Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
Umræður í efri deild um breytingar á fiskveiðistefnu:
Kvótafyrirkomulagi
komið á til reynslu
„Kvótafyrirkomulag er engum að
skapi, a.m.k. fáum, enda gengur
slíkt fyrirkomulag á móti veiði-
mennskunni sem hefur verið
grundvöllur í sókn okkar í sjávar-
afla. I>egar rætt er um að setja
kvótafyrirkomulag á veiði lands-
manna, þá er um að ræða dæmigert
mál, þar sem hætta er á mistökum.
Og hvað sem gert verður má ætla
það víst að enginn verði sáttur við
sinn hlut,“ sagði Arni Johnsen al-
þingismaður (S), í ræðu í efri deild
Alþingis nýlega, þegar rætt var um
svokallað „kvótafrumvarp" ríkis-
stjórnarinnar.
Árni sagði hins vegar að það
væri til bóta og réttlætti hin
hröðu vinnubrögð sem viðgengist
hefðu í málinu, að mjög víðtækt
samráð hefði verið haft við hags-
munaaðila, sem að mörgu leyti
hefðu haft frumkvæði að um-
ræddri stefnumörkun. Sagði hann
að í fiskveiðistefnumálinu reyndi
virkilega á, en hér væri um að
ræða tilraun og kvaðst hann ekki
hafa ástæðu til að óttast að þar
yrði valdi misbeitt með vilja. „Það
hljóta allir að sjá, að það er ekki
hægt að misbeita slíku valdi í
okkar þjóðfélagi við þær kringum-
stæður sem nú eru. Það þarf og
verður að taka tillit til allra þátta,
alira landshluta, landsbyggðar og
þar kemur kannski það mesta að-
haid, sem stjórnvöld þurfa að hafa
í þessu máli. Samt skulum við
gera okkur fyllilega grein fyrir
því, að ef kvótafyrirkomulagi
verður komið á til bráðabirgða eða
til reynslu, á tilraunastigi, þá
muni enginn verða ánægður. Mál-
ið snýst einfaldlega hins vegar um
það að hafa snör handtök og þess
vegna er ástæðulaust að teygja
nijög lopann. Ég undirstrika hins
vegar, að ég óttast mjög svo afger-
andi kvótafyrirkomulag eins og
svo margir aðrir. Svo afgerandi
kvótafyrirkomulag í sjávarútvegi,
sem rætt er um, jafnvel þótt hér
sé aðeins um tilraun að ræða.
Æðakerfi sjávarútvegsins er svo
margslungið, að það er engan veg-
inn unnt að sjá fyrir endann á
þeirri aðgerð sem um ræðir og
óvissan er mikil. En ég tel að það
verði ekki komist hjá því í stöð-
unni að gera aðgerðir og ég treysti
þeim aðilum, þeim fjölmörgu aðil-
um sem munu verða á næstu vik-
um að vinna þetta mál af fingum
fram, treysti þeim til þess að setja
eins sterkan og burðarmikinn
hrygg í þetta mál eins og nauð-
Árni Johnsen
Valdimar Indriðason
synlegt er til þess að flestir geti
unað svona hæfilega glaðir við
sitt. En hins vegar vil ég líka und-
irstrika það, að ég tel ástæðulaust
að ala um of mikilli svartsýni þó
að þessi tilraun eigi sér stað.
Þarna er merkileg tilraun til þess
að framkvæma ákveðna stjórnun,
ákveðna hagræðingu og ekki er út-
litið svo svart að framundan sé
stórkostlegur vandi. Það þarf
sveigjanleika, sem kemur kannski
á vondum tíma, þegar verið er að
moka hinn margumrædda flór
vinstri stefnunnar, en við getum
ekki beðið lengur og þess vegna
held ég að menn eigi að standa
saman um að ná málum fram og
setja víðtækan og sterkan hrygg í
málið," sagði Árni Johnsen.
Ekki stórfelldar breytingar
Valdimar Indriðason alþingis-
maður (S), sagði við umræðuna að
Mælt fyrir frumvarpi um breytingar á kosningalögum:
Þingstyrkur flokka og framboðsað-
ila verði í samræmi við kjörfylgið
— segir Þorsteinn Pálsson, formaöur Sjálfstæðisfflokks
IKJRSTEINN Pálsson alþingismaó
ur, formaður Sjálfstæðisflokksins,
mælti sl. mánudagskvöld fyrir frum-
varpi til laga um breytingar á lögum
um kosningar til Alþingis, en frum-
varpið er flutt af formönnum fjög-
urra flokka, Sjálfstæðisflokksins,
Framsóknarflokksins, Alþýðubanda-
lagsins og Alþýðuflokksins. í ræðu
sinni lagði Þorsteinn það til að skip-
uð verði sérstök 7 manna nefnd í
báðum deildum þingsins til þess að
fjalla um frumvarpið, en einnig er
ráð fyrir því gert að nefndin fjalli um
frumvarp til staðfestingar á stjórn-
arskrárbreytingu þeirri, sem gerð
var á síðasta þingi.
í ræðu Þorsteins kom m.a. fram
að mál þetta væri framhald af
samkomulagi sem varð á milli
flokka þeirra sem að flutningi
málsins stóðu á síðasta þingi, en
þá var flutt frumvarp til breyt-
inga á stjórnskipunarlögum, en
það felur m.a. í sér að þingmönn-
um verður fjölgað úr 60 í 63.
Síðan sagði Þorsteinn:
„Það eru allmörg ár síðan um-
ræður hófust um nauðsyn breyt-
inga á kosningalöggjöf og kjör-
dæmaskipan. Það var eitt af þeim
verkefnum, sem stjórnarskrár-
nefnd sem skipuð var 1978 fékk til
umfjöllunar, en hún hefur ekki
skilað tillögum um þessi atriði og
þess vegna tóku þingflokkarnir
cjefurn góðgr bakur
og menning
Ötafur Hcukur Símonarson
VÍK MIUI
BRÁÐFYNDIN OG VÆGÐARLAUS SAMTÍMASAGA
í þessari spennandi skáldsögu er spurt um sex-
tíuogátta-kynslóöina - hvar og hvernig er hún nú?
Sagan segir frá hópi fólks sem komið er á
fertugsaldur en hefur haldið saman síðan á ungl-
ingsárunum. Flest voru saman við nám í Kaup-
mannahöfn á árunum glöðu um 1968 þegar framtíð-
in var augljós og hugsjónirnar stórar. Nú eru þau
ár liðin. Hver puðar við sitt, heima og heiman:
Arkitekt, leikkona, vefari, rithöfundur...
Hvað varð um allt það sem þau trúðu á? Hvert
hefur þau borið í leit að lífshamingju? Pétur,
rithöfundurinn í hópnum, raðar atvikum saman og
ekki einhlítt hvað er veruleiki og hvað skáldskapur
hans. Eitt er þó víst: Sú mynd sem dregin er upp
af miðstéttarvíti þessa fyrrum róttæka fólks sprettur
beint úr kviku samtímans.
VÍK MILLI VINA-bókin sem verður aðal um-
ræðuefnið í ár.
Meðal rithöfunda af ungu kynslóðinni á Islandi eru
fáir vinsælli og þekktari en Ólafur Haukur Símonar-
son. Ljóð hans, smásögur og leikrit vöktu strax
verðskuldaða athygli, en þekktastur er hann fyrir
skáldsögur sínar Vatn á myllu kölska, Galeiðuna
oq Almanak jóðvinafélagsins.
Þorsteinn Pálsson
þau mál í sínar hendur á síðasta
þingi og eftir allmikla umfjöllun
náðist það samkomulag sem fram
hefur komið í breytingu á stjórn-
arskránni og því frumvarpi sem
hér liggur fyrir.
Frá 1959 hafa orðið ýmsar
breytingar sem gera nú nauðsyn-
legt að breyta þeirri skipan, sem
verið hefur í gildi á þessu tíma-
bili,“ sagði Þorsteinn.
„í fyrsta lagi hefur misvægi at-
kvæða eftir búsetu aukist frá því
sem samkomulag varð um eða
ákveðið var með löggjöfinni frá
1959 og í öðru lagi þá skortir á, að
jöfnuður ríki á milli flokka í sam-
ræmi við kjörfylgi þeirra. Af þess-
um ástæðum hefur þótt nauðsyn-
legt að breyta þeim reglum, sem
um þessi efni gilda. Það frumvarp
sem hér liggur fyrir gerir ráð fyrir
veigamiklum breytingum. Höfuð-
markmið þeirra er að tryggja, að
þingstyrkur þeirra flokka og
framboðsaðila, sem fá kjörna full-
trúa á Alþingi verði í samræmi við
kjörfylgi þeirra. Allt frá 1959 hef-
ur nokkuð skort á, að samræmi
væri á í þessum efnum. Þannig
hefur vantað 2—6 uppbótarsæti til
að jöfnuðu næðist milli flokka. En
þetta frumvarp miðar svo sem
verða má að því að bæta úr skák í
þessu efni.
í annan stað er það markmið
frumvarpsins að jafna vægi at-
kvæða eftir búsetu. Það hefur ekki
farið framhjá neinum, að það hef-
ur verið verulegur ágreiningur
innan allra flokka um jafnan at-
kvæðisrétt. Eigi að síður er það
svo, að nú er fyrir hendi almenn
viðurkenning á því að leiðréttinga
sé þörf í þessum efnum, þó menn
greini á um það hversu langt eigi
að ganga. Þetta frumvarp gerir
ráð fyrir því að dregið verði úr
misvæginu og það verði heldur
minna eftir þessa breytingu en
það var árið 1959,“ sagði Þor-
steinn.
„f þriðja lagi er það markmið