Morgunblaðið - 22.12.1983, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
— UMSJÓN SIGHVATUR BLÖNDAHL —
GENGISÞRÓUNiN VIKURNAR 5.-9 OG 12. 16. DESEMBER 1983
wá. |»t. iwv ftm hittt má ►f rmðv
42*
1£
42,0
41*
41, °
40.5
má þr m«v. hm fost má þr miþy fim tin.
1 D.kr.
2.94
292
290
298*
286
2,84...................P , •
mi lir.ffwv fim mt.ini. |tr. miov fim. fon
Brezka pundið
Brezka pundið lækkaði um
0,65% í síðustu viku, en í upphafi
vikunnar var sölugengi pundsins
41,055 krónur, en sl. föstudag var
það hins vegar skráð 40,732 krón-
ur. Frá áramótum hefur sölugengi
brezka pundsins hækkað um
52,02%, en í ársbyrjun var sölu-
gengi brezka pundsins skráð
26,831 krónur.
Danska krónan
Verð á danskri krónu hækkaði
um 0,02% í liðinni viku, en í viku-
byrjun var sölugengi hennar skráð
2,8675 krónur, en sl. föstudag var
sölugengi dönsku krónunnar skráð
2,8682 krónur. Frá áramótum hef-
ur sölugengi dönsku krónunnar
hækkað um 44,49%, en í ársbyrjun
var það skráð 1,9851 króna.
Vestur-þýzka markið
Vestur-þýzka markið lækkaði
um 0,12% í verði í síðustu viku, en
í vikubyrjun var sölugengi þess
skráð 10,3924 krónur, en sl. föstu-
dag hins vegar 10,3800 krónur. Frá
áramótum hefur verð á þýzka
markinu hækkað um 48,19% í
verði, en í ársbyrjun var sölugengi
þess skráð 7,0046 krónur.
Janúar — nóvember:
Dollaraverð
hækkaði um
0,42% í sl. viku
— pundið lækkaöi, danska krónan og markið hækkuðu
DOLLARI hækkaði um 0,42% í verði í liðinni viku, en í vikubyrjun var
sölugengi Randaríkjadollars skráð 28,630 krónur, en sl. fostudag hins vegar
28,750 krónur. Frá áramótum hefur dollaraverð hækkað um 72,67%, en í
ársbyrjun var sölugengi Bandaríkjadolldars skráð 16,650 krónur.
Verulega hefur dregið
úr vöruskiptahallanum
— Vöruskiptajöfnuður var eigi aö síð-
ur neikvæður um 1.677,3 milljónir króna
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR landsmanna var neikvæður um tæplega 116,2
milljónir króna í nóvembermánuði sl., en til samanburðar var hann neikvæð-
ur um liðlega 444,6 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Staðan hefur því
skánað verulega milli ára.
Verðmæti innflutnings í nóv-
embermánuði sl. var liðlega
2.057,9 milljónir króna, en verð-
mæti útflutnings var hins vegar
liðlega 1.941,7 milljónir króna. Til
samanburðar var verðmæti inn-
flutnings á sama tíma í fyrra lið-
lega 1.378,2 milljónir króna, en
verðmæti útflutnings hins vegar
liðlega 933,6 milljónir króna.
Vöruskiptajöfnuður lands-
manna var neikvæður um liðlega
1.677,3 milljónir króna fyrstu ell-
efu mánuði ársins, en til saman-
burðar hann neikvæður um liðlega
3.249,0 milljónir króna á sama
tíma í fyrra.
Verðmæti innflutnings fyrstu
ellefu mánuði ársins var tæplega
18.299,2 milljónir króna, en verð-
mæti útflutnings hins vegar lið-
lega 16.621,8 milljónir króna. Þá
má geta þess, að verðmæti inn-
flutnings fyrstu ellefu mánuðina á
síðasta ári var liðlega 10.508,1
milljón króna, en verðmæti út-
flutnings hins vegar liðlega 7.259,1
milljón króna.
Við samanburð á utanríkis-
verzlunartölum 1982 verður að
hafa í huga, að meðalgengi erlends
gjaldeyris í janúar/nóvember 1983
er talið vera 93,2% hærra en það
var í sömu mánuðum 1982. í þessu
sambandi er rétt að rifja upp, að
innflutningur hefur aukizt um
74,1% milli ára í verðmæti talið.
Útflutningur jókst á sama tíma-
bili um tæplega 129% í verðmæti
talið.
I útflutningi vegur útflutningur
áls og álmelmis þyngst, en verð-
mæti þess útflutnings var liðlega
2.976,7 milljónir króna fyrstu ell-
efu mánuði ársins, en til saman-
burðar nam verðmætið á sama
tíma tæplega 703,7 milljónum
króna. Útflutningur á áli og ál-
melmi hefur því aukizt um liðlega
323% í verðmætum talið á um-
ræddu ellefu mánaða tímabili. Út-
flutningur á kísiljárni var að verð-
mæti tæplega 585,9 milljónir
króna fyrstu ellefu mánuði ársins,
en til samanburðar var verðmætið
á sama tíma í fyrra tæplega
207,9%. Aukningin milli ára er því
tæplega 182% í verðmætum.
I innflutningi vegur innflutn-
ingur fyrir Tslenzka álfélagið
þyngst, en verðmæti þess inn-
flutnings var tæplega 1.425,7
milljónir króna fyrstu ellefu mán-
uðina í ár, en til samanburðar var
verðmæti þess innflutnings á
sama tíma í fyrra tæplega 635,5
milljónir króna. Aukningin milli
ára er því liðlega 123,4%.
Innflutningur fyrir íslenzka
járnblendifélagið var að verðmæti
tæplega 238,8 milljónir króna, en
til samanburðar var verðmæti lið-
lega 121,8 milljónir króna á sama
tíma í fyrra.
Gjaldeyrisforði Seðlabanka hefur rýrnað milli ára:
Gjaldeyrisstaða viðskipta-
banka neikvæð um 342 millj.
GJALDEYRISFORDI Seðlabanka íslands var í októberlok sl. að verðmæti
4.214 milljónir króna, en var til samanburðar að verðmæti 2.637 milljónir
króna á sama tíma í fyrra. Aukningin milli ára er um 59,8%. Hækkun gengis
Bandaríkjadollars miBi ára er hins vegar liðlega 76,5%, eða 27,89 krónur á
móti 15,80 krónum. Gjaldeyrisforðinn hefur því rýrnað nokkuð milli ára.
Gulleign Seðlabankans í októ-
berlok var um 50 milljónir króna
en nam 28 milljónum kr. á sama
tíma í fyrra. Frjáls gjaldeyrir
Seðlabankans nam 4.138 milljón-
um króna í októberlok, en til
samanburðar nam hann 2.450
milljónum króna á sama tíma í
fyrra. Aukningin milli ára er
68,9%.
Nettóstaða Seðlabanka var í
októberlok 2.540 milljónir króna,
en var til samanburðar 1.490
milljónir króna á sama tíma í
fyrra. Aukningin milli ára er því
tæplega 70,5%.
Erlendar eignir viðskiptabar.k-
anna námu í októberlok 452 millj-
ónum króna, en til samanburðar
námu þær 277 milljónum króna á
sama tíma í fyrra. Aukningin
milli ára er því 63,18%. Erlendar
skuldir námu hins vegar 794 millj-
ónum króna, en til samanburðar
um 400 milljónum króna á sama
tíma í fyrra. Erlendar skuldir
hafa því nær tvöfaldast milli ára.
Nettóstaða viðskiptabankanna
var því neikvæð um 342 milljónir
króna í októberlok sl., en til sam-
anburðar var hún neikvæð um 123
milljónir króna á sama tíma í
fyrra.
*
Avísanaviðskipti janúar — október:
Tékkum fjölg-
aði um 7,8%
milli ára
— Meðalupphæðir hlutfallslega lægri en nemur viðskiptunum
ÁVÍSANAVIÐSKIPTI námu samtals 87.794 milljónum króna fyrstu
tíu mánuði ársins, en til samanburðar námu þau 51.250 milljónum
króna á sama tíma í fyrra. Aukningin milli ára er því liðlega 71,3%.
Mánaðarmeðaltal var 8.779 milljónir króna á móti 5.125 milljónum
króna á sama tíma í fyrra.
Fjöldi tékka fyrstu tíu mánuði
ársins var 9.775.000, en til sam-
anburðar um 9.067.000 á sama
tíma í fyrra. Þeim hefur því fjölg-
að um 7,8% milli ára.
Meðalupphæð tékks fyrstu tíu
mánuði ársins var um 8.981 króna,
en til samanburðar var meðal-
upphæðin um 5.652 krónur á sama
tíma í fyrra. Meðalupphæðir hafa
því aðeins hækkað um 58,9%, eða
mun minna en nemur viðskiptun-
um.
Ávísanaviðskipti í október
námu samtals 10.740 milljónum
króna, en til samanburðar námu
þau 6.053 milljónum króna á sama
tíma í fyrra. Aukningin milli ára
er um 81,2%.
Heildarfjöldi tékka var í októ-
ber samtals 1.021.000, en til sam-
anburðar var heildarfjöldinn í
október á síðasta ári 953.000.
Aukningin milli ára er því liðlega
7,1%. Meðalupphæð tékka í októ-
ber var um 10.740 krónur, en var
til samanburðar um 6.352 krónur
á sama tíma í fyrra. Hækkun
þeirra milli ára er því liðlega 69%.