Morgunblaðið - 26.11.1983, Side 44

Morgunblaðið - 26.11.1983, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1983 tizmmn Fimst \>k\r þefcia verA, Ll 05 gcóur jólarrcdixr" — kAlkUinít-piziö. ?" ásí er... n r y-í .,. að trimma saman. TM R«o U S Pat Off — all rights reserved c 1983Los Angeles Times Syndicate Með morgnnkaffinu Hún segist vera vinkona mín, en svo stingur hún af með konu ein- hvers sér óviðkomandi manns í staðinn fyrir þér! HÖGNI HREKKVÍSI Áhrif Hallesbys á ís- lenskt kristindómslíf Prófessor Hallesby og norsku stúdentarnir, sem með honum fóru til íslands árið 1936. Sigurður Lunde stendur yst til vinstri í efri röð. Sr. Kolbeinn Þorleifsson skrifar: „Kæri Velvakandi. Ég fór í bíó fyrir nokkru og sá þar kvikmyndina um Jón Odd og Jón Bjarna. Þegar ég horfði á upp- hafsatriði myndarinnar: Skála- húsið í Vatnaskógi og þá spenn- andi atburði, sem þar gerast, hugsaði ég með mér: „Til einhvers skrifaði Birkeli biskup bókina: Björn flugmaður, sem hann gaf til þess að þessi skáli yrði byggður“. Birkeli biskup, sem einnig var um tíma kristniboði á Madagaskar og einn af upphafsmönnum út- varpsstöðvar lútherska heims- sambandsins í Addis Ababa, var nemandi prófessors Hallesbys. Ég horfði á sjónvarpsfréttir fyrir skömmu, og hvað sá ég þar? íslenskir vísindamenn eru á árinu 1983 að útbúa skreiðarpillur til að seðja sárasta hungur fólks í Afr- íku. Enn ein áhrif prófessors Hall- esbys. Fyrir tíu árum sá ég forsíðu- frétt í dönsku blaði. Þar var vitn- að í gamlan Ásvallagötustrák, sem hafði vegna kristilegrar samvisku sinnar rofið þögn eþíópskra yfir- valda um hungursneyð þar suður frá. Ég var stoltur í hjarta mínu, því að ég var alinn upp á sömu slóðum. Þetta mátti lika reka til Hallesbys. Þessa dagana sé ég bókina „Jak- obsglíman“ eftir Sigurð A. Magn- ússon í bókabúðum. Þar er lýst trúarreynslu ungs manns, sem verður fyrir sterkum áhrifum þeirra manna, sem Hallesby mót- aði. Það eru ýmisleg, áhrif Halles- bys á íslenskt kristindómslif, sem enginn veit, hvernig eru tilkomin. Þau eru þarna bara. íslendingar voru kristnir í 930 ár. Svo kom Hallesby. Og viti menn! Nokkrum árum síðar eignast íslenska kirkj- an sína fyrstu dótturkirkju í heiðnu landi. Söngvarnir hans Sigurðar Lunde! (sem var yngstur stúdent- anna, sem kom með Hallesby hingað til lands árið 1936). Þá var hann tvítugur. Hann var skáldið og tónsmiðurinn í hópnum. Hann var þá þegar, 18 ára gamall, búinn að semja og yrkja skólasamtaka- sönginn: „Fram, vinir, fram í skól- um öllum“. Ég veit um alþingis- menn, presta, kristniboða, blaða- menn og rithöfunda, sem allir hrifust ungir af þessum söng. Lag- ið lifandi og skemmtilegt, og text- inn hitti beint í mark. Með söngv- um Sigurðar Lunde í þýðingum þeirra séra Magnúsar Runólfsson- ar og Bjarna Eyjólfssonar varð skemmtilegt að koma á fund í Kristilegum skólasamtökum. Þeir hrifu unga menn. Kristindómur- inn varð skemmtilegur. Hin kristilega söngvísa öðlaðist fullan þegnrétt í íslenskum bókmenntum með þessum ungu íslensku sálma- skáldum, sem þá voru að vaxa úr grasi, en vildu ekki aðhyllast þann boðskap, sem guðfræðilegir lær- dómsmenn báru á borð fyrir al- menning á þeim árum. Til er töfrafullt lag og ljóð, sem Sigurður Lunde orti og samdi árið 1947, sem ætti það skilið að vera sungið af öllum. Fyrsta versið hljóðar svo í þýðingu séra Magn- úsar Runólfssonar: Vér sðfnumst til fagnaðar saman hér um sannleikans gleðibopskap dýra. Og sjálfur hér konungur sannleikans er. Þá sannfæring enginn skal rýra. Og sönginn um Jesúm vér syngjum við raust Svelli sá lofsöngur hreini. Á bjarginu lífíð vér byggja skulum traust, því að bjargið er frelsarinn eini. Þessi söngur á allt það, sem mun gera hann sígildan í kristi- legu leikmannastarfi. Þeir sem hafa sungið hann, vita um hvað ég er að tala. Núna skilst mér, að þessi maður sé biskup í Stavangri. Ég hef grun um, að það sé hann, sem með eldmóði æsku sinnar, vísum og ljóðum, hafi gert flesta íslendinga að kristniboðum. Vakna, því vökumenn vantar þinn Drottinn enn til starfa í heimi hér. Bjóð þú fram hug og hönd, hjarta þitt, sál og önd. Verkefnið óþrjótandi’ er. Kór Fram því frá Kristi kveður kallið skýra við: „Fram, já, fram mitt lið!“ Sjáðu þitt hlutverk hátt: Heiminn þú vinna átt, Boða’ honum frelsi og frið. (Umort af Bjama Eyjólfssyni.) Hvað skyldi vera íslenskur kristindómur? Hefur kristindóm- urinn ekki alls staðar verið inn- flutt vara? Á fyrri hluta aldarinn- ar toguðust dönsk ríkistrú og heimatrúboð á við enska nýguð- fræði og spíritisma. Með komu Hallesby komu áhrif frá norsku heimatrúboði og kristniboði. Á sjötta áratugnum fóru rétttrúaðir lútheranar í Bandaríkjunum að hafa áhrif hér með dr. Valdemari J. Eylands. Það er eftirtektarvert, að báðar þessar stefnur: „Hall- esby-línan og sú bandaríska, „for- seta-línan“ eru fyrst og fremst lýðræðislegar. Menn ættu að at- huga það, að hatrið á Hallesby byggðist fyrst og fremst á því, að hann stjórnaði vel skipulagðri leikmannastarfsemi, sem braut niður yfirvald ríkisrekins háskóla á sviði guðfræðinnar. Safnaðar- háskólinn, sem Hallesby kenndi við, er skóli, sem haldið hefur velli með frjálsum framlögum áhuga- manna í 75 ár. Þetta er fjölsóttasti guðfræðiskóli Norðmanna, og hef- ur lengi verið. Ég skil ekki þá lýð- ræðissinna, sem endilega vilja halda við hinni dauðu hönd gömlu ríkiskirkjunnar, og það meira að segja á kolvitlausum forsendum. Hér vísa ég til ýmissa athuga- semda að undanförnu um Hall- esby og Billy Graham. En þetta er flókið kirkjusögulegt atriði, sem ég ætla ekki að fjalla um hér.“ Böggullinn var endursendur samkvæmt fyrirmælum í fylgibréfi — yrði hann ekki afhentur Ari Jóhannesson, yfirdeildar- stjóri á Tollpóststofunni, skrifar 24. nóvember: „I Velvakanda Mbl. þann 22. nóvember sl. birtist grein eftir Niels J. Erlingsson, Akureyri. Er böggull frá Færeyjum til Niels J. Erlingssonar kom hingað á Tollpóststofuna tóku starfsmenn tollgæslunnar bögg- ulinn til tollmeðferðar og kom í ljós að í honum var kjötvara. Samkvæmt lögum frá 1928 er bannaður innflutningur á öllu hráu kjötmeti, og er enginn greinarmunur gerður á dýrateg- undum i því sambandi. Starfsmenn tollgæslunnar neituðu að þessi böggull yrði af- hentur og voru málsatvik skýrð fyrir viðtakanda. Samkvæmt fyrirmælum send- anda í fylgibréfinu þá óskaði hann þess ef böggullinn yrði ekki afhentur, þá endursendur strax og var farið að óskum hans.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.