Morgunblaðið - 26.11.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1983
37
Eyjólfur Snœbjörns
son — Minning
Óðum fækkar því fólki sem voru
pabbar og mömmur, þegar undir-
rituð ólst upp í ólafsvík.
Fjórða október sl. varð bráð-
kvaddur á heimili dóttur sinnar
Eyjólfur Snæbjörnsson. Það er
næstum óhugsandi að koma heim
til Ólafsvíkur og eiga ekki lengur
von á honum Eyfa í heimsókn.
Hann sem alltaf var svo hress og
kátur og kunni frá svo mörgu að
segja. Það voru skemmtilegar
stundir þegar setið var yfir kaffi-
bollunum og Eyfi rifjaði upp sögur
frá liðnum árum.
í þá daga var mikil fátækt í
Ólafsvík og lífsbaráttan hörð.
Fólkið lagði mikið á sig til að lifa.
Fiskveiðar voru stundaðar á ára-
bátum og þá var engin höfn. En
það voru líka margar skemmtileg-
ar sögur frá þessum tímum. Ekki
má gleyma framboðsfundunum
fyrir alþingiskosningar en þá var
nú líf í tuskunum.
Eyfi var mjög fróður um menn
og málefni og hafði hann sérstakt
lag á að gera þessa löngu liðnu
atburði svo lifandi.
Eyfi var fæddur 16. okt. 1906 í
Bakkahúsi í ólafsvík. Foreldrar
hans voru Snæbjörn Eyjólfsson og
Guðmunda Jónatansdóttir. Eftir
foreldrum hans man ég mjög vel,
Snæbirni með stríðnisglampa í
augum, alltaf svo hress og sérlega
góður við okkur krakkana. Guð-
munda er mér sérstaklega minn-
isstæð í sambandi við legu okkar á
Stykkishólmsspítala, en þá var ég
8 ára og hugurinn ekki stór. Það
var mikil huggun að vita af Guð-
mundu og ég var ekki eins og ein í
þessu stóra húsi og framandi um-
hverfi. Hún átti ævinlega sælgæti
í pokahorninu og ekki spillti það
nú fyrir.
Árið 1937 giftist Eyfi móður-
systur minni, Önnu Þórðardóttur
frá Borgarholti, en hún lést í sept-
ember sl. ár. Hjónaband þeirra
var mjög farsælt og var missir
hans mikill þegar Anna dó. Þau
eignuðust þrjú börn og eina fóst-
urdóttur. Þau voru: Eysteinn f.
1939 en hann lést á fyrsta ári,
Halla f. 1941, Guðmunda f. 1945 og
Hanna f. 1952.
Eins og fyrr segir var lífsbar-
áttan hörð á þeim tíma er Eyfi
ólst upp. Ungur fór hann til sjós
og síðar varð fiskvinnsla hans
ævistarf. Þegar Hraðfrystihús
Ólafsvíkur tók til starfa gerðist
hann starfsmaður þar og síðar
verkstjóri. Hann var vel liðinn og
farsæll í því starfi. Hjá Eyfa vann
ég í nokkur sumur og er margs að
minnast frá þeim tíma. Er sólin
skein í heiði var vinnugleðin ekki
upp á marga fiska hjá mér. Úti-
dyrnar freistuðu mín mikið, að-
eins að skreppa út, en auðvitað var
flökunarhnífurinn og brýnið með í
ferðinni og brýnt var af kappi.
Eyfi fylgdist vel með og kom
snögglega á eftir svo inn var hald-
ið og áfram flakað.
í þá daga var fólkið í frystihús-
inu eins og ein stór fjölskylda, við
þekktumst öll og tókum þátt í
gleði og sorg hvers annars. Þá var
farið í ferðalög einu sinni á sumri
og man ég eftir ferðum í Borgar-
fjörðinn, á Vestfirðina og til Mý-
vatns. Já, það er margs að minn-
ast og í minningunum um þessar
ferðir var verkstjórinn okkar
ávallt svo jákvæður og hress, tók
af heilum hug tillit til unga fólks-
ins og það kunnum við vel að
meta.
Þótt minningarnar um þennan
góða mann frá bernsku og ungl-
ingsárunum, svo og einnig frá
heimsóknum mínum til ólafsvíkur
eftir að ég flutti þaðan, séu mér
mikils virði, er þakklæti mitt samt
mest fyrir þá hjálp sem hann og
Anna frænka sýndu móður minni
er hún varð ekkja og þurfti á hjálp
að halda. Þeirra hjálp var henni
ómetanleg og veit ég að hún sakn-
ar þeirra mikið.
Elsku Halla, Guðmunda, Hanna
og fjölskyldur ykkar, ég votta ykk-
ur innilega samúð mína.
Góður guð blessi minningu
pabba ykkar.
Skrifað í Hamborg í nóv. 1983,
Anna Þóra Baldursdóttir.
t
Útför eiginmanns mins og fööur okkar,
JÓHANNESAR KRISTJÁNSSONAR,
Laufásvegi 16, Stykkishólmi,
fer fram frá Stykkishólmskirkju mánudaginn 28. nóvember kl.
14.00.
Þeim sem vildu mlnnast hans er bent á Stykkishólmskirkju. Gjöf-
um til hennar er veitt viötaka aö Silfurgötu 29, Stykkishólmi, sími
93-8277.
Þóra Ágústsdóttir
og börn.
FAKIR-
ryksugur
Hentugar — léttar — öflug-
ar. Nýtízkulegar heimilisryk-
sugur.
FAKIR
CIH
Fakir S14 automatisk kr.
6.395,-
Fakir S15 elektronisk kr.
7.995,-
Vesturþýsk gæöi — Gott
verö. Fjöldi aukahluta fáan-
legur. Innbyggö aukahluta-
og sogrörageymsla. Stillan-
legt sogafl í S15.
Útsölustaöir um allt land.
Greiösluskilmálar. Tilvaldar
jólagjafir.
Einkaumboð
TÉPPfíLfíND
Grensásvegi 13, Reykjavík,
símar 83577 og 83430.
Tryggvabraut 22, Akureyri,
sími 96-25055.
Opid í dag til kl. 2.
LÉTT og METT
Stórkostlegur
árangur!
Hér er um fljótvirka og áhrifaríka að-
ferö aö ræöa, sem skaöar ekki lík-
amann. Aögeröin byggir á dufti og
töflum, sem innihalda öll steinefni og
vítamín, sem líkaminn þarfnast.
Þaö er mjög auövelt aö lifa á dufti nú
og töflum sjö daga samfleytt og léttast
um fimm kíló.
Duftið, sem heitir
„Létt & Mett“
er blandaö út í te, kaffi, svaladrykk,
bullion — eöa þaö sem hver og einn
telur best (súrmjólk, léttmjólk eöa
saft). Milli mála eru töflurnar notaöar,
en þær eru mjög próteinríkar. Þessa
megrunaraðferö má einnig nota á ró-
legri hátt — t.d. meö því að sleppa
einni máltíö á dag. Fyrir þá, sem vilja
losna viö allt aö 10 kílóum, er þetta
mjög þægileg aöferö og kemur í veg
fyrir hörgulsjúkdóma.
Dr. Jan Engelsson hefur
sjálfur reynt „Létt &
Mett“ og misst 9 kfló á
einum mánuöi.
Stærri pantanir sendar
gegn póstkröfu.
Kaupfélaginu á Siglufirði.
Allar upplystngar veittar í síma
Kirkjumunir
Kirkjustræti 10, Reykjavík.
Duftiö fæst einnig í
15030.
Allt í stfl
Barna- og unglingahúsgögnin vinsælu.
íslensk gæöavara.
Framleitt í 4 viðartegundum.
Góð greiðslukjör.
Opid laugardaga 10—16.
Sunnudaga 14—16.
Húsgagnaverslun Reykjavikurvegi 68,
Hafnarfiröi. Sími 54343.