Morgunblaðið - 24.08.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
13
Litla stúlkan sem getið er um í myndinni.
Kjötsneiðar taka á rás
Kvikmyndir
Ólafur Jóhannsson
Kjötsneiðar taka á rás
Nafn á frummáli: Poltergeist.
Handrit: Steven Spielberg, Micha-
el Grais og Mark Victor.
Framleiðendur: Spielberg og
Frank Marshall.
Leikstjórn: Tobe Hooper.
Myndatökustjóri: Matthew F.
Leonetti.
Tónlist: Jerry Goldsmith.
Eitthvert mesta undur í
kvikmyndasögu síðari ára er
hinn alkunni Steven Spielberg,
höfundur ævintýramynda á borð
við „Raiders of the Lost Ark“,
„Close Encounters of the Third
Kind“, „1941“ og „Jaws“ svo
eitthvað sé nefnt. í þessum
undramanni sameinast fágætir
eðliskostir: ímyndunarafl myrk-
fælins drengs, markaðsvit og
síðast en ekki síst verkfræðileg
snilli. í nýjustu mynd Spielbergs
Poltergeist sem nú skrýðir sali
Nýja Bíós njóta þessir eðlisþætt-
ir sín prýðilega. Myndin sem
fjallar um ásókn illra anda er
uppfull af kúnstugum tækni-
brellum sem sífellt koma á óvart
einsog þegar gamalt tré i húsa-
garði rifnar skyndilega upp með
rótum og teygir arma sína inn f
svefnherbergi þar sem tvö lítil
börn skjálfa af myrkfælni eða
þegar kjötstykki á eldhúsbekk
tekur skyndilega á rás og breyt-
ist í ólögulega lfffærahrúgu. Ég
gæti haldið áfram að telja upp
skringileg atriði sem bera hug-
arflugi meistarans fagurt vitni
en það er ekki hlutverk þess sem
ritar kvikmyndadóma að svipta
hulunni af spennuatriðum þeirra
mynda er hann fjallar um. Ég vil
aðeins bæta hér við að næstum
hvert einasta „hryllingsatriði"
er tæknilega fullkomið, aðeins
örlar á klaufaskap í síðasta at-
riði myndarinnar þegar sér inní
heim hinna dauðu. Það er ber-
sýnilegt að rásin inní hinn heim-
inn er búin til úr búmull og lér-
efti.
Sem sagt í Poltergeist nýtur
hinn myrkfælni verkfræðisnill-
ingur Steven Spielberg sín full-
komlega en hvað um sölumann-
inn Steven Spielberg. Sá kauði er
hér líka í fullu fjöri — enda
vafalaust minnugur þess að
„1941“ var litin fremur óhýru
auga af fjármagnseigendum í
Hollywood — þannig spilar
Spielberg hér ekki aðeins á taug-
ar áhorfandans heldur og ýtir
hann einnig við og við á tárapok-
ana svo viðkvæmar sálir neyðast
til að sjúga upp í nefið. Að vísu
er myndin ekki jafn viðkvæmn-
isleg og næstnýjasta afkvæmi
Spielberg „ET“ þar sem ýtt var á
tárapokana með reglulegu milli-
bili. En er hægt að komast hjá
því að vatna músum þegar fimm
ára telpa hverfur skyndilega úr
hlýjum fjölskyldufaðmi oni
kalda gröf en áfram hljómar hin
engilbjarta rödd í húsi foreldr-
anna? Ég hef ekki í augnablik-
inu handbærar tölur er sýna
markaðsstöðu Poltergeist en vart
er við öðru að búast en þetta
hugarfóstur Spielberg (kappinn
samdi söguna) geri það gott á
kvikmyndamörkuðum heimsins.
Hitt er svo aftur annað mál að
persónulega fannst mér mynd
þessi nokkuð yfirdrifin jafnvel
svo á stundum að ef ekki hefði
komið til frábær tæknileg út-
færsla hefði maður brosað útí
annað. Spielberg virðist reyndar
af ásettu ráði hafa dregið nokk-
uð úr óhugnaðinum sem sögu-
þráðurinn ber með sér, þannig
beitir hann lýsingu á afar list-
rænan hátt — svo mjög á stund-
um að fegurðin verður hryll-
ingnum yfirsterkari. Ef hann
hefði nýtt sér til fulls áhrifa-
mátt lýsingar og leiktjalda í þá
veru að skapa hrylling hefði
myndin vafalaust orðið enn
magnaðri martraðarvaldur.
Hann hefði jafnvel getað magn-
að hryllinginn enn með því að
taka myndina ekki í lit. En Stev-
en Spielberg er maður ævintýris
þess sem gerist handan hinnar
hversdagslegu tilveru en á sér
samt stað dag hvern innra með
milljónum lítilla vera sem að
kveldi leggja þreyttan koll á
kodda. Þannig er lífið; hið hvers-
dagslega er jafnframt hið óræð-
asta og oft hið ógnvænlegasta og
þarf ekki hús haldin reimleika
til að miklir atburðir eigi sér
stað f litlum kolli.
Zukofsky-námskeið 1983:
Tónleikar í Háskólabíói
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Efnisskrá:
Rkhard Strauss: Tod und Verklárung
Olivier Messiaen: Uppstigningin
Modest Mussorgsky: Myndir á sýningu
í sjö sumur samfleytt hefur
snillingurinn Paul Zukofsky miðlað
ungum tónlistarmönnum af
reynslu sinni og afburða þekkingu
á samtímatónlist á námskeiðum
þeim sem við hann hafa verið
kennd og haldin á vegum Tónlist-
arskólans í Reykjavík. Starfsemi
þessi fór hægt af stað en efldist
mjög með árunum og náði hámarki
á lengsta og mesta námskeiðinu,
sem haldið var í fyrrasumar og
endaði með eftirminnilegum flutn-
ingi á tveimur mestu stórvirkjum
þessarar aldar: 5. sinfóníu Mahlers
og Vorblóti eftir Stravinsky. Svo
mikið var ekki færzt í fang að
þessu sinni, enda var námskeiðið
að þessu sinni allt minna i sniðum
en hið síðasta, styttra og fámenn-
ara. Og nú hefur verið ákveðið að
þetta námskeið verði hið síðasta í
núverandi mynd. Það hefur sem sé
komið á daginn að starfsemi af
þessu tagi á sér ekkert hólf í hinu
ágæta íslenzka menntakerfí. Það er
Tónlistarskólanum ofvaxið fjár-
hagslega að standa straum af því,
og það þótt til hafi komið ágætur
styrkur fjölda einstaklinga og
fyrirtækja og nú síðast myndarleg-
ur stuðningur Flugleiða. Ef til vill
er kreppan að segja til sín. En illt
væri ef við reyndumst ekki hafa
ráð á að þiggja hið ágæta framlag
Zukofskys til tónmenntar íslenzkra
ungmenna. Þessvegna ber að fagna
því, sem skilja má af orðum Jóns
Nordals skólastjóra Tónlistarskól-
ans í efnisskrá þessara tónleika, að
gert sé ráð fyrir einhverju fram-
haldi þessarar starfsemi, þótt enn
sé óráðið með hvaða hætti það
verði.
Þó að þau verk sem flutt voru á
þessum tónleikum séu ekki jafn
stórbrotin og kröfuhörð og þau sem
flutt voru í fyrra og áður voru
nefnd, mundu þó flestir telja að
óreyndu að þau væru varla með-
færi nemendahljómsveitar sem að
verulegum hluta er skipuð börnum
og reynslulitlum unglingum. En
svipað má segja um mjög mörg þau
verk sem verið hafa viðfangsefni á
Zukofsky-námskeiðum undanfar-
inna ára. Þar hefur árlega verið
lyft grettistökum. Og enn sannaði
stjórnandinn óvenjulega hæfni
sína til að efla einbeitingu hinna
ungu hljóðfæraleikara og laða
fram hjá þeim hæfileika og getu
sem þeir hafa sjálfir naumast vitað
að þeir byggju yfir. Slík reynsla
hlýtur að vera uppörvandi og var-
anlegur fengur ungum og verðandi
listamönnum.
Við þessi þáttaskil í starfi Paul
Zukofskys hér á landi ber að þakka
honum mikilsvert framlag hans á
undanförnum árum, jafnframt því
sem látin er í ljós ósk um að við
megum með einhverjum hætti
njóta áfram velvildar hans og
áhuga á framgangi tónlistar á ís-
landi. Það er við hæfi að láta hér
fljóta með þakklæti til þeirra sem
unnið hafa mikil og erilsöm störf
við skipulagningu og framkvæmd
Zukofsky-námskeiðanna undanfar-
in sjö ár, en þar hafa verið í forystu
fyrst Þorgerður Ingólfsdóttir og
síðan í þrjú ár Rut Magnússon.
H ARSN YRTIS YNIN G
Á BROADWAY
Fimmtudag, 25. ág., kl. 20.
Kennarar frá JINGLES-skólanum í London, Maureen og Lawrence, klippa og greiöa á
sviðinu.
Það nýjasta í hárgreiðslu!
Áhugafólk velkomiö. Húsiö opnaö kl. 19.30. Mætum stundvislega!
Aögöngumiöinn gildir sem happdrættismiöi. Vinningur er vikukennsla á JINGLES-skólanum
í London.
Skipholti 17. P.O. Box 237
121 Reykjavík.
Símar 91-25818 — 27220.