Morgunblaðið - 24.08.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
23
Sendur heim
EINS OG fram hefur komið í fréttum, skrifaði 16 ára gamall sonur
háttsetts, sovésks sendiráðsmanns í Washington bréf til Reagans
forseta og bað hann um að fá að verða áfram í Bandaríkjunum.
Varð nokkurt uppistand yfir þessu tiltæki stráksins, Andrei Ber-
ezhkovs, og héldu Rússar því fram, að hann hefði aldrei skrifað
bréfið, heldur væri það falsað. Strákurinn hélt því sama fram á
fréttamannafundi, sem haldinn var rétt áður en fjölskyldan var
send heim til Sovétríkjanna. Myndin af þeim var tekin þegar þau
millilentu á flugvellinum í París. símamynd ap.
Vestur-Þýskaland:
Vopnabúr undir
brautarteinum
Aschaffenburg, Vestur hýskalandi, 23. ágúst. AP.
LÖGREGLUYFIRVÖLD tilkynntu í dag, að fundist hefði mikið
vopnabúr, skotfæri og sprengjur, undir fjölfórnum járnbrautartein-
um og hefði aðeins verið einn metri ofan á það.
Öldungurinn í London:
„Bull og
vitleysa"
— segja breskir læknar
London, 19. ágúst. AP.
EINS OG sagt var frá í fréttum í
síðustu viku, kom gamall maður til
Lundúna, svo gamall, aö vsri hann
íslendingur ætti hann að muna eftir
Jónasi Hallgrímssyni og hafa verið
kominn hátt í sextugt þegar Jón Sig-
urðsson forseti lést. Hann var sem
sagt fæddur árið 1823 að eigin sögn
og vegabréfsins.
Lundúnablaðið Daily Telegraph
segir hins vegar frá því, að enskir
læknar og öldrunarfræðingar, sem
hafi kíkt á öldunginn, séu allir á
einu máli. „Bull og vitleysa," segja
þeir. „Maðurinn er að vísu gamall
en fæðingarárið hefur eitthvað
skolast til hjá honum, svona um
70-80 ár.“
Öldungurinn, Sayed Abdul
Mabood, er fæddur í írak en býr
nú í fjöllum Pakistans þar sem
„annar hver maður er á annarri
öld“ að sögn. Talsmaður pakist-
anska sendiráðsins í London sagði,
að fjallafólkið í Pakistan yrði
fjarska gamalt og væri það að
þakka hreinu lofti, jógurt og
áhyggjulausu lífi. Hins vegar
sagði hann, að ekki væri óhugs-
andi, að einhverjum embætt-
ismanninum hefðu orðið á mistök
þegar Mabood fékk vegabréfið.
Veður
Akurayri 11 skýjaó
Amsterdam 27 skýjaó
Aþens 31 heióskírt
Barcelona 23 alskýjaó
Berlín 27 skýjaó
BrUssel 24 heióskirt
Chicago 29 heiöskirt
Dyflinni 19 skýjaó
Feneyjar 28 heiðskfrt
Frankfurt 28 skýjaó
Færeyjar 11 alskýjaó
Helsinki 20 heióskírt
Jerúsalem 27 heiðskirt
Jóhannesarborg 18 heiðskirt
Kairó 33 hsiöskírt
Kaupmannahöfn 25 heiðsklrt
Les Palmas 24 lóttskýjaó
Lissabon 27 heióskfrt
London 26 skýjaó
Los Angeles 28 skýjaó
Madríd 24 skýjaó
Mallorka 26 skýjaó
Miami 31 skýjað
Moskva 18 hsióskfrt
New York 32 hsiöskirt
Nýja Delhi 32 skýjaó
OsM 24 heióskírt
París 25 skýjaó
Reykjavík 11 úrk. i grennc
Rio de Janeiro 22 skýjaó
Róm 31 heióskirt
San Fransisco 24 heiöskirt
Stokkhólmur 28 heióskirt
Vín 30 heiósklrt
Varsjá 25 heiðskirt
Vopnabúrið fannst fyrir
nokkrum vikum undir fjölförn-
um járnbrautarteinum milli
Aschaffenburg og Hanau í Bay-
ern en að sögn lögreglunnar var
ekki beint hætta á ferðum þar
sem skotfærin voru ekki tilbúin
til notkunar. Ef einhverjir
kunnáttulitlir menn hefðu hins
vegar farið að eiga við þau
hefði verið hætta á stórslysi.
Þetta er einhver mesti skot-
færafundur í Vestur-Þýska-
landi eftir stríð.
Lögreglan komst á snoðir um
vopnin þegar hún handtók þrjá
menn í vor snemma en þeir
voru með ólíkindum vel vopn-
um búnir. Höfðu þeir í fórum
sínum þrjár hríðskotabyssur,
tvær hríðskotaskammbyssur,
sjálfvirka riffla og ógrynni af
skotfærum. Hafa menn nokkr-
ar áhyggjur af, að fleiri vopna-
búr séu á þessum slóðum og að
e.t.v. kunni eitthvað af vopnum
að lenda í höndum hryðju-
verkamanna.
Talið er, að þýskir hermenn
hafi komið vopnunum þarna
fyrir á síðustu dögum síðari
heimsstyrjaldar eftir að flug-
vélar bandamanna höfðu
sprengt í loft upp lest, sem
flutti skotfæri og annan her-
búnað.
Hafmeyjan sjötug
Kaupmannahöfn, 23. ágúst. AP.
ÁRIN út og árin inn situr „Haf-
meyjan litla“ á sínum stað, fagnar
gestum sem koma til Kaupmanna-
hafnar og bíður þess að prinsinn
komi og íeysi hana úr álögum ...
Svo segir í AP-skeyti frá Kaup-
mannahöfn í dag, en Kaupmanna-
hafnarbúar héldu veglega veislu í
dag vegna þess að hafmeyjan átti
sjötugsafmæli og ber aldurinn vel.
Eins og alkunna er, reit H.C.
Andersen hina hugljúfu sögu um
litlu hafmeyjuna fyrir nær
hundrað og fimmtiu árum og er
sú saga meðal þekktari verka
Andersens.
Bronsstyttan af hafmeyjunni
litlu var þó á sínum tíma ekki
síður reist til heiðurs dönsku
ballerínunni Ellen Price, en hún
hafði hrifið Carl Jacobsen, stofn-
anda Carlsbergs-bjórverksmiðj-
anna er hún fór með hlutverk
litlu hafmærinnar í samnefnd-
um ballett. Myndhöggvarinn
Edvard Erikson var fenginn til
að gera styttuna. Þar sem baller-
ínan neitaði að sitja fyrir nakin
hljóp eiginkona listamannsins i
skarðið.
Hafmeyjan litla hefur mátt
þola ýmsa niðurlægingu um dag-
ana, hausinn hefur verið höggv-
inn af henni og ausið yfir hana
málningu. En hún hefur einnig
notið aðdáunar og hrifningar
Dana sem gesta sem til Kaup-
mannahafnar koma.
f dag lék lúðrasveit sérstak-
lega henni til heiðurs „Hún á af-
mæli í dag“ og helstu mektar-
menn Kaupmannahafnar voru á
svæðinu, sömuleiðis ambassa-
dorar 24ra erlendra ríkja.
Varað við múgsefjiin
vegna ótta við AIDS
Vín, 23. ágúst. AP.
PRÓFESSOR við háskólann í Har-
vard í Bandaríkjunum, dr. Edward
H. Kass, varaði í dag við múgsefjun
og of miklum ótta við sjúkdóminn
AIDS, eða áunna ónæmisbæklun.
Sagði hann, að aðeins væri vitað um
2.000 manns í 17 löndum, sem hefðu
tekið hann.
Kass, sem kominn er til Vínar
til að sitja alþjóðlegt þing um
smitsjúkdóma, sagði við frétta-
mann AP-fréttastofunnar, að enn
væri ekkert, sem benti til, að
AIDS yrði að meiriháttar vanda-
máli eða faraldri nema e.t.v. með-
al kynvillinga. Benti hann á, að
einu undantekningarnar frá því
væru dreyrasjúklingar, sem hefðu
fengið blóð úr sýktum kynvilling-
um, og lítill hópur kvenna og
Haiti-búa, sem hefðu smitast af
tvíkynhneigðum mökum sínum.
„Þetta eru einu smitleiðirnar,"
sagði Kass. „Hjúkrunarkonur,
læknar eða herbergisfélagar
AIDS-sjúklinga hafa ekki smitast
af þeim.“
Athuganir lækna við St.
Pierre-sjúkrahúsið í Brússel leiða
i ljós, að vitað er um 15 AIDS-
sjúklinga í Afríku en ekkert er vit-
að um þá annað. Kass sagði, að 18
milljónum dollara væri nú varið
til rannsókna á þessum sjúkdómi í
Bandaríkjunum og hvatti hann
aðrar þjóðir til að leggja meira af
mörkum.
Fenner
Reimar og
reimskífur
Fenner Ástengi
Vald
Poulsen
Suöurlandsbraut 10,
sími 86499.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL/GOOLE:
Jan .. 5/9
Jan .. 19/9
Jan .. 3/10
ROTTERDAM:
Jan .. 6/9
Jan .. 20/9
Jan .. 4/10
ANTWERPEN:
Jan .. 7/9
Jan ... 21/9
Jan ... 5/10
HAMBORG:
Jan ... 26/8
Jan ... 9/9
Jan ... 23/9
Jan .,. 7/10
HELSINKI:
Helgafell ... 12/9
Helgafell ... 6/10
LARVIK:
Hvassafell ... 29/8
Hvassafell ... 12/9
Hvassafell ... 26/9
Hvassafell ... 10/10
GAUTABORG:
Hvassafell ... 30/8
Hvassafell ... 13/9
Hvassafell ... 27/9
Hvassafell ... 11/10
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell 31/8
Hvassafell 14/9
Hvassafell 28/9
Hvassafell 12/10
SVENDBORG:
Hvassafell 1/9
Dísarfell 12/9
Hvassafell 15/9
Hvassafell 29/9
ÁRHUS:
Hvassafell 1/9
Dísarfell 12/9
Hvassafell 15/9
Hvassafell 29/9
GLOUCESTER MASS.:
Skaflafell 20/9
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell .....’. 22/9
m
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101