Morgunblaðið - 24.08.1983, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
Úrslit í
Hitachi-
golfmótinu
UM HELGINA fór fram hið árlega
Hítatchi Open-golfmót á vegum
Golfklúbbs Selfoss. Úrslit uröu
þau aö án forgjafar sigraöi Sig-
uröur Héöinsson GK á 83 högg-
um, annar varö Ingólfur Báröar-
son GOS meö 85 högg og Óskar
Pálsson GHR varö þriöji meö 87
högg.
Keppni meö forgjöf lauk meö
sigri Ægis Magnússonar GOS, en
hann lék á 70 höggum nettó. Ann-
ar varö Sveinn Sveinsson, einnig
úr GOS, meö 71 högg, og þriöji
varö Ólafur H. Ólafsson GK meö
76 högg. Elías Einarsson GK fékk
verölaun fyrir aö vera næstur holu
eftir upphafshögg á 6. braut, en
kúlan hjá honum var 2,84 metra
frá holunni, og Ární Óskarsson
fékk samskonar viöurkenningu
fyrir árangur sinn á 9. braut, en
kúlan hans var 4,81 m frá holu.
— SUS
Námskeið í
fimleikum
VALDEMAR Zhismowsky, þjálfari
hjá Gerplu, mun dagana 27.—30.
ágúst nk. leggja land undir fót og
kenna grunnþjálfun í fimleikum
fyrir kennara og þjálfara á Akur-
eyri. Þarna opnast gott tækifæri
fyrir Norölendinga aö bæta við
kunnáttuna og tilkynna þarf
þátttöku til ÍBA, sem annast
framkvæmd námskeiösins.
B-námskeiö í fimleikum
16 þjálfarar luku B-stigs nám-
skeiöi í fimleikum sem haldið var
hjá íþróttafélaginu Gerplu. Þátt-
takendur voru, auk Reykjavíkur-
svæöisins, frá Borgarfiröi og
Vestmannaeyjum. Kennarar voru
Valdemar Zhismowsky og Mar-
grét Bjarnadóttir.
Fjögur ungmenni
á leiki
Andrésar Andar
FJÖGUR frjálsíþróttaungmenni
hafa veriö valin til þátttöku (
Andrésar Andar-leikjunum í
frjálsíþróttum í Kongsberg í Nor-
egi 3. og 4. september næstkom-
andi.
Fjórmenningarnir eru Súsanna
Helgadóttir FH, Bryndis Guö-
mundsdóttir Á, Bjarki Haraldsson
USVH og Guómundur Ragnars-
son USAH.
Unglingakeppni
FRÍ frestað
Unglingakeppni FRÍ hefur af
óviðráðanlegum ástæóum verió
frestaö um eina viku til 3. og 4.
september næstkomandi.
Keppnin fer fram í Reykjavík og
þar eiga þátttökurétt sex beztu
frjálsíþróttaungmenni ( hverri
grein.
Maraþonhlaup
MEISTARAMÓT íslands í mara-
þonhlaupi karla og 10 km götu-
hlaupi kvenna fer fram í Hafnar-
firói sunnudaginn 4. september
næstkomandi. Hefst maraþon-
hlaupiö klukkan 10 árdegis og 10
km hlaupið klukkan 10.15. Aö-
staöa fyrir keppendur veröur í
Lækjarskóla. Þátttökutilkynn-
ingar skulu hafa borist skriflega
fyrir 28. ágúst næstkomandi, til
Síguröar Péturs Sigmundssonar,
Framnesvegi 46, Reykjavík. Þátt-
tökugjald er krónur 80.- og má
greiðast á keppnisstaö.
íslandsmeistarar Fram
• Knattspyrnuliö Fram í þriója aldursflokki varó íslandsmeistari í knattspyrnu um síðustu helgi. Liö Fram
sigraói Stjörnuna í úrslitaleiknum 8—0. Lió Fram hefur veriö sigursælt i sínum aldursflokki í sumar. Þessi
mynd var tekin af liðinu aó loknum úrslitaleiknum. Meö piltunum á myndinni eru til vinstri í efri röö Ólafur
Orrason og Jóhannes Atlason þjálfari, sem náö hefur geysilega góöum árangri meö yngri flokka Fram í
gegnum árin og ávallt gert einhvern af flokkum félagsinsaö meisturum. Lengst til hægri er svo formaður
knattspyrnudeildar Fram, Halldór B. Jónsson. Fram þarf ekki aö kvíða framtíöinni ef þessir bráöefnilegu
piltar halda áfram á sömu braut.
Stigameistaramótið í golfi:
Sigurður sigraði
eftir hörkukeppni
ÍSLENZKA stigameistaramótiö fór fram á Grafarholti laugardag og
sunnudag þ. 20. og 21. ágúst. Rétt til þátttöku höföu 16 stigahæstu
einstaklingar í stigamótum GSÍ. Til leiks mættu 15 keppendur og léku
þeir holukeppni. Eftir keppni á laugardag voru 4 keppendur eftir:
Björgvin Þorsteinsson, Siguröur Pétursson, Ragnar Ólafsson og Eirík-
ur Þ. Jónsson. í undanúrslitum sigraöi Siguröur Björgvin í hörkuleik á
19. holu, en Ragnar vann Eirík 5:4.
Báöir úrslitaleikirnir voru spenn-
andi og tvísýnir og lauk þannig, aö
Björgvin sigraöi Eirfk í keppninni
um 3. sætiö, 2:0, en í keppni um 1.
sæti bar Siguröur sigurorö af
Ragnari, 3:1. Ahorfendur voru
• Sigurvegararnir í íslenska stigameistaramótinu í golfi. Lengst til
hægri er Sigurður Björgvinsson sem lenti í ööru sæti en sigurvegarinn
Ragnar Ólafsson er annar frá hægri. Morgunbiaöið/ óskar sæm
• Verölaunahafar í keppninni um Fannarsbikarinn ásamt þeim sem
að mótinu stóðu, Valur er lengst til vinstri en Hanna lengst til hægri.
ótrúlega fáir, þegar þess er gætt,
aö þarna voru samankomnir allir
beztu kylfingar landsins og reyndu
meö sér í holukeppni, sem er jafn-
an mjög spennandi og skemmti-
legt fyrir áhorfendur aö fylgjast
með henni.
Umsjón meö keppni þessari
haföi John Nolan, golfkennari, og
gaf hann jafnframt öll verölaun til
hennar.
Sem forkeppni fyrir stigameist-
aramótiö fór fram á föstudeginum
svokölluö AM-AM-keppni. Þar
sigraöi sveit, sem var skipuö eftir-
töldum kylfingum: Óskar Sæ-
mundsson, Höröur Guömundsson,
Þorbjörn Kjærbo og Baldvin Har-
aldsson.
Sl. laugardag og sunnudag fór
fram í Grafarholti opin kvenna-
keppni um Fannarsbikarinn. Að
keppni þessari stóöu Hanna og
Valur Fannar og gáfu þau öll verö-
laun til hennar, sem voru hin
glæsilegustu. Fyrir fyrstu þrjú sæt-
in í keppninni fengu konurnar háls-
men, og fyrir að vera næst holu á
2. braut var vandað úr í verölaun.
Þátttakendur i keppninni voru 30
og uröu úrslit þessi:
högg nettó
1. Kristine Eide NK 93-21 = 72
2. Lóa Sigurbjörnsd. GK 89+17 = 72
3. Ágústa Dúa Jónsd.GR 86+13 = 73
4. Margrét Guöjónsd.GK 91+18—= 73
Næst holu á 2. braut, eöa 92
sm. var Ágústa Guömundsdóttir
GR.
Nýliðakeppni
Nýliöakeppni fór fram á Korp-
úlfsstöðum þ. 16. þ.m. Þátttakend-
ur voru 18 og uröu úrslit sem hér
segir:
högg nettó
1. Eggert Steingrímsson 80+20 = 53
2. Ólafur Tómasson 78+24 = 54
3. Haukur Otterstedt 87+28 = 59
4. Höröur Sigurösson 87+28 = 59
Bezta skor haföi Eyjólfur Berg-
þórsson 77 högg.
Magnús
sigraði
á Akureyri
MAGNÚS Birgisson Golfkiúbbi
Akureyrar sigraöi ( Ingimundar-
mótinu í golfi, sem fór fram á Ak-
ureyri um helgina. Leiknar voru
36 holur, keppendur voru um 60
víös vegar aö og fór mótiö mjög
vel fram og ekki spillti veðrið
sem var mjög gott báöa dagana.
Úrslit uröu þessi:
Án forgjafar:
1. Magnús Birgisson, GA 153
2. Sverrir Þorvaldsson, GA 156
3. Björn Axelsson, GA 162
Meö forgjöf:
1. Sverrir Þorvaldsson, GA 142
2. Magnús Birgisson, GA 145
3. Ólafur Sæmundsson, GA 145
Ragnarsmótiö í golfi kvenna fór
einnig fram á sama tíma og uröu
úrslit þessi:
Án forgjafar:
1. Þórdís Geirsdóttir, GK 175
2. Kristín Þorvaldsdóttir, GK 188
3. Inga Magnúsdóttir, GA 192
Meö forgjöf:
1. Auöur Aöalsteinsdóttir, GA 142
2. Jónína Pálsdóttir, GA 158
3. Rósa Pálsdóttir, GA 165
Tekió skal fram aö reglur í mót-
inu eru þannig aö sigurvegarar án
forgjafar geta ekki unniö til verö-
launa meö forgjöf. AS
Settu báðar
nýtt heimsmet
í hástökki
ULRIKE Meyfarth frá V-Þýska-
landi og Tamara Bykova frá Sov-
étríkjunum settu um helgina
sameíginlegt heimsmet ( há-
stökki kvenna á Evrópumótinu í
London. Þær stöllur stukku báöar
2,03 metra, en Meyfarth telst sig-
urvegari þar sem hún var fyrri til
að fara þá hæö.
Meyfarth sagöi eftir stökkiö aö
hún væri mjög ánægö meö árang-
urinn og aö hún heföi veriö staö-
ráöin í að setja met þrátt fyrir aö
hún væri meidd á fæti. „Þetta var
sálrænn sigur frekar en líkamlegur,
því þegar ég nota þetta (bendir á
höfuöiö á sér), þá fylgir skrokkur-
inn eftir.“
Bykova sagöist hins vegar vera
óánægö meö stökkiö hjá sér, hún
væri búin aö stökkva þessa hæö
oft innanhúss, en núna heföi hún
veriö mjög þreytt eftir heimsleik-
ana í Helsinki á dögunum, þannig
aö þess vegna heföi hún ekki náð
betri árangri.
Opin ul-
keppni
UM NÆSTU helgi, laugardaginn
27. ágúst fer fram hin árlega Geir
P. Þormar unglíngakeppni hjá
GK. Það er opin unglingakeppni
fyrir 16 ára og yngri kylfinga
landsins. Aö venju veröa óvenju
glæsileg verölaun í boöi. Keppnin
hefst kl. 14.00.
Persónuleg
met í 1500
GUNNAR Birgisson ÍR og Viggó
Þ. Þórisson FH settu persónuleg
met í 1500 metra hlaupi á frjáls-
íþróttamóti í Kaupmannahöfn í
vikunni. Gunnar hljóp á 4:06,5
mínútum og Viggó á 4:18 mínút-
um rúmum, en nákvæman tíma
hans vantar.
Á öðru móti kepptu Sigurður
Magnússon ÍR og Hafliöi Magga-
son ÍR í hástökki og stukku báöir
1,85 metra, en sá árangur er jöfn-
un á persónulegu meti þess síö-
arnefnda.