Morgunblaðið - 22.12.1983, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
33
Húsaleiga
hækkar
í janúar
SAMKVÆMT ákvæðum í bráöa-
birgðalögum mun leiga fyrir íbúðar-
húsnæði og atvinnuhúsnæði, sem
lögin taka til, hækka um 4% frá og
með janúarbyrjun 1984, að því er
segir í frétt frá hagstofu fslands.
um 4%
nk.
í frétt hagstofu íslands segir, að
hækkun þessi miðist við þá leigu,
sem er í desember 1983. Janúar-
leiga helzt óbreytt tvo næstu mán-
uði, þ.e. ferbrúar og marz 1984.
SEHM-herrafata-
sýningin haldin í
París dagana 4.—
7. febrúar
DAGANA 4.—7. febrúar 1984 verð-
ur haldin í París herrafatasýningin
„SEHM“ á sýningarsvæðinu við
Porte de Versailles í París.
Kynnt verður haust- og vetrar-
tízkan 1984—1985 og höfð verður
aukasýning á vor- og sumartízk-
unni 1984.
Herrafataframleiðendur frá
fjölmörgum löndum munu sýna
m.a. yfirhafnir, skyrtur, peysur,
hálsbindi, hatta, belti og aðra
fylgihluti.
Þessi sýning er einungis ætluð
kaupmönnum og framleiðendum.
Nánari upplýsingar er hægt að
fá hjá franska verzlunarfulltrúan-
um í Reykjavík.
Hafskip opnar eigin
skrifstofu í Hollandi
— Bragi Ragnarsson ráðinn framkvæmdastjóri
FIMMTA svæðisskrifstofa Hafskips hf. erlendis tekur til starfa i Rott-
erdam í Hollandi fljótlega á næsta ári, en hún mun rekin af dótturfyr-
irtæki félagsins, Hafskip (Nederland) BV. Þegar hafa verið ráðnir tveir
menn til að undirbúa stofnun skrifstofunnar, en þeir munu síðan veita
henni forstöðu.
Bragi Ragnarsson verður
framkvæmdastjóri áætlana-
flutningadeildar, en Wim Van
der Aa framkv.stj. miðstöðvar
Evrópuviðskipta fyrir Cosmos
Shipping Co. Incorp., sem er
dótturfyrirtæki Hafskips í
Bandaríkjunum.
Bragi er 41 árs gamall ísfirð-
ingur og lauk prófi frá
Samvinnuskólanum 1962. Hann
hefur m.a. verið framkv.stj.
Sandfells hf. á ísafirði 1965—67,
framkv.stj. Kristjáns Ó. Skag-
fjörð hf. 1971—78, rak eigið
fyrirtæki, Handíð, 1978—80 og
var ráðgjafi í þróunarstörfum í
Tansaníu frá 1981 fram á mitt ár
1983.
Wim Van der Aa er 42 ára
gamall Hollendingur, sem hefur
20 ára reynslu í flutningsmiðlun.
Hann starfaði m.a. um árabil
hjá Frans Maas BV í Rotterdam,
en það er flutningsmiðlunarfyr-
irtæki, sem hefur talsverð við-
skipti við ísland. Og kynntist
Van der Aa íslenskan aðstæðum
náið í gegnum störf sín á þeim
vettvangi.
Rækjuveiði
við Kolbeinsey
Siglufirði, 20. deMember.
í DAG kom hingað inn Sænes frá Dal-
vík með fjögur og hálft tonn af góðri
rækju, scra skipið hafði fengið við
Kolbeinsey í aðeins fjórum „hollum".
Er rækjan stór og falleg og má af þess-
ari veiði ráða að þarna megi veiða
rækju allan ársins hring.
Rækjan af Kolbeinseyjarmiðum
fer til vinnslu hjá Siglósíld hér á
Siglufirði.
— Fréttaritari.
Ný bók frá Skákprenti:
Smásagnasafn
eftir Ólaf Ormsson
ÚT ER komið hjá Skákprenti hf.
nýtt smásagnasafn, „Skringilegt
mannlíf“ eftir Ólaf Ormsson. í
smásagnasafni þessu eru átta smá-
Ólafur Ormsson
sögur, sem allar fjalla um skopleg-
ar hliðar á mannlífinu.
Nokkrar sagnanna hafa birst
áður í útvarpi og Lesbók Morg-
unblaðsins, aðrar eru nú frum-
birtar. Smásagnasafnið er tæp-
lega eitt hundrað blaðsíður að
stærð.
Ólafur Ormsson hefur áður
sent frá sér tvær skáldsögur,
„Stútungspunga" árið 1979 og
„Boðið upp í dans“ árið 1982. Þá
hafa einnig komið út eftir hann
tvær ljóðabækur, árin 1973 og
1976.
Utgefandi smásagnasafnsins
er sem fyrr segir Skákprent hf.
Miklar hrossa-
kjötsbirgðir
ÞANN 1. desember síðastliðinn voru
yfir 760 tonn af hrossakjöti ti! í
birgðum í landinu. Að sögn Gunnars
Guðbjartssonar framkvæmdastjóra
Framleiðsluráðs landbúnaðarins eru
þetta óvenju miklar birgðir en þær
samsvara um það bil eins árs neyslu
hrossakjöts í landinu. Sagði Gunnar
að vegna þessa væri nauðsynlegt að
halda áfram útflutningi hrossakjöts
í eins miklum mæli og kostur væri á.
/TIGIk
BRUNSLEDI
meiriháttar
trylUtæki!
mpft stvri nn nrvnnishrpm«nm nn hi'i
með stýri og öryggisbremsum og þú
getur sveigt, beygt og bremsað að vild. Stiga
brunsleðinn er níðsterkur: Hann ber jafnt börn
sem fullorðna.
Með stýrisskíðinu nærðu krappri beygju. örugg handbremsa við
Skíðin eru úr þrælsterku Etan-plasti og allar aðstæður og varn-
renna því mjög vel. argrind fyrir framan
fæturna.
Með sérhönnuðum útbúnaði
sveigir sleðinn til hliðar og
stöðvast sjálfkrafa ef þú missir
hann.
ÖRNINN
Spítalastíg 8 vióÓóinstorg símar: 14661,26888