Morgunblaðið - 22.12.1983, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 22.12.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983 23 Oddur Ólafsson, formaður Skyggnis. Sveitin hefur tekið í notkun merki, sem er hannað af einum fé- laga hennar, Björgvini Hreini Guðmundssyni. Meðal annars prýðir merkið húsnæði sveitarinn- ar. Oddur Ólafsson, formaður Skyggnis, þakkar öllum sem hafa lagt sveitinni til ómetanlegan stuðning. Auk Ödds eru í stjórninni Hall- grímur Einarsson, Jón Ingi Bald- vinsson og Þórður Guðmundsson. Félagar eru 18. E.G. „Hafa sýnt mik- inn dugnað við að koma þessari aðstöðu upp“ Vojfum, 5. desember. „SKYGGNIR er yngsta björgunar- sveitin innan Slysavarnafélagsins, og hafa þeir sýnt mikinn dugnað við að koma þessari prýðisaðstöðu upp. Hér hafa þeir aðstöðu fyrir félagsstörf og nauðsyniegustu tæki. Þí hafa þeir ágætis tækjabúnað, t.d. bíl, fjarskipta- tæki og fluglfnutæki,“ sögðu Haraldur Henrysson forseti SVFI og Hannes Hafstein framkvæmdastjóri SVFÍ þeg- ar björgunarskýli var tekið í notkun f Vogum sl. laugardag. Þeir sögðu einnig að það væri markmið Slysavarnafélagsins að hafa björgunarsveitir um allt land, og að vera vakandi fyrir því að stofna sveitir þar sem þörf væri á hverju sinni til að hafa sem sterkasta keðju björgunarsveita í landinu. Björgunarsveitin í Vogum er sú nítugasta og þriðja innan SVFÍ. EG Lionsklúbbur gefur út „Sögu Kópavogs“ SAGA Kópavogs — frumbyggð og hreppsár — er komin út á vegum I.ionsklúbbs Kópavogs, segir í frétta- tilkynningu frá klúbbnum. Ritstjóri er Adolf J. Petersen. Þar er fjallað um tímabilið 1935—55. Auk ritstjórans skrifa þessir menn aðalkafla bókarinnar: Lýður Björnsson, sagnfræðingur, Björn Þorsteinsson, sagnfræðing- ur, Andrés Kristjánsson og Val- geir Sigurðsson, sem ritar nokkur samtöl við frumbyggja Kópavogs- þéttbýlis. — Bókin verður borin til áskrifenda í dag og næstu daga, en einnig er hún til afgreiðslu og sölu í Bókaversluninni Vedu í Hamra- borg í Kópavogi. Seldi í Cuxhaven BJARNI Benediktsson RE seldi afla sinn í Þýskalandi í gær. Var það í síðasta sinn fyrir jól, sem ís- lenskt fiskiskip selur afla sinn fyrir þessi jól. Bjarni seldi alls 128 lestir, mest karfa, í Cuxhaven. Heildarverð var 3.383.975 krónur, meðalverð 26,30. Vandaðar íslenskar hljómplötur til jólagjafa M.A.-kvartettinn og Smárakvartettinn frá Akureyri. Við þessa hugljúfu hljómplötu eru bundnar margar minningar um liðin ár. Hver man ekki eftir þessum lögum: „Laug- ardagskvöld á Gili", „Rokkarnir eru þagn- aðir", og „Upp til fjalla" með M.A.-kvartett- inum, og „Manstu ekki vina" meö Smára- kvartettinum? Öll helstu lög þeirra eru einnig á þessari hljómplötu. Verö kr. 349.00 kr. Fæst einnig í fyrsta sinn á snældu. TÓNLIST GUNNARS THORODDSEN Á hljómplötu þessari er aö finna sannkall- aðar perlur í flutningi fremstu listamanna þjóöarinnar. Meðal flytjenda ber aö nefna hinn stórkostlega baritonsöngvara Kristin Sigmundsson sem kemur hér fram í fyrsta skipti á hljómplötu. Vönduö og eiguleg plata. Verð 399.00 kr. EINSÖNGSPERLUR 14 vinsælustu lög íslensku þjóöarinnar í meir en þrjá áratugi. Fram koma t.d. Stef- án islandi „I dag skein sól", Einar Kristj- ánsson „Hamraborgin", Gunnar Pálsson „Sjá dagar koma", Guömundur Jónsson „Hraustir menn", Erling Ólafsson „Mamma", Hreinn Pálsson „Dalakofinn", Guörún Á. Símonar „Jealousy" og fleiri. Verð aöeins 299.00 kr. RÖGNVALDUR SIGURJÓNSSON Á hljómplötu þessari er aö finna Sýnishorn af píanóleik Rögnvaidar Sigurjónssonar frá ýmsum ttmum á listabraut hans. Er hér bæöi um aö ræöa endurútgáfur fyrri hljóö- ritana og hljóöritanir sem nú koma í fyrsta sinn á plötu. Verö aöeins 349 kr. GULLNA HLIÐIÐ eftir Davíö Stefánsson. Fá eru þau skáldrit sem í líkum mæli og Gulla hliöiö hafa átt þvílíku hlutskipti aö fagna aö vera sígild eign allrar þjóöarinnar. Allir helstu leikarar landsins á fjóröa áratug koma fram i þessu öndvegisverki. Þrjár hljómplötur i setti, auk leikskrár. Verö aöeins 990.00 kr. ISLANDSKLUKKAN eftir Halldór Laxness. Frumuppfærsla Þjóöleikhússins, þar sem fram kemur fjöldi þjóökunnra leikara, t.d. Brynjólfur Jóhann- esson, Lárus Pálsson, Valur Gíslason og fleiri. Leikstjóri var Lárus Pálsson. Fjórar plötur í setti, auk leikskrár. Verð aöeins 1250.00 kr. ■. ■- H ■ ■ ■•■ ■ ENDURMINNINGAR ÚR ÓPERUM Guörún Á. Símonar og Þuríður Pálsdóttir fara hér á kostum á úrvals safnplötu þar sem fram koma ýmsir gestir. Tvær frábær- ar plötur á verði einnar. Verö 399.00 kr. EINAR KRISTJÁNSSON 22 íslensk sönglög Plata þessi inniheldur allar þær upptökur sem gefnar voru út á árunum 1933—1949. Hér fara saman mikil raddgæöi og fáguö túlkun þessa dáöa söngvara sem starfaöi mest á erlendri grund. Verö 349.00 kr. SÖNGKUÐJl 'R SÖNGKVEÐJUR 18 sönglög eftir Sigurö Ágústsson frá Birt- ingarholti viö Ijóö eftir Davíð Stefánsson, Jóhannes úr Kötlum, Einar Benediktsson og fleiri í flutningi sex þekktra söngvara. Verö 399.00 kr. r ji| mjr■ I Ll FALKI Nkl Suöurlandsbraut 8. Sími 84670, Laugavegi 24. I 1 1 Sími 18670, Austurveri Háaleitisbraut. Sími 33360.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.