Morgunblaðið - 22.12.1983, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
27
Nýir lyfjatæknar brautskrást
NÝLEGA úLskrifaði Lvfjatæknaskóli
íslands 8 nýja lyfjatækna. Er þetta
níundi hópurinn sem úLskrifast frá
skólanum, en í ár eru liðin rétt 10 ár
frá því að fyrst var sett reglugerð um
nám og starfsréttindi Ij'fjatækna. í
kjölfar þeirrar reglugerðar var skól-
inn svo stofnaður. Hefur skólinn nú
útskrifað um 120 lyfjatækna.
Á myndinni má sjá hina ný-
útskrifuðu lyfjatækna, en þeir eru,
efri röð: Hrafnhildur Svansdóttir,
Birna Björnsdóttir, Ólafur Ólafs-
son, skólastjóri, Steinunn H.
Björnsdóttir og Margrét H. Þór-
isdóttir. Neðri röð: Sigrún L.
Hauksdóttir Helga M. Söebech,
Guðrún Halldórsdóttir og Bára
Samúelsdóttir.
Nám í lyfjatækni tekur 3 ár og
er námið bæði bóklegt og verklegt.
Við skólann starfa að jafnaði sex
kennarar, auk skólastjóra.
Misrétti kvnjanna í algleymi:
Lögreglukonan
var „of falleg“
Lundúnum, 20. desember.
GULLFALLEG 25 ára Ijóska sem
unnið hefur í umferðardeild lögregl-
unnar í Lundúnum um skeið, var
(jáð fyrir skömmu að hún yrði að
víkja úr starfi sínu og flytjast í
göngudeildina á þeim forsendum að
hún „væri of falleg.“ Stúlkan hefur
kært skipanina til jafnréttisráðsins
þar í landi.
Þannig er mál vexti, að ungfrú-
in, Wendy De Launey, hefur skip-
að lögreglubíl með Trevor Att-
field, ögn eldri manni, myndar-
legum fjölskyldumanni. Yfirmað-
ur þeirra beggja, Brian Wallace,
stíaði þeim í sundur af ótta við að
kynni þeirra myndu leiða til ást-
arsambands. Ungfrú De Launey
sagði að Wallace hefði sagt við sig:
„Þegar ég sé ykkur koma saman af
vöktunum, hress og kát, glöð og
hlæjandi þá verð ég afbrýðisamur.
Ef ég væri í bíl með þér myndi ég
dragast að þér og ef þú værir karl-
maður þyrfti ég ekki að grípa til
þessara aðgerða. Og ef andlit þitt
minnti á afturendann á strætis-
vagni væri það líka allt í lagi. En
þið eruð bæði aðlaðandi og ég
óttast þess vegna."
Ungfrúin sagðist aldrei hafa
heyrt aðra eins endemis firru á
ævinni, hér væri gert upp á milli
kynja freklega. „Við Trevor erum
góðir vinir, en það er allt og
sumt,“ sagði hún.
FLÖIN
Vesturgötu 4
Sími: 19260
FLÚIN
Vesturgötu 4
Sími: 19260
FLÓIN
Vesturgötu 4
Sími: 19260
FLOIN
Vesturgötu 4
Sími: 19260
FLÓIN
Vesturgötu 4
Sími: 19260
FLÓIN
Vesturgötu 4
Sími: 19260
RAFTÆKI
Vörumarkaðurinn hf. ármúla ia eostorgi n
J Ávallt á undan