Morgunblaðið - 22.12.1983, Síða 35
um um það hvað hver og einn tæki
sér fyrir hendur.
Nú hafa orðið kaflaskil, við höf-
um ekki lengur afa til að veita
okkur hvatningarorð og uppörvun,
ást og hlýju eins og áður. Eitt er
þó víst að við eigum minningu um
afann sem kenndi okkur að takast
á við sérhvern vanda með brosi á
vör, trúfestu og jákvæðu hugar-
fari. Við eigum minningu um ást-
vin sem geislaði af birtu — birtu
er ávallt lýsi hjörtu okkar og ann-
arra. Slík minning er dýrmæt
sérhverjum einstaklingi og gott
veganesti um hina vandrötuðu
vegi lífsins.
Eg votta eftirlifandi eiginkonu
hans, Ingibjörgu, mína dýpstu
samúð og bið þess að einveran
verði henni ekki þung í skauti.
Ég þakka samfylgdina og allar
þær ánægjustundir er ég hef orðið
aðnjótandi með honum og kveð
hann með eftirfarandi kvæði
Kjartans Ólafssonar.
Þæg er hvíldin, þyngist fæti
þegar hallar ævidegi.
Gott færð þú hjá Guði sæti,
genginn dauðans huldu vegi.
Verkin góðu — varðinn bezti,
við þér blasir fyrir stafni.
Veglegt er þitt veganesti.
Vertu sæll í Drottins nafni.
Martha Eiríksdóttir
Við lát vinar okkar, Jóns Ei-
ríkssonar, koma í hugann margar
góðar minningar og þá sérstak-
lega minningar um samverustund-
ir í stúkunni okkar.
Jón Eiríksson var í mörg ár
æðstitemplar og síðan umboðs-
maður í stúkunni Framfij*- nr. 6,
en síðustu árin var hann heiðurs-
félagi. Veit ég að sá félagsskapur
var honum kær.
Garðbúar misstu mikið er þau
hjónin Ingibjörg og Jón fluttu til
Reykjavíkur fyrir nokkrum árum.
Auk starfa sinna að bindind-
ismálum hér í Garðinum, söng Jón
árum saman í kirkjukór Otskála-
kirkju og var í sóknarnefnd.
Ógleymanlegar eru þær stundir
er Jón lék á harmonikkuna sína á
skemmtifundum í stúkunni og
einnig minnast margir hans með
nikkuna á jólatrésskemmtunum
og varð þá ekki séð hvor aðilinn
skemmti sér betur, Jón eða börnin,
því að með börnum og unglingum
naut hann sín vel.
Fyrir allt það sem Jón Eiríksson
vann byggðarlagi sinu verður
aldrei fullþakkað. En minningin
um kæran vin og bjarta brosið
hans mun lifa í hugum þeirra er
voru svo lánsamir að fá að starfa
með honum.
Við þökkum Jóni allar samveru-
stundirnar og biðjum honum Guðs
blessunar.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
35
Eiginkonu hans og öllum ástvin-
um sendum við okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur.
I trú, von og kærleika,
Marta G. Halldórsdóttir
Óðum fækkar í aldamótastofni
sem setti svip sinn á byggðarlagið
okkar í Garði. Jón Guðlaugur
Kristinn Eiríksson, eins og hann
hét fullu nafni, var fæddur 25.
október 1902 í Garðhúsum í
Gerðahreppi, sonur hjónanna Ei-
ríks Guðlaugssonar, útvegsbónda
þar og Guðrúnar Bjarnadóttur.
Þau fluttust að Meiðastöðum í
Garði í kringum 1920. Meiðastaða-
bræður, eins og þeir voru kallaðir,
Sumarliði, Guðlaugur og Jón, voru
miklir athafnamenn bæði til sjós
og lands og miklir söngmenn. Og
þótt brauðstritið eigi að ganga
fyrir þá létu þeir bræður sig ekki
vanta þegar þurfti að syngja í
Útskálakirkju, enda vantaði mikið
þegar raddir þeirra vantaði.
Jón fór ungur að spila á harm-
oniku á dansleikjum. Hann fór
suður í Hafnir, inn á Vatnsleysu-
strönd, Sandgerði, Keflavík og
Garð. Það vantaði ekki herra eða
dömur þegar Jón á Meiðastöðum
spilaði fyrir dansi.
7. desember 1928 giftist Jón
unnustu sinni, Mörtu Jónsdóttur
frá Einholti í Biskupstungum.
Marta var fædd 16. nóvember
1902. Þau Marta og Jón áttu þrjár
dætur og einn son, myndarbörn
sem öll eru á lífi. Þann3. febrúar
1948 deyr Marta kona Jóns, öllum
harmdauði.
Þann 4. júní 1954 giftist Jón aft-
ur, Ingibjörgu Ingólfsdóttur frá
Fjósatungu í Hálshreppi í S-Þing.
Hún er fædd 10. mars 1912 og lifir
hún mann sinn.
Jón gerði út vélbátinn Hákon
Eyjólfsson frá Sandgerði í nokkur
ár með Guðlaugi bróður sínum.
Síðan var hann kaupfélagsstjóri
Ingólfs í Sandgerði frá 1947 til
1953, stundaði fiskkaup og fisk-
verkun á Meiðastöðum frá 1953 til
1972. Hann var í skólanefnd
Gerðaskóla og hann var sýslu-
nefndarmaður frá 1954 til 1970,
gjaldkeri Búnaðarfélags Gerða-
hrepps frá 1937 til 1972. Jón var
lengi æðstitemplar stúkunnar
Framfarar í Garði og umboðsmað-
ur eftir það tii ársins 1974. Hann
var mörg ár í sóknarnefnd
Útskálakirkju og þar kynntist ég
undirritaður Jóni best. Eg minnist
þess með hlýhug og þakklæti, þeg-
ar sóknarnefndin samþykkti að
stækka fordyri kirkjunnar og
koma þar fyrir hreinlætisaðstöðu
með vísi að skrúðhúsi og geymslu
fyrir graftól. Það er trú mín að sá
sem öllu ræður þakki Jóni best.
Ég votta eiginkonu og börnum
Jóns mína dýpstu samúð.
Njáll Benediktsson
Nýtt tölublað
af Hár og fegurð
ÚT ER komið 4. tbl., 3. árg. af tíma-
ritinu Hár & fegurð.
Mikið er að gerast í hártísku-
heiminum, meðal annars komnar
fram hárgreiðslur frá Kim Carl-
ton international, sem starfar í
Oxford Street, framúrstefnuklipp-
ingar frá Irvine Rusk, sem starfar
í Glasgow, gömlu klassísku klipp-
ingarnar frá Andrew Lockyer. Þá
er í blaðinu grein eftir Símon
ívarsson um Flamenco-músik.
Kynntar eru nýjar herralínur frá
Hár & fegurð og meistarafélagi
hárskera og nýjar tískulinur frá
STUHR í Danmörku. Grein er um
skíði og þjálfun eftir Hannes
Kristjánsson. „Intercoiffure vinn-
ur úr síðu hári.“ Grein er um
stílhreinar línur frá Bruno í París.
Þá segir, að allsráðandi virðist í
herralínunni strípur og perman-
ent.
Fatnaður sýningarfólks, sem
myndir eru af, var valinn í sam-
ræmi við herralínuna, en hann var
fenginn að láni úr eftirtöldum
verslunum: Flónni, Kjallaranum
og Tískuhúsi Stellu.
Forsíðan er frá STUHR í Dan-
mörku, sérstaklega gerð fyrir Hár
& fegurð.
IGNIS
-UMBODIÐ
Nytsamar
jótagjafir
í úrvali
Ódýr
en
fyrsta
flokks
tæki
□ kæliskápar 12 stæröir
□ frystikistur 7 stæröir
□ frystiskápar 4 stærðir
□ eldavélar
□ þvottavélar
□ ryksugur 3 geröir
□ rakatæki 3 gerðir
□ kaffikönnur 8 gerðir
□ kaffikvarnir
□ brauðristar 7 gerðir
□ djúpsteikingapottar 2 gerðir
□ hraðgrill
□ eggjasjóðarar
□ vöfflujárn 2 gerðir
□ handhrærivélar
□ hrærivélar
□ hitabakkar 3 gerðir
□ rafmagnspönnur
□ rafmagnsdósahnífar
□ pelahitarar
□ rafmagnshitapokar
□ grillofnar 2 gerðir
□ örbyljuofnar
□ rafmagnshnífar
□ rjómasprautur
□ rafmagns-áleggshnífar
□ gas-lóðkveikisett
□ straujárn 3 gerðir
□ gufustraujárn 2 gerðir
□ hárblásarar
□ krullujárn
□ krulluburstar
□ krulluburstar m/gufu
□ kælibox fyrir 12 volt
□ rafmagnsofnar
□ olíuofnar m/rafkveikingu
□ hitaplötur ein og tvær
□ rakvélar 3 gerðir
□ hleðslutæki f. rafhlöður
□ rafhlöður allar tegundir
□ ryk- og vatnssugur
□ handryksuguburstar
□ ferðabarir 2 stærðir
□ Bamix — töfrasprotinn
IGNIS-UMBOÐIÐ
Rafiðjan sf.
Ármúla 8 — (sama hús og Bláskógar). Sími 19294.
PállLindal
INGDLFUR
AHELLU
Umhverfi
og ævistarf
• •
Ondvegisrit
• í bókinni er sagt frá því hvernig Viöreisnarstjórnin starfaöi af manni, sem sat í
stjórninni allan valdatíma hennar.
• Ingólfur segir frá kynnum sínum af Ólafi Thors, Bjarna Benediktssyni, Jóhanni
Hafstein, Gunnari Thoroddsen, Geir Hallgrímssyni og mörgum öörum.
• Hvaö segir Ingólfur á Hellu um deilurnar milli Gunnars og Geirs og deilur sjálfstæö-
ismanna í Suöurlandskjördæmi?
• Ævisaga Ingólfs á Hellu er öndvegisrit, sem á erindi til allra áhugamanna um
stjórnmál og sögu, fróðleiksnáma um stjórnmálabaráttuna á íslandi síöustu áratugi.
Barónsstíg 18,
sími: 18830.