Morgunblaðið - 24.08.1983, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
25
Náttúruöflin gengin í lið með
Skaftfellingum í haftiargerð
Vík, Mýrdal.
SKAFTFELLINGAR hafa lengi bar-
ist fyrir hafnargerð við Dyrhólaey
eða við Vík. Ein af þeim hafnar-
hugmyndum var á þá leið að loka
sundinu á milli Reynisfjalls og
Reynisdranga og gera síðan höfnina
austan við drangana.
I hinum þrálátu vestanáttum
sem verið hafa í sumar koma
glöggt fram breytingar á sjávar-
straumnum og sandburði með
ströndinni.
Við Reynisfjall hefur myndast
sandtangi sem nær núna meira en
hálfa leið yfir sundið að Reynis-
drögum. Einnig er sýnilegt að rif
er að myndast í suðaustur frá
dröngunum. Þetta veldur því að
mun kyrrari sjór og minna brim
er núna austan við Reynisdranga
en áður var.
Erlendis frá hafa borist fréttir
um nýstárlegar tilraunir til hafn-
argerðar með því að reka niður
staura í fjörur og láta síðan sjáv-
arstrauma um að fylla að þeim.
Með því að færa þessa staura allt-
af framar og grjótverja uppfyll-
inguna sem sjórinn hefur myndað
hefur tekist að mynda rif og varn-
argarða.
Hér virðast náttúruöflin ætla að
eiga frumkvæðið en við erum ekki
í stakk búin til þess að nýta okkur
það að fylgja þessari hafnargerð
eftir, sem þegar er búin að leggja
til tugþúsundir tonna af sandi í
uppfyllingu.
Annars má sjá víðar í Mýrdaln-
um merki þess að náttúruöflin og
tímans tönn vinna hægt og bítandi
að mótun umhverfisins.
Austan Dyrhólaeyjar og Reyn-
isfjalls hefur sjórinn grafið úr
fjörunni og er fjaran þar nú um
100 m norðar en hún var fyrir um
einu ári. Stór bergfylla hefur
hrunið úr Dyrhólaey suður af vit-
anum og þar hefur myndast
sprunga þannig að fyrirsjáanlegt
er að þar á eftir að hrynja meira
úr berginu. Strengd hefur verið
snúra ofan við sprunguna og eru
ferðamenn varaðir við að fara
nærri brúninni þar sem þetta get-
ur hrunið hvenær sem er. í
hamrabrúnum Reynisfjalls að
sunnan eru einnig miklar sprung-
Á myndinni má sjá rifíð sem farið er að teygja sig út frá Reynisfjalli og hálfa leið út í Reynisdranga. Dyrhólaey í baksýn. Ljó«m. Reymr lUgnarmon.
ur sem benda til þess að ásýnd
fjallsins eigi eftir að breytast mik-
ið jafnvel svo að unnt verði að
gera veg framan við það.
Ef til vill er þó alvarlegasta
landeyðingin fyrir Víkurbúa af
völdum Múlakvíslar, en hún hefur
nú undanfarin ár fengið óáreitt að
grafa burtu heilu landspildurnar
af svokölluðum Höfðabrekkujökli
og sandöldunni á milli Kerlinga-
dalsár og Múlakvíslar. Er nú svo
komið að einungis er eftir mjór
tangi á milli ánna og þegar hann
verður á burt eiga bæði Múlakvísl-
in og Kötluhlaup greiðan aðgang
vestur til Víkur. Almannavarna-
nefnd Víkurumdæmis hefur hvað
eftir annað bent á þessa hættu
undanfarin fjögur ár og óskað eft-
ir fjármagni til gerðar varnar-
garðs en án árangurs.
R.R.
Innsiglingin er nú mun kyrrari en hún áður var.
Hluti erlendu keppendanna í íslandsrallinu skoðaði Gullfoss á leiðinni norður í land, þar sem keppnin hefst
a morgun. MorgunblaAið/ Gunnlaugur R.
íslandsrallið hefst á morgun:
Fjórir fslendingar
meðal keppenda
ÍSLANDSRALL Jean Claude Bertr-
and hefst á morgun kl. 9.00 er kepp-
endur verða ræstir inn á Sprengi-
sandsleið frá Bárðardai. Eknar
verða fjórar leiðir og tekur keppnin
fímm daga og lýkur henni þriðjudag-
inn 30. september. Vitað er um tutt-
ugu og þrjú farartæki, sem taka þátt
í rallinu og eru tvær íslenskar
keppnisbifreiðir þar á meðal.
Bræðurnir Ómar og Jón Ragn-
arssynir munu aka Subaru 1800
4WD frá Subaru-umboðinu, þeim
sama og mæðgurnar Helga Jó-
hannsdóttir og Jónína Ómarsdótt-
ir luku Ljómarallinu á um sl.
helgi. Þeir Þorsteinn Ingvasson og
Gunnlaugur Rögnvaldsson munu
skipa hinn íslenska keppnisbílinn
sem verður Lada Sport frá bíla-
leigu Akureyrar. Gunnlaugur mun
fylgjast með rallinu fyrir Morgun-
blaðið. Allir fjórir eru alvanir
keppni I rallakstri. Farartækin
erlendu sem aðallega saman-
standa af jeppabifreiðum eru flest
sérlega vel búin og slá íslensku
keppnisbílunum þar alveg útaf
laginu. Meginmarkmið islensku
ökumannanna er að athuga hvort
hægt er að skila lítið breyttum bíl-
um í gegnum rall af þessu tagi og
að kynnast hvernig skipulag ralls-
ins er.
Á fimmtudag er Sprengisands-
leið ekin, en næsta leið sem er um
Fjallabak verður á laugardag.
Þriðja leiðin hefst á sunnudags-
morgun og þá flengjast keppendur
yfir Kjalveg. Á þriðjudag er ekin
síðasta leið íslandsrallsins og
verður þá Kaldidalur ekinn frá
Húsafelli og alla leið að Miðdal, en
línuvegur er á milli er verður ekki
hluti af keppninni. Nánari lýsing á
íslandsrallinu verður gefin á
morgun.