Morgunblaðið - 26.11.1983, Page 22

Morgunblaðið - 26.11.1983, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1983 13 slösuðust á N-írlandi Samveldisleiðtogar í Goa: Reyna að jafna ágreining um innrásina á Grenada Panaji, 25. nóvember. AP. Belfa-st, 25. nóvember. AP. ÞRETTÁN manns, fjórir her- menn, tveir lögregluþjónar og sjö óbreyttir borgarar, þar af eitt kornabarn, slösuðust er sprengja sprakk í Falls Sprenging við skipaárekstur ('uxhaven, 25. nóvember. AP. MIKLAR sprengingar urdu í líber- ísku gámaskipi o g eldglæringar stórtu í allar áttir eftir árekstur þess við brazilískt Dutningaskip í ósi ár- innar Elbu norður af Hamborg í dag. Við áreksturinn kom upp eldur í Líberíuskipinu „Ever Level“ og með fyrrgreindum afleiðingum. Einn skipverja fórst, þrír fengu alvarlega reykeitrun og tveir beinbrotnuðu. Áhöfninni var bjargað um borð í þyrlu. Líberíska skipið var á leið til Hamborgar með 200 lestir af flug- eldum og blysum alls konar, og öðrum eldfærum, frá austurlönd- um fjær. Sigldi líberíska skipið á fullri ferð á það brazilíska og við áreksturinn braust út eldur, sem á svipstundu logaði stafna á milli. HÁTTSETTIR embættismaður norður-írska iðnþróunarráðsins hefur borið það fyrir nefnd á veg- um neðri deildar breska þingsins, Fimmta svart- holið? Tókýó, 25. nóvember. AP. JAPANSKIR vísindamenn hafa uppgötvað sjaldgæft fyrirbrigði í geimnum, sem gefur frá sér röntgengeisla líka þeim, sem berast frá svartholinu Cygnus X-l. Var uppgötvunin gerð með hjálp gervihnattar, sem er á braut um jörðu. Svarthol er ósýnileg stjarna, sem fallið hefur saman og er svo þétt, svo massamikil, að hvorki ljós né efni sleppur út úr aðdrátt- arafli hennar. Gervihnötturinn, sem heitir Temma, greindi fyrir- brigðið í jáðri stjörnukerfisins Camelopardalis, skammt frá stjörnukerfinu Perseus, 14. nóv- ember sl. að því er Toshio Murak- ami, embættismaður í japanska vísindaráðuneytinu sagði. Kvað hann hlutinn ósýnilega gefa frá sér öfluga en óreglulega röntgen- geisla á um tíu millisekúndna fresti líkt og er með Cygnus X-l. Japanir hafa beðið félaga í Al- þjóða stjarnfræðifélaginu að segja frá hvort þeir hafa uppgötvað nokkuð óvenjulegt í grennd við fyrirbrigðið en það getur hjálpað til við að reikna út massa hlutar- ins og jafnvel sanna, að hér sé um að ræða fimmta þekkta svartholið í alheimnum. Road-hverfinu í vesturhluta Belfast. Sprengjan var falin bak við hálfs annars meters háan vegg og var svo öflug að gat kom á vegg- inn og lentu steinflygsur úr hon- um á vegfarendum og nærliggj- andi húsum, þar sem margar rúð- ur brotnuðu. Talið er að sprengjan hafi verið ætluð lögreglu- og herbílalest, sem fór um götuna, en gangandi vegfarendur og bifreiðar óbreyttra, urðu einnig fyrir sprengjunni, sem hleypt var af stað með fjarstýringu. Engin öfgasamtök hafa lýst ábyrgð á verknaðinum en gengið er út frá því sem vísu að hér hafi hryðjuverkamenn írska lýðveld- ishersins verið að verki. Þá var maður veginn fyrir utan krá í Lurgan í Armaghsýslu, en óljóst er hvort morðið var liður í átökum stríðandi fyikinga. James Prior, írlandsmálaráð- herra, hefur boðið leiðtogum fjög- urra stjórnmálaflokka í Norður- írlandi til viðræðna í næstu viku um ástandið þar. Leiðtogar tveggja flokka mótmælenda hafa harðlega gagnrýnt brezku stjórn- ina fyrir að stórauka ekki örygg- isgæzlu á N-lrlandi. að ekkert sé vitað um svissneskt fyrirtæki, sem tók við 17,5 milljón dollara greiðslu frá De Lorean- bílasmiðjunum. Rílasmiðjur De Loreans eru gjaldþrota fyrirtæki eins og kunnugt er og sjálfur ligg- ur hann undir ákæru um stórfellda eiturlyfjasölu. Breska þinginu leikur mikill hugur á að vita hvað varð um þessa peninga, sem voru hluti af 79 milljón punda styrk af al- mannafé við bílaverksmiðjurnar. Umrædd fjárupphæð, 17,5 millj- ónir dollara, var ætluð sem greiðsla til Lotus-verksmiðjanna í Norwich á Englandi fyrir þeirra þátt í smíði De Lorean-bílanna en forsvarsmenn þeirra segjast aldrei hafa fengið hana í hendur. Fram kemur hins vegar, að þessi upphæð hafi verið send svissnesku fyrirtæki, skráðu í Panama, en þrátt fyrir ítarlega eftirgrennslan finnst ekkert um þetta fyrirtæki, hvorki í Panama né í Sviss. Leiðtogar Samveldislandanna, sem þingað hafa í Delhi, komu í dag til baðstrandarbæjarins Goa þar sem þeir munu eiga óformlega fundi um helgina í þeirri von að leysa ágreining sinn vegna innrásarinnar á Grenada. Leiðtogarnir, sem eru 41 að tölu, fóru til Goa með fjórum farþega- þotum, sem skotið var undir þá, og var þeim deilt niður á flugvélar í stafrófsröð. Indíra Gandhi gest- gjafi leiðtoganna fór til Goa í einkaþotu sinni. Ólíklegt er talið að takast muni að sætta sjónarmið leiðtoganna, þar sem ágreiningur er djúpstæð- ur, og lenti t.d. tveimur Karíba- AIDS-tilfelli í þróunarlöndum (ienf, 25. nóvember. AP. TILKYNNT hefur verið um 250 til- felli af AIDS, áunninni ónæmis- bæklun, í þróunarrfkjum, að sögn talsmanna Alþjóðaheilbrigðisstofn- unarinnar, WHO. Sjúkdómsins hefur fyrst og fremst orðið vart meðal homma og eiturlyfjasjúklinga í Bandaríkjun- um og Vestur-Evrópu. Sjúkdóm- urinn hefur borizt manna á milli með kynmökum, en að sögn tals- manna WHO virðast tilfellin í þróunarlöndunum hafi komið upp með öðrum hætti. hafsleiðtogum saman í hörkurifr- ildi á blaðamannafundi leiðtog- anna við lok formlegra funda á Samveldisráðstefnunni. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna skýrði frá því í dag að Alistair Norður-kóreskur hryðju- verkamaöur sagði við rétt- arhöldin vegna sprengjutil- ræðisins f grafhýsi í Rang- oon, þar sem 21 maður fórst, að hann og félagar hans tveir hefðu undirbúið árásina og beðið tilræðisdagsins í íbúö- arhúsnæði norður-kóresku diplómatanna í Rangoon. Hryðjuverkamaðurinn sagði þá þremenningana hafa komið til Burma með flutningaskipi frá N-Kóreu 22. september. Földust þeir síðan í bústað sendiráðsmanna þar til á tilræð- isdaginn 9. október. Réttarhöldin eru nú á fjórða Mclntyre, sem nefndur hefur verið til að leiða bráðabirgðastjórn á Grenada, mun ekki geta tekist þá ábyrgð á hendur, þar sem hann þarf að gangast undir þriggja mánaða ítarlega læknismeðferð. degi og verður fram haldið á mánudag. Allir starfsmenn norður-kóreska sendiráðsins voru reknir úr landi eftir tilræð- ið. Einn tilræðismannanna lést í átökum, sem urðu er þeir voru handteknir. Sjónvarps- stöð í Vatikaninu Vatikaninu, 25. névember. AP. VATIKANIÐ hefur ákveðið að taka sjónvarpstæknina í sína notkun við útbreiöslu fagnaðarerindisins, en hingað til hefur boðskapur páfa borist um heimsbyggð- ina í blöðum og útvarpi. Opnuð hefur verið sérstök miðstöð til framleiðslu og dreif- ingar á trúarlegu efni fyrir sjón- varp og í framtíðinni verður reist sérstök sjónvarpsstöð. Stofnuð var útvarpsstöð í Vat- ikaninu í tíð Píusar páfa ellefta árið 1931 og sendir hún í dag út 250 stundir af efni á 35 tungu- málum á viku hverri. Lengi hef- ur verið til athugunar að hefja starfrækslu sjónvarpsstöðvar, en ekki fyrr en nú að ákveðið er að stíga fyrsta skrefið. Þá gefur Vatikanið út dagblað á ítölsku, og vikublöð á ensku, frönsku, spænsku, þýzku og portúgöisku, og mánaðarrit á pólsku. Umdeilt bréf Koivisto til þrjátíu ritstjóra Helsinki, 25. nóvember. AP. BRÉF, sem Mauno Koivisto, Finnlandsforscti, sendi til ritstjóra 30 helstu dagblaöa í Finnlandi hef- ur vakió mikla athygli þar í landi. Með tilliti til mikiila umræðna um utanríkismál í finnskum fjölmiðlum að undanförnu minn- ir forsetinn ritstjórana á í bréfi sínu, að í Finnlandi sé vænlegast að vera ekki að efna til umræðna um utanríkisstefnu landsins. Sökum tengsla Finna við Sovét- menn hafa utanríkismál jafna verið hið mesta viðkvæmnismál. Það er þó ekki aðeins innihald bréfsins, sem þykir athyglisvert, heldur og þær aðferðir, sem viðhafðar voru við dreifingu þess. Forsetinn skrifaði bréfið að eigin frumkvæði, sendi það til yfirmanns STT, opinberrar fréttastofu landsins og bað um að því yrði dreift. Ætlaðist hann til þess að innihaldi þess yrði haldið algerlega leyndu. I bréfinu spyr forsetinn m.a. hvort það hafi verið af ásettu ráði að finnskir fjölmiðlar hafi komist að samhljóða niðurstöðu í nýliðnum umræðum. Niður- staðan var á þá leið, að ekki væri neitt athugvert við að efast um að eitthvað væri bogið við utan- ríkisstefnu stórþjóðanna með tilliti til ástands heimsmála. Háttsettur embættismaður stjórnarinnar, sem óskaði nafn- leyndar, sagði þessi vinnubrögð forsetans hreinlega hafa kallað á að innihald bréfsins læki út. Það var hins vegar í Svíþjóð en ekki Finnlandi, að fréttist af bréfinu og innihaldi þess. London: Stórfé greitt gervifyrirtæki? London, 25. nóvember. AP. Sprengingin í Rangoon: Undirbjuggu til- ræðid úr sendi- ráði N-Kóreu Kangoon, 25. nóvember. AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.