Morgunblaðið - 24.08.1983, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
21
Eldhressir eftir erfiöa ferð, Róbert Guðmundsson (Lv.) og Agnar Bragason
(t.h.).
fyrir ári, á vegum stofnunarinnar,
kynnti mér aðstæður og gerði
gönguáætlun í grófum dráttum.
Krakkana veljum við eftir frammi-
stöðu þeirra á göngunámskeiðum í
Bretlandi og hafa Bretarnir í þess-
um hópi allir staðið sig mjög vel á
slíkum námskeiðum. Síðan höfðum
við samband við Æskulýðsráð fyrir
þremur mánuðum og ákveðið var
að gefa íslenskum krökkum kost á
að taka þátt í ferðinni og hingað
erum við sem sé komin."
„Við höfum verið mjög heppin
með ferðina að öllu leyti,“ sagði
Þórarinn Eyfjörð, en hann var einn
íslensku fararstjóranna. „Það hef-
ur rignt á nóttunni en verið gott
gönguveður á daginn. Einhverjar
áhyggjur höfðum við í fyrstu um að
hóparnir myndu ekki samlagast
nóg, bæði er mikill aldursmunur á
þeim og sitthvort tungumálið.
Þeim áhyggjum hefði mátt sleppa,
því strax á fyrsta degi reyndi á gott
samstarf allra krakkanna, sem þau
sýndu í hvívetna og er þessi hópur
samstilltur og skemmtilegur. ís-
lensku krakkarnir hafa kynnst ná-
ið fólki af öðru þjóðerni, myndað
góð vináttutengsl og núna stefnum
við að því að fara utan að ári og
hitta breska samferðafólkið. Von-
umst við til að geta farið í siglinga-
eða hjólreiðaferð um Bretland."
Þegar allir höfðu svalað kaffi- og
gosdrykkjaþörf sinni spjallaði blm.
við við tvo eldhressa íslenska
göngumenn, þá Agnar Bragason og
Robert Guðmundsson. Sammála
voru þeir um ágæti ferðarinnar og
mátti ekki á milli sjá í hvoru þeir
höfðu þjálfast betur, göngu eða
ensku. „Leiðin frá Hundavatni að
Arnarvatni var erfiðust," sagði
Agnar, en Róbert var ekki seinn að
bæta því við að það hefði nú verið
þess virði, „ég fékk nefnilega fyrstu
bleikjuna í Arnarvatni".
„Þegar ég verð búinn að sofa og
hvílast gæti ég alveg hugsað mér
að leggja upp í aðra ferð,“ voru orð
Kevins Smith, þegar hann var
spurður um ferðina og var nafni
hans, Kevin Whittle, fyllilega sam-
mála. „Það sem ég hlakka mest til
við komuna heirn," sagði Whittle,
„er að fá að sofa út. Þetta hefur
verið stórkostlegur tími og
skemmtilegur hópur. Það er svo
gott að komast úr mannfjöldanum
og hávaðanum heima í Bristol, þar
skiptir litlu hvort maður er innan
borgarinnar eða utan, það er um-
ferð og hávaði allan sólarhringinn.
Hérna er allt svo ótrúlega rólegt,"
sagði Kevin Whittle, en þetta er í
fyrsta sinn sem hann fer erlendis,
eins og reyndar margir Bretanna.
En göngugörpunum var ekki til
setunnar boðið, sundlaugin beið og
fyrst þurfti að tjalda til næturinn-
ar. íslandsævintýrinu lauk þó ekki
í Húsafelli, í gær fór hópurinn á
hestbak við Laugarvatn og í dag er
honum boðið til sendiherra Breta í
Reykjavík. Leiðir skiljast síðan á
morgun þegar Bretarnir fljúga
heim. ve
Fyrirliggjandi í birgðastöð
SVARTAR OG
GALVANISERAÐAR
PÍPUR
Samkv.:Din 2440-B.S.1387
o O O ° ° ° o o O OOo
Sverleikar: svart, 3/8 - 5“
galv., 3/8 - 4“
Lengdir: 6 metrar
SINDRAi 5É2 .STÁLHF
Borgartúni 31 sími 27222
„AÐFERÐIR SEM GERT HAFA ÞÁ GÓÐU BETRI“
NÁMSKEIÐ FYRIR STJÓRNENDUR
FYRIRTÆKJA OG STOFNANA
Randa Wilbur
framkv.stj. markaðssviðs
Tarkenton & Company
Fyrirlesarinn Randa Wilbur er framkvæmdastjóri
markaðssviðs Tarkenton & Company USA, sem er
ráðgjafafyrirtæki um stjórnun, stofnað 1969.
T arkenton er leiðandi fyrirtæki á sviði stjórnunar sem
hefur beitt sér fyrir jákvæðum stjórnunaraðferðum
eins og þær eru túlkaðar í bók Peters og Watermans:
IN SEARCH OF EXCELLENCE sem dreift var af
Stjórnunarfélaginu nýlega. Meðal fjölda fyrirtækja
sem Tarkenton hefur unnið fyrir má nefna 3M
Company, Exxon, Honeywell og Levi Strauss.
Randa Wilbur hefur langa reynslu úr mörgum stór-
fyrirtækjum sem ráðgjafi og fyrirlesari.
Þær aðferðir sem hún kynnir höfum við kallað sam-
stöðustjórnun.
Þessar aðferðir sameina þátttöku allra stjórnenda í
fyrirtækinu og tryggja mælanlegan árangur með
markmiðastjórnun, gæðahringjum, gagnkvæmu
upplýsingastreymi, hvatningastjórnar, orsakagrein-
ingu o.fl.
Randa Wilbur mun fjalla um grundvöllinn að lang-
tímaárangri margra best reknu fyrirtækja Banda-
ríkjanna.
• FRAMLEIÐNIAUKNING
Hvernig er hægt að komast í hóp best reknu fyrir-
tækja landsins?
• FYRIRTÆKJAMENNING
• SAMSTÖÐUSTJÓRNUN
• LEIÐIR TIL BREYTINGA
• AÐVEKJAHINN
MANNLEGA VILJA
Þátttökugjald kr. 2000.
Tími: Fimmtudagur 1. sept. kl. 13.30 -18.00
StaðurHótel Loftleiðir, Kristalsal.
Hringið og fáið sendar nánari upplýsingar.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 44033 sem
fyrst.
Ráógjafaþjónusta
Stjórnun — Skipulag
Skipulagning — Vinnurannsóknir
Flutningatækni — Birgðahald
Upplýsingakerfi — Tölvuráðgjöf
Markaðs- og söluráðgjöf
Stjórnenda- og starfsþjálfun
REKSTRARSTOFAN
Samstarf sjálfstæðra rekstrarráðgjafa á mismunandi sviðum —
Hamraborg 1 202 Kópavogi
Sími 91-44033