Morgunblaðið - 22.12.1983, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
29
frumvarpið boðaði ekki stórfelldar
breytingar á veiðiheimildum í
fiskveiðilögsögunni, þó að þær
væru nokkrar. Aðalbreytingin
væri sú að lögfesta yfirstjórnun
veiðanna í hendur sjávarútvegs-
ráðherra, en margir væru þeirrar
skoðunar að vafasamt væri að lög-
gjafinn veiti einum manni svo
mikið vald í slíku stórmáli.
Valdimar sagði að það hefði
tíðkast um áraraðir að sjávarút-
vegsráðherra hefði haft leyfi til að
halda uppi verulegri stjórnun á
fiskveiðum. Vitnaði Valdimar í
ýmsar lagagreinar og vakti at-
hygli á því að Alþingi hefði veitt
sjávarútvegsráðherra mikið vald í
lögum frá árinu 1976.
Þá sagði Valdimar að eftir að
„svarta skýrslan" hefði komið
fram sl. haust hefðu menn farið að
hugsa alvarlegar en áður um það
að lengur yrði ekki undan því vik-
ist að taka upp nýja stjórnun á
fiskveiðimálum þjóðarinnar. „í
nokkur ár hafa þær raddir heyrst
meðal sjómanna og útgerðar-
manna og fleiri aðila að við ættum
að taka upp kvótaskiptingu á
þorskveiðum, eins og gert hefur
verið í ýmsum öðrum veiðiskap, til
dæmis á síld og loðnu. Þessar
raddir fengu lítinn hljómgrunn og
öllu kvótafyrirkomulagi fundið
margt til foráttu, sem von var,
einkum hjá kappsfullum dugn-
aðarskipstjórum, sem fannst að
þeir yrðu settir niður á bekk með-
almennskunnar, og dugnaður og
útsjónarsemi lítils metin," sagði
Valdimar.
„En nú brá svo við á þessu
hausti að aðalfundur Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna
samþykkti á aðalfundi sínum sem
haldinn var á Akureyri, að unnið
skyldi að því að taka upp kvóta-
fyrirkomulag. Hið sama gerði
Fiskiþing sem lauk störfum um
síðustu mánaðamót. Bæði þessi
samtök hafa verið mjög stefnu-
markandi í fiskveiðistefnu og
einkum þó Fiskiþing, sem fjallar
að stærstum hluta um slík mál.
Þar voru gerðar ákveðnar sam-
þykktir um stjórnun fiskveiða.
Þær tillögur sem þar voru sam-
þykktar, eru fylgiskjal með frum-
varpinu," sagði Valdimar.
Þá sagði Valdimar að þegar
frumvarpið kom til umræðu hefðu
sjávarútvegsnefndir beggja deilda
þingsins haldið nokkra sameigin-
lega fundi og kallað fyrir sig all-
marga aðila sem málið snerti.
Segja mætti að það hefði verið álit
þeirra, að undanskildu Félagi ísl.
botnvörpuskipaeigenda, að ekki
væri önnur leið fær, en að taka
upp einhverskonar kvótafyrir-
komulag á fiskveiðum.
með frumvarpinu að auka áhrif
kjósenda á val frambjóðenda. Frá
því að núverandi kjördæmaskipan
og kosningareglur tóku gildi hafa
þróast í stjórnmálaflokkunum
nýjar reglur sem miða að því að
auka áhrifavald kjósenda um val
frambjóðenda. Flokkarnir hafa
tekið upp prófkosningar í ýmsu
formi, en það hefur ekki náðst
samstaða um samræmdar reglur
eða framkvæmd á vali frambjóð-
enda með þessum hætti og því hef-
ur þótt nauðsynlegt að auka
áhrifavald kjósenda í þessum efn-
um. Frumvarpið gerir ráð fyrir
því að ákvörðunarvald kjósenda
um röð frambjóðenda vegi jafnt á
við ákvörðunarvald framboðsað-
ila, en fram að þessu hefur hluti
kjósenda aðeins verið þriðjungur á
móti valdi framboðsaðila. Það
hafa alltaf orðið mjög harðvítug
átök þegar breytingar á kosn-
ingalöggjöf og kjördæmaskipan
hafa átt sér stað. Alþingi hefur
klofnað í fylkingar og miklar deil-
ur hafa staðið með þjóðinni um
þessi mikilvægu efni, sem skipta
lýðréttindi í landinu miklu máli.
Það heyrir því til mikilla tíðinda,
þegar samkomulag hefur orðið um
það meðal stærstu flokka þingsins
að leggja fram frumvarp sem
þetta til breytinga á kosninga-
löggjöf. Það er mikilvægur áfangi
og markar óneitanlega þáttaskil í
störfum Alþingis," sagði Þor-
steinn.
„Auðvitað kunna að vera skipt-
ar skoðanir um ágæti þessa frum-
varps. Það ber auðvitað þess
merki, að um er að ræða mála-
miðlun milli ólíkra skoðana. En
það eru engar sættir í þjóðfé-
laginu um áframhaldandi skipan
mála eins og verið hefur vegna
þess misgengis, sem orðið hefur í
vægi atkvæða og vegna hins, að
núverandi skipan hefur ekki
tryggt þingstyrk í fullu samræmi
við kjörfylgi. Breytingar eru af
þessum sökum óhjákvæmilegar og
því er þetta mál nú lagt fyrir Al-
þingi í frumvarpi á nýjan leik eftir
að það hafði á fyrra þingi verið
kynnt með þeirri stjórnarskrár-
breytingu sem þá var ákveðin,"
sagði Þorsteinn Pálsson.
Samband sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi:
Lýsir furðu á umfjöllun
um tekjur sveitarfélaga
Á fundi framkvæmdaráðs Sam-
bands sveitarfélaga í Austur-
landskjördæmi, sem haldinn var á
Kgilsstöðum hinn 12. des. sl., var
eftirfarandi ályktun samþykkt og
óskað eftir að hún verði birt í fjöl-
miðlum:
„Framkvæmdaráð Sambands
sveitarfélaga í Austurlands-
kjördæmi, lýsir furðu sinni yfir
einhliða umfjöllun fjölmiðla á
tekjum sveitarfélaga og álagn-
ingu gjalda þeirra á næsta ári.
Bendir framkvæmdaráðið á, að
undanfarin ár hafa tekjur sveit-
arfélaganna rýrnað mjög að
raungildi í verðbólgubálinu.
Hafa því mjög mörg þeirra safn-
að miklum skuldum. Það hlýtur
því að vera misjafnt hver fjár-
þörf þeirra er, og ekki raunhæft
að tala um öll sveitarfélög í
sama orðinu."
Barnapakki
kr.
4.227
Unglingapakki%>
Racer 100/130 cm 1.795
Maya-skór 26—30 1.195
Stafir 259
Bindingar frá 978
Racer-skíöi 140/170 cm 2.360|
Junior-skór 32—36 1.399
Stafir 259
Bindingar frá 978
Fyrir fullorðn
Cup Star
175/190 cm 3.750
Stefan-skór frá 1.777
Bindingar frá 1.022
Stafir 430
Gönguskíðap
Póstsendum
Touring VM 1.995
Skór 1.170
Bindingar 220
Stafir 395
Opiö til kl. 20 þriöjudag og
miðvikudag og til kl. 22 fimmtudag
KRE OITKORT
ÍUROCABÐ
SPORTBUÐIN
Ármúla 38 — sími 83555
Opíð í kvöld til kl*20
HAGKAUP
Skeifunni 15
Reykjavík