Morgunblaðið - 22.12.1983, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
Hjá Búnaðarfélagi íslands eru komin út:
RIT BJÖRNS HALLDÓRSSONAR
í SAUÐLAUKSDAL
Þingsályktun:
Samræmdar fíkniefnayarnir
• ATLI • ARNBJÖRG
• GRASNYTJAR og
• KORTE BERETNINGER.
Þessi rit hins kunna fræði-
manns séra Björns Hall-
dórssonar í Sauðlauksdal (f.
1724 - d. 1794) hafa ekki
áður birst í aðgengilegu
formi fyrir nútíma lesendur.
Sr. Björn í Sauðlauksdal var
fjölhæfur fræðimaður, ís-
lenskumaður og orðabókar-
höfundur, náttúrufræðingur
og mikili frömuður garð-
ræktar og annarrar jarð-
yrkju.
Ritin eru búfræði sinnar
aldar og jafnframt glöggur
og alhliða aldarspegill, sem
sýnir við hvað var búið, af
hverju var lifað og hvað
helst þótti horfa til framfara
þegar fyrst tók að rofa til
eftir erfiðar aldir.
í ATLA er ungum bónda kennt að búa.
í ARNBJÖRGU er verðandi húsmóður kennt hvemig á að
stjóma hjúum og heimili, ala upp börnin í guðsótta og góð-
um siðum og hvað einkennir æmprýdda dáindiskvinnu.
Ómissandi bók fyrir þá sem hafa áhuga á sögu og fornum búháttum.
Bókin fæst hjá Búnadarfélagi íslands og bóksölum.
Þjóðarvoði, ef ekki verður brugðizt við með samræmd-
um aðgerðum, sagði Guðmundur H. Garðarsson
GUÐMUNDUR H. Garðarsson (S)
mKtli á síðasta degi þings fyrir
nefndaráliti allsherjarnefndar Sam-
einaðs þings um skipulagðar aðgerð-
ir gegn ólöglegum innflutningi og
dreifingu ávana- og fíkniefna.
Nefndin lagði til að tillaga (Jóhönnu
Sigurðardóttur) yrði samþykkt, með
minni háttar breytingum, og orðist
svo:
„Alþingi ályktar að skora á
dómsmálaráðherra að koma nú
þegar á samstarfshópi löggæslu-
og tollgæslumanna er samræmi go
skipuleggi auknar aðgerðir gegn
ólöglegum innflutningi og dreif-
ingu ávana- og fíkniefna og athugi
nýjar rannsóknaraðferðir í fíknin-
efnamálum.
Dómsmálaráðherra tilnefni
formann samstarfshópsins, en að
öðru leyti skulu aðilar tilnefndir
af lögreglu- og tollgæslufyrvöld-
um í helstu þéttbýliskjörnum
landsins er nú starfa að ávana- og
fíkniefnamálum.
Samstarfshópurinn vinni í nánu
samstarfi við löggæslu- og tollg-
æslumenn í öðrum lögsagnarumd-
æmum og tollhöfnum út um allt
land.
Samstarfshópurinn fái einnig
það verkefni að gera tillögur um
úrbætur á sviði toll- og löggæslu
sem nauðsynlegar kunna að reyn-
ast til að fyrirbyggja dreifiiígu og
innflutning fíkniefna. Niðurstöð-
um skal skila til dómsmálaráðun-
eytisins eigi síðar en 1. mars nk.“
Guðmundur sagði þessum
starfshópi falið viðkvæmt og erfitt
verkefni, að reisa varnir gegn
þeim þjóðarvoða, er aukin fíkni-
efnaneyzla á íslandi sé í raun.
Miklar kröfur séu gerðar til
þeirra, sem varnir annast á þessu
sviði, án þess að þeim hafi verið
sköpuð enn sem komið er full-
nægjandi starfsskilyrði.
Guðmundur ræddi um alþjóð-
lega glæpahringi, sem víða teygðu
arma, og tældu reynslulítið fólk til
neyzlu ávanaefna. Ekki sé lengur
hægt að loka augunum fyrir því að
ítolsk'biita
Úrval af ítölskum Ijósum í loft - á veggi - á borð - á gólf -
hvar sem þörf er fyrir mjúka lifandi lýsingu.
íbúðin fær hlýja birtu og blæ með Ijósi frá okkur.
Þú gengur að gæðunum vísum.
Sérverslun með listræna húsmuni
Borgartúni 29 Sími 20640
Guðmundur H. Garðarsson
þetta vandamál hafi fest rætur
hér á landi, á liðnum árum, og all-
tof margir hafi orðið fíkniefnum
að bráð. Þessari óheillaþróun
verði að mæta með öllum tiltæk-
um ráðum. Sú tillaga sem hér hef-
ur náðst samstaða um, er liður í
þessari varnarbaráttu. Þegar hef-
ur verið unnið mikið starf, bæðiaf
hálfu löggsæzlu- og tollgæzluað-
ila, sem og annarra dómsvands- og
réttarfarsaðila, er um þessi mál
fjalla. Þetta starf þarf hins vegar
að efla og þess vegna er nauðsynl-
egt að Alþingi leggi hönd á plóg-
inn. í fjárlögum næsta árs er
verulegum fjármunum varið í
þessum tilgangi.
Tillagan var samþykkt sam-
hljóða.
Upptækur hagnaður
af sölu fíkniefna:
Gangi til fyr-
irbyggjandi
aðgerða
í FRÁSÖGN Mbl. af fjárlaga-
afgreiðslu í gær féll niður að
geta þess að Alþingi samþykkti
breytingartillögu frá Jóhönnu
Sigurðardóttur og Eiði Guðna-
syni, þingmönnum Alþýðu-
flokks, þess efnis, að framvegis
skuli verja upptækum hagnaði
af sölu ávana- og fíkniefna til
fyrirbyggjandi aðgerða gegn
dreifingu slíkra eiturefna.
Leiðrétting:
Jónína kjörin í
stjórnarnefnd
í frásögn Mbl. sl. miðvikudag af
kjöri Alþingis í stjórnarnefnd
ríkisspítalanna varð misritun í
nafni eins nefndarmanns. Kjör-
in var Jónína Mikaelsdóttir
(ekki Jóhanna). Velvirðingar er
beðizt á þessum mistökum.