun ís- inni síldartunnu, allan ísinn svo að hann kurlaðist. Þrýst á að lögum sé framfylgt Jón E. Unndórsson segir að bar- áttumenn fyrir öryggismálum sjó- manna ætli að nota mig til þess að þrýsta á framgang þessa máls eft- ir pólitískum leiðum. Þetta er kynlega orðað hjá blessuðum manninum, því meginmálið hjá okkur sem þolum ekki doða sigl- ingamálastjóra og klæki í þessu máli, er rökfesta og staðreyndir sem ekki hefur verið hnikað. Jafn- gott tæki og Sigmundsbúnað er í lagi að samþykkja, jafnvel þótt hugmyndinni hafi verið stolið, en verra tæki kemur ekki til greina. Þrýsta á framgang málsins eftir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.