Morgunblaðið - 26.11.1983, Page 47

Morgunblaðið - 26.11.1983, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1983 47 Handknattleikur: Tveir leikir í 1. deild MeiAsli Arnórs voru verri en nokkur átti von á og nú er allt útlit fyrir að hann leiki ekki knattspyrnu næstu tvo til þrjá mánuói. TVEIR leikir fara fram í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik um helgina. KR mætir KA í Laug- ardalshöll í dag kl. 14.00 og á morgun leika í Hafnarfirói FH og Þróttur kl. 17.00. „ÞAÐ er allt við það sama hjá mér, ég hef engan bata fengið og síðast í gær þá reyndi ég lítillega á mig en það var alveg útilokað að ég gæti nokkuð hlaupiö eða tekið á og eftir læknísmeðferö í dag þá bendir allt til þess að þaö eina sem hægt sé að gera í stöð- unni núna sé að skera mig upp og reyna aö komast fyrir meiðslin þannig,“ sagði Arnór Guðjohnsen er Mbl. spjallaði við hann í gær- dag. Að sögn Arnórs hefur hann eng- an bata fengiö þrátt fyrir mikla og mjög ýtarlega meðferö hjá sér- fræðingum. Ekki er almennilega vitað hvaö amar að Arnóri en allt bendir til þess að vöðvafestingar lærvöðvans hafi rifnaö illa. Arnór mun fara til sérfræðings á mánu- dagsmorgun en sá sérfræöingur hefur lagt til að Arnór veröi skorinn upp á þriöjudaginn hjá þekktum skurðlækni i bænum Leuven. Arn- ór sagði að hann væri orðinn mjög langþreyttur á því aö enginn ákvöröun hefði verið tekin enn varðandi þaö hvort hann ætti aö fara í uppskurö eða ekki. — Von- andi fer þetta aö taka enda og mér sýnist sjálfum að uppskuröur sé þaö eina sem geti lagaö þetta og þvi er best að flýta honum eins og hægt er, sagði Arnór. Arnór átti von á því að hann yrði alveg frá æfingum og keppni næstu tvo til þrjá mánuöi yrði hann skorinn upp. — Það er alveg með ólíkind- um hversu slæm þessi meiösli eru miðað viö þaö aö ég fékk þau viö að taka einn lítin en snarpan sprett í landsleiknum gegn irum. Ég fór strax útaf þegar ég fann verkinn og átti alls ekki von á svona heift- arlega slæmum meiðslum sem hafa gert þaö að verkum aö knattspyrnutímabiliö hjá mór fer sennilega aö mestu leyti forgörö- um. Það er meira en lítiö hvekkj- andi þegar maður er aö hefja tíma- bil hjá nýju mjög góöu félagsliöi. En maður verður aö taka þessu eins og svo mörgu öðru, sagöi Arnór. — ÞR. Verður Arnór skorinn upp á þriðjudaginn? Kæran ekki tekin KVÖRTUN Spánverja vegna þess að leikur Hollendinga og Möltu- búa í Evrópukeppninní var leik- inn í Aachen ( Vestur-Þýskalandi var ekki tekin til greina á miö- vikudag er UEFA fundaði í Sviss. Framkvæmdanefnd UEFA taldi Hollendinga ekki hafa hagnast á því aö leikiö væri í Aachen, sem er nálægt hollensku landamær- unum. Hollendingar unnu leikinn 6:0, en hann fór fram 19. desember 1982. Möltubúum var gert aö leika tvo heimaleiki sína á er- lendri grund vegna skrílsláta áhangenda þeirra á leikjum á ár- inu 1979, leikurinn við ísland á Sikiley var annar, leikurinn við Holland í Aachen hinn. til greina Spánverjar kæröu staðsetn- ingu leiksins nýlega vegna þess að Spánn og Holland eiga bæði eftir einn leik í riðlinum: heima- leik gegn Möltubúum, og allt bendir til þess að Hollendingar komist í úrslit Evrópukeppninnar. Þeir eru meö hagstæöara marka- hlutfall en bæði liðin eru jöfn að stigum. Asgeir skipti um skó og þá komu mörkin ÁSGEIR Sigurvinsson hefur ekki skorað mörg mörk í vest- ur-þýzku knattspyrnunni og því hefur þaö vakiö athygli aö hann hefur skorað í tveimur síðustu leikjum Stuttgart, fyrst í 7:0- sigri yfir NUrnberg og síöan sig- urmarkíö í 2:1-sigri yfir Kickers Offenbach. „Þaö er rétt,“ sagði Ásgeir, „ég heföi viljaö skora miklu fleirí mörk. Ég fann þaö i leikjunum í haust aö þetta var aö koma hjá mér, ég fékk nokkur góö mark- tækifæri en misnotaöi þau, flest naumlega. Ég er nú ekki hjá- trúarfullur knattspyrnumaöur en mér datt engu aö síöur í hug aö skipta um skó. Og hiö ótrúlega geröist, ég hef skoraö í báöum þeim leikjum, sem ég hef spilaö í skónum. Ég vona bara aö skórnir veröi áfram jafn miklir marka- skór.“ Stuttgart leikur í dag gegn Ein- tracht Frankfurt á útivelli og von- andi heldur Ásgeir áfram aö senda boltann í netiö hjá and- stæðingunum. Stuttgart er nú í efsta sæti þýzku deildarkeppn- innar og ef liöiö ætlar aö halda því sæti veröa mörkin aö koma jafnt og þétt. — SS. • Ásgeir spilar í nýju skónum ( dag er lið hans mætir Eintracht Frankfurt. LIVERP00L STOFNAO 1892. Framkvæmdastjóri Joe Fagan. Völlur: Anfield Road (tekur 45.000 áhorfendur). Gælunafn: The Reds (hinir rauöu). Stærsti sigur, 11—0, á Strömsgodset Drammen (Noregi) í Evrópu- keppni (1. umferð), 17. september 1974 — stærsta tap, 1—9, gegn Birmingham í 2. deild 11. desember 1954. Dýrasti leikmaöur sem félagið hefur keypt er Mark Lawrenson fyrir 900.000 pund frá Brighton í ágúat 1981. Mesta upphæð sem félagið hefur fengiö fyrir leikmann er 500.000 pund þegar Kevin Keegan var seldur til Ham- burger SV. í júní 1977. Flestir deildarleikir: lan Callaghan, 640 leikir, 1960—1978. Markahæstur á síðasta tímabili: lan Rush með 24 mörk í deildinni. Fyrirliði: Graeme Souness. Heimilisfang: Anfield Road, Liverpool 4. • Mick Robinson, framherji sem félagiö keypti frá Brighton fyrir þetta keppnistímabil. Hann leikur ekki með í dag vegna meiösla. Leikmenn Fd. Keyptur Verð Landsl. Leikir frá Bruce Grobbelaar 6.10.57 Vancouver 250.000C Zimbabwe 84 Bob Bolder 2.10.58 Sheff.Wed 0 Phil Neal 20. 2.51 North. 65.0006 England 359 Phil Thompaon 21. 1.54 England 340 Alan Hansen 13. 6.55 Partick Th.100.0006 Skotland 195 Alan Kennedy 31. 8.54 Newcastle 300.0006 England 169 Mark Lawrenson 2. 6.57 Brighton 900.0006 frland 79 Steve Nicol Ayr United300.0006 4 Gary Gillespie 5. 7.60 Coventry 325.0006 0 Bob Savage 8. 1.60 0 Howard Gayle 18. 5.58 4 Graeme Souness 6. 5.53 Middlesbr. 352.0006 Skotland 210 Jim Beglin Shamr.R. 20.0006 0 Ron Whelan 25. 9.61 frl. 61 Craig Johnston 8.12.60 Middlesbr. 575.0006 48 Sammy Lee 7. 2.59 England 125 Mick Robinson 12. 7.58 Brighton 250.0006 frland 0 Kenny Dalglish 4. 3.51 Celtic 440.0006 Skotland 244 lan Rush 25.10.61 Chester 300.0006 Wales 73 Steve Foley 4.10.62 0 Dave Hodgson 1.11.60 Middlesbr.450.0006 23 David West Dorch. 20.0006 0 Ipswich mætir Liverpool í dag: Bein útsending í dag kl. 15.00 í DAG veröur brotið blað hjá sjón- varpinu í sambandi viö ensku knattspyrnuna. Kl. 15.00 hefst bein útsending frá Portman Road, heimavelli Ipswich, en liöið mætir þar stórliðinu Líverpool. Þetta er í fyrsta sinn sem sjón- varpið er með beina útsendingu frá 1. deildar leik í Englandi og það munu örugglega margir sitja spenntir fyrir framan skjáinn í dag og fylgjast með leik liöanna. Á iþróttasíöunum í dag kynnum við liöin sem mætast, til glöggvun- ar fyrir þá sem fylgjast munu meö leiknum. Árangur Ipswich gegn Liverpool á heimavelli er góöur undanfariö, Ipswich hefur tvívegis sigraö og gert eitt jafntefli. Leik- menn Liverpool veröa því aö spila vel í dag ef þeir ætla sér aö sigra. Ársþing FRÍ ÁRSÞING Frjálsíþróttasambands íslands veröur haldið í dag í veit- ingahúsinu Gaflinum í Hafnar- firði. Þinghald hefst klukkan 9.30 árdegis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.