Morgunblaðið - 22.12.1983, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
25
Ný tekju- og eignaskattslög:
Skattbyrði sjúkratrygginga-
gjalds og tekjuskatts óbreytt
STJÓRNARFRUMVARP um tekju-
og eignaskatt tók nokkrum breyting-
um í meðförum þingnefndar og Al-
þingis. Hér fer á eftir nefndarálit
meirihluta fjárhags- og vidskipta-
nefndar nedri deildar, sem skýrir vel
efnisatriði frumvarps og þær breyt-
ingar er það tók í meðfórum nefnd-
arinnar.
„Frumvarpið miðast við að
skattbyrði tekjuskatts og sjúkra-
tryggingagjalds verði í heild hin
sama sem hlutfall af tekjum
greiðsluárs á árinu 1984 og var á
árinu 1983. í þjóðhagsáætlun, sem
lögð var fram á Alþingi í október
sl., og í forsendum fjárlagafrum-
varps var reiknað með að tekjur
hækkuðu um 20% milli áranna
1983 og 1984. í samræmi við það
var frumvarpið reist á þeirri for-
sendu að álagning tekjuskatts og
sjúkratryggingagjalds hækkaði
um sama hlutfall, þ.e. 20%, en um
21% að meðtalinni fjölgun gjald-
enda. Nú hafa þessar forsendur
breyst, fyrst og fremst vegna þess
að verulegur aflasamdráttur er
fyrir sjáanlegur á næsta ári. I
kjölfar nýrra upplýsinga um
ástand fiskstofna hefur Þjóð-
hagsstofnun á síðustu dögum unn-
ið að endurskoðun á áætlunum um
tekjubreytingar milli áranna 1983
og 1984. Liggur niðurstaða af
þeirri endurskoðun nú fyrir. Er
áætlað að tekjur á mann á árinu
1984 verði 16,5% hærri en tekjur
voru á árinu 1983. Er þessi áætlun
gerð á eftirfarandi hátt:
þ.e.a.s. jafnmikið og nemur breyt-
ingu á áætluðum tekjum 1984.
Samkvæmt tilefni þessarar lækk-
unar lægi beinast við að tryggja
að lækkunin jafngilti sömu lækk-
un skattbyrði allra framteljenda.
Til þess að ná þessu markmiði
fullkomlega, þyrfti að lækfea
skattprósentur um 3/100 og per-
sónuafslátt og barnabætur um
sama hlutfall. Þannig yrði hæsta
skattprósenta 43,6% í stað 45% í
frumvarpinu, persónuafsláttur
28.470 kr. í stað 29.350 kr. og
barnabætur með 1. barni 5.820 í
stað 6.000.
Meiri hluti nefndarinnar telur
þó rétt að í stað þess verði gengið
enn lengra í ívilnunum til hinna
tekjulægstu og til fjölskyldna með
börn en þegar er gert með þeim
breytingum sem felast í ákvæðum
frumvarpsins. Þannig verði hvorki
persónuafsláttur né heldur barna-
bætur lækkaðar frá ákvæðum
frumvarpsins. Því er óhjákvæmi-
legt að skattbyrði hinna tekju-
hæstu aukist nokkuð. Þess vegna
er lagt til að efsta skattprósentan
lækki einungis í 44%. Á sama hátt
er skattprósenta félaga einungis
lækkuð í 50% en ætti að verða
49,5% samkvæmt fyrrgreindum
forsendum.
Þær breytingar sem flutnings-
menn leggja til á frumvarpinu eru
aðallega þessar:
• 1. Skattstigi tekjuskatts:
Af 0—170 þús. kr. skattstofni: í
stað 23% komi 22,75%
Tekjuforsendur fjárlaga 1983.
Meðalhækkun 1983—1984
(Upplýsingar frá Þjóðhagsstofnun)
Kauptaxtar
Aðrir þættir tekjumyndunar1’
Atvinnutekjur í heild
Tilfærslútekjur o.fl.
Brúttótekjur til skatts
l).Fjölgun á vinnumarkaði og breytingar í atvinnuþátttöku, vinnutími,
áhrif ýmissa sérákvæða og einstaklingsbundinna kjarabreytinga o.fl.
Gert er ráð fyrir að fjölgun á vinnumarkaði nemi u.þ.b. 1%.
Forsendur Breyttar
fjárlagafrumvarps forsendur
og þjóðhagsáætl. fjárlaga
% %
15,0 13,0
4,3 2,7
20,0 16,0
25,0 22,0
21,2 17,5
Til að ná því meginmarkmiði, að
skattbyrði tekjuskatts og sjúkra-
tryggingagjalds verði óbreytt
milli áranna 1983 og 1984, er af
framangreindum ástæðum nauð-
synlegt að gera tillögur um nokkr-
ar breytingar á frumvarpinu.
Tilgangur þessara breytingar-
tillagna er að lækka heildarálagn-
ingu tekjuskatts og sjúkratrygg-
ingagjalds að frádregnum barna-_
bótum og nýttum afslætti um 3%,
tekjuhæstu í samræmi við það
sem fyrr segir.
Tvær aðrar breytingartillögur
eru gerðar við frumvarpið. Önnur
snertir frádrátt vegna fengins
arðs. Sá frádráttur er hækkaður
eins og aðrir slíkir í samræmi við
áætlaða tekjuhækkun milli ár-
anna 1982 og 1983. Hin breyt-
ingartillagan fjallar um fram-
lagningu skattskrár, en laga-
frumvarp þess efnis hlaut ekki
endanlega afgreiðslu á 105. lög-
gjafarþinginu. Með því frumvarpi
fylgdu eftirfarandi athugasemdir:
„Ákvæði um framlagningu á
skattskrá hafa verið í lögum hér á
landi frá því fyrst voru sett al-
menn lög um tekjuskatt á árinu
1921. Þessi ákvæði hafa jafnan
verið skýrð þannig í framkvæmd
að heimil væri opinber birting á
uppiýsingum þeim er fram koma í
skattskrá, og um áratuga skeið
hafa þessar skrár í ýmsum sveit-
arfélögum verið gefnar út og verið
fáanlegar almenningi. I nóvember
sl. komst tölvunefnd hins vegar að
þeirri niðurstöðu að sá aðili, sem
gefið hefur þessar skrár út í
Reykjavík á undanförnum árum,
hefði ekki rétt til slíkrar útgáfu
vegna gjaldársins 1982. Byggði
nefndin afstöðu sína á ákvæðum
laga nr. 63/1981, 98. gr. laga nr.
75/1981 og 37. gr. laga nr. 73/1980.
Þessi úrlausn tölvunefndar orkar
tvímælis að mati fjármálaráðu-
neytisins. Ótvírætt er að birting
upplýsinga úr skattskrá og útgáfa
hennar í heild er til þess fallin að
skapa bæði gjaldendum og skatt-
yfirvöldum virkt aðhald og gegnir
slík birting því að mörgu leyti
sama tilgangi og framlagning
skattskráa. Er mikilvægt að sá að-
gangur, sem almenningur hefur
haft að upplýsingum úr skatt-
skrám á undanförnum áratugum,
verði ekki þrengdur og þar með
tekið fyrir þá umræðu um skatta-
mál er gjarnan fylgir birtingu
þessara upplýsinga."
Alþingi 16. desember 1983.
Páll Pétursson,
Friðrik Sophusson,
Þorsteinn Pálsson,
(iuðm. H. Garðarsson.
Sex þingmenn Sjálfstæðisflokksins:
Leggja fram frumvarp
um umhverfismál
Nokkrir þingmenn Sjálf-
stæðisfiokksins hafa lagt
fram frumvarp til laga um
umhverfismál, en fyrsti flutn-
ingsmaður frumvarpsins er
Gunnar G. Schram.
í athugasemdum með frum-
varpinu kemur m.a. fram að
frumvarpið sé að verulegu leyti
samhljóða frumvarpi um sama
efni sem lagt var fram á Alþingi
árið 1978 og aftur árið 1981. Þó
hafi verið höfð hliðsjón af tillög-
Af 170—340 þús. kr. skattstofni: í
stað 32% komi 31,50%
Af skattstofni yfir 340 þús. kr.: í
stað 45% komi 44,00%
• 2. Skattprósenta félaga verði
50% í stað 51% skv. frumvarpinu.
í stórum dráttum verður dreif-
ing skattbyrði eftir þessar breyt-
ingar mjög svipuð því sem að var
stefnt með frumvarpinu. Þó lækk-
ar skattbyrði flestra undir meðal-
tekjum nokkuð á kostnað hinna
Þingsályktim:
Skipulagðar
og samræmdar
fíkniefnayarnir
Síðasta Samþykkt Alþingis í gær, áður en þingmenn héldu í
jólafrí, fól dómsmálaráðherra að setja á laggir samstarfshóp
löggæzlu- og tollgæzlumanna, er samræmi og skipuleggi auknar
aðgerðir gegn ólöglegum inndutningi og dreifingu ávana- og
fíknicfna og athuga nýjar rannsóknaraðferðir í fíkniefna-
málum. Dómsmálaráðherra tilnefndi formann starfshópsins, en
að öðru leyti skulu aðilar tilnefndir af lögreglu- og tollgæzlu-
yfirvöldum í helztu þéttbýliskjörnum landsins er nú starfa að
ávana- og fíknicfnamálum.
Hópurinn fái einnig það
verkefni að gera tillögur um
úrbætur á sviði toll- og lögg-
æzlu sem nauðsynlegar
kunna að reynast til að fyrir-
byggja innflutning og dreif-
ingu fíkniefna.
um nefndar sem endurskoðaði
frumvarpið árið 1981 og hefðu
sumar tillagnanna verið teknar
upp í þetta frumvarp.
Um tilgang segir í frumvarp-
inu að hann sé að efla alhliða
umhverfisvernd og vinna að
varðveislu náttúrugæða landsins.
Lögunum sé ætlað að stuðla að
sem bestri sambúð lands og þjóð-
ar með því að vernda þau lífs-
gæði sem í óspilltri náttúru
■andsins felast, hreinu lofti og
_-ru vatni.
í frumvarpinu segir að öllum
sé skylt að forðast allt það, sem
valdið getur mengun og öðrum
umhverfisspjöllum í byggð sem
óbyggð og að gera það sem þeim
er unnt til að vernda náttúru-
gæði landsins. Þá er í frumvarp-
inu ákvæði þess efnis að við
ákvörðun um landnýtingu, skipu-
lagningu byggðar og val staða til
atvinnurekstrar og mannvirkja-
gerðar, skuli þess jafnan gætt að
mengun og önnur umhverfis-
röskun verði sem minnst.
Þá segir að þess skuli ætíð
gætt að veita auðlindum íslands
vernd gegn ofnýtingu og hvers
konar skaðlegum umhverfis-
áhrifum. Við nýtingu auðlinda
sem endurnýjast, verði sem kost-
ur er við það miðað að ekki sé
gengið á höfuðstól.
tósmy ncl?IÍ2Í i þojp'no
L\os
w. wmwm
\ i
<xl ,
Haroldur Blöndal
Uósmyodar,nn I
íþorpmu .
I lOO ljósmyndir el"r JJU^!ndirnar eru
\ mondal írá þjóOU b" *
1 merk sögulej1 kei n Ustrænt gtWi.
1 öldinui og hafa víða um landið.
1 myndirnar eru vinsd.tttr skriiar sky -
l lnga kara dirnar.
I \nofbí -rðkr.990.
VANDIÐ
VAUÐ_
það
GERDU VIÐ
bökautgaf^
i fMffí
BOBGABTÚNm
S 18860 - 222^
m