Morgunblaðið - 22.12.1983, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
Vöruskipti íslands og Finnlands:
SÍS sér um fram-
kvæmd samninga
105 tonn af kjöti fara utan —
2.100 tonn af kartöflum hingað
SAMIÐ hefur verið um vöruskipti á
landbúnaðarafurðum við Finna. Kaupa
þeir 105 tonn af dilkakjöti frá íslandi
en við kaupum 2.100 tonn af kartöflum
af þeim á móti. Verðmæti kartaflanna
er meira en kjötsins og hefur verið
rætt um að þeir kaupi meira dilkakjöt
til að jafna mismuninn.
Að sögn Gunnars Guðbjartssonar,
framkvæmdastjóra Framleiðsluráðs
landbúnaðarins, ræddu þeir Jón
Helgason, landbúnaðarráðherra, og
Ingi Tryggvason, form. Stéttarsam-
bands bænda, þessa möguleika við
finnska starfsbræður sína í haust og
vetur og nýlega var gengið frá samn-
ingi um viðskiptin, sem Samband ís-
lenskra samvinnufélaga sér um
framkvæmd á.
Gunnar sagði að þessi viðskipti
væru beggja hagur. Finnar hefðu
fengið góða kartöfluuppskeru I
sumar, sem þeir væru í vandræðum
með að selja, og við gætum selt þeim
kjöt á móti fyrir ágætt verð. Kart-
öflur hafa ekki áður verið keyptar
frá Finnlandi, heldur aðallega frá
Hollandi, Danmörku og Italíu. Kart-
öflurnar verða fluttar til landsins í
janúar og febrúar en þessi 2.100 tonn
samsvara þriggja mánaða kartöflu-
neyslu landsmanna.
Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSI
um kröfur bókagerðarmanna:
Þeir vilja fara
verðbólguleiðina
7. bekkur reyklaus
Nemendur 7. bekkjar í V alhúsaskóla á Seltjarnarnesi,
um 70 að tölu, undirrituðu fyrir nokkru yfirlýsingu um
að bekkir þeirra væru reyklausir. Mun það vera í
fyrsta skipti í 10 ára sögu skólans, að sögn þeirra, sem
til mála þekkja.
Yfirlýsing um þetta var send Krabbameinsféiagi
Reykjavíkur, sem ákvað að veita hópnum heiðurs-
skjal. Viðstaddur afhendinguna var Olafur Óskars-
son, skólastjóri.sem hrósaði nemendum sínum fyrir
skynsamlega afstöðu.
Á myndinni er hópurinn saman kominn á tröppum
skólans.
Hæstiréttur:
„ÞEIR vilja fara verðbólguleiðina, en við viljum fara þá lcið, sem eykur rauntekj-
ur fólksins í landinu. I>ó þannig, að það auki ekki þrýsting á almennar verðhækk-
anir í landinu og komi ekki niður á greiðslugetu fyrirtækjanna," sagði Magnús
Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSÍ, í samtali við blm. Mbl. er hann var inntur
álits á framkomnum kröfum Félags bókagerðarmanna, sem gera kröfu um að fá
bættar þær kjaraskerðingar, sem átt hafa sér stað.
„Það er alveg ljóst, að afleiðing af
óraunhæfum kjarasamningum, ef
keyrðar verða í gegn einhverjar
óhóflegs kröfur um kauphækkanir,
eru annars vegar stóraukin verð-
bólga og hins vegar hættan á enn
frekara atvinnuleysi, en raun ber
vitni í dag, “ sagði Magnús Gunn-
arsson ennfremur.
„Ég vil sérstaklega ítreka, að meg-
inkostir þeirra hugmynda, sem
Vinnuveitendasambandið hefur lagt
fram til lausnar þeirrar kjaradeilu,
sem er uppi, eru ótvíræðir. Um er að
ræða tilfærslu fjármuna í launa-
umslagið og launatengdra gjalda,
©
INNLENT
auk tilfærslna með niðurgreiðslur.
Báðar þessar leiðir geta átt sér stað,
án þess að til komi veruleg aukning á
verðbólgu og að atvinnurekstrinum
verði íþyngt um of,“ sagði Magnús
Gunnarsson.
Magnús sagði það tímabært, að
fólk gerði sér grein fyrir því, að
launahækkanir í tugum prósenta
væru engin lausn fyrir fólk við þær
aðstæður, sem landsmenn búa við í
dag. „Það er í raun útilokað, að auka
raunverulega tekjur fólks án þess að
auka þá framleiðslu, sem er fyrir í
landinu. Ef ekki kemur til aukin
verðmætasköpun í landinu, stendur
fólk alltaf uppi með sömu niðurstöð-
una. Það er sama hversu prósentu-
hækkunin er mikil,“ sagði Magnús
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands íslands að
endingu.
Þess má geta, að næsti viðræðu-
fundur samninganefnda Alþýðu-
sambands íslands og Vinnuveitenda-
sambands íslands fer fram í dag.
Hjónin í Þingvalla-
stræti verði borin út
Rekum málið fyrir Mannréttindadómstólnum
í Strassbourg, segir Ólafur Rafn Jónsson
HÆSTIRÉTTUR kvað upp þann
dóm í gær, að hjónin Danielle Som-
ers Jónsson og Ólafur Rafn Jóns-
son, skuli borin út úr íbúð sinni að
Þingvallastræti 22 á Akureyri og er
fógeta uppálagt að framkvæma út-
burð eftir kröfu Grímu Guð-
mundsdóttur, einnig til heimilis að
Þingvallastræti 22. Þá var hjónun-
um gert að greiða Grímu 20 þúsund
krónur í málskostnað í héraði og
fyrir Hæstarétti.
Þetta var í þriðja sinn á árinu
sem málið kom til kasta Hæsta-
réttar. Þann 25. mars síðastliðinn
felldi Hæstiréttur þann dóm, að
hjónin skyldu flytjast úr íbúð
Sakadómur Reykjavíkur:
Sektaöir fyrir að aflífa
hænsni í Nýlistasafninu
ATTA meðlimir hljómsveitarinnar
Bruna BB hlutu hver um sig tvö
þúsund króna sekt fyrir að hafa í
nóvember 1981 drepið sjö hænsn á
sýningu í húsi Nýlistasafnsins á
Vatnsstígnum undir því yfirskini
að um listviðburð væri að ræða.
Þeim var gert að greiða allan sak-
arkostnað, krónur 4 þúsund og
málsvarnarlaun verjanda síns,
krónur 10 þúsund.
Mennirnir voru ákærðir fyrir
að hafa þann 17. nóvember 1981
haldið dýrasýningu án þess að
. hafa fengið leyfi lögregíustjóra
til þess. Mennirnir voru ákærðir
fyrir að hafa aflífað sjö hænsni
með pappírsskurðarhnífi við
hljóðfæraslátt og ljósaflóð og
kastað hænsnunum hálsskorn-
um í fjörbrotunum yfir áhorf-
endur. Látið svín hlaupa um
blóðvöllinn og auk þess geymt
svínið á salerni safnsins þar sem
það drakk af salernisskál.
Ennfremur var einum mann-
anna gefið að sök að hafa daginn
eftir aflífað þrjú hænsni til við-
bótar á sama stað með pappírs-
skurðarhnífnum.
Þess var krafist að ákærðu
yrðu sviptir rétti til þess að eiga,
nota, hafa í umráðum sínum,
versla með, slátra eða sýsla með
dýr nokkurrar tegundar sam-
kvæmt 19. grein laga um dýra-
vernd.
Mennirnir voru sýknaðir af
kröfu um bann til þess að eiga
dýr, en ákvæði eru í lögunum um
dýravernd, að gerist menn sekir
um stórfellt eða ítrekað brot á
lögunum, þá sé þeim bannað að
eiga dýr eða sýsla með þau. Ekki
var litið svo á að brot ákærðu
væru svo alvarleg.
Því var haldið fram af hálfu
meðlima hljómsveitarinnar að
um listviðburð hefði verið að
ræða og dýrin hefðu verið aflífuð
í þeim tilgangi. Ekki var tekin
afstaða til þess í dóminum hvort
svo væri. En mennirnir voru
dæmdir fyrir brot á reglugerð
um dýragarða og sýningu á dýr-
um og reglugerð um slátrun
búfjár með því að hafa ekki gætt
réttra aðferða við slátrun dýr-
anna. Álit dómsins er því, að um
formbrot hafi verið að ræða,
fremur en beinan vandalisma.
Það er mennirnir voru ekki
dæmdir fyrir að hafa misþyrmt
dýrunum.
Sverrir Einarsson, sakadóm-
ari kvað dóminn upp. Af hálfu
ákæruvaldsins flutti Pétur Guð-
geirsson málið en verjandi
ákærðu var Ragnar Aðalsteins-
son.
sinni að viðlagðri aðför að lögum.
Hjónin töldu að ekki hefði verið
rétt að dómsbirtingu staðið og
kröfðust að málinu yrði vísað
heim í hérað. Fógetaréttur á Ak-
ureyri kvað á um í sumar, að út-
burður bryti í bága við 12. grein
aðfararlaganna frá 1887 og var
þeim úrskurði áfrýjað til Hæsta-
réttar og þess krafist að hann yrði
úr gildi felldur og lagt yrði fyrir
fógeta, að hjónin yrðu borin út.
Hæstiréttur taldi að birting
dómsins hefði verið fullnægjandi
og rétturinn telur að útburði verði
við komið. Hjónin halda umráðum
íbúðar sinnar, en er óheimilt að
búa þar sjálfum. Dómhafi á ekki
rétt á innsetningu í íbúðina.
Ólafur Rafn Jónsson sagði í
samtali við blm. Mbl. í gær, að
málinu væri ekki lokið af hans
hálfu. Það yrði rekið áfram af
krafti fyrir mannréttindadóm-
stólnum í Strassbourg.
Dóminn kváðu upp Hæstarétt-
ardómararnir Þór Vilhjálmsson,
Björn Sveinbjörnsson, Guðmund-
ur Jónsson, Magnús Thoroddsen
og Magnús Þ. Torfason. Guðmund-
ur skilaði séráliti í málinu. Lög-
maður Grímu var Brynjólfur
Kjartansson, hrl., en lögmaður
hjónanna var Guðjón Styrkárs-
son, hrl.
Seðlabankakjallarinn:
Bflar lokast inni
LÖGREGLAN hefur undanfarin kvöld
þurft að aðstoða allmarga grama öku-
menn við að ná bílum sínum út úr
hinni nýju bílageymslu í Seðlabanka-
kjallaranum í Arnarhóli. í fyrrakvöld
voru 10—12 bílar inni í geymslunni
þegar starfsmenn þar lokuðu kl. 18:30
og héldu heim og í gærkvöldi voru þar
einnig allmargir bílar.
Reykvíkingar, sem hafa notað sér
bílastæðin þar, hafa sumir hverjir
talið að geymslan væri opin á meðan
verslanir væru opnar. Svo er þó ekki
og hafa sumir komið að geymslunni
læstri. Lögreglan hefur getað útveg-
að lykil og aðstoðað bíleigendur, sem
ekki hafa allir vandað stofnuninni
kveðjur sínar.
Jón Aðils látinn
JÓN AÐILS, leikari, lést í Reykjavík
í gær 70 ára gamall.
Hann fæddist í Reykjavík 15.
janúar 1913, sonur Jóns Jónssonar
Aðils, prófessors, og Ingileifar
Snæbjarnardóttur Aðils. Hann lék
sitt fyrsta hlutverk hjá Leikfélagi
Reykjavíkur 1931 og starfaði þar
síðan til 1950. Þá lék hann í tólf ár
hjá Þjóðleikhúsinu en hvarf síðan
aftur til starfa hjá Leikfélagi
Reykjavíkur.
Jón Aðils var einn af stofnendum
Félags íslenskra leikara og átti
sæti í stjórn félagsins í nokkur ár.
Hann var einnig formaður Leik-
arafélags Þjóðleikhússins í fjögur
ár.
Hann hafði átt við vanheilsu að
stríða um alllangt skeið. Eftirlif-
andi kona hans er Jóhanna Selma
Böðvarsdóttir.
Jón Aðils