Morgunblaðið - 22.12.1983, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
Rit Björns í Sauð-
lauksdal komin út
hjá Búnaðarfélaginu
BÚNAÐARFÉLAG íslands hefur nú
gefíð út í einni bók fjögur rit séra
Bjöms llalldórssonar í Sauólauksdal,
en fræðirit þessa búnaðarfrömuðar 18.
aldar hafa ekki fyrr verið til á letri sem
aðgengilegt er nútísnafólki, þ.e. með
latneskum stöfum. Sr. Björn ( Sauð-
lauksdal var einn af merkustu fræði-
mönnum síns tíma, íslenskumaður,
náttúrafræðingur, frömuður garðrækt-
ar og annarrar garðyrkju. Gísli Krist-
jánsson og Björn Sigfússon hafa búið
bókina til prentunar. En Þorsteinn
Þorsteinsson rekur æviatriði Björns
Halldórssonar, sem uppi var
1728—1794. Er ritið nær 500 síður að
stærð og í því nokkrar myndir.
1 formála segir Jónas Jónsson,
búnaðarmálastjóri m.a.: „Þessi rit
sr. Björns í Sauðlauksdal, er hér
birtast, eru búfræði síns tíma og ein-
ar fyrstu leiðbeiningar í ræktun,
búnaðar- og heimilisháttum, sem
birtust almenningi í landinu. Að
sjálfsögðu hafa þessi fræði sögulegt
gildi fyrir nútímafólk, en þau eru
líka furðu alhliða aldarspegill, sem
sýnir við hvað var búið, af hverju
var lifað og hvað þótti helst horfa til
framfara þegar fyrst var að rofa til í
þjóðfélaginu eftir erfiðar aldir."
Þarna er einnig að finna upphaf
landbúnaðarlöggjafar á síðari tím-
um „nýbýlatilskipunina" og „þúfna-
tilskipunina" sem oft er vitnað til. í
Atla er ungum bónda kennt hvernig
á að búa. f Arnbjörgu er verðandi
húsmóður kennt hvernig ala á upp
börnin í guðsótta og góðum siðum,
stjórna hjúum á heimili og hvað ein-
kennir æruprýdda dáindiskvinnu.
„Það er von Búnaðarfélags íslands
að rit þessi veki enn áhuga fólks og
að bændum, búfræðingum og öðrum
sem láta sig landbúnaðinn og sögu
hans nokkru varða finnist fengur að
þessari bók og er þá tilgangi félags-
ins náð,“ skrifar búnaðarmálastjóri.
Varla von á að
kartöflur lækki
— segir m.a. í athuga-
semd frá Grænmetis-
verslun landbúnaðarins
VEGNA viðtals við Albert Guðmunds-
son í Mbl. 20. desember sl. þar sem
fjármálaráðherra segir, að hann vænti
þess að kartöfluverð í smásölu lækki
vegna lækkaðs fíutningskostnaðar hef-
ur Grænmetisverslun landbúnaðarins
sent Mbl. eftirfarandi athugasemd, en
hún er undirrituð af Gunnlaugi
Björnssyni:
„Ráðherra staðhæfir að kartöflur
lækki eftir að flutningskostnaður á
þeim hefur lækkað. Þetta er að
sjálfsögðu rétt en hann minnist þess
ekki að með ákvörðun ríkisstjórnar-
innar í októberlok um að greiða
niður verð á innfluttum kartöflum,
þannig að þær yrðu á sama verði og
innlendar, var hann þegar búinn að
taka þátt í að lækka útsöluverð, þá í
raun meira en nemur lækkun flutn-
ingsgjalda nú. Ef rétt skal vera rétt,
þá er, eins og áður hefur komið
fram, léttari greiðslubyrði ríkissjóðs
vegna niðurgreiðslna á kartöflur
sem nemur lækkun flutningsgjalda.
Vart er um sérstaka verðlagningu að
ræða vegna útsöluverðs, þegar það
er þegar sett fast með ákvörðun
stjórnvalda, heldur til að finna út
niðurgreiðslur hverju sinni.
Því miður er varla von á að kart-
öflur lækki í verði á líðandi vetri,
nema fyrir aðgerðir stjórnvalda, t.d.
með auknum niðurgreiðslum. Kart-
öfluppskeran í Vestur-Evrópu varð í
minna lagi og þær því dýrar í inn-
kaupi eða allt að tvöföldun verðs frá
síðasta ári. Þá gildir það lögmál að
kartöfluverð hækkar er líður á vet-
urinn þar sem rýrnun, geymsla og
vextir hafa áhrif á verðmyndunina.
Nú er apríl- og maí-verðið 1984 20-
30% hærra en desemberverðið."
Forseti og framkvæmdastjóri SVFÍ ásamt félögum í Skyggni framan við björgunarskýlið.
Björgunarsveitin Skyggnir:
Björgunarskýli tekið
í notkun í Vogunum
Vogum 5. des.
Björgunarsveitin Skyggnir í Vog-
um tók formlega í notkun björgun-
arskýli laugardaginn 3. desember sl.
Forsvarsmenn Slysavarnafélags fs-
lands, Haraldur Henrysson og Hann-
es Hafstein, voru viðstaddir, full-
trúar flestra björgunarsveita á Suð-
urnesjum og margir hreppsbúar. Var
öllum boðið að þiggja kaffi og kökur,
og skoða aðbúnað sveitarinnar. Voru
allir sem blm. ræddi við sammála um
að aðbúnaður sveitarinnar væri hinn
vistlegasti.
Helsti hvatamaður að stofnun
sveitarinnar, Sigurður H. Guð-
jónsson formaður Björgunarsveit-
arinnar Sigurvonar í Sandgerði og
stjórnarmaður SVFÍ, sagði frá-
bært hvað Skyggni hefði tekist á
þeim skamma tíma sem liðinn er
frá stofnun sveitarinnar. Þeir hafa
komið sér upp húsnæði sem upp-
fyllir öll skilyrði sem þörf er á í
dag. Aðstöðu fyrir félagsstörf og
tæki. Þá eru þeir vel birgir á fjar-
skiptasviðinu, hafa fluglínutæki,
og bíl. Þá sagði Sigurður þá ferð
IVATNSLEYSUSTRANDARHR
Merki björgunarsveitarinnar
Skyggnis.
hafa borið góðan árangur sem var
farin fyrir tæplega einu og hálfu
ári til að kanna áhuga fyrir stofn-
un björgunarsveitar, því þremur
vikum seinna var sveit stofnuð.
Sagðist Sigurður mjög ánægður
með driftina sem hefur einkennt
starf Skyggnis.
Samkvæmt upplýsingum Odds
Ólafssonar, formanns Skyggnis,
var sveitin stofnuð 28. ágúst 1982. í
lok þess árs keypti sveitin fokhelt
járnvarið timburhús, tæplega 70
m2 að stærð. Hefur húsið verið inn-
réttað þannig að í húsinu er bíl-
geymsla, búningsklefi, fundarher-
bergi og hreinlætisaðstaða. Að
húsinu, sem stendur afskekkt,
þurfti að leggja veg og lagnir og
tók sveitin að sér að annast þær í
samráði við hreppsnefnd. Þá hefur
verið keyptur bíll, 10 manna Int-
ernational árg. 1967. Af búnaði
hefur sveitin m.a. fluglínutæki,
merkjabyssu og fjarskiptatæki,
sem eru stjórnstöð sem slysa-
varnafélagið afhenti sveitinni í til-
efni dagsins, bílstöð og tvær hand-
stöðvar.
Auk gjafar SVFÍ voru sveitinni
afhentar peningagjafir í tilefni
dagsins og björgunarsveitinar í
Garði og Sandgerði gáfu borðfána.
Áður hafði Kvenfélagið Fjólan
gefið ullarteppi.
Opið til
kl. 20 í
Rvík
LÓGREGLAN hefur beðið Morg-
unblaðið að benda á að sam-
kvæmt hinurn nýju reglum um af-
greiðslutíma verzlana í Reykjavík
er óheimilt að hafa verzlanir opnar
í dag nema til klukkan 20.
Tilefni þess að lögreglan óskar
eftir því að fólk sé áminnt um
heimild þá, sem reglurnar veita,
er að nokkrar verzlanir höfðu aug-
lýst að opið yrði til klukkan 22 í
kvöld. Lögreglan kvað allt eins
víst, að verzlunum yrði lokað, ef
reglurnar yrðu brotnar, en helzt
vildi hún komast hjá því að þurfa
að skipta sér af þessum málum nú
rétt fyrir jólin. Því ákvað hún að
óska eftir birtingu þessarar
áminningar.
Þá má geta þess, að í nágranna-
sveitarfélögum borgarinnar er
heimilt að hafa opið lengur en í
Reykjavík.