Morgunblaðið - 22.12.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
3
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
^é&KARNABÆR
■ Auslurstræti 22 Laugavegi 66 Glæsibæ
^ Simi Ira skipliborði 45800
Bonaparte
afe M. Austurstræh 22
GARBfl
Wtom
» Smm •>* •kipl.bð'Ai
Þórarinn Syeinsson læknir um fjárveitingu Alþingis til K-álmu:
Mögulegt að við flytjum
inn eftir u.þ.b. þrjú ár
„VIÐ ERUM mjög þakklátir þeim
sem tóku þessa ákvörðun þar sem
hún gerir mögulegt að það verði
byrjað á framkvæmdum fljótlega og
fjárveitingin gerir það einnig mögu-
legt að við flytjum þarna inn eftir
um það bil þrjú ár“, sagði Þórarinn
Sveinsson læknir á geisladeild
röntgendeildar Landspítalans, er
hann var spurður hvaða áhrif aukn-
ing fjárveitinga til K-álmu Land-
sspítalans í meðfórum Alþingis hefði
fyrir geisladeildina, en hún er á
hrakhólum með húsnæði eins og
fram hefur komið í fréttum.
í fjárlagafrumvarpinu eins og
það var lagt fram á Alþingi í
haust var gert ráð fyrir 2,3 millj.
kr. fjárveitingu til K-álmunnar,
en Alþingi ákvað að hækka þá
fjárveitingu í 12 millj. kr. eða um
9,7 millj. Þórarinn sagði aðspurð-
ur um þessa upphæð, að beðið
hefði verið um 14—15 millj. kr. í
þennan áfanga, þá væru til fjár-
munir frá síðasta ári, þannig að
fjárveitingin nægði fyllilega til
þess sem fyrirhugað væri af yfir-
stjórn að framkvæma á árinu
1984.
Yfirstjórn byggingarinnar mun
hafa nokkra valkosti í sambandi
við byggingu K-álmunnar og sagði
Þórarinn að ef áfangabygging yrði
fyrir valinu þá ætti deildin að geta
flutt inn á árinu 1987 eða 1988. Þá
mundi það einnig þýða að takast
ætti að koma svonefndum línu-
hraðali, geislalækningatæki, í
notkun einu til tveimur árum fyrr.
Þórarinn Sveinsson sagði að
lokum: „Við erum mjög þakklát
þessari fjárveitingu á þessum
kröppu tímum. Þetta getur munað
tveimur til þremur árum, ef
áfangaleiðin verður fyrir valinu.
En það er auðvitað ákvörðun ráð-
herra, þegar þar að kemur, hvaða
byggingarleið verður valin.
Nafn pilts-
ins sem
beið bana
Nafn piltsins, sem beið bana
í umferðarslysi á Eyararb-
akkavegi á föstudagskvöldið
var Guðjón Eggert Einarsson,
til heimilis að Sæbergi á
Stokkseyri. Hann var 17 ára
gamall, fæddur 1. mars 1966.
Guðjón Eggert Einarsson
I >etta er bara smásvnishom af
hinu fjölbreytta úrvali af_
xjysum f vcrslunum okkar
Opiö til kl. 10 í kvöld
til kl. 11 annað kvöld, Þorláksmessu
og til kl. 12 á hádegi aðfangadag.
Lokað 3. í jólum.
4,20% ávöxtun
Framkvæmdasjóðs:
Þetta er
ekkert
yfirboð
Þeir eru með hærri
lántökugjöld, segir
fjármálaráðherra
„ÞETTA er ekkert yfirboð. Þeir
eru með hærri lántökugjöld,
þannig að þetta eru svipuð
kjör,“ sagði Albert Guðmunds-
son fjármálaráðherra, er hann
var spurður álits á því, að Fram-
kvæmdasjóður íslands býður nú
4,20% ávöxtun skuldabréfa sem
lífeyrissjóðirnir kaupa af þeim,
á meðan aðrir sjóðir bjóða allt
að 4,16% ávöxtun.
Mbl. skýrði frá því í gær, að
Framkvæmdasjóður Islands
hefði ákveðið að bjóða 4,20%
vexti umfram verðtryggingu,
á sama tíma og aðrir sjóðir
bjóða allt að 4,16% vexti.
Þegar tilkynnt var um út-
gáfu spariskírteina ríkissjóðs
nýverið með 4,16% vöxtum
gerðu aðilar sem greitt höfðu
3,5% vexti athugasemd, enda
lá þá fyrir að lífeyrissjóðirnir
myndu beina viðskiptum sín-
um til ríkissjóðs. Fjármála-
ráðuneytið gaf þá út tilkynn-
ingu, þar sem fjárfestinga-
lánasjóðunum var heimilað að
bjóða 4,16% vexti af skulda-
bréfum til lífeyrisjóða. Þrátt
fyrir það hefur Framkvæmda-
sjóður íslands nú ákveðið að
bjóða 4,20%.
Eins og að framan greinir
telur fjármálaráðherra að
ekki sé um hærri ávöxtun að
ræða hjá Framkvæmdasjóði
þar sem lántökugjöld hans séu
hærri sem nemur þeim mis-
mun.
Umboðsmenn okkar úti á landi eru:
í Reykjavík: Austurstræti 22 — Laugavegi 20 — Laugavegi 66 — Glæsibæ.
Úti é landi: Eplið ísafiröi — Eyjabær Vestmannaeyjum — Fataval Keflavik — Álfhóll Siglufiröi — Nína Akranesi — Ram
Húsavík — Bakhúsiö Hafnarfiröi — Austurbær Reyöarfiröi — Kaupfól. Rangæinga Hvolsvelli — Sparta Sauöárkróki —
Skógar Egilsstööum — ísbjörninn Borgarnesi — Lea Ólafsvík — Lindin Selfossi — Paloma Vopnafiröi — Patróna Patreksfiröi
— Báran Grindavík — Þórshamar Stykkishólmi — Hornabær Höfn Hornafiröi — Nesbær Neskaupstað — Karnabær Akureyri.