Morgunblaðið - 24.08.1983, Side 2

Morgunblaðið - 24.08.1983, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983 Tveir rússneskir úthafstogarar liggja nú bundnir við bryggju í Reykjavíkurhöfn, en munu væntanlega leggja úr höfn seinnipartinn í dag. l*eir komu hingað til hafnar á mánudagsmorgun og einn rússneskur togari var hér í fyrri viku. Að sögn hafnarvarða hjá Reykjavíkurhöfn er það ekki óalgengt að rússneskir togarar komi hingað til hafnar og hvfli mannskapinn, en úthald þessara skipa er langt. Morgunbi»4i«/ kee. Flytja þarf 1,5 millj. lítra af undanrennu eða -dufti frá Norðurlandi í vetur Hjá framleiðsluráði landbúnað- arins og mjólkursamlögunum er verið að ræða um hvernig bregðast skuli við þeim mikla samdrætti sem hefur nú þegar orðið og fyrir- Hellissandur: Möguleikar á uppbyggingu kannaðir „ÞAÐ ERU fyrstu viðbrögð hjá okkur að reyna að átta okkur á hvað tjónið er raunverulega mik- ið,“ sagði Rögnvaldur ólafsson, framkvæmdastjóri Hraðfrysti- húss Hellissands hf., í samtali við Mbl. er hann var inntur eftir áformum fyrirtækisins eftir bruna frystihúss fyrirtækisins. Sagði Rögnvaldur að matsmenn væru að meta tjónið en jafnframt væri verið að kanna hvaða mögu- leikar væru fyrir hendi með upp- byggingu. Þessi mál yrðu síðan rædd á stjórnarfundi í hlutafélag- inu næstkomandi föstudag. sjáanlegur er í vetur á mjólkur- framleiðslunni á Suðvesturlandi. Reiknað er með að minnkunin komi aðallega niður á framleiðslu á undranrennudufti til framleiðslu á kálfafóðri og til iðnaðar, þ.e. sælgætisframleiðslu og bakaría, en einnig kynni undranrennuduft að vanta til vinnslu í sumum mjólkursamlaganna suðvestan- lands í vetur. Gunnar Guðbjartsson fram- kvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins telur að á mark- aðinn í vetur komi til með að vanta undanrennuduft úr 1,5 milljónum lítra af undanrennu. Sagði hann að eitthvað af und- anrennudufti félli til á Blöndu- ósi en annað yrði að flytja frá Akureyri, annaðhvort til Blönduóss til þurrkunar eða til Selfoss því tæki til að þurrka mjólk væru ekki til á Akureyri. Þörf er á að hefja þessa mjólk- urflutninga strax eftir næstu mánaðamót að sögn Gunnars, og verður að gera það með bílum. Ekki væri mögulegt að flytja mjólkina með skipum því það tæki of langan tíma og hún skemmdist. Möguleiki er á að mjólkurbíll með aftanívagni geti flutt 22 þúsund lítra í hverri ferð og yrðu þetta þá 68 ferðir frá Akureyri til Blönduóss eða Selfoss. Gunnar taldi að ekki yrði vöntun á mjólkurvörum í land- inu í vetur þrátt fyrir samdrátt- inn í mjólkurframleiðslunni, spurningin væri aðeins um til- flutning á milli landshluta og aukakostnað sem af honum hlytist. Grétar Símonarson mjólkur- bússtjóri í Mjólkurbúi Flóa- manna á Selfossi sagði í samtali við Mbl. að í síðustu viku hefði vantað 37 þúsund lítra uppá að innvegin mjólk væri jafnmikil og í sömu viku í fyrra sem er 4,4% minnkun og í fyrri viku hefði vantað 33 þús. lítra sem er 3,9% minni innvegin mjólk en í sömu viku á síðastliðnu ári. Taldi Grétar hæpið að mjólkin myndi aukast aftur þó að skjót- lega brygði til betri tíðar, þar sem ekki væri hægt að ná nyt- inni í kúnum upp aftur eftir svona lægð. Frekar mætti þakka fyrir ef hún minnkaði ekki enn meira. „Viljum ad mark- aðurinn ráði“ — segir Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri á Seltjarnarnesi Kaupmannasamtökin hafa sent bæjarstjórn Seltjarnarness bréf þess efnis aö opnunartími verslana í Reykjavík og á Seltjarnarnesi sé samræmdur, en eins og kunnugt er af fréttum er Vörumarkaðurinn aö reisa stórmarkað á Seltjarnarnesi, sem opnar um þessar mundir. Á Sel- tjarnarnesi er frjáls opnunartími verslana. Sigurgeir Sigurðsson, bæjar- stjóri á Seltjarnarnesi, sagði í samtali við Morgunblaðið að efni bréfsins yrði tekið fyrir á næsta fundi í bæjarstjórn, sem yrði 14. september, en bréfið hafi borist það seint að ekki hefði verið hægt að taka það fyrir á seinasta fundi bæjarstjórnar, sem var 17. ágúst. „Ég get lítið tjáð mig um þetta erindi að svo stöddu. Við erum á móti öllum boðum og bönnum í þessu efni og teljum að þar verði markaðurinn að ráða, en við mun- um að sjálfsögðu ræða þeirra er- indi,“ sagði Sigurgeir aðspurður um þetta mál. Vatnstæring hjá Hitaveitu Seltjarnarness: Pottofnar eða forhitun í byggingarskilmála „VIÐ HÖFUM um nokkurt skeið haft af því vaxandi áhyggjur, að klóríd- magniö í vatninu hjá okkur sé aö aukast frá því sem þaö hefur verið og á því hafa ekki fundist viöhlýtandi skýringar,'* sagði Sigurgeir Sigurös- son, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, en bæjarstjórn Seltjarnarness hefur sett það í byggingarskilmála hjá sér að annaðhvort sé vatn notað til upphitun- ar forhitaö eða að ofnar séu úr potti. „Til þess að hafa vaðið fyrir neð- an okkur, þar sem þetta er ekki mikið mál ef um það er hugsað strax frá byrjun, höfum við gert ráðstafanir til þess að í bygg- ingarskilmála hjá okkur í framtíð- inni sé annað hvort um pottofna að ræða eða forhitun á vatninu. Þarna er um varúðarráðstöfun að ræða, helst vildum við auðvitað finna lausn á þessu vandamáli, en það hefur reynst erfitt og þeir vísinda- menn sem við höfum tilkvatt, hafa ekki getað gefið okkur önnur ráð. Við erum hreint ekki eina hitaveit- an á landinu sem á við tæringar- vandamál að etja og okkar vanda- mál er sem betur fer ekki stórt," sagði Sigurgeir. Sigurgeir sagði að þetta hefði einhvern aukakostnað í för með sér. Á móti kæmi að Hitaveita Seltjarn- arness væri sennilega í dag sú ódýr- asta í þéttbýli. Hreindýraveiöar: Mikið spurt um veiðileyfi „ÞAÐ ER MIKIÐ spurt um þessi veiðileyfi og margir hafa beðið um að leyfi verði tekin frá fyrir þá,“ sagði Jóhannes Hermannsson, hjá Ferðamiðstöð Austurlands, þegar Morgunblaöið spurðist fyrir um, hvernig gengi að selja leyfi til hreindýraveiða. Veiðitíminn er frá 1. ágúst til 20. september og hefur Ferðamiðstöð Austurlands heimild til að auelýsa og selja veiðileyfi. Leyfin gilda allt tímabilið og er verðið kr. 16.500 fyrir hvert dýr. Við bætist timakaup eftirlitsmanns (ca. 120 kr. á tímann). Þá er einnig boð- ið upp á flug frá Reykjavík, fram og til baka, á 2.500 kr. Bændur leggja síðan til bíl við veiðarnar, en menn verða sjálfir að útvega sér far upp að barnaskólanum á Skjöldólfsstöð- um, en þar er miðstöð veiðimanna. Jóhannes sagði þetta í fyrsta sinn að einstökum hreppum væri heimil- að að selja leyfi til hreindýraveiða. Jafnframt væri þetta í fyrsta skipti sem Ferðamiðstöð Austurlands hef- ur milligöngu um sölu veiðileyfa. „Hér áður var heimilt að selja slík leyfi og hafði yfirhreindýraeftir- litsmaður Austfjarða umsjón með sölunni. Því var hætt vegna vondr- ar umhirðu, menn skildu dýr eftir í sárum og lftið var fylgst með því hvort menn tóku 1 dýr eða fleiri. Nú verður framkvæmdin allt önnur. Fylgdarmaður verður að vera með í ferðum. Sá verður að vera hrein- dýraeftirlitsmaður eða einhver sem hann vísar til,“ sagði Jóhannes. Berjaspretta: Smáhrafl ef veður batnar „ÞAÐ VERÐA engin ber að ég held,“ sagði Finnbogi Lárusson, Snæfellsnesi, í samtali við Mbl. í gær. „Ég átti í gær leið fram undir jökli eins og kallað er, og hugaði að berjum á nokkrum stöðum á leiðinni. Þarna er geysilega mikið berjaland, en það sést varla ber á þessu svæði núna. Það sem var af krækiberjum var bara smælki og bláberjakoppa sá ég ekki. Þetta gera kuldarnir og vætan í sumar. Það gæti orðið smáhrafl af kræki- berjum um miðjan september ef vel viðrar, annars ekkert." Mbl. hringdi á nokkra staði í nágrenni Reykjavíkur, og var alls- staðar sömu sögu að segja, berin ætla ekki að láta á sér kræla i sumar frekar en sólin. Mismunandi daggjöld sjúkrahúsa: Vistgjald á elliheimili 456 krónur en 5029 kr. á Borgarspítalanum MJÖG ER mismunandi hvað legu- dagur sjúklings á sjúkrahúsi kost- ar þjóðfélagiö. Að sögn Páls Sig- urðssonar ráðuneytisstjóra í heil- brigðis- og tryggingaráðuneytinu sem jafnframt er formaður dag- gjaldanefndar, en daggjaldanefnd reiknar út daggjöld sjúkrahús- anna. Markast þessi mismunur annarsvegar af því hvað sjúkra- stofnanirnar veita mismunandi þjónustu og hinsvegar af hag- kvæmni í stærð þeirra. Sem dæmi um þennan mismun má nefna að samkvæmt núgild- andi gjaldskrá kostar hver legu- dagur mest í Borgarspítalanum í Fossvogi eða 5.029 á meðan dag- urinn í Sjúkraskýlinu á Þing- eyri, þar sem kostnaðurinn er lægstur, kostar 594 krónur. Þess ber að geta að Borgarspítalinn er eitt stóru sjúkrahúsanna á daggjöldum því kostnaður við Landakotsspítala og Sjúkrahús- ið á Akureyri er greiddur beint af fjárlögum eins og Ríkisspítal- anna. Svo tekin séu fleiri dæmi þá kostar dagurinn á Sjúkra- húsinu á Húsavík 1.767 krónur á meðan dagurinn kostar 3.340 á Sjúkrahúsinu í Keflavík. Af öðrum stofnunum sem dag- gjaldanefnd ákveður daggjöld fyrir má nefna að á dvalar- heimilum aldraðra kostar dag- urinn 456 krónur, hjá Sjúkrastöð SÁÁ á Silungapolli 1.102 krónur, hjúkrunardeild Elliheimilisins Grundar 623 krónur og Sunnu- hlið í Kópavogi 1.245 krónur. Innifalið í þessum daggjöldum er hvers konar þjónusta sem innlögðum sjúklingum er látin í té á sjúkrastofnunum. Saman- stendur daggjaldið af rekstrar- daggjaldi, sérstöku álagi til við- halds og tækjakaupa og svoköll- uðu halladaggjaldi sem er til að greiða niður halla sem áður hef- ur myndast hjá viðkomandi sjúkrahúsi. Að sögn Páls Sig- urðssonar var halli sjúkrahús- anna að meðaltali 12% á síðasta ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.