Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
5
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
Þorsteinn og
Svava tilnefnd
„LEIGJANDINN“, skáldsaga Svövu
Jakobsdóttur og „Spjótalög í spegil“
Ijóöabók eftir Þorstein frá Hamri,
hafa verið tilnefnd af íslendinga
hálfu til bókmenntaverölauna Norö-
urlandaráðs. Verða verðlaunin veitt
á næsta fundi ráðsins, snemma árs
1984.
Þá hafa tónverk eftir þá Jón
Nordal og Pál P. Pálsson verið val-
inn til samkeppni um verðlaun
Norðurlandaráðs. Verkin eru
konsert fyrir celló og orgel eftir
Jón og tónlist fyrir klarinett og
hljómsveit eftir Pál. Kunngert
verður um tónlistarverðlaunin í
Osló hinn 30. janúar á næsta ári.
Leigjandinn, skáldsaga Svövu,
hefur verið þýdd á sænsku og
nefnist í þýðingunni Den inne-
boende. Ljóð Þorsteins, Spjótalög í
spegil, hafa einnig verið þýdd á
sænsku, og nefnast þar Spjutstick
mot spegeln, samkvæmt upplýs-
ingum er blaðamaður Morgun-
blaðsins fékk hjá Friðjóni Sig-
urðssyni, skrifstofustjóra Alþing-
is, í gær.
Austurbæjarbíó bætir
við sig tveimur sölum
FYRIR rúmri viku hófust fram-
kvæmdir á annarri hæð Austur-
bæjarbíós þar sem Snorrabær var
áður til húsa, en þar stendur til að
innrétta tvo nýja sýningarsali, ann-
an fyrir 120 manns og hinn fyrir
80—90 manns. Er reiknað með að
stærri salurinn verði tekinn í notk-
un um mánaöamótin febrúar-mars
nk. Heildarsætafjöldi Austurbæj-
arbíós fer því upp í tæp 1000, en
stóri salurinn tekur 787 manns í
sæti.
„Þróunin er sú víðast hvar í
heiminum að stóru bíóin reyna
að koma sér upp smærri sölum
til að nýta myndirnar betur,“
sagði Árni Kristjánsson, for-
stjóri Austurbæjarbíós, og
nefndi sem dæmi að í Kaup-
mannahöfn væri aðeins eitt
stórt kvikmyndahús eftir, hin
hafa látið búta stóru salina
niður í marga smærri.
Til dr. Benjamíns frá
Gylfa Þ. Gíslasyni
í Morgunblaðinu í gær telur dr.
Benjamín H. J. Eiríksson, að ég
hafi tekið villandi til orða í ritgerð
um Bjarna Benediktsson er ég
hafi sagt, að álitsgerð, sem dr.
Benjamín samdi árið 1949 fyrir
þáverandi ríkisstjórn, hafi aldrei
verið birt. Ég hefði átt að segja að
hún hafi aldrei verið birt almenn-
ingi, að sjálfsögðu átti ég við það.
Eins og dr. Benjamín skýrir frá
var álitsgerðin afhent ráðherrum,
þingmönnum og nokkrum öðrum.
Hún var afhent sem trúnaðarmál.
Þess vegna tók ég svo til orða, að
hún hafi ekki verið birt. Það er
rétt hjá dr. Benjamín að hún var
uppistaða í þeirri hagfræðilegu
ilitsgerð hans og Ólafs Björnsson-
ar, sem birt var sem greinargerð
með efnahagsfrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar 1950, en um þá
álitsgerð gat ég einnig í ritgerð-
inni um Bjarna.
Ég skal fúslega fallast á, að
nákvæmara hefði verið að taka
fram að fyrri álitsgerðin hafi ekki
verið birt almenningi. En í orða-
lagi mínu átti engan veginn að fel-
ast, að hún hafi verið „óbirtanleg"
eða að síðari álitsgerðin hafi verið
„betri og nothæf“. Ég vona að um-
mæli mín hafi ekki verið skilin
þannig. Álitsgerð dr. Benjamíns
frá 1949 er hin merkasta, og hef ég
aldrei dregið dul á þá skoðun
mína.
Gylfi Þ. Gíslason
sníður/sýgur/lokar/sker
Ný fljótvirk og handhæg aöferö viö pökkun á mat
lofttæmdar umbúöir í íi lil i lim i .
• Klippir niður og lagar poka í stærðir eftir
þörfum úr plastfilmurúllu sem fylgir.
• Lofttæmir pokann með sjálfvirkum sog-
búnaði.
• Lokar pokanum og gefur til kynna með
Ijósmerki að verkinu sé lokið.
• PIFCO-PAKKARANUM fylgir 10 metra
löng plastfilmurúlla sem á er hvít einkenn
isrönd til áritunar.
• Pokana má setja beint í suðu og í örbylgju
ofna.
• Fyrirliggjandi eru aukarúllur af plastfilm
unni.
j
r JB I m* ■ ■ SUDURLANDSBRAUT 8 ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA rrlLlllllllll SÍMI 84670
Vellíðan með
Andlitsgufubað hreinsar og
fegrar húðina, mýkir og slakar á
andlitsvöðvum. Gefur ferskt og
hraustlegt útlit.
Andlitsgufan losar um
þrengsli í nefgöngum og léttir
óþægindi af völdum kvefs og
nefrennslis.
Andlitsgufan er gerð úr
hvítu traustu plasti og riðfríu
stáli, innbyggðuröryggisrofi,
Ijósblá andlitsgríma með
hlífðarbrún úr mjúku efni.
Verð kr. 1.559,-
nuddi og gufu
Nudd og hiti slakar á spennu
í vöðvum og linar minniháttar
verki í taugum, baki og
fótleggjum.
Hitanuddtæki nuddar og
hitar, tvær stillingar: volgt og
heitt, tvennskonar titringur.
Fimm fylgihlutir til notkunar
á andlit, hársvörð, hálsvöðva m.
— Nuddpúði tengdur tækinu
veitir þægilega afslöppun í baki
og fótum.
Verð frá kr. 1.023.-
FALKIN Nrfewtofe SUÐURLANDSBRAUT8 SÍMI 84670