Morgunblaðið - 24.08.1983, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
„ ég pcm-tdbi kcxffi þegar ég kom
inr\. Helduri>u aS (?ú gaetir ^efií mér
ákýrsLu yfirgcmg mála., þegor boun-
irrvar leg^j^. úr Kbfn T S'Ameriku P '
er...
að sleikja
saman sólskinið.
TM Reo U S Pal Oft. —all rights reserved
11983L0S Angeles Times Syndicate
Nei, hættu nú. — Ég heyrði að þú
kipptir tappa úr flösku!
Nei, ég sé ekki að það gerist neitt
sérstakt á vellinum, nema að það
var einhver sem setti löppina í
boltann og hann fór í netið bak við
manninn!
HÖGNI HREKKVÍSI
CLa. Cc DcC
BG >Vtir/t£>V(Ð HÖFUM SéÐ NÓG pVÍ
HVERMIG HÖGNI EVDDI SuAAARlEVFiNU SÍNl)' "
Undirbúningur
fyrir Háskólanám
Hvenær rís hús
fyrir okkur?
G.Þ. skrifar:
Kæri Velvakandi.
1 Mbl. 16. ágúst sl. las ég að
ákveðið væri að byggja íþróttahús
fyrir fatlaða og er það vel í sjálfu
sér. Húsið verður staðsett á lóð
Sjálfsbjargar, Hátúni 12, Reykja-
vík, og er byggingarkostnaður
áætlaður 17—20 millj.
Nú langar mig að spyrja for-
ráðamenn Sjálfsbjargar hvað þeir
hyggist fyrir um okkur, sem bíð-
um árum saman lítt eða ekki
sjálfbjarga eftir plássi á sjúkra-
deild Sjálfsbjargar. Mér er sagt að
við skiftum hundruðum. Mér er
einnig sagt að ég sé í forgangs-
flokki, en samt hefi ég beðið árum
saman. Ég á við fleiri en einn
sjúkdóm að stríða og mitt ástand
er stundum svo slæmt, að ég ligg
bjargarlaus hálfa og heilu sól-
arhringana. Enn spyr ég hvað
lengi getum við búist við að þurfa
að bíða enn? Hefur verið fyrirhug-
að að byggja fyrir okkur og þá
hvenær?
Þambarskelfir, 9765—1078 skrifar:
Ágæti Velvakandi.
Þá er búið að veita leyfi fyrir Is-
landsrallinu svonefnda, og Frakk-
inn Bertrand kominn til landsins
með lið sitt og ekki eru, nema að
litlu leyti, tekin til greina harðorð
mótmæli allra dómbærra aðila; s.s.
landvarða, leiðsógumanna, Nátt-
úruverndarráðs og Landverndar og
fjölda einstaklinga. Ekki þykir til-
tökumál að hleypa þessum ófélega
söfnuði upp á hálendið, þótt sumar-
ið hafi verið eitt hið kaldasta og
blautasta í áraraðir, og gróður með
viðkvæmasta móti. Og ekki setja
ráðamenn fyrir sig ósvífni Frakk-
ans og frekju, eins og t.d. að auglýsa
keppnina út um allar jarðir, áður en
leyfið var fengið. Honum er hins-
vegar launaður yfirgangurinn með
því að færa honum yfirráð yfir
hluta hálendisins í vikutíma, og er
þá líklega ætlazt til, að hver og einn
sitji þar og standi að hans geðþótta.
Einhver kann að spyrja, hvort
andstæðingar rallsins geti ekki ver-
ið ánægðir, fyrst keppendum verður
ekki hleypt yfir friðlýst svæði; held-
ur aðeins Sprengisand, Kjalveg og
Kaldadal, þar sem hverfandi hætta
er á gróðurspjöllum. Því er til að
svara, að hálendi íslands er griða-
staður, sem gott er að leita til úr
Hrund Hauksdóttir, Málfríöur
Eyjólfsdóttir og Thelma Guö-
mundsdóttir skrifa:
Velvakandi.
Þegar við vinkonurnar flettum
Morgunblaðinu 19. ágúst sl. rák-
umst við á lesendabréf í Velvak-
anda frá Guðrúnu nýstúdent um
inntökuskilyrði í Háskólann. Var
greinin uppfull af niðurlægjandi
setningum um fjölbrautaskóla-
nema og sagði greinarhöfundur
Háskólann okkar svo fullan af
meðalmönnum að hvergi væri
pláss fyrir yfirburðanemendur, en
hún telur sig líklegast til þess
hóps. Stakk hún upp á þvi að inn-
tökupróf yrðu tekin upp við Há-
skólann.
Við höfum í sjálfu sér ekkert á
móti því að tekin verði upp inn-
tökupróf við Háskólann og í raun
gæti það reynst lausn á þeirri
fjöldaframleiðslu sem er á sér-
menntuðu fólki hér.
En það er ekki þar með sagt að
við fjölbrautaskólanemar þurfum
að taka við órökréttu skítkasti á
okkur og okkar skóla frá nemend-
um hinna virtu menntastofnanna
landsins.
Allar þrjár höfum við stundað
nám við fjölbrautaskóla og tvær
þegar lokið stúdentsprófi og er
þvarginu niðri í byggð, og njóta
kyrrðar og næðis. Einn og einn bíll
með friðsama ferðalanga raskar
þar sjaldnast en heil hersing öskr-
andi torfærutækja, eftirlitsþyrlur,
áhorfenda- og fréttamannafargan
og önnur tilheyrandi ómerkilegheit
spilla öræfakyrrðinni gersamlega.
Það er vægast sagt furðuleg ráð-
stöfun, að veita útlendum manni
húsbóndavald á hálendinu i heila
viku af þeim tveimur mánuðum,
sem það er opið landsmönnum.
Að lokum vil ég hvetja menn til
að láta ekki stjórnast af ræfildómi
ráðamanna, heldur bindast samtök-
um og koma í veg fyrir þennan
ófögnuð. Afkáraskapur á borð við
„Rallye d’Islande" á ekkert erindi
upp á öræfi íslands. Segjum Frans-
manninum að hann geti haldið sig í
eyðimörkum Alsír og fenjum Fíla-
beinsstrandarinnar; þar hefur hann
hingað til verið með röll sín.
skylt og ljúft að fræða Guðrúnu
nýstúdent á kostum og göllum
fjölbrautaskóla. Vissulega hæfir
okkar kerfi ekki öllum einstakl-
ingum, ekki frekar en gamla
menntaskólakerfið. En ef mann-
eskja hefur að loknu gagnfræða-
prófi gert upp hug sinn varðandi
sérrnám og framtíðarstarf, mynd-
um við hiklaust hvetja hana til að
fara í fjölbrautaskóla, ef brautir
innan skólans, sem eru margar,
tengdust áhugasviði hennar og
framtíðarmenntun. I fjölbrauta-
skólum er mikil sérhæfing og
henta þeir því mun betur fyrir
nemendur sem þegar hafa gert
upp hug sinn. Á hinn bóginn
myndum við mæla með gamla
menntaskólakerfinu fyrir þá sem
vilja stunda nám, en hafa ekki
ákveðið út í hvað skal fara.
Við erum ekki með skítkast út í
aðrar menntastofnanir, þó hverj-
um þyki sinn fugl fagur.
Það þarf sjálfsaga til að stunda
nám í fjölbraut, nemendur eru
upp á sjálfa sig komnir og engan
annan. Á þá er litið sem full-
þroska einstaklinga, færa um að
skipuleggja sitt nám. Slíkt er ekki
á hvers manns færi, þó umræddur
greinarhöfundur vogi sér að kalla
okkur „meðalmenn". Oft er rætt
um að menntaskólanemendur séu
betur undirbúnir undir Háskóla-
nám, en við sem komum úr fjöl-
braut. Þetta er misskilningur sem
við viljum leiðrétta. Við sem höf-
um staðið á eigin fótum í námi í
fjögur ár erum betur búin undir
þann sjálfsaga sem þarf í Háskól-
anum, betur en nemendur
menntaskólanna, sem hafa sitt
nám meira í höndum kennara en
eigin.
Við viljum benda Guðrúnu á að
framtíðin í skólamálum er fjöl-
brautakerfið og eru flestir kenn-
arar því sammála. Þjóðfélagið
breytist og er ekkert nema eðlilegt
að skólarnir breytist með, einmitt
til þess að við getum aðlagast
hinni nýju og síbreytilegu þjóðfé-
lagsgerð en ekki streist á móti.
Inntökuskilyrði eru ekki eins
ströng í fjölbraut og í menntaskól-
um, en hver getur sagt að þeir séu
verri. Eru þeir þá verri fyrir það
að gefa fólki tækifæri? Og ekki má
gleymast að enginn er öruggur
með að útskrifast þó honum hafi
verið veitt innganga.
Að lokum, Guðrún segir í grein
sinni að með inntökuprófum hafi
allir jafna möguleika á inngöngu.
Þannig er þó mál með vexti í dag
að allir hafa jafnt tækifæri til
inngöngu í Háskólann. Hvaðan
fær hún þá hugmynd?
Nafn félj niður
í Velvakanda í gær féll niður
nafn höfundar bréfsins „Ójafnt
höfumst við að“. Bréfritari er
Ingvar Agnarsson og er hann beð-
inn velvirðingar á þessum mistök-
um.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Fólkið í dalnum talaði vel um hvert annað.
Rétt væri: Fólkið ... talaði vel hvað um annað.