Morgunblaðið - 28.12.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1983
15
listrænum. Það er betra að vera
Stuðmaður en að vera á ríkis-
styrk. Enda er ég ekki viss um að
það væri vel séð að sex fullfrískir
karlmenn lægju uppá ríkinu með
tóman glennuskap. Það er víst
sagt um okkur stundum að við
séum bara tónlistarlegar mellur.
Öllu má nú nafn gefa. Tökum
bara aðra verslun, það er enginn
eðlismunur þar á. Ragnar í
Smára framleiddi smjörlíki og
setti peningana í kúnst. Við
framleiðum líka kúnst. Rokk og
ról er listform okkar kynslóðar.
Blessaður vertu, ég vil ekki sjá að
gera neitt annað í dag en að vera
Stuðmaður. Þetta er miklu meira
en bara rokk hjá okkur. Lífið er
meira en bara hrossabjúgu."
Finnst þér gaman að vera fræg-
ur?
„Það er nú dagamunur á
frægðinni, skal ég segja þér. Og
sannast sagna er ég feginn að
vera ekki mjög þekkt andlit — ég
er bara þannig í framan — eftir
að hafa komist í gegnum fyrsta
hégómakastið. Það er nefnilega
tvíbent að vera frægur. Það er til
dæmis athyglisvert að ganga í
gegnum miðbæinn með honum
Agli Ólafssyni. Það brakar svo
svakalega í hálsliðum þegar við
förum framhjá, að það er stund-
um eins og hurðalamir í drauga-
legum bíómyndum ..."
Gengilbeina kom að í þessum
svifum og ávarpaði Valgeir: „Er-
uð þið nokkuð á hvítum sendi-
ferðabíl hérna fyrir utan?“
Hann varð forviða á svip eitt
augnablik, svo kom glettnislegur
glampi í augun: „Nei, því miður.
Ekki núna.“
Gengilbeinan sneri sér annað
en Valgeir að blm.: „Sjáðu, ekki
er ég nú frægari en þetta hér.
Það hefði aldrei hvarflað að
þessari konu að spyrja hana
Bryndísi Schram hvort hún væri
á hvítum sendiferðabíl!"
Hvernig gengur að samræma
fjölskyldulíf og stuðmennsku?
„Svona og svona. Auðvitað
bitnar þetta á fjölskyldunum,
fjarverurnar og næturvinnan. Ég
hef oft velt því fyrir mér hvað
veldur þessari áráttu að vilja
stöðugt vera að fara upp á svið
og standa í sviðsljósinu. Ékki eru
það peningarnir, svo mikið get ég
sagt þér, því þetta er í hæsta
máta ótrygg atvinna. Þetta hlýt-
ur bara að vera svona gaman ...
og ég get ekki farið fram á meira
en að finnast vinnan vera það
skemmtilegasta, sem ég get
hugsað mér.“
skemmtikraftar. Hefur þú reynt
að skilgreina Stuðmenn?
„Ég held að Stuðmenn verði
ekkert skilgreindir nema með því
að setja bandstrik á milli orðanna
„stuð“ og „menn“. Annars er ég
ekkert viss um að það sé ástæða til
að skilgreina þá. Jakob Magnús-
son sagði einhverntíma að Stuð-
menn væru skemmtikraftar í
orðsins fyllstu merkingu, það
beinlínis geislaði af þeim
skemmtikrafturinn. Ég held að
það sé mikið til í því.“
Það er með Illuga Jökulsson,
skrásetjara Stuðmannabókarinn-
ar, eins og fleiri blaðamenn, þeim
fer illa að sitja hinum megin við
borðið og svara kollegum sínum.
Hann játaði enda, að sér þætti
staðan vond. En um hvað vildi
hann þá tala sjálfur?
„Æ, ég veit það svo sem ekki.
Stuðmenn tala fyrir sig sjálfir og
bókin fyrir sig. En ég ætti kannski
að nota tækifærið, fyrst það gefst,
og koma á framfæri einni sagn-
fræðilegri leiðréttingu. í kaflan-
um um Ásgeir Óskarsson, tromm-
ara, er vikið að því að á Rifsberja-
árunum hafi hann hlustað mikið á
hljómsveitina Black Sabbath.
Ásgeir þvertekur fyrir að hafa
hlustað á Black Sabbath og unir
illa að liggja undir grun um slíkt.
Á þessum árum hlustaði hann á
Led Zeppelin, sem að sjálfsögðu er
allt annar hlutur."
Flugeldasala
VALS
í Valsheimilinu
að Hlíðarenda
Valsmenn! Kaupiö flugeldana hjá okkur.
Fjölskyldupokar meö afslætti.
o
Aöeins vióurkenndar vörur. Knatt,pymudeíld Va„
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
HAPPDRÆTTI
HÁSKÖLA ÍSLANDS
happ í hálfa öld
VINNINGASKRÁ
9 @
9 -
207 -
2.682 -
21.735 -
109.908 -
1.000.000
200.000
100.000
20.000
4.000
2.500
9.000.000
1.800.000
20.700.000
53.640.000
86.940.000
274.770.000
134.550
450
aukav. 15.000
446.850.000
6.750.000
135.000
453.600.000
I Happdrætti Háskóla íslands eru dregnir
út samtals 135.000 vinningar. Allir þessir vinningar
eru greiddir út í beinhörðum peningum, sem hver
vinningshafi getur ráðstafað að eigin vild: í húsa-
kaup, hnattferð, hest eða hraðbát - allt eftir því hver
ósk þín er. Og enginn er skatturinn.
K^omdu við hjá umboðsmanninum og
kannaðu möguleikana.
] öad sfgtr þfr engtnn L L \ |y uIjVJIIV Jrij^V 1j1 iVJllii i HVAÐ ÞU ATT AÐ
GERA VIÐ VINNINGINN,
IAFNVEL
EKKI SKATTURINN