Morgunblaðið - 18.09.1983, Qupperneq 1
213. tbl. 70. árg.
SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rússi
flýr í
Japan
Tókýó, 17. .september. Al*.
SOVÉZKUR edlisfræðingur, félagi í
sovézku vísindaakademíunni, hefur
leitað ásjár lögreglu í Japan og lýst
sig pólitískan flóttamann. Hann vill
flytjast til Randaríkjanna, og er mál
hans til athugunar hjá japönskum
yfirvöldum og flóttamannafulltrúum
SÞ.
Vísindamaðurinn heitir Evgenii
Alekseevich Novikov og er 52 ára.
Hann sótti ráðstefnu um eðlis-
fræði í Kyoto. Talsmaður banda-
ríska sendiráðsins í Tókýó sagði
Novikov hafa birtst í sendiráðinu
9. september og leitað þar hælis,
en verið afhentur japönskum yfir-
völdum, þar sem sendiráðið hefði
ekki verið í stakk búið að veita
honum hæli.
Díana sögð
vera ófrísk
l/ondon, 17. september. Al*.
HKIMILDIR innan brezku hirðar-
innar herma að Díana prinsessa sé
með barni og er við því búist að hún
verði léttari í maí nk., að sögn The
Daily Mirror í dag.
Díana er sögð hafa fært kon-
ungsfjölskyldunni fregnirnar í
konunglegu kvöldverðarboði í
Balmoral-kastala í Skotlandi að
undangenginni heimsókn til
kvennalæknisins George Pinker í
Lundúnum.
„Það var mikill fögnuður í kon-
ungsfjölskyldunni og það var sótt
kampavín og skálað af þessu til-
efni,“ hefur blaðið eftir heimild-
armanni sínum.
Díana prinsessa ól manni sín-
um, Karli prins af Wales, soninn
Vilhjálm fyrir rúmu ári. Bresk
blöð hafa gert að því skóna að
undanförnu að prinsessan hefði
þykknað undir belti, en blaða-
fulltrúi drottningar hefur jafnan
vísað fregnum þessum á bug.
Daily Mirror segir, að ætlunin
sé að halda því leyndu eins lengi
og unnt er að prinsessan sé
barnshafandi, til þess að vernda
hana fyrir hugsanlegu fréttaflóði.
Haldið á miðin
Ljósm. ól.K.Magn.
Þessi fallega mynd er úr Hvalfirði og það er hvalbátur sem stefnir á miðin í septemberblíðunni. Skýjafar hefur verið geysilega fallegt marga daga í
þcssum mánuði á Suðvesturlandi og ef myndin prentast vel má sjá eitt dæmi þar um.
Nýjar tilgátur um
mál kóresku þotunnar
Sovétmenn finna brak með smákafbátum
Wakkanai Japan, New York og Montreal, 17. Neptember. AP.
JAPANIR eru í litlum vafa um það þessa dagana, að Sovétmenn hafi
fundið að minnsta kosti hluta af flaki kóresku farþegaþotunnar sem
þeir skutu niður við Shakalin-eyju á dögunum. Japanskt leitarskip
fékk í gær þau boð frá sovésku leitarskipi, að halda sig fjarri, þar
sem það sovéska væri með „neðansjávaraðgerðir“ í gangi.
Japanska skipið nálgaðist það skildu á milli. Sáu Japanir Sov-
sovéska svo, að aðeins 500 metrar étmenn setja smákafbát á flot,
Tvítugur Wisconsin-búi:
Býr í skógarkofa
og borðar ljónakjöt
Madison, Wisconsin. 17. s«‘ptember. AP.
Tvítugur maður frá Madison í
Wisconsin, John Baaske, er með
ofnæmi fyrir 20. öldinni, hann
hefur búið út af fyrir sig í skóg-
arkofa síðan árið 1981, borðað
einungis Ijónakjöt, ananas og
drukkið vatn. Heilbrigðisyfirvöld
hafa nú fengið hann til að fallast
á læk-nisskoðun til að skera úr um
hvort möguleiki er á lækningu.
Hingað til hafa heilbrigðisyf-
irvöld í Wisconsin neitað að
greiða lækningakostnað Baask-
es vegna eðlis sjúkdómsins.
Hafa yfirvöldin verið vantrúuð
á raunverulegt ástand piltsins
og dregið í efa að hann geti ekki
lagt annað sér til munns en
ljónakjöt. En nú verður skorið
úr því.
Móðir Baaskes sagði það ekk-
ert grín að fjármagna matar-
reikninga sonarins, kjötið eitt
kostaði meira en 1000 dollara á
mánuði og væri sérstaklega
pantað frá Illinois. Ávextina
kaupir frú Baaske frá Kali-
forníu og þeir eru ekki gefnir
frekar en kjötið.
einnig tvo smábáta. Alls eru níu
sovésk skip á þessum slóðum í leit
að braki, og einkum og sér í lagi
„svarta kassanum". Þá hafa Jap-
anir séð Sovétmenn hífa málm-
brak um borð í skip sín, brak sem
gæti verið úr kóresku þotunni.
Fjögur bandarísk skip eru einnig
á svæðinu, tvö þeirra með sér-
stakan búnað til að vísa á „svarta
kassann". Fjögur japönsk leitar-
skip eru og þarna á sveimi.
Bandaríska sjónvarpsstöðin
ABC greindi frá „nýrri vitneskju"
í þotumálinu í fréttatíma í gær
Þverskallaðist ýmislegt af „vitn-
eskjunni" við fyrri yfirlýsingar
bæði bandarískra og sovéskra yf-
irvalda. Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseti sagði á dögunum, að
það væri ekki með nokkru móti
hægt að ruglast á Boeing 747-þotu
og öðrum þotum eins og Sovét-
menn segjast hafa gert. ABC
sagði hins vegar i gær, að sovésku
þotuflugmennirnir hafi aldrei
verið í aðstöðu til að greina al-
mennilega hvurs lags flugfar var
á ferðinni, því þeir hafi allan tím-
ann verið að minnsta kosti 2.000
fetum fyrir neðan þotuna og aldr-
ei í sömu hæð. Fullyrðingar Sov-
étmanna um að þotuflugmenn
þeirra hafi reynt að vekja athygli
flugmanna farþegaþotunar með
því að velta vængjunum standast
því ekki samkvæmt þessu. Þá seg-
ir ABC, að vegna þess hversu
langt hafi verið á milli orrustu-
þotanna og farþegaþotunar hafi
verið útilokað að „varúðarskotin"
sem Sovétmenn sögðust hafa
hleypt af, hafi nokkurn tíman
komið fyrir augu kóreska flug-
mannsins eða áhafnar hans.
Flugmálaráð Sameinuðu þjóð-
anna tók þotumálið fyrir á fundi
sínum laust fyrir helgina og sam-
þykkti að fordæma árás Rússa á
þotuna og skipa rannsóknarnefnd
til að taka málið fyrir. Var þetta
samþykkt þrátt fyrir áköf mót-
mæli sovésku fulltrúanna í ráðinu-
Vilja ekki
fá ráðherrann
Lundúnir, 17. M'piember. Al\
BRESKA ríkisstjórnin hefur til-
kynnt Sovétmönnum, að ekkert geti
orðið úr fyrirhugaðri ferð Gregorys
Kornienko, aðstoðarutanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, til Brctlands í
næstu viku.
Var áætlað að Kornienko ræddi
við ýmsa ráðamenn í Bretlandi á
þriggja daga ferð sinni. Aðgerðir
Breta eru í mótmælaskyni við ill-
virki Rússa er þeir skutu niður
kóresku farþegaþotuna á dögun-
um.