Morgunblaðið - 22.12.1983, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
21
Hluti silfurgripanna, sem stolið var úr Hallgrímskirkju komnir í kirkjuna á nýjan leik.
„ÞETTA er kærkomin jólagjöf. Við
höfum nú fengið silfurmuni kirkj-
unnar á ný. Skugga þeim er grúfði
yfir Hallgrímskirkju hefur verið lyft.
Við höfum orðið varir við, að fólk
var almennt felmtri slegið yfir þjófn-
aðinum og ekki síður því hugarfari
sem að baki bjó. Mér fannst því
ástæða til þess að biðja fyrir þessum
villuráfandi mannssálum í prédikun
á sunnudag," sagði séra Ragnar
Fjalar Lárusson, sóknarprestur í
Hallgrímskirkju, í samtali við blm.
Mbl. eftir að silfurmunirnir höfðu
verið færðir í kirkjuna í gær.
„Það var sárt að missa þessa
silfurmuni — verðmæti þeirra
verður ekki metið til fjár. Þetta
eru kjörgripir unnir af færum
listamanni, gefnir af góðu fólki í
minningu um látið sómafólk. Við
höfum fundið mikla samúð fólks
— margir hafa hringt til okkar og
komið að máli við okkur vegna
þessa atburðar."
—Verður gripið til ráðstafana
til þess að reyna að fyrirbyggja að
atburður sem þessi endurtaki sig?
„Við höfum verið að huga að
möguleikum á uppsetningu við-
vörunarkerfis. Höfum raunar
fengið tilboð i slíkt kerfi, okkur
jafnvel að kostnaðarlausu. Þetta
er ekki í fyrsta sinn sem brotist er
inn í kirkjuna. Það hefur verið
gert nokkrum sinnum áður — síð-
ast í nóvember síðastliðnum þegar
fé var stolið úr söfnunarbaukum
eftir kristniboðsdaginn. Síðan hef-
ur ekkert fé verið geymt í kirkj-
unni og verður ekki gert.
Ég vil koma á framfæri kæru
þakklæti til Rannsóknarlögreglu
ríkisins fyrir hennar frammistöðu
í þessu máli. Hún var til fyrir-
myndar. Eins vil ég þakka fólki
þann hlýhug, sem það hefur sýnt í
þessum raunum okkar. Það var
ömurlegt að vinna að undirbún-
ingi jólanna í skugga þessa at-
burðar. Nú höfum við er.durheimt
þessa gripi og höfum tekið gleði
okkar á ný,“ sagði séra Ragnar
Fjalar að lokum.
Blönduós:
Rjúpur
teknar
trausta-
taki
Blonduósi, 20. desember.
FRAM til þessa hefur hnupl og
þess áttar óart verið nánast
óþekkt vandamál hér á Blönduósi
og íbúarnir hafa því nokkuð
áhyggjulaust getað geymt iausa-
muni hvers konar utandyra. Nú er
því miður einhver breyting að
verða á þessu, þar sem einhverjir
virðast nú hafa lagt nýjan skilning
í jólaundirbúninginn. Hann er í
því fólginn að þessi frómi maður
eða menn hafa tekið upp þann
ósið að læðast um garða aö næt-
urlagi og taka traustataki rjúpur
sem menn hafa veitt í jólamatinn
fyrir sig og sína.
Þetta hefur komið fólki hér
töluvert á óvart þar sem ekki
var talið að samdráttur í efna-
hagslífi þjóðarinnar væri orðinn
slíkur, að menn þyrftu að stela
sér til matar líkt og kotbændur
forðum daga neyddust stundum
til þegar sulturinn varð hvað
sárastur.
Önnur kreppueinkenni hér
eru þau að nú sjá einhverjir sig
knúna til að lýsa upp hjá sér
jólin með perum stolnum af
jólatré bæjarbúa sem stendur
við kaupfélagið, en um helgina
hurfu 40 perur af jólatrénu.
Óskandi er að á næsta ári rætist
það úr efnahagsmálum þjóðar-
innar að menn þessir geti tekið
upp fyrri siði og farið í Kaupfé-
lagið og Vísi til að kaupa sína
jólasteik og jólaljós. RV
Lagarfossmálið:
Gæzluvarð-
hald fram-
lengt
SÍÐDEGIS f gær var gæzluvarðhald yf-
ir liðlega tvítugum manni framlengt til
15. janúar vegna rannsóknar fíkniefna-
deildar lögreglunnar á Lagarfossmál-
inu svokallaða. Maðurinn var úrskurð-
aður í 45 daga gæzluvarðhald skömmu
eftir að um 5 kfló af hassi, 240 grömm
af amfetamíni og um 20 grömm af
kókaíni fundust um borð í Lagarfossi.
Skipverji viðurkenndi að hafa
flutt fíkniefnin til landsins og hefði
honum verið greitt fyrir að koma
pakka inn í landið. Hann var látinn
laus eftir að gæzluvarðhald rann út.
Nú sitja tveir inni vegna þessa máls.
Úrskurðinum var áfrýjað til Hæsta-
réttar.
Séra Ragnar Fjalar og séra Karl Sigurbjörnsson með krossinn, sem stolið var. Jónas frá Hriflu gaf kirkjunni krossinn til minningar um konu sína.
Silfurmunirnir á ný í Hallgrímskirkju: Morgunbiað.ð KOK.
„Kærkomin jólagjöf ‘
— sagði séra Ragnar
Fjalar Lárusson,
sóknarprestur
í Hallgrímskirkju
Nýstúdentar frá Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi setja upp húfurnar við skólaslitin 18. desember sl.
25 NEMENDUR útskrifuðust frá
Fjölbrautaskóla Suðurlands á Sel-
fossi sl. sunnudag, þar af 20 stúd-
entar. Tveir nemendur útskrifuð-
ust af iðnbraut húsasmiða, tveir af
tveggja ára viðskiptabraut og einn
af iðnbraut húsgagnasmiða.
Um 360 nemendur stunduðu
nám á haustönn í dagskólanum
og um 70 í öldungadeild. Endur-
bætur eru fyrirhugaðar í raf-
magnsdeildinni og m.a. ráðinn
til hennar viðbótarkennari, Frið-
rik Jósepsson, raftæknifræðing-
ur frá Vestmannaeyjum. Tækja-
kostur verður ennfremur efldur
og má í því sambandi geta þess,
segir í fréttatilkynningu frá
skólanum, að rafiðnaðarfyrir-
tækið Árvirkinn sf. á Selfossi
hefur gefið skólanum vandaðan
digital-mæli, sem kemur sér vel
fyrir uppbygginguna.
Kennsla á vorönn 1984 hefst
25 útskrif-
ast frá fjöl-
brautá
Selfossi
Morjfunblaðið/Haukur Gíslason.
miðvikudaginn 11. janúar.
Skólastjóri er Heimir Pálsson.
— Fréttaritari.