Morgunblaðið - 22.12.1983, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
15
Sögusteinn
Bókmenntir
Jenna Jensdóttir
Vilborg Dagbjartsdóttir:
SÖGUSTEINN
Blandað efni fyrir börn.
Tekid saman, þýtt, endursagt og
frumsamið.
Myndir: Anna Cynthia Lepler.
Bjallan Reykjavík 1983.
Sögusteinn hefur að geyma
ýmiss konar efni sem Vilborg
Dagbjartsdóttir hefur samið,
þýtt — endursagt eða safnað.
Þar er að finna kínverskt
ævintýri og finnskt ævintýri,
ennfremur þýdd ljóð, leiki, gát-
ur o.fl. af slíku tagi. Þar er
ævintýrið Malin og glerbrúða
gömlu konunnar eftir danska
rithöfundinn Knut Holten. Síð-
ast en ekki síst Á Vestdalseyri,
minningar í söguformi eftir
Vilborgu sjálfa.
Vilborg Dagbjartsdóttir er
að mínu mati flestum íslensk-
um höfundum fremri í því að
ná vel til ungra lesenda og mál
hennar er í senn listilegt og
ríkt að innsæi. Sama hvort hún
ritar eða les — það er eitthvað
Viiborg Dagbjartsdóttir.
töfrandi. Því er ávallt mikill
fengur í bók frá henni.
Þótt ég hafi lesið mér til
ánægju Sögustein, get ég ekki
stillt mig um að segja að mig
langaði til þess að Vestdalseyr-
in ætti þar stærri hlut. Ég vona
að lesendur þurfi ekki lengi að
bíða bókar um æsku höfundar
á Vestdalseyri. Hann er þegar
búinn að gefa okkur innsýn í
litríkan heim bernsku sinnar
— víðar en í þessari sögu.
Anna Cynthia Leplar teiknar
myndir. Þær eru athyglisverð-
ar og sameinast vel texta.
Metsöluhöfundurinn
HeinzCLKonsalik
(ÐUNN
Yfir hverju býr Laila?
Glens og
Bókmenntir
Jenna Jensdóttir
bjartsýni
sögnin iðar af kæti og dregur
fram allt hið spaugilega í fari
frú Pigalopp og raunar allra
bæjarbúa. Ekta grín, sem naut
sín ekki síður í sjónvarpsþáttun-
EYÐIMERKURLÆKNIRINN eftir þýska metsöluhöfundinn
Heinz G. Konsalik, höfund hókarinnar Hjartalceknir Maftunnar.
EYÐIMERKURLÆKNIRINN gefur henni ekkert eftir. — Lceknirinn
Ralf Vandura er í miklu uppáhaldi hjá kvenpjóóinni. Dag nokk-
um er ung kona borin í yfirliöi inn á stofu hans, og áöuren varir
er hann grunaöur um morö. Hann flýr tilMiö-Austurlanda ogger-
ist lceknir hjá arahískum skceruliöasveitum. Þar hittir hann hina
fögru en grimmlyndu Lailu...
Frú Pigalopp og jólapósturinn.
Texti: Bjorn Ronningen.
teikningar: VivianZahl Olsen.
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson.
Æskan 1983.
Hinn vinsæli, norski barna-
bókahöfundur Bjorn Ronningen
samdi þættina um Frú Pigalopp
og jólapóstinn fyrir sjónvarp,
sem „jólaalmanak" og var það
sýnt víða á Norðurlöndum á
jólaföstunni fyrir nokkrum ár-
um, við geysimiklar vinsældir.
Frú Pigalopp ræður sig til
þess að bera út póstinn í
desembermánuði. Árinu áður
hefur hún orðið fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að allur
jólapósturinn sem hún sendi
hvarf bókstaflega nema eitt ein-
asta bréf, sem hafnaði í hennar
eigin póstkassa löngu eftir nýár.
Póstmeistarinn, Pakki, lét rann-
saka þetta dularfulla hvarf jóla-
póstsins hennar en án árangurs.
Og nú er Frú Pigalopp sjálf
farin að bera út jólapóst — í og
með til þess að kynnast því
hvernig jólapóstur getur horfið
svona.
Frú Pigalopp fær mótorhjól
og geisar um götur bæjarins. En
þrátt fyrir góðan vilja er það
ekki þrautalaust fyrir hana að
bera út jólapóstinn. Hún kynn-
ist lífi bæjarbúa og henni er fátt
óviðkomandi; hún er bókstaflega
með nefið niðri í öllum og öllu.
Pósturinn hrúgast upp á póst-
húsinu og á hverju kvöldi stend-
ur Pakki póstmeistari á tröpp-
unum, áhyggjufullur á svipinn.
„Þú kemur seint frú Piga-
lopp...“ „Betra er seint en
aldrei," segir frú Pigalopp.
Af mikilli bjartsýni telur hún
síðan dagana til jóla — og finnst
tíminn nægur.
Þannig líða dagarnir og les-
andinn kynnist dugnaði og
bjartsýni frú Pigalopp um leið
og hann sér bæjarbúa og lífs-
hætti þeirra í hnotskurn. Frá-
um.
Myndir eru bráðskemmtilegar
enda hafa höfundarnir í samein-
ingu hlotið verðlaun fyrir bestu
norsku myndabókina 1981.
Þýðing Guðna eins og venju-
lega — góð.
Kr.
AUK hf Auglysingastofa Kristinar 83 81
Sími 12923-19156
SKIPHOLT1 31
a
Offídal FUm of
the Los Angetes
1984 Ofymptcs
LA OtympK Symbols C 1990LA O* Com TU
HKSH R£SOLUTION
FUJI-liðið er kátt núna.
Framkvæmdanefnd Olympíu-
leikanna i Los Angeles 1984
hefur valið FUJI filmur fyrir allar
myndatökur i sambandi við
Olympíuleikana 1984.
Á Olympíuleikunum eru aðeins
þeir bestu - þeir sem skara fram
úr, - I þeim hópi er FUJI.
Nýlega kom á markað ný FUJI
filma - FUJICOLOR HR, sem gefur
þér bjartari skarpari og litríkari
myndir en áður hefur þekkst.
Nýja FUJICOLOR HR filman markar tímamót í
litfilmuframleiðslu og er örugglega skarpasta
filma, sem þú átt kost á.
Pess vegna á FUJI vel heima á OLympíuleik-
unum - þvi þar eru aðeins þeir bestu.
RJJI PHOTO FILM CO., LTD. I°k9y803Japan/
Við erum
komnir i
Olympíu-
liðið