Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 40
TIL DAGLEGRA NOTA
Clá/a tfflice
JÓLAPAKKANN
HANS
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Landssöfnun Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar:
Á sjöttu
milljón
hefur
safnast
„ÞETTA hefur gengið vonum
framar og nú þegar hefur
safnast nokkuð á sjöttu millj-
ón króna,“ sagði Sigurjón
Heiðarsson hjá Hjálparstofn-
un kirkjunnar f samtali við
blaðamann Morgunblaðsins,
um söfnunina til bágstaddra
í Eþíópíu og víöar.
„Fólk hefur tekið þessari söfnun
afar vel,“ sagði Sigurjón ennfrem-
ur, „og á morgun, fimmtudag, og á
Þorláksmessu, munum við verða
með talsverð umsvif á lokaspretti
söfnunarinnar. Fólk verður til
dæmis í söfnunarbílum við stór-
verslanir og að einhverju leyti
verður skipulögð ganga í hús og á
ýmsum stöðum verður unnið
skipulega að því að taka á móti
söfnunarfénu."
Sem fyrr segir verður því fé sem
safnast varið tH að hjálpa bág-
stöddum í Eþíópíu, en einnig renn-
ur hluti fjárins til þróunarverk-
efnis í Suður-Súdan og til aðstoð-
ar við fólk hér innanlands.
handa
hungruöum
heimi
■
Vetrarsól á Þingvöllum í gær
Agætu jólaveðri spáð
Vetrarsólstöður eru í dag og er
því morgundagurinn agnarögn
Íengri en dagurinn í dag.
Sólin skín á okkur í dag, að
minnsta kosti þá sem búa á
sunnan- og vestanverðu landinu.
Norðanlands og austan er snjó-
koma eða éljagangur. Það veður
mun haldast því sem næst
óbreytt fram á jóladag, bjart og
fagurt veður verður a Suður- og
Vesturlandi í dag og á morgun en
á aðfangadag fer að nálgast lægð
SV úr hafi og þá verður hæg og
breytileg átt víðast um landið.
Það verður heldur aðgerðarlítið
veður, að sögn Braga Jónssonar,
veðurfræðings á Veðurstofunni,
Á jóladag nálgast lægðin enn og
þegar líður á daginn má búast
við vaxandi sunnan og suðvestan
átt með snjókomu fyrst, en hún
gæti breyst í slyddu og síðan
jafnvel rigningu er fram í sækir.
Um eiginlegan jólasnjó verður
því ekki að ræða á morgun eða
aðfangadag fyrir íbúa þéttbýl-
ustu svæða landsins — hann
kemur vart fyrr en á jóladag þótt
áhöld séu um hvort hans verður
notið í björtu og fögru veðri, eins
og verið hefur á SV-landi undan-
farna daga.
Hallgrfmskirkjugripirnir fundust f íbúð við Laugaveg:
Níu manns í fíkniefna-
vímu er ráðist var inn
Kannsóknarlögreglumenn réðust
í fyrrakvöld til inngöngu í íbúð á
Laugaveginum. Þá voru níu manns í
íbúðinni, átta ungir menn og kona.
Allt var fólkið undir áhrifum fíkni-
efna. Lögreglumenn fíkniefnadeild-
ar lögreglunnar í Reykjavík voru
kallaðir til og í íbúðinni fundust
dagar
til jóla
fíkniefni, um 100 grömm af hassi.
Fólkið var fært til yfirheyrslu vcgna
gruns um aðild að þjófnaðinum og
skemmdarverkunum í Hallgríms-
kirkju.
Sex manns var sleppt úr haldi, en
þremur haldið eftir. Liðlega tvítug-
ur maður var í gær úrskurðaður í
þriggja mánaða gæzluvarðhald í
Sakadómi Reykjavíkur. Hann hefur
játað á sig verknaðinn og við yfir-
heyrslu benti hann á þýfið og
fannst það við leit í fyrrinótt í ann-
arri íbúð í Reykjavík. Maðurinn á
að baki langan afbrotaferil og var
fallist á gæzluvarðhald í þrjá mán-
uði vegna síbrota mannsins.
Krafa var gerð um gæzluvarð-
hald yfir 25 ára gömlum manni til
4. janúar vegna gruns um aðild að
þjófnaðinum, en dómari tók sér
frest til þess að kveða upp úrskurð.
Þá voru tveir menn úrskurðaðir í
gæzluvarðhald í sakadómi í ávana-
og fíkniefnamálum í gærkvöldi í
tengslum við þetta mál. Annar
þeirra var tekinn á Laugaveginum
þegar lögregla réðst inn í íbúðina
og þurfti að koma manninum undir
læknishendur í gær þar sem hann
var illa haldinn vegna fíkniefna-
neyslu. Hinn maðurinn var hand-
tekinn í gær og í fórum hans fund-
ust fíkniefni.
Að sögn Arnars Guðmundssonar,
deildarstjóra hjá RLR, þá bárust
rannsóknarlögreglunni margar
ábendingar vegna málsins. Hann
sagði mikið starf lægi að baki af
hálfu RLR. 1 framhaldi af því hefði
var farið inn í fbúðina á Laugaveg-
inum og málið verið upplýst.
Sjá fréttina „Kærkomin jólagjör* og
myndir á miðopnu.
Ýmsar tækninýjungar
í nýju símstöðinni í Grensási:
Beinir hringing-
um í annað tiltekið
númer ef óskað er
„Það er verið að Ijúka við síðustu prófanir þessa dagana og sannast sagna
veit ég ekki hvort þeim lýkur núna rétt fyrir eða eftir jól,“ sagði Jón A.
Skúlason, póst- og símamálastjóri, er blm. Morgunblaðsins innti hann eftir
því hvað liði uppsetningu nýju símstöðvarinnar í Grensási.
Eins og skýrt hefur verið frá
verða tekin 3.000 6-stafa númer í
notkun innan skamms. Símanúm-
erum á höfuðborgarsvæðinu fjölg-
ar þó ekki nema um 1.000, þar sem
2.000 númer af gömlu stöðinni
verða lögð niður. Um 1.100 hundr-
uð manns bíða eftir síma í höfuð-
borginni, þannig að nýju númerin
bæta úr brýnni þörf.
Að sögn Jóns er hin nýja stöð
búin ýmsum kostum, sem til þessa
hafa verið óþekktir í símstöðvum
hérlendis. T.d. er hægt að ganga
þannig frá hnútunum, að síminn
hringi sjálfvirkt á fyrirfram
ákveðnum tíma og vekji fólk. Þá er
einnig hægt að láta flytja síma-
númer sitt yfir á annað númer. Er
þetta sérlega hentugt ef viðkom-
andi á von á símtali, en getur af
einhverjum ástæðum ekki verið
heimavið. Færast þá allar hring-
ingar sjálfvirkt á það númer, sem
viðkomandi hefur gefið upp.
Á Stór-Reykjavíkursvæðinu eru
nú 58.400 númer og eru þá ekki
talin þau 1.000, sem bætast við
með nýju stöðinni í Grensási. Ein-
hverjir kunna að lenda í erfiðleik-
um með að finna nöfn handhafa
nýju símanúmeranna og sagði Jón,
að almenningur yrði að hafa bið-
lund þar til ný símaskrá kæmi út.
Þangað til yrðu menn að leita upp-
lýsinga um nýju númerin með
hefðbundnum hætti, þ.e. hjá upp-
lýsingaþjónustu landsímans um ný
og breytt símanúmer.
12. rússneska
hlustunarduflið
Hlustunarduflið, sem fannst
skammt sunnan við Þórshöfn í Lóna-
firði á mánudaginn, er af sömu teg-
und og ellefu önnur dufl, sem fund-
ist hafa hér við land á undanrörnum
áratug, að sögn Berents Th. Sveins-
sonar, loftskeytamanns hjá Land-
helgisgæslunni.
„Það hefur enginn viðurkennt
eign sína á þessum duflum, en við
teljum þau vera rússnesk," sagði
Berent í samtali við blm. Mbl.,
„enda er á þeim rússnesk áletrun.
Það er haldið, að þetta sé hluti af
hlustunarkerfi neðansjávar, ekki
óáþekku t.d. svokölluðu SOSUS-
kerfi Bandaríkjamanna, sem þó er
aðeins neðansjávarstrengur án
dufla. Þetta er greinilega hlustun-
ardufl, hliðar þess eru alsettar
hljóðnemum til að fylgjast með
skipaferðum ofansjávar og neðan."
Berent sagði að í duflunum væri
10 millimetra stál, þannig að dufl-
in þyldu mikið dýpi. Þau hefðu þó
þann lyftikraft, að þau sykkju ekki
til botns. Hann sagði að menn
vissu ekki fyrir víst hvers vegna
duflin ræki á land, enda hefði eng-
inn, svo vitað væri til, séð aðra
hluta þessa kerfis en sjálf duflin.
Þórshafnarbúar skoða rússneska duflið í gær MorgunblaSið/ Þorkell Guðfinnsson
45 milljónir í skaðabætur
UNGUM íslenskum sjómanni hafa
verið dæmdar hálf önnur milljón
bandaríkjadala — eða jafnvirði um
45 milljón íslenskra króna — í
skaðabætur vegna slyss, sem hann
varð fyrir í Bandaríkjunum fyrr á
þessu ári. Skaðabæturnar voru
dæmdar í undirrétti og er enn óljóst
hvort dómnum verður áfrýjað af
hálfu þolanda.
Sjómaðurinn ungi missti fram-
an af hendi þegar hann var við
vinnu. Samkvæmt bandarískum
lögum fær lögmaður hans ytra
þriðjung bótaupphæðarinnar, eða
sem svarar um 15 milljónum ís-
lenskra króna.
Hvorki sjómaðurinn né lögmað-
ur tryggingafélags hans hérlendis
vildu í gær tjá sig um málið.